Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988 Pólland: Kirkjan ræðst harka- lega að stíórnvöldum Varsjá. ~~~~~ Reuter. RÓMVERSK-KAÞÓLSKA kirkj- an í Póllandi hefur sakað stjórn- völd um koma í veg fyrir frekari viðrœður við Samstöðu, óháðu verkalýðshreyfinguna í Póllandi. Þetta er talin harðasta árás kirkjunnar á stjórnvöld i Póll- andi í mörg ár. í óvenju harðorðri yfirlýsingu frá rómversk-kaþólsku kirkjunni segir að stjómvöld hafi komið í veg fyrir „hringborðsumræður" stjómvalda og hinnar bönnuðu verkalýðshreyf- ingar um framtíð Póllands og gert vonir manna um samkomulag að engu. „Miklar vonir vom bundnar við að hringborðsumræðumar myndu leysa stjómmálalegan ágreining deiluaðilanna. Kirkjan og ýmsir þjóðfélagshópar studdu þær tilraunir sem gerðar voru til efla innanlandsfrið," sagði í yfirlýsing- unni. í yfirlýsingunni sem Bronislaw Dabrowski, ritari pólska biskupa- ráðsins, undirritaði, em stjómvöld fordæmd fyrir að reka áróður í rikisfjölmiðlunum gegn mannrétt- indum, einkum réttindum verka- lýðsfélaga, sem varð til þess að „rétt andrúmsloft myndaðist ekki í Söluskattur samþykkt- ur í iapanska þinsrinu TAtrfA Tókíó. Reuter. TÍU ára baráttu Fijálslynda lýð- ræðisfiokksins, stjórnarflokksins í Japan, fyrir því að koma á sölu- skattskerfi i landinu lauk f gær er samþykkt var að leggja 3% söluskatt á allar vörur og þjón- ustu. Jafiiframt þessu var tekju- skattur lækkaður. Þetta er fyrsta vemlega breyting á skattalögum landsins í fjóra ára- tugi. Helsti stjómarandstöðuflokk- urinn í neðri deildinni, Sósíalista- flokkurinn, hefur neitað að taka þátt í atkvæðagreiðslu um málið til að fá því framgengt að þrír menn, sem viðriðnir hafa verið hneyksli varðandi hlutabréfaviðskipti, yrðu kallaði fyrir rannsóknamefndir þingsins en nokkrir stjómmálaleið- togar em flæktir í málið. Malamiðl- unarlausn fannst loks og létu sósíal- istar þá af andstöðu sinni. Skattabreytingin tekur gildi 1. Drottmng beð- in afsökunar London. Reuter. BRESKA dagblaðið Sun bað Elísabetu Englandsdrottningu afsökunar í stórri fyrirsögn á forsiðu blaðsins í gær. Tilefni afsökunarbeiðninnar er mynd úr fjölskyldualbúmi drottningarinn- ar sem blaðið birti i siðasta mán- uði í leyfisleysi. Auk þess að biðjast afsökunar verður blaðið að greiða 100.000 pund, tæpar 8.3 milljónir ísl. króna, til góðgerðasamtaka í Bretlandi. Blaðið komst að samkomulagi við lögfræðinga drottningarinnar, sem höfðu hafið málsókn vegna brots á höfundarrétti. Myndin sem um ræðir sýnir her- togaynjuna af Jórvík, Englands- drottningu og drottningarmóður beygja sig yfir vöggu þar sem yngsta bamabam Englandsdrottn- ingar, Beatrice prinsessa, liggur. Talsmenn drottningar sögðu að fjölskylduvinur hefði tekið myndina og hefði hann ekki veitt leyfi til að birta hana blaðinu. apríl á næsta ári. Noboru Takeshita forsætisráðherra segir söluskattinn nauðsynlegan til að að vinna bug á gífurlegum fjárlagahalla sem á þessu ári svarar til 25 milljarða doll- ara (1.150 milljarða ísl.kr.). viðræðunum". Stjómvöld eru einnig fordæmd fyrir að virða ekki sam- komulag sitt við kirkjuna þess efnis að námuverkamönnum sem fóm í verkfall í ágúst síðastliðnum yrði ekki refsað. Þá er sú ákvörðun stjómvalda að loka Lenín-skipa- smíðastöðinni í Gdansk, þar sem Samstaða var stofnuð árið 1980, harðlega fordæmt. Pólska kirkjan átti mikinn þátt í því að koma á viðræðum milli stjómvalda og Samstöðu. En talið er að kirkjunnar menn hafi dregið sig í hlé eftir fund Jaruzelskis, þá- verandi leiðtoga pólska Kommún- istaflokksins, og Jozefs Glemps, yfirmanns pólsku kirkjunnar í októ- ber síðastliðnum. Að sögn kaþól- skra heimildarmanna neitaði Jamz- elski að stöðva áróðursherferðina, endurráða námuverkamennina og viðurkenna verkalýðssamtökin Samstöðu. Stjómmálaskýrendur segja að þetta sé harðasta árás pólsku kirkj- unnar á stjómvöld frá því árið 1984 þegar pólska leynilögreglan myrti prestinn Jerzy Popieluszko. Reuter Palestínsk börn á vesturbakka Jórdanár, sem ísraelar hersitja, syngja og fagna stofnun Palestínu-ríkisins í gær. í baksýn sést fáni Palestínumanna. Flest arabaríki viðurkenna hið nýja ríki Palestínumanna Bandaríkin andvíg einhliða ákvörðunum um íramtíð hemumdu svæðanna og Sovétmenn hafa ekki viðurkennt ríkið Nikósíu, Moskvu, Algeirsborg. Reuter. Daily FÉLAGAR f Þjóðarráði Palestinu, sem luku ráðstefiiu sinni í Al- geirsborg með þvf að lýsa yfir stofiiun sjálfstæðs ríkis Palestínu- manna, segjast leggja áherslu á hófsemi og friðarstefnu en jafii- framt, að fari svo að ísraelar hafiii öllum samningaumleitunum geti afleiðingamar orðið ófyrir- sjáanlegar. Yasser Arafat, leið- togi Fatah-skæruliðasamtakanna og jafiiframt Frelsissamtaka Pa- lestinumanna, PLO, og Georges Habash sem er leiðtogi hinnar róttæku skæruliðahreyfingar PLFP og einn helsti andstæðing- Telegraph. ur Arafats innan PLO, héldu fréttamannafund eftir ráðstefii- una og kom þá ágreiningur rót- tækra og hófsamra afla innan PLO um stefhuna gagnvart ísrael skýrt í ljós. Rúmlega 20 ríki hafa nú viðurkennt hið nýja ríki Pa- lestínumanna sem að likindum mun gera tilkall til hernumdu svæðanna í ísrael, aðallega ara- baríki. „í stjómmálayfirlýsingu okkar kemur fram hófsemi, sveigjanleiki og raunsæi en þetta eru eiginleikar sem Vesturveldin hafa hvatt okkur til að sýna ... Verði okkur vísað á bug getur guð einn séð afleiðingam- ar fyrir,“ sagði Arafat. „Ég get hve- nær sem er farið á fund Þjóðarráðs- ins og sagt fulltrúum þess að hóf- semd okkar hafí ekki verið endur- goldin," bætti hann við. Habash sagði: „Sú skoðun er almenn innan raða PLO að hófsemdarstefna sé heillavænlegri en tryggð við gmnd- vallarreglur. Við segjum hófsemd- arsinnum að reyna þetta. Við emm sannfærðir um að tilraunir þeirra beri ekki árangur og þá verður beitt öðmm aðferðum.“ Arafat sagði að nú væri það undir ísraelum og Bandaríkjamönnum komið hvemig George Bush: Fjárlagahallinn brýn- asta úrlausnarefnið Washington. Reuter. GEORGE Bush, er tekur við for- setambætti í Bandaríkjunum i janúar, boðar ýmsar breytingar er ríkisstjórn hans tekur við. Enda þótt margt verði að vísu Christie’s í New York: „Stúlka með mandó- lín“ gekk ekki út New York. Reuter. VERK spænska málarans Pab- los Picassos, „Stúlka með man- dólín“, seldist ekki þegar hún var boðin upp í gær, degi eftir að annað verk málarans, „Móð- urást“, seldist fyrir metupphæð, tæplega 25 milljónir dala (rúm- lega 11 hundruð millj. ísl. kr.). Talið var, að umrætt verk, sem er eitt af 36 sporöskjulaga mál- verkum Picassos í kúbískum stfl, seldist á um það bil 10 milljónir dollara, sem einnig var talið líklegt söluverð „Móðurástar", að sögn talsmanns Christie’s-uppboðsfyrir- tækisins. „Stúlka með mandólín" er frá 1910. Þegar ljóst varð, að hún mundi ekki ganga út, dró heldur úr boðum í aðrar myndir. Meðal verka, sem ekki seldust á þessu uppboði, var ein mynd eftir Henri Matisse, tvær eftir Alberto Giaco- metti, ein eftir Salvador Dali, önn- ur Picasso-mynd og ein mynd eftir Joan Miro. svipað segist hann munu marka sína eigin stefiiu. Hann hefiir nú tilkynnt nöfii tveggja væntan- legra ráðherra, James Bakers, er verður utanríkisráðherra, en hann sat í stjórn Reagans, og Nicholas Bradys, sitjandi Qár- málaráðherra, er mun gegn því embætti áfram. Bush segir Qár- lagahalla ríkisins mikilvægasta vandamálið framundan. Bush sagði að Brady yrði aðal- talsmaður nýju stjómarinnar í efna- hagsmálum. Hann sagði útnefningu Bradys ekki standa í beinu sam- bandi við óróleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum að undanfömu en viðurkenndi þó að hann vænti þess að hún myndi lægja öldumar. Sagði hann Brady gera sér grein fyrir því hve mikilvægt væri að við- halda hagvexti og lítilli verðbólgu ásamt því að vinna gegn vemdar- tollastefnu og skattahækkunum. Einnig vissi hann að ná yrði sam- komulagi sem fyrst við þingið um leiðir til að ráða niðurlögum fjár- lagahallans. Brady er andvígur því að láta gengi dollarans falla í sam- ræmi við lögmál markaðarins og hefur stutt stjómvaldsaðgerðir til að styrkja það. Hagfræðingurinn Martin Feld- stein við Harvard-háskóla hefur nýlega haldið því fram að markaðs- öflin myndu þrýsta dollaragenginu niður um 20 - 30% á næstu þrem ámm og væri þetta nauðsynlegt til að vinna bug á fjárlagahallanum og styrkja bandarískan útflutning. Feldstein hefur stundum verið einn af efnahagsmálaráðgjöfum Bush og ollu því ummæli hans nokkru íra- fári en hann hefur ekki viljað taka þau aftur. „Ég er ekki að segja að grípa ætti til ráðstafana til að lækka gengi dollarans heldur að markaðs- öflin muni sjá um að lækka geng- ið,“ sagði Feldstein við fréttamenn. Talsmaður bandaríska seðlabank- ans, Wayne Angell, hefur gagnrýnt þá skoðun Feldsteins að dollarinn ætti að lækka svo mjög að hann verði jafnvirði 100 japanskra jena. Angell segir gengi dollarans „hæfí- lega hátt." miðaði í deilum arabaþjóða og ísra- ela. Þjóðarráðið samþykkti með yfir- gnæfandi meirihluta ályktun SÞ nr. 242 frá 1967 og fleiri ályktanir þar sem kveðið er á um tilvistairétt allra rílqa í Mið-Austurlöndum. Ákvörðun Þjóðarráðsins hefur verið túlkuð sem óbein viðurkenning á ísrael en orða- lag yfirlýsinga SÞ er afar óljóst. Þjóðarráðið segir jafnframt að beita beri „friðsamlegum aðferðum" til að tryggja rétt Palestínumanna og segja hófsamir Þjóðarráðsmenn að þar með hafi ráðið lýst andstöðu við hryðjuverk; Bandaríkjastjóm hefur sett slíka yfírlýsingu ásamt ótví- ræðri viðurkenningu á ísrael sem skilyrði fyrir því að PLO verði viður- kennd sem samtök allra Palestínu- manna. Bandaríkjamenn segja að þýðingarlaust sé fyrir Palestínu- menn að lýsa einhliða yfir stofnun sjálfstæðs ríkis, semja verði um málið. Yasser Arafat sagði aðspurður að yrði krafa Palestínumanna um al- þjóðlega ráðstefnu til að leysa deil- umar í Mið-Austurlöndum samþykkt þá myndi það koma fram á slíkri ráðstefnu hvort Palestínumenn við- urkenndu ísrael umbúðalaust. Ha- bash sagði á hinn bóginn að því færi fjarri að samþykkt ályktunar SÞ jafngilti fullkominni og endan- legri viðurkenpingu á ísrael. Talsmaður Sovétstjómarinnar, Gennadíj Gerasimov, sagði frétta- mönnum á þriðjudag að stjóm hans hefði ekki borist beiðni um viður- kenningu á nýja ríkinu. í gær sagði hann að Sovétmenn væru hlynntir yfirlýsingunni um ríkisstofnun og samþykktir Þjóðarráðsins í Algeirs- borg væru mikilvæg skref í átt til samkomulags í Mið-Austurlöndum. Sýrlendingar sögðu í gær að þeir styddu hið nýja rki en vömðu við þvi að tilslakanir myndu aðeins for- herða ísraela enn frekar. Alls hafa meira en tveir tugir ríkja nú viðurkennt Palestínu, þ.á m. NATO-ríkið Tyrkland sem / hefur stjómmálasamband við Ísraeí. ísra- elsstjóm mótmælti ákvörðun Tyrkja í gær. 1 Egyptar, sem einnig hafa stjóm- málasamband við ísrael, hafa enn ekki viðurkennt Palestínuríkið nýja formlega en segjast styðja málstað Þjóðarráðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.