Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988 .
23
Fjöruarfaflekkur í sandiorpnu hrauni eyjarinnar.
Litlu risarnir, þvottavél og þurrkari,
fyrir fjölbýlishús og vinnustaði
uð yfir 10 tonn af lífrænum plöntu-
vef miðað við þurrefni.
Aðstæður á Surtsey eru óblíðar,
og lífverur eiga þar erfitt uppdrátt-
ar. Eitt er að geta borist lifandi til
eyjarinnar, en annað að ná að
þrauka við erfíð kjör og vegna vel
sem landnema. Aðeins þeim allra
harðgerðustu og hæfustu tekst að
hjara. Fyrir plöntur er þar að vísu
nóg landrými og lítil innbyrðis bar-
átta um vaxtarstæði, en á eynni
er bagalegur vatnsskortur endaþótt
mikið rigni. Regnvatnið hripar ört
niður í gegnum hraunið, og sandinn
og móbergshelluna. Ekkert ferskt
vatn er að fá á Surtsey nema í ör-
litlum hraunskálum eftir rigningar.
Þá var vaxtarsvæðið heldur nær-
ingarsnautt frá upphafi. Að vísu
hafa nú sjófuglar borið drit á viss
svæði þannig að plöntum er þar séð
fyrir köfnunarefni en á vikurkeilun-
um er yfirborðið svo óhagstætt að
þar vex engin planta. Víða er
brennisteinn til óþæginda og salt-
löðrið drífur yfír svæðið öðru hvoru.
Vindur feykir ertandi sandi til og
frá og öldurótið brýtur af berginu.
Ekki er því heiglum hent að búa á
Surtsey. Þeir frumheijar, sem þrátt
fyrir slæmar aðstæður hafa náð að
þroskast, gera landið lífvænlegra
og aðrar tegundir eiga smám saman
eftir að nema land í kjölfar þeirra.
Að lokum myndast þama væntan-
lega blómlegt gróðursamfélag.
Fuglar
Þegar hafa fímm tegundir fugla
sest að á Surtsey og verpa þar nú
að staðaldri. Fýll, rita og teista
hafa tekið sér bólfestu í bjarginu
en svartbakur og silfurmávur gera
sér hreiður uppi á hraunflákunum.
Fjöldi annarra fugla hafa viðkomu
í Surtsey. Spörfuglar em jafnvel
famir að finna sér þar æti og em
þar stundum langdvölum, svo sem
steindeplar. Þessir fuglar hafa haft
veruleg áhrif á umhverfíð og aðrar
lífvemr á eynni. Þeir hafa stuðlað
að flutningi plantna til eyjarinnar
Loftljósmynd af Surtsey.
og aukið fijósemi jarðvegs með
driti og fiskúrgangi, sem þeir bera
upp í varpstöðvar en þeir hafa einn-
ig tekið sinn toll af framleiðslunni,
reitt upp plöntur og jafnvel eyðilagt
landnámstilraun plöntutegunda.
Hinsvegar hafa þessir fuglar nú
þegar nokkum hag af gróðri eyjar-
innar, velja sér þar hreiðurstæði og
njóta skjóls af gróðrinum.
Með rannsóknum á Surtsey hefur
verið unnt að fylgjast með fyrstu
þáttum í uppbyggingu lífríkis, sem
enn er mjög frumstætt og stutt á
veg komið í þróun.
Á þessum tíma hefur eyjan mót-
ast mikið af vindi og vatni. Þar
má segja, að æskublærinn sé að
hverfa af Surtsey og eyjan sé að
verða myndugur þegn í Vestmanna-
eyjahópnum.
Höfundur er náttúrufræðingur
við Rannsóknastofh un landbúnað-
arins.
SUNDABORG 1 S. 6885 88 -6885 89
ORBYLGJUOFNAR
7GERÐIR
Eigum fyrirliggjandi örbylgjuofna
í úrvali, bæði frá
SANYO OG HUSQVARNA
8.500.
Q\
stgr.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 - Sími 680780.
JIÍtrgMmMfiffoifo
Metsölublað á hverjum degi!
BRIMBORG HF. SKEIFUNNI 15 SÍMI: 685870