Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
Samband íslenskra kaupskipaútgerða:
Furðu lýst á yfirlýsingum
Guðmundar Hallvarðssonar
STJÓRN Sambands íslenskra kaupskipaútgerða lýsir fúrðu og van-
þóknun sinni á yfirlýsingum Guðmundar Hallvarðssonar, formanns
Sjómannafélags Reykjavíkur, um málefiii Skipafélagsins Víkur hf.,
segir í fréttatilkynningu frá stjórninni. Guðmundur hafi hótað að
stéttarfélag hans muni ganga í berhögg við Iandslög og stöðva losun
og lestun erlendra skipa hérlendis, eftir því hver kunni að vera eig-
andi þeirra. Hann hafi „eyrnamekt" erlend skip í eigu íslenskra
aðila sem sérverkefhi stéttarfélags hans til stöðvunar en virðist telja
eðlilegt að slík skip í eigu útlendinga fái að losa og lesta hérlendis
án afskipta Sjómannafélags Reykjavíkur.
í fréttatilkynningunni segir einn-
ig meðal annars: Stjóm SÍK fær
ekki annað séð en með slíkum hót-
unum gangi Sjómannafélag
Reykjavíkur fram fyrir skjöldu í að
veija hagsmuni erlendra skipaeig-
enda á kostnað íslenskra. Eigandi
Víkur hf. hefur staðfest að skipafé-
lagi hans verði ekki forðað frá hruni
nema að rekstrarskilyrði skipa út-
gerðarinnar séu sambærileg við
önnur skip sem stunda siglingar á
sömu mörkuðum og Víkur hf. Skip
Víkur hf. hafa að mestu verið í sigl-
ingum á alþjóðamörkuðum þar sem
launakostnaður áhafna er allt frá
20% til 50% af iaunakostnaði
íslenskra kaupskipa í leigusigling-
um sem Víkur hf. hefur fyrst og
fremst stundað.
Innan kaupskipaútgerðar á sér
nú stað gjörbylting á skráningum
og rekstrarfyrirkomulagi skipa.
Nágrannaþjóðir okkar, s.s. Danir
og Norðmenn hafa stofnað alþjóða-
skráningar kaupskipa þar sem þjóð-
emi áhafnar er í vali útgerða. Skip
þessara þjóða hafa allflest fært sig
undan hefðbundinni þjóðskráningu
undir alþjóðaskráningar. í Dan-
mörku vom 80% danska kaupskipa-
flotans umskráð til nýju dönsku
alþjóðaskráningarinnar í fyrstu vik-
unni sem hún starfaði í byijun sept-
ember síðastliðnum.
Stjómvöld í Danmörku og Noregi
hafa staðfest að þessar nýju al-
þjóðaskráningar hafi verið eini val-
kosturinn sem gat forðað því að
skip þessara þjóða yrðu seld úr landi
með tilheyrandi tekjutapi hins opin-
bera og töpuðum atvinnutækifær-
um farmanna og starfsmanna út-
gerðanna í landi. Færeyingar hafa
nú einnig leyft erlenda skipveija á
skipum sínum, jafnvel þótt þau séu
undir færeyskum fána. Einu skil-
yrðin sem Færeyingar setja um
þjóðemi áhafnar em að skipstjórar
og yfirvélstjórar séu færeyskir
ríkisborgarar. Flestar þjóðir Norð-
ur-Evrópu undirbúa nú alþjóða-
skráningar hliðstæðar við þær sem
hleypt hefur verið af stokkunum í
Noregi og Danmörku.
Það er ljóst að íslensk kaupskip
munu innan tíðar lenda í miklu
ríkari mæli en hingað til í beinni
samkeppni við erlend skip sem búa
við allt annan rekstrargmndvöll en
hér tíðkast. SÍK hefur ítrekað lýst
sig reiðubúið til að eiga viðræður
við stéttarfélög farmanna um
hvemig best verði bmgðist við fyrr-
nefndri ógnun.
Steinar Jóhannsson
Lýsingarhátt-
ur nútíðar
Ný ljóðabók eftir
Steinar Jóhannsson
ÚT ER komin Ijóðabókin Lýsing-
arháttur nútíðar eftir Steinar
Jóhannsson. Þetta er fyrsta bók
höfundar, sem er 21 árs gamall
sálfræðinemi.
Bókin er 64 síður að stærð og
gefin út af Skákprenti. Mynd-
skreytingar em eftir Nínu Magnús-
dóttur og kápu bókar hannaði Andri
Lindbergs.
Alþjóðlegur
Halló-dagur:
Heilsaðu
tíu manns
„ALÞJÓÐLEGI Halló-dagurinn“
(World Hello Day) er á mánudag,
21. nóvember. Þátttaka felst í
því að kasta kveðju á tíu manns.
Dagurinn hefúr verið haldinn
árlega frá 1973. Tilgangurinn er
sá að hvetja leiðtoga þjóða heims-
ins til að notast við tjáskipti en
ekki valdbeitingu við úrlausn
deilumála.
Tveir bandarískir bræður, Mic-
hael og Brian McCormack, eiga veg
og vanda af útbreiðslu Halló-dags-
ins, sem nú mun haldinn f 136 þjóð-
löndum. Michael fékk hugmyndina
og gekkst fyrir fyrsta deginum í
framhaldi af Yom Kippur-stríði
Israelsmanna og arabaríkja, haus-
tið 1973.
I tilkynningu frá samtökum
McCormack-bræðra segir að 91
þjóðarleiðtogi, 19 handhafar friðar-
verðlauna Nóbels og fjöldi þekktra
einstaklinga hafi skrifað bræðmn-
um bréf og lýst því áliti að þessi
leið sé til þess fallin að varðveita
frið í heiminum.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Félag sjálfstæðismanna í
Langholti - aðalfundur
Aöalfundur félagsins veröur haldinn
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20.30 í
Valhöll, Háaleitisbraut 1. Gestur fundarins
veröur Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins.
Dagskrá:
1. Venjulega aðalfundarstörf.
2. Raeða, Styrmir Gunnarsson: „Sjálfstæðis-
flokkurinn - stjórnarslitin - framtíðin".
3. Almennar umræður.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið - kaffiveitingar.
Stjórnin.
Almennur stjórnmálafundur
Akureyri
Almennur stjómmálafundur verður haldinn mánudaginn 21. nóvember
kl. 20.30 í Kaupangi á Akureyri. Málshefjendur verða alþingismennim-
ir Þorsteinn Pálsson, Ragnhildur Helgadóttir og Tómas Ingi Olrich
menntaskólakennari. Fundarstjóri Jón Már Héðinsson.
Allir velkomnir.
Almennur stjórnmálafundur
Patreksfirði
Almennur stjómmálafundur verður haldinn sunnudaginn 20. nóvember
kl. 16.00 í félagsheimili Patreksfjarðar. Málshefjendur verða alþingis-
mennirnir Geir H. Haarde, Eyjólfur Konráð Jónsson og Einar Kristinn
Guðfinnsson útgerðarstjóri. Allir velkomnir.
Almennur stjórnmálafundur
Breiðdalsvík
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn laugardaginn 19. nóv-
ember kl. 21.00 á Hótel Bláfelli, Breiödalsvik. Málshefjendur verða
alþingismennirnir Halldór Blöndal, Egill Jónsson og Kristinn Péturs-
son. Alir velkomnir.
Mosfellsbær - Mosfellsbær
Sameinumst til nýrrar sóknar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn
í Hlégarði þriðjudaginn 22. nóvember nk.
kl. 21.00. Hinn baráttuglaði sjálfstæöis-
maður Davíð Oddsson borgarstjóri mætir
á fundinn og heldur framsöguræðu um
stjórnmálaástandið i dag. Sjálfstæðismenn
snúum vörn i sókn og mætum á fund með
Davíð. Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Mosfellinga.
■ m
Almennur stjórnmálafundur
ísafirði
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn laugardaginn 19. nóv-
ember kl. 15.00 á Hótel Isafirði. Málshefjendur verða alþingismenn-
irnir Geir H. Haarde, Eyjólfur Konráð Jónsson og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson. Allir velkomnir.
Djúpivogur
Stjórnmálabarátta á
tímamótum
Almennur stjórnmálafundur
Blönduósi
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn sunnudaginn 20. nóvember
kl. 16.00 i Sjálfstaeöishúsinu á Blönduósi. Málshefjendur verða al-
þingismennimir Matthías Á. Mathiesen og Pálmi Jónsson.
Allir velkomnir.
Almennur stjórnmálafundur
Höfn íHornafirði
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn föstudaginn 18. nóvember
kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu Höfn. Málshefjendur verða alþingismenn-
imir Halldór Blöndal, Egill Jónsson og Kristinn Pétursson.
Allir velkomnir.
Alþingismennirnir Egill Jónsson, Halldór Blöndal og Kristinn Péturs-
son verða til viðtals i Hótel Framtíð kl. 13.00-14.00, laugardaginn
19. þ.m.
Stjórnin.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðuriandskjördæmi.
Kjördæmisráð Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurlandskjör-
dæmi boöar til op-
ins almenns fundar
í félagsheimilinu á
Kirkjubæjarklaustri
fimmtudagskvöldið
17. nóv. kl. 21.00.
Ræöumenn eru al-
þingismennirnir
Halldór Blöndal og
Egill Jónsson. Að loknum framsöguræðum verða umræður.
Fjölmenniö á fundinn. Skiptist á skoðunUm.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!