Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
Skylmingaatriði úr Hamlet-sýningunni.
et. Hvaða gróða gat Kládíus haft
af morðinu hafi hann ekki þegar
verið búinn að ná ástum drottning-
ar? Engan, því Hamlet yngri stóð
líklega næstur til krúnunnar, þ.e.
hefði hann átt sér málsvara við hirð-
ina, sjálfur var hann, þegar dauða
konungs ber að, enn fjarstaddur við
nám á Wittenbergi. Sá málsvari
hefði einmitt átt að vera móðir hans
ef allt hefði verið með felldu. Haml-
et gengur jafnvel svo langt að gruna
móður sína um að vera samseka í
morðinu á föður sínum. Því hann
segir við móður sína eftir að hafa
drepið Pólóníus í svefnherbergi
drottningar.
Drottning: Æ hvílíkt flas! ó, blóð-
ugt voðaverk!
Hamlet: Næstum eins blóðugt
og sá dauðadans að drepa kóng
og giftast bróður hans.
Drottning: Að drepa kóng?
Hamlet: Já frú, ég sagði svo.
Þessu svarar hún engu. Er furða
þó Hamlet sé haldinn torttyggni
gagnvart tryggð kvenna sem bein-
ist síðan að Ofelíu? Okkar skilning-
ur var að tilfmningar hans til þess-
ara tveggja kvenna lituðust hvor
af annarri. Því hann elskar líka
móður sína. Þrátt fyrir allt sem hún
hefur gert honum. Þetta undirstrik-
um við með því að Ófelía er upp-
dubbuð af drottningunni þegar þau
mætast í hallargöngunum. Drottn-
ingin málar hana jafnvel á sviðinu.
Enn segir þú að það komi ekki yfir
til áhorfenda í sýningunni hjá okkur
að Hamlet verður var við njósnar-
ana bak við skerminn meðan sam-
tal hans og Ófelíu fer fram. Það
fínnst mér leiðinlegt en líka mjög
skrítið. Ófelía hleypur að skermin-
um nánast eins og til að leita sér
hjálpar. Þá skilur prinsinn að það
er legið á hleri, dregur sverð úr
slíðrum nálgast skerminn og segir:
„Hvar er faðir þinn? „etta héldum
við að væri alveg gullskírt.
E) Síðast talar þú um kirkjugarðs-
atriðið. Þú saknar sáran setningar-
innar
Hamlet: Þetta er Laertes, besti
drengur.
„Þessi yfirlýsing Hamlets er
mjög mikilvæg vegna þess sem á
eftir fer segir þú. Og áfram. „Þess-
ari mikilvægu setningu er sleppt í
leikgerð LR og Hamlet er hreinlega
látinn ráðast á Laertes í gröfinni
allt í einu og umsvifalaust. Hamlet
á ekkert sökótt við Laertes en virð-
ir hann mikils eins og fyrmefnd
setning sýnir. Laertes ber hins veg-
ar þungan hug eðlilega til Haml-
ets.“ Við getum verið sammála um
það að Hamlet stekkur í gröfina
þar sem Laertes er fyrir. Eg get
ekki betur séð en Hamlet segi sjálf-
ur að hann hafí átt upptökin af
átökunum í gröfinni. Hann segir
við Hóras rétt fyrir lokaeinvígið við
Laertes:
Hamlet: En það er mér til
hryggðar, kæri Hóras, að hafa
gleymt mér gagnvart Laertesi því
mér er sem ég sjái í mínum vanda
svip af hans raun; hans vinsemd
vil ég ná; en tilgerðin i sorg hans
hóf mig hæst á ofsans öldu-kamb.
Hamlet missir gersamlega stjóm
á sér þegar hann uppgötvar að
Ófelía er ekki aðeins dáin, heldur
sér hann á útfararsiðunum að hún
hefur framið sjálfsmorð, og síðan
„tilgerð" Laertesar í sorg sinni. Það
eru ekki lítil leikræn tilþrif að
stökkva í gröf ástvinar síns. Haml-
et hættir lífí sínu þegar hann ræðst
á Laertes í gröfínni. Hann er útlæg-
ur úr Danmörku. Og þama hleypur
hann beint í kjaft ljónsins, þar sem
kóngurinn er viðstaddur. Gerir hann
þetta bara til að votta Laertesi sam-
úð sína? Ég held ekki.
Að lokum. Ég þakka þér aftur
fyrir skemmtilega grein og spenn-
andi hugmjmdir í kringum leiksýn-
ingu og leikrit þar sem þú veist
hvað þú ert að tala um. Mér fínnst
greinin þín skólabókardæmi um það
hvemig væri hægt að óska sér að
leikgagnrýni væri skrifuð.
Höfundur er leikstjóri.
ÞETTA ER HÚN...
„Dásamlegur
dugnaðarforkur! "
SIEMENS MK 4450 hrærivélin er engin venjuleg „hrærivél".
Hún hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, hakkar og
sker - bæði fljótt og vel.
Að hætti vestur-þýskra framleiðenda er hún einkar vel
hönnuð. Létt, lipur, hljóðlát og kröftug. Jafnauðveldlega og
að skipta um gír á vestur-þýskum sportbíl, skiptir þú henni úr
hakkavél í hrærivél og í grænmetiskvörn upp í blandara.
Hún^r draumaverkfæri í eldhúsinu. Fáðu þér (-eða
gefðu ) fjölhæfan dugnaðarfork í eldhúsið.
9.650,- krónur er heldur ekki mikið verð fyrir þennan líka
bráðlaglega dugnaðarfork. (tarlegur leiðarvísirog uppskrifta-
hefti á íslensku fylgja með.
j SMITH&NORLAND
- NÓATÚNI 4 • Sími 28300
IKEa
LÍFSSTÍLL
KULLEN SÓFI svart leöur kr. 49.700.-
BORG SÓFABORÐ......... kr. 6.100,-
TALUS STÓLL svart leöur kr. 9.670,-
mæ' mk
BVL BEi JnHk
Húsi verslunarinnar. Kringlunni 7,
108 Reykjavík. Sími 686650