Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
Minning:
Þórarínn B. Nielsen
fv. bankafulltrúi
Fæddur 28. desember 1891
Dáinn 9. nóvember 1988
í dag fer fram útför Þórarins
Benedikts Nielsen, frá Fossvogs-
kirkju.
Að morgni dags, miðvikudaginn
9. nóvember síðastliðinn, andaðist
í sjúkradeild Hrafnistu í Reykjavík
Þórarinn Benedikt Nielsen banka-
fulltrúi í ísjandsbanka hf. og Út-
vegsbanka íslands hf., tæplega 97
-— ára gamall.
Þórarinn Benedikt fæddist á
Seyðisfirði 28. desember 1891. For-
eldrar hans voru Jónína Jónsdóttir,
ættuð úr Grjótaþorpinu í Reykjavík,
frá Guðbrandarbæ, og Níls Órum
Nielsen, ættaður frá Jótlandi í Dan-
mörku.
Til íslands fluttist hann ungur
og hóf verzlunarstörf í Papós og
síðar á Seyðisfirði, en þar festi hann
rætur og átti þar heimili og vinnu-
stað til framtíðar. Þijá syni eignuð-
ust þau hjón, Nils kaupmann, Þór-
arinn Benedikt bankafulltrúa og
Axel verzlunarmann. Eru þeir allir
látnir. Ættingjar Nils og Axels eru
búsettir í Reykjavík. Þórarinn Bene-
dikt var ókvæntur og bamlaus.
Að bamaskólanámi loknu í
heimabyggð lagði Þórarinn land
undir fót og aflaði sér frekara náms
í Verzlunarskóla íslands, og lauk
þaðan fullnaðarprófi vorið 1914.
Eftir það hvarf Þórarinn aftur heim
til Seyðisíjarðar og réðst til starfa
í þjónustu íslandsbanka þar í bæ,
þann 1. júlí 1914, á upphafsári fyrri
heimsstyrjaldar.
í þá tíð vom starfsmenn útibús-
ins aðeins þrír, Eyjólfur Jónsson,
útibússtjóri, afi núverandi banka-
stjóra Útvegsbanka Islands hf.,
Guðmundar Haukssonar, Gunn-
laugur Jónasson, gjaldkeri, sem enn
lifir í hárri elli, eftirlaunaþegi á 94.
aldursári, búsettur á Seyðisfirði, og
Þórarinn er nú varð bókari útibús-
ins._
A þeim tíma var vinnutíminn alla
virka daga vikunnar frá klukkan
10 að morgni til klukkan 2 síðdeg-
is, og aftur opnað klukkan 4 síðdeg-
is og unnið sleitulaust til klukkan
sjö og stundum lengur, einkum til
þess að þjóna utanbæjarmönnum,
er komu hvaðanæva frá Austfjörð-
um. En þá var engin bankastofnun
önnur á Austfjörðum, eða frá Akur-
eyri til Vestmannaeyja.
Fyrstu handbrögð Þórarins vom
í upphafi fyrsta vinnudags, að bók-
færa úttekt úr sparisjóðshöfuðbók
bankans í bók viðskiptavinarins,
undir leiðsögn útibússtjórans. Þeg-
ar því var lokið, spurði hann for-
viða: Er þessari afgreiðslu lokið?
Já, þetta er allur galdurinn, sagði
útibússtjórinn.
A hverju ári kom einn af banka-
stjómm Islandsbanka í eftirlitsferð
í útibú bankans, sem þá vom fjög-
ur. Að sumarlagi 1918 færði banka-
stjóri, er þá var í eftirlitsferð á
Seyðisfirði, í tal við Þórarinn Niel-
sen, hvort hann hefði hug á að
koma til starfa í aðalbankanum í
Reykjavík, og ef svo væri, þyrfti
hann að senda skriflega umsókn til
aðalbankans. Eftir nokkra um-
hugsun ákvað Þórarinn að skipta
um vinnustað og sótti um vinnu í
aðalbankanum í Reykjavík. Þar með
lauk endanlegri dvöl og starfsferli
Þórarins Nielsen í fæðingar- og
heimabyggð hans, á Seyðisfirði.
Þann 1. nóvember 1918, við lok
fyrri heimsstyrjaldar, fyrir 70 ámm,
hóf Þórarinn almenn bankastörf í
Islandsbanka í Reykjavík og þjón-
aði þeim banka og Útvegsbanka
íslands hf. frá stofnun 12. apríl
1930 til ársloka 1956, en þá var
hann orðinn 65 ára gamall og var
frá þeim tíma eftirlaunaþegi.
Þórarinn minntist þess oft í
spjalli við okkur yngri starfsfélaga
sína, að fyrstu og minnisstæðustu
starfsfélagar hans í Reykjavík urðu
Einar E. Kvaran aðalbókari, Krist-
ján Jónsson aðalgjaldkeri og Hjálm-
ar Bjamason bankaritari.
En á löngum starfsferli varð
vinahópurinn fjölmennur og sam-
staðan einlæg. Þórarinn Nielsen
ávann sér traust og vináttu starfs-
félaga sinna. Hann var vel gerður
til orðs og æðis, hjálpfús og vildi
veg félaga sinna greiða til gæfu
og velgengni.
Hann tók þegar í upphafi virkan
þátt í félagsstörfum bankamanna,
sem fyrst vom stofnuð í íslands-
banka 20. desember 1924. Tilgang-
ur þess félags var m.a. að efla sam-
úð og samvinnu meðal starfsmanna
Islandsbanka, auka þekkingu
starfsmanna í bankamálum og
sinna skemmtiþáttum í tómstund-
um.
Þórarinn Nielsen tók mikinn og
virkan þátt í félagsmálum Starfs-
mannafélags Útvegsbankans og
heildarsamtaka bankamanna. Hann
var m.a. formaður Starfsmannafé-
lags Útvegsbankans í 3 ár, með-
stjómandi og í varastjóm í 8 ár og
starfaði að margþættum verkefnum
til hagsbóta stéttinni.
Þórarinn Nielsen átti langan og
litríkan starfsdag í íslandsbanka
og Útvegsbanka íslands. Hann
minntist þess í viðtali í Bankablað-
inu, að þegar íslandsbanka var lok-
að 1930, hafi ýmsir starfsmenn
bankans litið í kringum sig eftir
öðru starfi. Sjálfur sagðist Þórarinn
hafa beðið rólegur eftir endanlegri
ákvörðun, án þess að hugleiða störf
á öðmm vettvangi. Enda kom á
daginn að hann átti eftir að starfa
áfram í bankanum í rúman aldar-
fjórðung. Þórarinn Nielsen var lengi
yfirmaður veðdeildar bankans og
leysti þau störf af hendi af stakri
trúmennsku, dyggð og samvisku-
semi.
Hann eignaðist marga vini og
trygga í röðum viðskiptamanna
bankans, og einkum meðal útvegs-
manna í Hafnarfirði og á Suðurnesj-
um, er þáðu úr hans hendi holl og
góð ráð.
Með Þórami og fyrrverandi
bankastjóra, síðar forseta íslands,
Ásgeiri Ásgeirssyni, var mikil vin-
átta, meðan dagar beggja vom á
lofti, sönn vinátta og gagnkvæmt
traust. Eftir að Þórarinn Nielsen
hætti störfum í Útvegsbanka ís-
lands, fyrir aldurssakir, hélt hann
daglegu sambandi við stofnunina
og starfsfólk bankans, meðan ferils-
vist leyfði honum fótaburð. Hann
var um mörg ár daglegur þátttak-
andi í mötuneyti bankans. Hann var
góður gestur í hópi yngri starfs-
félaga, gjaman var rætt um dægur-
máj og litið í dagblöð.
Á Hrafnistu naut hann hlýju og
góðrar aðhlynningar á efri dögum.
Bróðurdóttir hans, Jónína Nielsen,
framkvæmdastjóri vistdeildar, lét
sér einkar annt um frænda sinn og
annaðist hann af stakri kostgæfni,
alúð og kærleika allt til hinstu
stundar.
Þórarinn Nielsen var einn af
stofnendum Húsfélagsins Austur-
brún 2, og átti þar íbúð frá árinu
1962, en áður var hann leiguliði á
ýmsum stöðum < borginni, m.a. hjá
syni fyrrum sýslumanns Austfirð-
inga, Axels Túliníus, Carli Túliníus
og lengi í félagsíbúð við Snorra-
braut.
Þórarinn Nielsen var drengur
góður, öllum velviljaður, einarður
og hreinskilinn, einlægur félagi,
sem á í hug og hjörtum okkar sam-
ferðamanna hans, óskiptar þakkir
fyrir fagrar og ógleymanlegar
minningar, er varðveittar verða
meðan ævidagar endast.
Blessuð sé minning góðs vinar.
Adolf Björnsson
t
Systir mín,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR CROSIER,
lést 15. nóvember á Rhode Island.
Ólafia Pálsdóttir.
t
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR KARITAS GÍSLADÓTTIR
fyrrum húsfreyja í Ytra-Skógarnesi
i Miklaholtshreppi,
andaðist 15. nóvember á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Börnin.
t
Eiginmaður minn.
EMILÞ. JÓNSSON
bifreiðastjóri,
Skúlagötu 70,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. nóvember
kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda.
Inga Edith Karlsdóttir.
t
Konan mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÍÐUR ODDGEIRSDÓTTIR VESTMANN,
Álfhólsvegi 4,
Kópavogl,
sem andaðist laugardaginn 12. nóvember, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju föstudaginn 18. nóvember kl. 13.30.
Danfel Vestmann,
Lilja D. Vestmann, Svavar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Jarðarför móður okkar,
BRYNDÍSAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
Melhaga 3,
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 18. nóvember kl. 13.30.
Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu eru beðnir að láta Minningar-
sjóði Fríkirkjunnar eða líknarstofnanir njóta þess.
Þórarinn Árnason,
Ragnheiður Árnadóttir Ingibjörg Árnadóttir.
t
Eiginmaður minn,
JÓNAS GUNNAR JÓHANNESSON,
Lerkigrund 2,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju, föstudaginn, 18. nóvember
kl. 14.00.
Fyrir hönd barna okkar, foreldra, systkina og annarra vanda-
manna,
Rosa Jones.
t
Móðir okkar,
JÓNA GUNNLAUG INGIMARSDÓTTIR,
Dyngjuvegi 10,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. nóvember
kl. 10.30 f.h. Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Karl Davíðsson,
Ásgeir Sverrisson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNlNA SALVÖR HELGADÓTTIR,
andaðist á Öldrunar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli 15. nóvember.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna,
Ernst Fridolf Backman.
t
Vinur minn,
HALLDÓR BENJAMÍN SÆMUNDSSON,
andaðist að heimili sínu, Brú við Suðurgötu, 14. þessa máneöar.
Sigrfður Knútsen,
EinarTr. Einarsson.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóöir og amma,
MAGNEA STEFANÍA GUÐLAUGSDÓTTIR,
Hnotubergi 31,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði föstudaginn 18.
nóvember kl. 15.00.
Halldór Jónsson,
Þóra Harðardóttir, Kristján Kristjánsson,
Eyvör Halldórsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Marteinn Kristjánsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúðarkveðjur og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar og móður,
RAGNHILDAR STEINUNNAR MARÍUSDÓTTUR,
Heiðarhvammi 1,
Keflavfk.
Sérstakar þakkir til laekna og hjúkrunarfólks deildar 11-E, Land-
spítalanum, fyrir góöá aðhlynningu. Fyrir hönd vandamanna,
Jón Þór Harðarson,
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
litlu dóttur okkar, systur, dótturdóttur og sonardóttur,
HALLDÓRU BJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
Anna Friðþjófsdóttir,
Guðbjörg Þórðardóttir,
Jórunn Einarsdóttir,
Guðbjörg Einarsdóttir,
Þóröur Hailgrfmsson,
Berglind Þórðardóttir,
Friðþjófur Másson,
Hallgrfmur Þórðarsson.