Morgunblaðið - 17.11.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
45
Leiðsögubók
um New York
LEIÐSÖGURIT Fjölva um New
York er komið út og er það
fimmta bókin í flokki leiðsögu-
rita. Hinar voru um Kaupmanna-
höfii, Amsterdam, París og Lon-
don. Jónas Kristjánsson ritstjóri
semur bækurnar en kona hans,
Kristín Halidórsdóttir alþingis-
maður, tekur litmyndir sem birt-
ast með.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„New York — nafli alheimsins nefn-
ist nýja bókin. Hún er 94 blaðsíður
með um 150 litljósmyndum. Fyrir-
komulag er líkt og á fyrri bókunum,
hún skiptist niður í kafla um hótel,
veitingahús, skemmtanir, sönghall-
ir, listasöfn og verslanir. Þá koma
lýsingar ákveðinna hverfa (t.d.
listamannahverfið Greenwich) og
loks er farið í 8 gönguferðir (þyrlu-
ferðir og bátsferðir) hingað og
þangað um borgina og nágrennið,
t.d. út í frelsisstyttuna, en annars
Krístín Halldórsdóttir og Jónas
Kristjánsson.
lýst öllum merkisstöðum og fræg-
um byggingum. í bókinni er einnig
að finna margvíslegar almennar
upplýsingar og borgarkort, þar sem
merktir eru inn allir merkisstaðir
og fyrirtæki, sem koma við sögu.“
í fréttatilkynningu segir að tvö
af leiðsöguritunum — um London
og Kaupmannahöfn — hafi verið
með öllu uppseld um skeið. Ný
Lundúnabók er komin út og Kaup-
mannahafnarbók er væntanleg,
endurbætt og stækkuð.
Nýjar teikni-
myndasögur
IÐUNN hefur gefið út teikni-
myndasöguna Ógnir í undirdjúp-
um eftir Renaud, Vernal og Duf-
aux. Þetta er fyrsta bókin í nýj-
um flokki um Háskaþrennuna.
í kynningu forlagsins á bókinni
segir meðal annars: „Fólskuleg árás
er gerð á aðsetur fiskimanna á
smáey í Karabíska hafinu. Þar
kemst innfædd stúlka með naum-
indum undan erlendum hryðju-
verkamönnum. Þeir sækjast eftir
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
korti sem hún hefur undir höndum,
svo að hún er áfram í mikilli hættu.
Hvaða leyndardóm geymir kortið
og hverjir eiga þama hagsmuna að
gæta?“
Bjami Fr. Karlsson þýddi bókina.
ÞAÐ ER ALVEG SAMA HVE OFT ÞÚ OPNAR
OSBY KÆLISKÁPANA FRÁ JOHAN RÖNNING,
NO FROST TURBO KERFIÐ SVIPTIR ÞEIM Á
RÉTT KULDASTIG Á SVIPSTUNDÚ!
Osby Turbo kælikerfin eru með því besta sem
fyrirfinnst á markaðinum enda eru sænsku Osby
frysti- og kæliskáparnir þekktir fyrir hina svo-
kölluðu NO FROST TURBO kælingu sem á sér
fáa líka. Þegar hurðin hefur verið opin á kæli-
skápnum eru venjulegir skápar lengi að ná réttu
stigi aftur. Þetta ervandamál þarsem kæliskápur-
'inn er opnaður oft á dag t.d. hjá barnmörgum fjöl-
skyldum.
NO FROST TURBO kælikerfið í Osby skápunum
sér við þessum vanda. Viftan efst í frysti- eða
kæliskápnum sér um að halda jöfnu kælistigi í
skápnum. Þar að auki stendur sjálfvirkur affrysti-
búnaður í vegi fyrir klakamyndun. Ef hurð á Osby
kæli- eða frystiskáp hefur staðið opin, tekur
aðeins þriðjung þess tíma sem áður tók að ná upp
réttu kælistigi. Þrátt fyrir allt þetta helst rafmagns-
eyðsla í lágmarki.
sby Turbo KNF 305-170 I.
elirými og 135 I. frystirými.
Osby Turbo
NF 305-305 I. frystirými.
Osby Turbo FNF 2101-211 I.
frystirými, en aðeins
140 cm. hár.
/M* RONNING
heimilistæki
KRINGLUNNI8-12/103 REYKJAVlK/SlMI (91)685868
Nú er tækifærið til að eignast gott
telefaxtæki á góðu verði.
TELI telefaxbúnaðurinn er hágæða
tæki sem býður alla þá eiginleika sem
gott telefaxtæki þarf að hafa. Það
má nota það sem Ijósritunarvél, það
númerar allar blaðsíður, það er með
sjálfvirkan móttaka, það er hægt að
tengja við það laser prentara, það er
með tónvalssímsvara, prentgæðin
eru í hámarki, það er með aðgerðar-
möguleika á skjá, hægt er að tengja
það við venjulega PC tölvu, tækjun-
um fylgir góð viðhaldsþjónusta.
Auk þessa bjóða Teli telefaxtækin
upp á aðra möguleika sem eru þess
virði að kynna sér nánar.
Verð frá: 85.000.
Dugguvogi 2, sími 687570.