Morgunblaðið - 25.05.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
17
Leiksýningin, „Sjáið
manninn!“ í Keflavík
eftír Ólaf Odd
Jónsson
Þrír einþáttungar eftir dr. Jakob
Jónssn frá Hrauni verða sýndir í
Keflavíkurkirkju laugardaginn 27.
maí nk. kl. 20.30. Verkið var frum-
flutt á Kirlqulistahátíð 1989 í
Hallgrímskirkju á vegum Listavina-
félags Hallgrímskirkju.
Fyrsti einþáttungurinn nefnist
Þögnin, en í þeim þætti leikur Erl-
ingur Gíslason HeródeS Antipas,
ijórðungsstjóra í Galfleu. Leikurinn
gerist í Jerúsalem árið 33 í áheym-
arsal íjórðungsstjórans, þar sem
Jesja Ben-Jósef er ósýnilegur áhorf-
endum. Annar einþáttungurinn ber
heitið Krossinn. Þórunn Magnea
Magnúsdóttir leikur Júdít í leik-
þættinum og Anna Kristín Arn-
grímsdóttir Mirjam. Leikurinn ger-
ist í Júdeu að vori. Þriðji leikþáttur-
inn nefnist „Sjáið manninn!“, sem
er sýningarheiti einþáttunganna. í
þættinum leikur Þórunn Magnea
Magnúsdóttir Mirijam frá Magdala
og Hákon Waage leikur Pontíus
Pílatus. Leikurinn gerist árið 37,
seint að kvöldi.
Dóttursonur höfundar, Jakob S.
Jónsson, leikstýrði verkinu í fýrstu,
en nú hefur Ólöf Sverrisdóttir tekið
við leikstjóm, þar sem Jakob er
farinn utan. Tónlist er flutt af Mót-
ettukór Hallgrímskirkju undir
stjóm Harðar Askelssonar, organ-
ista.
Úthlutað úr
þjóðhátíðargjöf
Norðmanna
ÚTHLUTAE hefur verið úr sjóðn-
um Þjóðhátíðargjöf Norðmanna í
þrettánda skipti. Einni milljón og
sjötíuþúsund krónum var skipt
milli níu aðila. Þeir eru:
Nemendur úr 8. og 9. bekk
norskukennslu í grunnskólum lands-
ins; hópur, sem vinnur að málefnum
fatlaðra bama á forskólaaldri; út-
vegsdeild Tækniskóla íslands; kenn-
arar og skólastjóri Fiskvinnsluskól-
ans; Hrafnista, dvalarheimili aldraðra
sjómanna; utanríkisnefnd Sambands
ungra sjálfstæðismanna; kennarar á
Patreksfírði; Lyftingaráð Akureyrar
og grunnskólakennarar á Selfossi.
Sjóður þessi var stofnaður á ellefu-
hundruð ára afmæli íslandsbyggðar
árið 1974 með peningagjöf frá norska
stórþinginu. Vaxtatekjum skal veija
til að styrkja hópferðir íslendinga til
Noregs. Fyrst var úthlutað 1976. 28
umsóknir bárust sjóðnum að þessu
sinni.
Lyftihurðir
OPNA
ýmsa
möguleika
Það er mikill fengur að fá sýning-
una til Suðumesja og ástæða til að
hvetja Suðurnesjamenn að nýta sér
þetta einstaka tækifæri. Höfímdur-
inn, dr. Jakob Jónsson, sem var
lengst af prestur í Hailgrímskirkju
í Reykjavík og hefur skrifað mikið
um trúmál og menningarmál, er
boðinn velkominn til Suðurnesja
ásamt Listvinafélagi Hall-
grímskirkju, en formaður þess er
dr. Þór Jakobsson, sonur hans.
Höfundur er sóknarprestur í
Keflavík.
STÚDENTAFAGNAÐUR
Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík verður haldinn
föstudaginn 2. júní á HÓTEL ÍSLANDI og hefst kl. 19. Nýstúdentar og
allir afmælisárgangar eru velkomnir og hvattir til þess að fjölmenna.
Miðasala verður í anddyri Hótels íslands miðvikud. 31. maí og fimtud. 1. júní
kl. 16-19 báða dagana. Einnig verða miðar seldir í anddyri Háskólabíós
að lokinni útskrift nemenda, sem hefst kl. 14, fimtud. 1. júní.
Samkvæmisklæðnaður.
Stjórnin.
HÉÐSNN
Stórás 6 Sími 52000