Morgunblaðið - 25.05.1989, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
Alþingi:
Deilt um framtak
Byggðastofhunar
MIKLAR umræður urðu á síðustu fundum neðri deildar Alþingis um
Byggðastofnun og atvinnulíf á landsbyggðinni í kjölfar þeirra orða
Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra að stofnunin sýndi ekki
nógu mikið frumkvæði.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði í umræðu um
skýrslu Byggðastofnunar ríkisins
að hann teldi skorta á frumkvæði
af hálfu Byggðastofnunar, að því
er varðar stefnumörkun í byggðar-
málum.
Stefán Guðmundsson (F/Nlv)
gagnrýndi þessi ummæli
Steingríms. Kvaðst hann mótmæla
því að Byggðastofnun hefði ekki
sýnt neitt frumkvæði. Stofnunin
hefði tekið frumkvæði í ijölmörgum
málum; komið upp mörgum málum
og stutt önnur dyggilega.
Egill Jónsson (S/Al) sagði að
ríkisstjómin hefði verið stofnuð á
þeirri forsendu að hjól atvinnulífsins
tækju að snúast og hefði Steingrím-
ur Hermannsson látið hafa eftir sér
að hann yrði í „stöðugri varð-
stöðu". Egill gat þess að á forsíðu
málgagns forsætisráðherra, Tíman-
Nokkrirsýna
Regnbogan-
um áhuga
NOKKRIR aðilar hafa sýnt
áhuga á að kaupa húsnæðið, sem
kvikmyndahúsið Regnboginn er
I við Hverfisgötu. Sem kunnugt
er eignaðist Framkvæmdasjóður
íslands húsnæðið fyrir skömmu,
en það var hluti af greiðslu fyrir
Hótel Örk, sem Jón Ó. Ragnars-
son, veitingamaður, keypti af
sjóðnum.
Að sögn Guðmundar B. Ólafsson-
ar, framkvæmdastjóra Fram-
kvæmdasjóðs, standa nú yfír við-
ræður við þessa aðila um hugsanleg
kaup á húsnæðinu, og kvaðst hann
vongóður um að frá kaupum yrði
gengið á næstunni.
um, segði að kveðnir hefðu verið
upp dauðadómar yfír 20 fyrirtælq-
um og að á öðrum stað í sama blaði
segði að 40 fyrirtæki hyrfu af sjón-
arsviðinu eftir endurskipulagningu.
„Þetta er boðskapur Framsóknar-
flokksins og forsætisráðherra eftir
varðstöðuna."
Matthías Bjarnason (S/Vf)
kvaðst vera undrandi á ummælum
forsætisráðherra. Núverandi ríkis-
sljóm hefði skorið niður við trog
fjármuni til Byggðastofnunar og
reiddi stofnunin sig á erlend lán, á
sama tíma og sífellt fleiri atvinnu-
fyrirtækjum þyrfti að sinna. Matth-
ías taldi að í raun væri það ríkis-
stjómina sem skorti frumkvæði;
þyrfti hún að hafa hóf á erindum
sínum til þessarar stofnunar og
annarra, til þess að létta af sjálfri
sér.
Halldór Blöndal (S/Nle) kvaðst
í sjálfu sér geta verið sammála for-
sætisráðherra um að fmmkvæði
skorti fra' Byggðastofnun. Það væri
hins vegar ekkert undarlegt þegar
hann sjálfur hefði sett tvo sjóði
yfír stofnunina, atvinnutrygginga-
sjóð og hlutafjársjóð. í tengslum
við þessa umræðu spurði Halldór
forsætisráðherra hvað liði afgreiðsl-
um erinda til hlutafjársjóðs og við-
ræðum þess sjóðs við Fiskveiðasjóð
og Landsbankann.
í svari Steingríms kom fram að
31 aðili hefði sótt um aðstoð hluta-
Qársjóðs og hefðu 15-16 fyrirtæki
uppfyllt skilyrði sjóðsins. Kvað
Steingrímur sjóðinn vanta 2,5 millj-
arða til að geta aðstoðað þau fyrir-
tæki sem qóðurinn hefði lagt til
að yrðu aðstoðuð. Steingrímur
greindi frá því að nokkur af þessum
fyrirtækjum hefðu verið í meðferð
hjá bönkum og Fiskveiðasjóði. Við-
ræður væm hafnar við Fiskveiða-
sjóð um kaup á skírteinum sjóðsins,
en viðbrögð sjóðsins hefðu verið
neikvæð.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Frá fundi lögpreglu og Umferðarráðs með verktökum.
Lögregla og verktakar:
Reynt að bæta og sam-
ræma varúðarmerkiiigar
LÖGREGLAN efiidi á dögunum til fundar með verktökum gatnafram-
kvæmda í borginni og fulltrúum frá Umferðarráði til að samræma
og bæta frágang á varúðarmerkingum við gatnaframkvæmdir. Að
sögn Ómars Smára Ármannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns var til-
efiiið það að merkingum hefúr iðulega verið áfátt og hafa ökumenn
og vegfarendur margsinns snúið sér til lögreglunnar með kvartanir
vegna þess.
Ömar Smári sagði að verktaka-
fyrirtæki hefðu fram að þessu stað-
ið sig misvel við merkingar í kring-
um framkvæmdir. Frágangur
sumra hafí verið til fyrirmyndar
meðan aðrir hafi kastað til höndum.
Á fundi verktakanna og lögreglu
var farið hefði verið yfír gildandi
lög og reglur um merkingar svo og
önnur þau atriði sem talið var gagn-
ast mættu til að stuðla að auknu
öiyggi vegfarenda og starfmanna
verktakanna. í sumar hyggjast lög-
reglumenn fylgjast sérstaklega með
þessum þáttum og gera athuga-
semdir þar sem þess er talin þörf.
Morgunblaðið/Mike Fisher
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, ræðir við blaðamenn eftir að hafa snætt hádegisverð í boði
forráðamanna Long John Silver’s skyndibitakeðjunnar í Lexington í Kentucky-ríki.
Forseti Islands í höfuð-
stöðvum Long John Silver’s
Lexington. Frá Óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, sótti á þriðjudag heim
höfúðstöðvar skyndibitakeðjunnar Long Johns Silver’s í Lexing-
ton í Kentucky-ríki í Bandarikjunum.
Warren Rosenthal, stjómarfor-
maður fyrirtækisins, og forstjóri
þess, John Tobe, tóku á móti for-
setanum. Boðið var til síðbúins
hádegisverðar á skyndibitastað
Long John Silver’s og var íslensk-
ur fískur á boðstólunum. Long
John Silver’s er einn mikilvægasti
viðskiptavinur Coldwater Sea-
food, dótturfyrirtækis Sölumið-
stöðvar hraðfiystihúsanna en fyr-
irtækið rekur tæplega 1.500
skyndibitastaði í Bandaríkjunum.
Heimsókn forsetans til Lexing-
ton vakti athygli fjölmiðla og
spurðu blaðamenn forsetann um
ísland auk þess sem hvalveiðar
íslendinga bar á góma. Forsetinn
benti þeim á að íslendingar væru
fámenn þjóð og að það þjónaði
hagsmunum landsmanna að
stuðla að umhverfísvemd.
Landsþing Lands-
samtaka ITC á íslandi
FJÓRÐA landsþing Lands-
samtaka ITC á íslandi verður
haldið á Hótel Sögu í Reykjavík
dagana 26.-28. maí nk. Stef
þingsins er „Vegur til vel-
gengni“. Heiðursgestur Lands-
þingsins er Edna M. Chapman,
varaforseti vestursvæðis Al-
þjóðasamtaka ITC.
Hið árlega Landsþing ITC á
íslandi er nú haldið í 4. skipti.
Þingið er hápunktur starfsins og
jafnframt endapunkturinn á vetr-
arstarfínu. Meðal gesta á þinginu
em Guðrún Ágústsdóttir, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra,
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri,
Flosi Ólafsson og Lilja Margeirs-
dóttir.
Þingið verður sett kl. 20.00
föstudaginn 26. maí í Átthagasal.
Laugardaginn 27. maí kl. 10.00
hefst félagsmálahluti fundarins. Á
dagskrá verður m.a. kosning
stjómar fyrir næsta kjörtímabil.
Á meðan á þinginu stendur
verðúr boðið upp á margskonar
fræðslu og fyrirlestra, flutt af ITC-
félögum og gestum.
Laugardaginn 27. maí kl. 15.15
mun Wilhelm Norðijörð flytja fyr-
irlestur um „Mannleg samskipti/
ákveðni, þjálfun". Sunnudaginn
28. maí flytur Páll Skúlason próf-
essor fyrirlestur sem hann nefnir
„Hamingjuna". Edna M. Chap-
man, varaforseti vestursvæðis Al-
þjóðasamtaka ITC, svarar spum-
ingum um starfsemi Alþjóðasam-
takanna milli kl. 11 og 12 á sunnu-
deginum. Einnig mun aðilum ITC
gefast kostur á að taka próf í þing-
sköpum í umsjón Kristjönu Millu
Thorsteinsson.
ITC samtökin gefa fólki tæki-
færi til að búa sig undir aukinn
starfsframa og gera það hæfara
til samskipta heima fyrir, í við-
skiptum og til þátttöku í opinberu
lífí. ITC getur uppfyllt óskir fólks
um að hafa meiri áhrif á daglegt
líf og umhverfi. Félagsskapurinn
er opinn bæði körlum og konum
og öllum sem hafa áhuga er vel-
komið að vera með.
Markmið ITC er að hvetja til
opinna og frjálslegra umræðna án
fordóma um hverskyns málefni
hvort sem þau eru stjómmálalegs,
Júlíus Hafstein formaður
íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur tjáði Morgunblaðinu
að alltaf hafi verið mikil ásókn í
reiðnámskeiðin og vinsældir
þeirra vaxið ár frá ári.
„Við höfum ekki getað sinnt
þessari miklu eftirspurn einfald-
lega vegna þess að okkur vantar
fléiri hesta. Öll aðstaða og skipu-
lagning eru til staðar, en hrossin
em aðeins átján en þyrftu að vera
þijátíu," sagði hann.
Siglinganámskeiðin hafa líka
gengið vel og er því sem næst
uppselt á þau. Ennþá eru laus
4. landsþing Landssamtaka ITC
á íslandi verður haldið á Hótel
Sögu 26.-28. maí nk.
efnahagslegs eða trúarlegs eðlis.
(Fréttatilkynning)
pláss á leikjanámskeiðin og
íþróttaskólana. Sagði Júlíus að
aðsóknin í íþróttaskólana hefði
ekki verið jafn mikil og búist var
við, en skráning stendur enn yfír.
Júlíus sagði að nú ynni íþrótta-
og tómstundaráð mikið í tengslum
við ýmis félagasambönd, svo sem
íþróttafélög, skátafélög og KFUM
og K. Námskeiðin væru vel undir-
búin og gefín hefur verið út veg-
legur bæklingur til að kynna þessa
starfsemi.
Hann sagðist vera mjög ánægð-
ur með þátttökuna og hún sýndi
að borgarbúar kynnu að meta
þetta starf.
Námskeið íþrótta- og tómstundaráðs:
Strax seldist upp
á reiðnámskeiðin
MIKILL áhugi hefúr verið á ýmsum námskeiðum sem íþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur býður upp á fyrir börn í sumar
og má búast við að um 15.000 börn sæki þau. Flest virðast hafa
áhuga á hestamennsku því strax seldist upp á reiðnámskeiðin.