Morgunblaðið - 25.05.1989, Side 59
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
LYFJANOTKUN
MORGUNBLAÐE)
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
ÍÞRÓm
FOLK
■ RICKY Hill, leikmaður Lu-
ton, hefur gengið til liðs við
franska félagið Le Havre. Hill,
sem er 30 ára, hefur leikið með
Luton í fimmtán ár - alls 507 leiki.
■ ALAN Hansen, miðvörðurinn
sterki hjá Liverpool, haltraði
meiddur af velli í leiknum gegn
West Ham á þriðjudag og óvíst er
hvort hann verður með gegn Arse-
nal á morgun.
■ NÝLIÐAR Gróttu í 1. deildar-
keppni kvenna í handknattleik -
hafa fengið góðan liðsstyrk. Katrín
Friðriksen, landsliðskona úr Val,
hefur gengið til liðs við Gróttu og
einnig Sólveig Steinþórsdóttir,
markvörður úr Haukum.
■ JÓHANNA HaUdórsdóttir,
hinn gamalkunni leikmaður Fram,
hefur hug á að leggja skóna á hill-
una og einnig Ingunn Bernótus-
dóttir, vinkona hennar úr Fram.
■ ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spymu mun æfa f Kaupmannahöfn
á laugardaginn. Haldið verður til
Moskvu á sunnudaginn.
Bon Johnson.
Johnson vissi
mætavel hvað
var á seyði
- segireinkaiæknir hans
Jamie Astaphan, læknir
kanadíska spretthlauparans
Bens Johnsons, segir hlauparann
hafa neytt steralyija sfðan 1981 og
að Johnson hafi verið vel meðvitað-
ur um hvað var á seyði.
Astapahn kom í gær fyrir rann-
sóknamefndina sem sett var á lagg-
imar vegna hneykslisins er Johnson
var sviptur gullverðlaunum í Seoul
eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.
Astaphan sá um að gefa hlauparan-
um lyfin frá því þeir hittust fyrst,
1983.
Læknirinn sagði í gær að Jo-
hnson hefði verið vel meðvitaður
um hvað var á seyði. „Hann var
alltaf mjög spurull," svaraði Astap-
han í gær er hann var spurður hvort
Johnson hefði gert sér grein fyrir
eðli lyflanna og hveijar afleiðing-
amar væru. „Hann sagði lyfjanotk-
unina hafa gert sig sterkari og
sneggri," sagði læknirinn um Jo-
hnson.
Hlauparinn hefur ætíð haldið því
fram að ólöglegra lyfja hafi hann
aldrei neytt, svo hann viti.
4.DEILD
Arvakur sigradi
Arvakur vann fyrsta leik sinn í
C-riðli 4. deildar á gervigras-
inu í Laugardal á þriðjudagskvöld.
Liðið sigraði Hafnir með marki
Guðmundar Jóhannssonar á sfðustu
mínútu leiksins. Mikið rok var og
knattspyman því ekki upp á það
besta. Leikurinn fór fram kl. 22.00
sem er frekar óvenjulegur leiktími,
en leikur Fram og Fylkis var settur
á undan kl. 20.00.
„GULLIT var frábær —.lék mun
betur en ég hélt að hann gæti.
Þegar liðið er í slíkum ham er
það óviðráðanlegt. Við vissum
að Steaua var gott, en við gáf-
um mótherjunum aldrei tæki-
færi,“ sagði Arrigo Saachi,
þjálfari AC Mílanó, eftir 4:0 sig-
ur gegn Steaua í úrslitum Evr-
ópukeppni meistaraliða, en
leikurinn fór fram Nou Camp
velli í Barcelona á Spáni f gær-
kvöldi.
Þegar lið mitt er í slíkum ham er það óviðráðanlegt, sagði þjálfari AC Möanó
Mfam
FOLK
■ AC MÍLANÓ leikur venjulega
í svörtum og rauðum peysum eins
og Víkingur, en í gær var liðið í
alhvítum búningi. Astæðan: Liðið
sigraði síðast í Evrópukeppninni
1969 og lék þá í alhvítum búningi.
■ ÍTALSKA liðið sigraði Ajax
frá Hollandi í úrslitaleiknum 1969,
4:1. Þá var Johan Cruyff í liði
Ajax. Hann hefur eflaust verið á
meðal áhorfenda á leikvangi Barc-
elona, Nou Camp, í gærkvöldi, því
hann er einmitt þjálfari liðsins.
■ MEIRA en 2.000 lögreglu-
þjónar voru á vakt við völlinn í
gær. Allir aðgöngumiðar voru sér-
staklega skoðaðir til að fyrirbyggja
að fólk færi inn á fölsuðum miðum,
en 97.000 áhorfendur voru á leikn-
um pg hegðuðu þeir sér óaðfínnan-
lega fyrir, á meðan og eftir leik.
■ SIGURINN í gærkvöldi var
sá stærsti í úrslitaleik Evrópu-
keppni meistaraliða síðan 1974 er
Bayern Miinchen vann Atletico
Madrid með sömu markatölu í au-
kaleik, en fyrri leikurinn hafði end-
að 1:1.
■ STEAUA hefur verið ósi-
grandi í síðustu 94 deildarieikjum
í Rúmeniu — tapaði síðast fyrir
þremur árum. IFK Gautaborg var
eina liðið fyrir leikinn í gærkvöldi,
sem hafði náð að sigra Rúmensku
meistarana í vetur, vann fyrri leik
liðanna í átta liða úrslitum Evrópu-
kepþninnar 1:0, en tapaði í Rúm-
eníu 5:1.
H RUUD Gullitt var greinilega
vinsælastur allra á vellinum í gær.
Allt ætlaði vitlaust að verða af fögn-
uði á áhorfendapöllunum þegar
hann kom út til að hita upp, og var
honum klappað lof í lófa er hann
haltraði af velli á 60. mínútu.
■ 80.000 áhorfendur komu frá
ítaliu til að hvetja sína menn, en
innan við 1.000 manns fylgdu Ste-
aua frá Rúmeníu.
Hollendingarnir kunnu, Marco
Van Basten, Ruud Gullit og
Frank Rijkaard, sem höfnuðu í
þremur efstu sætunum í Iqöri knatt-
spymumanns Evrópu á síðasta ári
og voru í liði ársins, Evrópumeist-
araliði Hollands, bættu enn einni
rósinni í hnappagatið. Gullit og Van
Basten skiptu mörkunum bróður-
lega á milli sín og strax frá fyrstu
mínútu var ljóst hvert stefndi. ít-
alska liðið hafði mikla yfirburði og
markvörður þess, Giovanni Galli,
átti náðugan dag.
„Þetta lið hefur frábærum leik-
mönnum á að skipa og þeir sýndu
sínar bestu hliðar — vora nær
óstöðvandi. Við vorum hins vegar
þreyttir, höfum leikið 11 leiki á 32
dögum, og náðum okkur aldrei á
strik,“ sagði Anghel Iordanescu,
þjálfari Steaua.
Gullit, sem var í byijunarliði AC
Mflanó í fyrsta sinn síðan í síðasta
mánuði — hafði verið frá vegna
meiðsla — gaf tóninn á 18. mínútu,
en skömmu áður átti hann skot í
stöng. 10 mínútum síðar skoraði
Van Basten með skalla og Gullit
bætti þriðja markinu við fyrir hlé —
gull af marki, skot fyrir utan teig.
Van Basten átti síðan síðasta orðið
á 47. mínútu, gerði þá sitt 10.
mark í keppninni.
„Það er mikill heiður að vera
hluti af þessu liði á þessum tíma,
þegar því gengur sem best. Ég er
mjög þakklátur öllum, sem hlut eiga
að máli og tileinka þeim sigurinn,“
sagði Saachi þjálfari, en Iordanes-
cu, þjálfari Steaua, sagði að Saachi
ætti fyrst og fremst heiðurinn af
frábæru spili Mílanó.
— M m Reuter
Frabær
Hollendingurinn Ruud Gullitt var frábær í liði AC Mílanó í gærkvöldi. Hann
hafði ekki verið í byrjunarliðinu síðan í april-mánuði vegna meiðsla, lék hins
vegar í nokkrar mínútur í deildarleik á sunnudag og síðan frá byijun í gær.
Yfirferðin var ótrúleg, Gullitt var aftastur í vöm og fremstur í sókn, skoraði
tvö mörk og haltraði síðan af velli eftir 60 mínútur. Hafði svo sannarlega skil-
að sínu og hampaði bikaraum sigurreifur að leikslokum.
AC Mílanó - Steaua Búkarest 4 : O
Evrópukeppni meistaraliða í knattspymu, úrslit, Nou Camp leikvangurinn í Barcel-
ona á Spáni, miðvikudaginn 24. maí 1989.
Mörk AC Mílanó: Ruud Gullit (18. og 39.), Marco Van Basten (28. og 47.).
Áhorfendur: 97.000.
Dómari: Karl-Heinz Tritschier frá Vestur-Þýskalandi.
Lið AC Mílanó: Giovanni Galli, Mauro Tassotti, Alessandro Costacurta (Filippo
Galli vm. 'a 75.), Franco Baresi, Paolo Maldini, Roberto Donadoni, Frank Rjj-
kaard, Angel Colombo, Carlo Ancelotti, Ruud Gullit (Pietro-Paolo Virdis vm. á
60.), Marco Van Basten.
Lið Steaua: Silviu Lung, Dan Petrescu, Adrian Bumbescu, Stefan Iovan, Nicolae
Ungureanu, Iosif Rotariu (Petre Bunaciu vm. á 46.), Tudorel Stoica, Gheorghe
Hagi, Daniel Minea, Marius Lacatus, Victor Piturca.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Ásgeir ekki með í Moskvu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson
Arie Haan, þjálfari Stuttgart, og Ásgeir Sigurvinsson glaðbeittir daginn
fyrir UEFA-úrslitaleikinn gegn Napolí í síðústu viku. Haan var ekki hrifinn
af því að Ásgeir færi til Moskvu, og fékk ósk sína uppfyllta.
ÁSGEIR Sigurvinsson leikur
ekki með landsliðinu gegn
Sovétmönnum í heimsmeist-
arakeppninni í Moskvu í
næstu viku, miðvikudaginn
31. maf.
k etta er auðvitað slæmt fyrir
“ okkur. Ásgeir er landsliðinu
n\jög dýrmætur leikmaður, en við
þessu er ekkert að gera,“ sagði
Siegfried Held, landsliðsþjálfari,
er Morgunblaðið náði sambandi
við hann á heimili hans í Dort-
mund í gærkvöldi. „Ásgeir fór af
velli eftir 60 mínútur gegn Kais-
erslautern í gærkvöldi [fyrra-
kvöld] vegna meiðslanna, og hefur
átt í vandræðum,“ sagði hann.
Held ræddi við Ásgeir í gær.
Held hefur einnig rætt við Arie
Haan, þjálfara Stuttgart, sem
segist ekki hafa neitað Ásgeiri
um leyfi til að fara í landsleikinn,
þó hann hafi ekki verið hrifinn
af því að leikmaðurinn færi.
Læknir . Stuttgart-liðsins taldi
meiðsli Ásgeirs hins vegar það
mikil að hann ætti að taka sér
hvíld í 10 daga.
Ásgeir sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann hefði
meiðst illa á ökkla í leik gegn
Karlsruhe fyrir þremur vikum.
Læknir hefði sprautað hann með
kvalastillandi sprautum næstu
leiki á eftir, td. fyrir Evrójpuúr-
slitaleikinn gegn Napolí. Asgeir
sagði að síðustu vikur hefur verið
mjög mikið álag á leikmenn
Stuttgart, tveir leikir á viku hverri
og væri nú svo komið að læknir
félagsins hefði skipað honum að
hvfla sig.
VMtarferekki
Viðar Þorkelsson, Framari, hef-
ur tilkynnt landsliðsnefnd að hann
komist ekki til Moskvu, vegna
atvinnu sinnar. Þá eru átján leik-
menn eftir af þeim tuttugu sem
upphaflega voru valdir. Þar af eru
þrír markverðir, þannig að einn
að auki 4ettur út