Morgunblaðið - 03.08.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR B.( ÁGÖST 1989
2SI:
Pekingsljórnin ræðst á útlæga lýðræðisleiðtoga:
Loddarar sem vilja
bylta stjóm landsins
Peking. Reuter.
KÍNVERSKA stjórnin réðst
harkalega á útlæga leiðtoga lýð-
ræðishreyfingarinnar í Kína er
stofnuðu formleg samtök um
baráttumál sín í Bandaríkjunum
um síðustu helgi. Málgagn
kommúnistaflokksins, Dagblað
alþýðunnar, sagði í gær að
hreyfingin væri dæmd til að
mistakast. „Það skiptir engu
hve mjög þessir svikarar sem
eru á flótta treysta á stuðning
andstæðinga Kínveija á Taiwan
og í Hong Kong, hve dólgslega
þeir láta, hvers kyns hópum
þeir koma á fót til að valda
vandræðum. Þeir eru einfald-
lega viðurstyggilegir loddarar,"
sagði blaðið.
Um 500 kínverskir stjórnarand-
stæðingar í útlegð, aðallega stúd-
entar, komu saman í Chicago og
stofnuðu þar Lýðræðishreyfingu
Kína. Þeir skýrðu frá áformum
um að stofna útvarpsstöð og blað
sem dreift yrði með leynd í Kína
til að halda á lofti lýðræðishug-
sjónum. í hópi stofnendanna eru
Wuer Kaixi og Li Lu, sem báðir
eru á lista yfir 21 stúdent sem
stjórnvöld í Peking hafa reynt að
klófesta síðan mótmæli lýðræðis-
sinna voru kæfð i blóði á Torgi
hins himneska friðar í júnibyijun.
Vitað er að sjö þeirra hafa náðst.
Dagblað alþýðunnar réðst á
TJALDATILBOÐ
10% staðgreiðsluafsláttur
4 m kúlutjald kr. 6.990 stgr.
Allar stærðir og gerðir af tjöldum, nýjum og notuðum.
Svefnpokar, frostþolnir, kr. 4.800.
Bakpokar kr. 3.990 og fl. og fl. Hagstætt verð.
Tjaldaviðgerðir.
SPORTLEIGAN
v/Umferðarmiðstöðina. Sími 19800.
Keuter
Kínverskir stjórnarandstæðingar á stofiifimdi hreyfingar til baráttu
fyrir lýðræði í Kina. A myndinni sést Wuer Kaixi mynda sigurták-
nið með fíngrunum. Fundurinn fór fram í Chicago í Bandaríkjunum.
bandarísku útvarpsstöðina Voice
of America, sem er ríkisstyrkt,
fyrir að segja vandlega frá öllum
aðgerðum Wuers og fleiri leiðtoga
í útlegðinni. „Það er gróf íhlutun
Noregur:
Ætlar að segja af sér
embætti þingforseta
Ósló. Reutcr.
REItJLF Steen, fyrrum þing-
flokksformaður Verkamanna-
flokksins, sagði á þriðjudag, að
hann ætlaði að segja af sér
embætti deildarforseta í Stór-
þinginu. Almennar þingkosn-
ingar verða í Noregi eftir fáein-
ar vikur.
Reiulf Steen, sem verið hefur
gagnrýninn í garð Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra, hef-
ur verið nefndur í fjölmiðlum í
tengslum við það er reynt var að
neyða Oddvar Nordli til að segja
af sér forsætisráðherraembættinu
árið 1980.
„Afsögn mín stendur á engan
' hátt í sambandi við það mál-,“ sagði
Steen í útvarpsviðtali. Hann hefur.
staðfastlega neitað að hafa vitandi
vits tekið nokkurn þátt í að bola
Nordli frá embætti. í útvarpsvið-
talinu sagðist hann hafa ákveðið
það í maímánuði síðastliðnum að
segja af sér þingforsetaembætt-
inu. Hann ætlar að sitja áfram sem
þingmaður Verkamannaflokksins.
Þó að minnihlutastjórn Brundt-
land hafi tapað nokkru fylgi í skoð-
anakönnunum að urylanförnu,
telja fréttaskýrendur, að hún muni
sitja áfram við völd eftir kosning-
arnar 11. september, vegna þess
hve stjórnarandstaða mið- og
hægriflokkanna er sundurþykk.
í innanríkismál Kína þegar þessir
svikarar eru notaðir til að reka
tilefnislausan áróður fyrir því að
Kínverska alþýðulýðveldið verði
lagt í rúst,“ sagði í blaðinu. „Þetta
stórskaðar góð samskipti Kína og
Bandaríkjanna."
Blaðið hafði eftir fjölíftiðlum í
Hong Kong og á Taiwan að stúd-
entarnir fengju fé frá þarlendum
aðilum, m.a. stjórnarflokki Þjóð-
ernissinna í síðarnefnda landinu.
Vestrænn stjórnarerindreki sagði
að heiftin á árásunum á lýðræðis-
sinnana sýndi hræðslu stjórnvalda
við þau áhrif. sem nýja hreyfingin
gæti haft í röðum kínverskra stúd-
enta í lýðræðislöndum og í al-
þýðulýðveldinu sjálfu.
STÓR
i
UTSALA
HEFSTÍDAG
Dömudeild: Herradeild:
Kjólaefni Skyrtur
Metravara Undirföt
Sængurfatnaður Sokkar
Handklæði Blússur
Diskaþurrkur Peysur
ALLT SELST Á ÓTRÚLEGA LÁGU VERÐI
Egill Jacobsen Austurstræti 9
ERLENT
♦ ♦ ♦
1111111
HAGKAUP