Morgunblaðið - 09.12.1989, Page 33
, MQRGU^PLAPIÐ .LAUGARDA^UR, 9. DESEMBER ,1989
Reuter
Palestínumenn mótmæla við skrifstofur Arababandalagsins í Nýju
Delhí, höfiiðborg Indlands.
Tvö ár síðan uppreisn Palestínumanna hófet:
Mikill viðbúnaður
ísraelska hersins
Nahalin, Vcsturbakkanum. Reuter. Daiiy Telegraph.
ÍSRAELSKI herinn er í viðbragðsstöðu vegna þess að í dag, laugar-
dag, eru tvö ár síðan intifada, uppreisn Palestínumanna á hemumdu
svæðunum, hófst. Útgöngubann er í gildi á Gaza-svæðinu og víða á
Vesturbakkanum. Hermenn hafa fengið fyrirskipanir um að brjóta á
bak aftur öll mótmæli.
í tvo daga hefur útgöngubann
verið í gildi á Gaza-svæðinu þar sem
búa 650.000 manns. Að sögn íbúa
þar sjást engir á götum úti nema
hermenn og lögregla. Allt tiltækt lið
lögreglunnar hefur verið kvatt út til
að koma í veg fyrir mótmæli.
Síðan uppreisnin hófst 9. desem-
ber 1987 hafa 740 Palestínumenn
fallið og 42 ísraelar. Samkvæmt
tölum Israelshers hafa 8.000 Pa-
lestínumenn og 2.350 ísraelar særst.
Heimili 250 palestínskra fjölskyldna
hafa verið sprengd í loft upp og 9.000
Palestínumenn eru í fangelsi.
ísraelsk stjómvöld féllust á það í
gær að Moshe Arens utanríkisráð-
herra færi til Washington til fundar
við starfsbræður sína frá Egypta-
landi og Bandaríkjunum. Er ætlunin
að reyna að koma á friðarviðræðum
milli Palestínumanna og ísraela í
Kaíró. Egyptar hafa komið fram sem
fulltrúar Frelsissamtaka Palestínu
(PLO).
Leiðtogaráð EB:
Kohl segir V-Þjóðverja
ekki heimta land í austri
Strassborg. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttantara Morgunblaðsms.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, fullvissaði leiðtoga ann-
arra ríkja Evrópubandalagsins (EB) um það á fiindi þeirra hér í gær,
að ríkisstjórn lands síns hefði ekki þá stefiiu að breyta ætti austurlanda-
mærum Austur-Þýskalands gagnvart Póllandi. Á fyrri degi fiindar síns
ræddu leiðtogarnir um þróun mála í Austur-Evrópu.
Tillögur um breytingar á Rómar-
sáttmálanum tengjast hugmyndun-
um um myntbandalag EB-ríkjanna
og sameiginlegan seðlabanka. Sátt-
málanum verður ekki breytt nema
kölluð sé saman sérstök ráðstefna
ríkisstjórnanna og á hún að hefjast
í desember á næsta ári. Er talið
fullvíst að mörg ár líði, þar til þessar
tillögur komist til framkvæmda verði
þær samþykktar á ráðstefnunni.
Á fundi sínum í gærkvöldi sam-
þykktu leiðtogamir sáttmála um fé-
lagsleg réttindi innán EB en það er
sérstakt baráttumál verkalýðshreyf-
ingarinnar. 11 voru með sáttmálan-
um en einn á móti; Margaret Thatch-
er, forsætisráðherra Breta.
í umræðum um hugsanlega sam-
einingu þýsku ríkjanna lögðu leið-
togarnir áherslu á sjálfsákvörðunar-
rétt þýsku þjóðarinnar og vísuðu
jafnframt til Helsinki-samþykktar-
innar um friðhelgi landamæra. Sagði
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýska-
lands, að það væri ekki stefna stjóm-
ar sinnar að endurheimta þýsk land-
svæði í Póllandi.
fesJK&'
öHum
KAUPSTADUR
A4IKUG4RDUR
ÍMJÖDD OG EDDUFELU MARKAÐUR VIÐSUND ■ VESTURÍBÆ
ENGIHJALLA ■ MIÐVANGI
r r