Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 56
M.
SIEMENS
Sjónvarpstœki
ÍSjónvarps-
myndavélar
Hljómtœkja-
samstϚur
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMFTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Æsknfumimmn er83033
MORGU^gLAQID, þRIÐjyDAGUjj 12.DESEMBER 1989,,
Attenborough klæðir sig í eina ullarpeysuna.
JC MEÐ ÍSLANDS-
KYNNINGU
eftir Guðna Þór
Jónsson
Um 30 JC-félagar frá íslandi
fóru á heimsþing JC International
sem haldið var í Birmingham á
Englandi dagana 5.-12. nóvember.
Ný aðildarfélög
Þau stórmerku tíðindi urðu að
JC Pólland, JC Sovétríkin og JC
Ungverjaland gengu í Junior Cham-
ber International og urðu þar með
fyrstu aðildarþjóðirnar í Austur-
Evrópu sem gengu til liðs við JC.
Austur-Evrópuþjóðirnar hafa aldrei
leyft JC-félögum að starfa og hefur
helsti þröskuldur þar verið, ein-
kunnarorð hreyfingarinnar en í
þeim segir m.a. „að skipting gæð-
anna verði réttlátust við einstakl-
ingsfrelsi og fijálst framtak“.
Verðlaun
Sá ánægjulegi atburður gerðist
að JC Mosfellsbær fékk verðlaun
fyrir besta byggðarlagsverkefnið á
sviði umhverfisverndar.
JC ísland fékk viðurkenningu
fyrir skipulega stjórnun.
Námskeið
Boðið var upp á mikla fjöibreytni
í námskeiðum m.a. stjórnunarnám-
skeið, samskiptanámskeið, nám-
skeið í viðskiptum og félagsmálum.
Leiðbeinendur voru mjög þekktir
og komu víðsvegar frá.
Landkynning
JC-félagar frá íslandi stóðu fyrir
mikilli landkynningu á þessu þingi
eins og endranær og er talið að
allt að 3.600 manns frá 80 þjóðlönd-
um hafi verið á þessu heimsþingi.
íslendingar settu upp landkynn-
ingarbás, sem var vel'staðsettur og
hann vakti mikla athygli. Sex land-
kynningarmyndir voru sýndar
stanslaust allan tímann sem básinn
var opinn og nýja myndin sem gerð
var um Reykjavík sem ráðstefnu-
borg vakti talsverða athygli.
Ferðamálaráð ísiands lagði til
bæklinga til kynningar á landi og
þjóð. Utflutningsráð íslands lagði
til fjölda bæklinga til kynningar á
ísienskum iðnaðarfyrirtækjum og
komu þessir bæklingar að góðum
notum. Reyktur lax var kynntur frá
Vogalaxi. Sjávarafurðir voru kynnt-
ar frá Iceland Seafood í Bretlandi.
Ullarvörur voru kynntar frá Hildu
og Icewear.
Sá frægi leikstjóri Richard Atten-
borough er m.a. gerði stórmyndina
Gandhi kom sérstaklega í heimsókn
til Islendinganna og, voru honum
gefnar fimm ullarpeysur og vakti
þessi heimsókn leikstjórans mikla
athygli.
JC ísland vill þakka þeim fyrir-
tækjum sem studdu við bakið á
þessari landkynningu kærlega fyrir
samstarfið.
Höfiindur er blaðafulltrúi JC
Islaads.
Sáfasett - Iwmólar
Hornsófa er hægt aö fá í
þeim. stærðum sem best henta.
Einnig mikiö úrval sófasetta
í leðri, leöurlux og áklæði.
Greiöslukjör við allra hæfi.
G.B. húsgögn,
Bíldshöföa 8, símar 686675 og 674080.
Smjörstjörnur
ELDHÚ SKRÓKURINN
Smákökur
í þetta sinn býður
Dyngjan upp á
tvær gamlar smá-
kökuuppskriftir
úr safni ömmu.
Þessar eru öðruv-
Isi!
Súkkulaði-
kúlur
Um 55 stk.
325 g heslihnet-
ur,
150 g súkkulaði,
50 g súkkat,
25 g sykraður
appejsínubörkur,
2 matsk. brandí
eða koníak,
2 egg,
75 g sykur,
negull og múskat
framan á hnífsoddi.
Skreytt með sesamfræi, hnetu-
spænum og sykruðum appelsínu-
berki (fæst í pokum).
Heslihnetur og súkkulaði rifið
fínt með rifjárni. Súkkatið saxað
gróft, því biandað saman við sax-
aðan appelsínubörkinn og brandíið.
Eggin hrærð ljós og létt með sykri
og kryddi. Hnetum súkkuiaði, súk-
kati, berki og brandíi blandað út
í eggjamassann. Látið bíða í ísskáp
í um klukkustund.
. Bökunarplata klædd með bök-
unarpappír. Gerið litlar kúlur úr
deiginu á stærð við valhnetur og
veltið þeim upp úr sesamfræi, söx-
uðum hnetum og fíntsöxuðum app-
elsínuberki. Kúlurnar svo látnar á
plötuna og bakaðar í 25 mínútur
í 150°C heitum ofni (í blástursofni
er bakað við 130 gráður í 20 mínút-
ur).
Önnur gömul uppskrift:
Smjörstjörnur
Um 45 stk.
250 g smjör,
1 'h tsk. vanilla,
örlítið salt,
'h tsk. kardemóma,
125 g sykur,
5 eggjarauður,
375 g hveiti,
1 tsk. þykkt hunang.
Smjörið (með herbergishita,
ekki beint úr ísskáp) hrærist vel
mjúkt. Vanilla, salt, kardemomma
og 4 eggjarauður hrærast út í.
Hveitið er sigtað yfir eggjamas-
sann og allt hnoðað vel (notið
hnoðarann í hrærivélinni). Deigið
látið bíða í ísskáp í klukkustund.
Klæðið síðan bökunarplötu með
bökunarpappír.
Fletjið út deigið á hveitistráðu
borði um 'h sm. þykkt, stingið það
út með stjömujárni og látið stjöm-
urnar á plötuna. Fimmta eggja-
rauðan er hrærð saman með hun-
anginu og þessu smurt á stjörnurn-
ar. Þær svo bakaðar í um 15
mínútur við 180°C hita (150 gráð-
ur í blástursofni í 10-12 mínútur).
Súkkulaðikúlur
Smjörstjörnurnar eiga að vera
stökkar og bráðna á tungunni, þá
eru þær rétt bakaðar.
Nýtið hvíturnar
Upplagt er að nýta eggja-
hvítumar með því að baka 2 góða
marengsbotna (öðru nafni snjó-
kökur). Það er gert svona:
Stífþeytið 4 eggjahvítur, bætið
tveimur bollum af sykri út í og
þeytið saman. Út í þetta er bland-
að varlega 2 litlum bollum af
kornflögum (cornflakes), 1 bolla
af söxuðu súkkuiaði, 'h bolla af
kókosmjöli og 'h tsk. af lyfti-
dufti. Deiginu svo skipt í tvö vel
smurð og hveitistráð tertuform
og botnarnir bakaðir í um eina
klukkustund í 175?C heitum ofni
(150 gráður í blástursofni).
Eftir bökun eru botnamir látnir
saman með um 3 dl. af þeyttum
rjóma, og brætt súkkulaði látið
yfir. Gott að láta kökuna bíða í
2-3 tíma áður en hún er borin
fram.
Algjört sælgæti!
Gangi ykkur vel,
Jórunn.