Morgunblaðið - 12.12.1989, Qupperneq 74
74
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989
Islendingar kröfiiharðir
og sjálfstæðir ferðamenn
- segir Martine Colloredo-Mannsfeld,
formaður franska ferðamálaráðsins
Morgunblaðio/Albert Kemp
Glúmur Gylfason vígði nýja org-
elið í Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Fáskrúðs-
fjarðarkirkja:
Nýtt pípu-
org-el vígt
Egilsstöðuni.
Vígsla fór nýlega fram á nýju
pipuorgeli í Fáskrúðsfjarðarkirkju
en orgelið er siníðað af Björgvini
Tómassyni.
Hátíðin hófst með ávarpi og bless-
un séra Þorleifs Kjartans Krist-
mundssonar, prófasts. Síðan hófst
orgelleikur. Settur söngmálastjóri
þjóðkirkjunnar, Glúmur Gylfason, lék
nokkur lög og vígði þar með nýja
orgelið. Ávarp við athöfnina flutti Oli
Þ. Guðbjartssorr, kirkjumálaráðherra.
Síðan lék á orgelið Ferenc Utassy,
organisti og söngstjóri í Stöðvarfjarð-
ar- og Heydalasókn. Síðan söng Snæ-
landskórinn, en sá kór hefur verið
að æfa fyrir ferð til Israel sem farin
verður um jólin. Kórinn er samsettur
af fólki frá öllu mið-austurlandi. Þá
sungu saman kór kirkjunnar og Snæ-
landskórinn. Að lokum söng Snæ-
landskórinn þjóðsönginn.
Margar peningagjafir, allt að
250.000 krónur, hafa borist til styrkt-
ar orgelkaupunum, frá einstaklingum
til minningar um látna ættingja.
Flestir þeirra hafa ekki viljað láta
nafn síns getið. Elstu íbúar fjarðar-
ins, þau Þórarinn Bjarnason og Dag-
björt Sveinsdóttir, gáfu til kaupanna
tíu þúsund krónur.
- Albert
Morgunblaðið/Bjami
Martine Colloredo-Mannsfeld,
formaður franska ferðamála-
ráðsins.
frönsku. „Satt að segja tel ég að
ferðamenn lendi ekki í meiri erfið-'
leikuin í Frakklandi en t. a. m. í
Grikklandi eða á Spáni. Ef til vill
er þetta fyrst og fremst sálrænt
atriði. En það er rétt að þetta er
viðhorf sem við vonumst til að
breytist meðal frönsku þjóðarinnar.
Orar breytingar eiga sér nú stað í
Evrópu. Unga fólkið hugsar um sig
sem Evrópubúa og er stolt af því
og menningartengslin fara sífellt
vaxandi."
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Vilhjálmur Hinrik ívarsson í Merkinesi tekur við skrautrituðu skjali
úr hendi Þórarins St. Sigurðssonar sveitarstjóra þess efiiis að hann
hafi verið gerður að heiðursborgara í Höfnum.
Hafiiir:
Hinrik í Merkinesi gerð-
ur að heiðursborgara
Keflavík.
ÞAÐ sem öðru fremur einkennir kröfúr íslenskra ferðamanna er-
Icndis er sjálfstæði þeirra og almenn eftirspurn eftir góðri hótelgist-
ingu, að sögn Martine Colloredo-Mannsfeld, formanns franska ferða-
málaráðsins. Hún kom hingað til lands fyrir skömmu til skrafs og
ráðagerða við forráðamenn ferðaskrifstofa og aðra þá sem vinna
að ferðamálum hérlendis til að kynna nýjar hugmyndir um hvernig
auka megi ferðalög íslendinga til Frakklands en markaðshlutdeild
Frakka á þessu sviði hér á landi mun vera um fimm prósent.
VILHJÁLMUR Hinrik ívarsson
kenndur við Merkines í Höfhum
var gerður að heiðursborgara
þar í hreppi um fyrri helgi. Þór-
arinn St. Sigurðsson sveitar-
sfjóri í Höfhum rakti lífshlaup
Vilhjálms Hinriks við þetta tæki-
færi og afhenti honum skrautrit-
að skjal þess efhis að hann hefði
verið gerður að heiðursborgara
í sveitarfélaginu.
Vilhjálmur Hinrik ívarsson er
þekkt persóna á Suðurnesjum og
er hann í daglegu tali kallaður
Hinrik í Merkinesi. Hinrik fæddist
í Eyvík í Grímsnesi 12. ágúst 1899,
en fluttiSt að Merkinesi árið 1934
þar sem hann hefur verið búsettur
síðan, eða í 55 ár. Hinrik hefur
fengist við ýmislegt um ævina,
enda er nonum margt til Iista lagt.
Hinrik er trésmiður góður og
byggði hann mörg hús í Höfnun-
um, einnig var hann þekktur sem
afbragðs refaskytta, sjósóknari og
hagyrðingur. Hann sat í sýslu-
SIEMENS
Öflug rvksuqg!
VS 91153
• Stillanlegursogkraftur
(250- 1100 W).
• 4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
• Fjórföld syklasía í '
útblæstri.
• Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari.
I* SIEMENS framleiðsla
tryggir endingu og gæði.
^ • Verð 15.900,- kr.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
nefnd á árunum 1958-1983 og var
hreppstjóri Hafnahrepps 1961-
1984.
Eiginkona Hinriks er Hólmfríð-
ur Oddsdóttir og voru þau gefin
saman hjá fógeta í Reykjavík árið
1927. Hinrik og Hólmfríður eign-
uðust 5 börn og urðu tvö þeirra
þekkt á tónlistarsviðinu, þau Ellý
Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálms-
son heitinn. í tilefni dagsins hélt
Hafnahreppur heiðursborgaranum
hóf í samkomuhúsi staðarins þar
sem jafnframt var haldið uppá
níræðisafmæli Hinriks og var öll-
um sveitungum hans boðið.
AÐALFUNDUR Öryrkjabanda-
lags íslands var haldinn fyrir
nokkru í Borgartúni 6,
Reykjavík. Fundinn sóttu hátt í
60 fulltrúar aðildarfélaga banda-
Iagsins, starfsmenn og svæðis-
stjórnarfulltrúar. Á þessum fúndi
Grindavík
VETRARSTARF er hafið í Þrum-
unni, æskulýðsmiðstöð Grindvík-
inga, sem er í gamla Kvenfélags-
húsinu.
Þruman byijar nú þriðja starfsár
sitt en ekki hefur áður verið gefin
út dagskrá fyrir vetrarstarfið.
Þruman býður upp á klúbbastarf-
semi í bland við opin hús og
skífuskröll (diskótek).
Klúbbarnir sem starfa í Þrum-
unni eru ljósmyndaklúbbur á laug-
„Af viðræðum mínum við at-
vinnumenn á þessu sviði hér er
mér orðið ljóst að í yfirgnæfandi
meirihluta tilfella vilja íslenskir
ferðamenn þriggja eða fjögurra
stjörnu hótel og þetta er raunar
eðlilegt þar sem það er hvort sem
er dýrt að ferðast frá íslandi vegna
legu landsins," sagði Martine og
bætti við að hún vonaðist til þess
að heimsókn hennar gæti orðið til
þess að auka tengsl milli ferðaskrif-
stofa og fyrirtækja sem starfa að
ferðalögum hér á landi og í Frakk-
landi. Kvaðst hún hafa kynnt ýms-
ar nýjar hugmyndir í þessu skyni
í viðræðum sínum við forráðamenn
íslensku fyrirtækjanna og sagði
viðtökurnar hafa verið mjög góðar.
„Það sem hefur komið mér mest á
óvart eru kröfurnar sem íslenskir
ferðamenn gera. í öðru lagi þykir
mér þekking þeirra sem starfa að
ferðamálum hér á landi öldungis
til fyrirmyndar en ef til vill kom
mér mest á óvart hversu miklir
möguleikar virðast vera á þessu
sviði“.
bættist sextánda aðildarfélgið í
hóp bandalagsfélaga — Parkin-
sonsamtökin. Alls munu félagar
í Öryrkjabandalagi íslands nú
um 10 þúsund. Ný lög voru sam-
þykkt á þessum aðalfundi.
í skýrslu formanns, Arnþórs
ardögum, ferðaklúbbur á miðviku-
dögum og baliskákarklúbbur á
fimmtudögum.
Umsjónarmaður Þrumunnar,
Garðar Vignisson kennari, sagði við
Morgunbiaðið að hann vonaði að
Þruman yrði fjölsótt af skólakrökk-
um o g starfsemin mótaðist af áhuga
og framtakssemi þeirra. Þá benti
hann foreldrum á að kynna sér
starfsemina sem hefur verið gefin
út. FÓ
frá Norður-Evrópu hefðu breyst á
undanförnum árum, menn vildu nú
í auknum mæli skipuleggja ferða-
lög sín sjálfir og greinilegt væri
að þörfin fyrir að uppgötva eitt-
hvað nýtt væri ríki í íslendingum.
„Ef til vill er það frumþörf land-
könnuða sem kemur fram í íslend-
ingum,“ sagði hún og bætti við að
hún teldi að íslendingar gætu sval-
að þessari þörf ágætlega í Frakkl-
andi. Hefði hún kynnt ýmsa mögu-
leika í þessu skyni, sem fallið hefðu
í góðan jarðveg auk þess sem hún
hefði rætt hvernig unnt væri að
koma til móts við kröfur íslenskra
kaupsýslumanna sem héldu til
Frakklands. Greinilegt væri að
áhugi á golf-íþróttinni færi vaxandi
hér á landi og innan fárra ára yrði
vafalítið unnt að selja skíðaferðir
til Frakklands auk þess sem kynna
þyrfti íslendingum nýja og athygl-
isverða staði og héruð í Frakklandi.
Martine Colloredo-Mannsfeld
sagðist kannast við það sjónarmið
að erfitt væri að ferðast til Fi'akk-
lands þar sem innfæddir vildu helst
ekkert annað tungumál tala en
Helgasonar, kom fram að starfsemi
bandalagsins fer sífellt vaxandi og
verður fjölþættari með hvetju árinu.
Öryrkjabandalagið á aðild að
Starfsþjálfun fatlaðra og Bréfaskól-
anum auk Hússjóðs bandalagsins,
sem er sjálfseignarstofnun. Þá er
bandalagið aðili að sífellt fleiri
nefndum og ráðum, sem um mál-
efni fatlaðra fjalla og samskipti við
stjórnvöld út af hagsmunamálum
fatlaðra aukast jafnt og þétt. Ör-
yrkjabandalagið hefur sl. tvö ár
haft náið samstarf við Landssam-
tökin Þroskahjálp og samtökin hafa
í auknum mæli komið fram sem ein
heild gagnvart stjórnvöldum og lög-
gjafarvaldi. Er skemmst að minnast
dags fatlaðra á íslandi 13. okt. sl.
sem tókst vel og nutu samtökin þar
stuðnings allra helstu launþega-
samtaka landsins. Þá hafa samtök-
in fyrir nokkru haldið sameiginlegt
þing Þar voru margvísleg mál reifuð
og rædd og sóttu það þing yfir 100
manns.
Öryrkjabandalag íslands gefur
út fréttabréf sem kemur út fjórum
sinnum á ári, 32 síður hvert sinn.
í skýrslu formanns Hússjóðs Ör-
yrkjabandalags íslands kom fram,
að með tilkomu lottófjárins hafi öll
aðstaða til að leysa húsnæðismál
öryrkja gjörbreyst. Á næsta ári mun
íbúðum á vegum Hússjóðs banda-
lagsins fjölga þó nokkuð. Hússjóð-
urinn byggir nú og kaupir í æ ríkara
mæli en áður íbúðir út um land.
Formaður var kjörinn Arnþór
Helgason, Blindrafélaginu, vara-
formaður Ólöf Ríkarðsdóttir, Sjálfs-
björg, ritari Þórey Ólafsdóttir, Lauf,
og gjaldkeri Hafliði Hjartarson,
Styrktarfélagi vangefinna.
Framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalagsins er Ásgerður Ingi-
marsdóttir en framkvæmdastjóri
Hússjóðs er Anna Ingvarsdóttir.
{Úr fréttatilkynningu)
Hún sagði að kröfur ferðamanna
• • >
Oryrkjabandalag Islands:
Aðstaðan gjörbreytt
með tilkomu lottófjárins
Nýja ballskákarborðið reynt.
Grindavík:
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Æskulýðsmiðstöð
starfrækt í vetur