Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 35
MPBGyNB^ADfÐ I’KIDJUDAGVR ,lit QpgEMpER. 1.989
&
HATIÐARMATSEÐILL
Minningar Franziscu Gunnarsdóttur frá Skriðuklaustri:
„Vandratað í veröld-
inniu gefin út í Svíþjóð
mikið,“ sagði Franzisca. „Ég skrif-
aði kafla og kafla, eftir því serh
atvik úr bernsku rifjuðust upp fyr-
ir mér, en ætlaði þessi minninga-
brot ekki til útgáfu. Fyrir áeggjan
Gísla Sigurðssonar, ritstjóra Les-
bókar Morgunblaðsins, lét ég til-
leiðast að birta þrjár eða fjórar
glefsur í blaðinu, þó ég væri dálí-
tið smeyk við að setja svo persónu-
lega hluti á prent, ekki síst vegna
þess að í þessum skrifum minum
lék ég mér svolítið með íslenskuna.
Þegar þessir kaflar birtust hvöttu
þeir Matthías Johannessen og Ind-
riði G. Þorsteinsson mig til að taka
þetta efni saman í bók og bókafor-
lagið Vaka-Helgafell varð síðan til
þess að gefa hana út haustið
1987.“
Franzisca sagði að bókin virtist
hafa vakið töluverða athygli og
hún hefði fengið viðbrögð við henni
frá ótrúlegasta fólki. „Skömmu
eftir að bókin kom út fékk ég bréf
frá Peter Hallberg þar sem hann
sagðist telja bókina eiga erindi
víðar en á Islandi og að hann vildi
gjarnan eiga þátt í að koma henni
á framfæri,“ sagði hún. „Síðar
áttaði ég mig. á, að hann vann sjálf-
ur við að þýða bókina, sem gladdi
mig mjög. Hún átti að koma út í
Svíþjóð á hausti komanda, en nú
hefur útgáfunni verið flýtt, svo að
öllum líkindum kemur hún út
næsta vor,“ sagði Franzisca Gunn-
arsdóttir.
Karmelsystur í Hafiiarfirði:
Fjármagna fram-
kvæmdir með söng
KARMELSYSTUR í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði hafa sungið inn
á kassettu tólf sálmalög, bæði pólsk og íslenzk. Bæn fyrir Islandi
heitir snældan.
í fréttatilkynningu frá Kaþólska
söfnuðinum segir, að söngur Karm-
elsystranna sé með því bezta af því
tagi, sem völ er á hér á landi, enda
séu í hópi systranna tvær lærðar
söngkonur.
í fréttatilkynningunni segir, að
Karmelsysturnar skorti ekki dag-
legt viðurværi, en hagnaðinn af
sölu snældunnar ætla þær að nota
til að greiða niður skuldir sínar
vegna framkvæmda við klaustur-
bygginguna. Þær viðgerðir voi-u
dýrar og urðu systurnar að taka fé
að láni til þeirra.
Morgunblaðið/Sverrir
Byggð hefúr verið skemma yfir Bessastaðastofu og þak og loft yfir
fyrstu hæð rifið. Gert er ráð fyrir að viðgerð á þaki og frágangur
utanhúss verði lokið í maí á næsta ári.
Tóftir Bessastaða-
stofti einar eftir
Karmelsystur í klaustrinu í Hafharfirði.
Athugasemd frá frétta-
stjóra sjónvarps
„Vegna greinar Herdísar Sveins-
dóttur, lektors í hjúkrunarfræðum,
sem birtist í Morgunblaðinu 14.
desember 1989, þar sem hún segir
að undirritaður hafi sýnt henni
lítilsvirðingu og ókurteisi í símtali
6. nóvember síðastliðinn er rétt að
taka fram að undirritaður minnist
þess ekki að hafa rætt við Herdísi
í síma eða annars staðar, hvorki
6. nóvember né nokkurn annan dag.
Á hverjum degi fær fréttastofa
sjónvarps tugi ábendinga um frétta-
efni í gegnum síma svo loku er
ekki skotið fyrir að nefnt símtal
hafi átt sér stað og undirritaður
hafi einfaldlega gleymt því.
Líklegra er þó að Herdís hafi rætt
við einhvern annan starfsmann
fréttastofunnar. Hafi undirritaður
eða einhver annar starfsmaður
fréttastofu sjónvarps sýnt Herdísi
ókurteisi biðjumst við afsökunar á
því. Slíkt væri þá alger undantekn-
ing og brot á vinnureglum frétta-
stofu sjónvarps, sem kveða á um
að starfsmönnum hennar beri ætíð
að sýna viðmælendum virðingu og
koma fram af fyllstu kurteisi.
Raunar erum við þakklátir öllu
því áhugasama fólki sem af vinsemd
bendir okkur á athyglisverð mál og
við hvetjum sem flesta til áð hafa
samband við okkur ef þeir telja sig
hafa fréttnæmar upplýsingar. Nán-
ast allir sem við okkur tala skilja
þó að ekki fer alltaf saman mat
fjölmiðla á hvað sé frétt og hvað
einstaklingum innan ákveðinnar
starfsgreinar finnst fréttnæmt af
sínum vettvangi. Þess vegna reiðist
fólk sjaldan þó að ekki verði frétt
úr þegar það hefur samband við
okkur.
Með vinsemd og virðingu,
Bogi Ágústsson,
fréttastjóri sjónvarps.
„ÞAÐ var í raun aldrei ætlun
mín að gefa þessar minningar
út á bók, því mér fannst efnið
allt of persónulegt. Fyrir áeggj-
an góðra manna kom bókin þó
út árið 1987 og að öllum líkind-
um verður hún gefin út í Svíþjóð
næsta vor,“ sagði Franzisca
Gunnarsdóttir. Bók hennar
„Vandratað í veröldinni" verður
gefin út í Svíþjóð á vegum bóka-
útgáfúnnar Bra Böcker, en Pet-
er Hallberg þýddi bókina. Hann
hefúr áður þýtt fjölda íslenskra
bóka, þar á meðal eftir Halldór
Laxness.
í bókinni rifjar Franzisca upp
minningar af bernskuslóðum á
Skriðuklaustri í Fljótsdal, þar sem
foreldrar hennar bjuggu ásamt afa
hennar og ömmu, Gunnari Gunn-
arssyni rithöfundi og Franziscu
Gunnarsson. „Ég skrifaði þessa
bók fyrir son minn, Gunnar Björn
Franzisca Gunnarsdóttir
Gunnarsson, því ég vildi koma
áfram til hans þeim þáttum, sem
höfðu mótað lífsviðhorf mitt svo
Á BESSASTÖÐUM hefur verið reist bráðabirgðaskemma yfir Bessa-
staðastofu, þakhæðin rifin og ónýtir viðir í þaki og lofti yfir fyrstu
hæð hafa verið fjarlægðir. Að sögn Péturs Stefánssonar verkefnis-
stjóra, stendur tóftin ein eftir með gluggum.
„Það er búið að fjarlægja múr-
húðun utan á húsinu og er verið
að byija að gera við sprungur í
útveggjum og hleðslu, sem er víða
morkin og þarf að fjarlægja,“ sagði
Pétur. „Oneitanlega er þetta mun
meiri viðgerð og húsið ver farið en
við áttum von á. Veggirnir eru mik-
ið sprungnir' og mikill leki að hús-
inu. Töldu menn hann fyrst og
fremst vera frá þaki en það er aug-
ljóst núna þegar búið er að hreinsa
múrinn að það hefur einnig lekið
inn um veggina."
Pétur sagði að reynt væri að
gera við þá upprunalegu viði sem
eru heillegir. Húsið er friðað og
meðhöldlað sem slíkt. Endurnýjun
á þaki og frágangi utanhúss á að
ljúka í maí og þá hefst vinnan við
innréttingar. Á fyrstu hæð eru
áform um að fella niður eldhúsið
og bæta þess í stað snyrtiaðstöðu
og stækka fatahengi. „Á loftinu
verður sú breyting að þar sem íbúð
forseta var áður verður innrétting
önnur og að íbúð forseta verði í
endurbyggðri álmu, þar sem nú eru
bílskúrar og geymslur,“ sagði Pét-
"jp StuWenn • Laddi • Ylosj ÖJafsson of J.
Frumsýna valin atriði úr hinni glænýju rammíslensku óperu „Allt á huldu" undir
leikstjórn AGÚSTS GUÐMUNDSSONAR.
FORHETTUR
Hutnar á Sjávarbotni
MlLI.IRÉTTUR
Fylltur Sveppahattur
Meö Sniglum í Hvítlaukssósu
Aðalréttur
Hreitulýrasteik ,,BADEN BADEN“ \
HVÍTVÍN RAUÐVÍN
Pére Patriarche
Eftirréttur
Konfekthringur, Kaffi og Koníak
Hátíóarræóa MARTEINN MOSDAL ■ Húsió opnaó kl.r18.0Ö meó fordrykk U/^^\rripT r) A XTT^
Veislustjóri FLOSI ÓLAFSSON undir Ijúfri kampavinstónlist lTv_y lIjlj Jo'nLí/VLNI_______________'
\ Ávarp fiallkonunnar ELSA LUND ■ Miðáverð kr. 7.500.- . , . ;
M 1 , Miðasala og borðapantamr i s- 687111
Trveeið vkkur miða tímanlega á skemmtun ársins. Fö^num nvjum áratuu mtð glæsibrag!-