Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESBMBER 1089 «64 Ritvélar í úrvali Verð frá kr. 17.900,-stgr. EinarJ. Skúlasonhf. Grensásvegi 10, sími 686933 LITAVER XI UTAVER Grensásvegi • Sími 82444 Enn um lax: Matfískeldi á heljarþröm eftirBjörn Jóhannesson Mottó: „Nú er spurn: Hvernig má það vera, að 2.500 milljón- um króna sé varið til að gera mannvirki fyrir óarð- bært matfiskeldi svo og til þess að reisa eldisstöðvar til framleiðslu á laxaseiðum sem eru óseljanleg?" I Ofanskráða setningu er að finna í grein eftir höfund þessara athuga- semda í Morgunblaðinu 19. maí 1987. En síðan 1987 hefur enn syrt í álinn: Nú er það deginum ljós- ara, að því fer víðs fjarri að hérlend framleiðsla á laxi í sjókvíum eða strandkvíiim standi undir kostnaði eða reynist arðvænleg í framtíð- inni. Okkar eldiskvíalax er undan- tekningalítið lakari en hjá erlendum keppinautum. Mér er þó tjáð að lax sem alinn er í strandkvíum sé tals’- vert betri matur en sjókvíalaxinn, en hins vegar er strandeldi óhóflega dýrt vegna mikils stofn- og raforku- kostnaðar og lítils vaxtarhraða (kaldur sjór). Það er mikilvægt, að hinn al- menni skattborgari, en þó einkum þeir sem ráðskast með sparifé landsmanna og ákvarða skatt- heimtu, geri sér grein fyrir því, að fiskframleiðsla á íslenskum laxi til matar er í dauðateygjunum og að henni verður ekki bjargað, jafnvel þó að almannafé sé í vaxandi mæli sóað í slíkum tilgangi. Til þess að renna stoðum undir þessa áiyktun er nærtækast að vitna til norskrar reynslu. 1) Vegna ört vaxandi heims- framleiðslu á eldislaxi, ekki síst á gæðafiski, hefur verð á alþjóða- mörkuðum farið hraðlækkandi, þrátt fyrir aukna neyslu. Þetta hef- ur valdið gjaldþroti margra fiskeld- isfyrirtækja í Noregi, eins og komið hefur fram í íslenskum fjöimiðlum. Sem dæmi mætti nefna einna stærstu og óvæntustu uppákomu á þessum vettvangi, nefnilega gjald- þrot hinnar voldugu Mowinckel- samsteypu, Saga Seafood Inter- national, sem bjó við góða fram- leiðsluaðstöðu í Noregi og einnig í Skotlandi, írlandi og Kanada. Hlutafé félagsins, jafnvirði um 280 millj. íslenskra króna, er glatað. Skuldir félagsins umfram eignir eru í ísl. krónum um 1.260 miiljónir og það hefur fengið að láni hjá lána- stofnunum nálega 1 milljarð ísí. króna; tap bankanna er áætlað um 420 milljónir reiknað í ísl. krónum. (Heimild: Dagens Næringsliv 16/6/89.) 2) Mér hafa borist áreiðanlegar upplýsingar um framleiðslukostnað á eldislaxi við misjafnar aðstæður á strandlengju Noregs. Það kemur í ljós, að framleiðslukostnaður á nyrstu svæðunum er meira en tvisv- ar sinnum hærri en á syðri hluta strandlengjunnar, en álíka góðar aðstæður og þar um ræðir fyrir- finnast í öðrum laxalöndum, svo sem Færeyjum, Shetlandseyjum, Skotlandi, írlandi, á vesturströnd Kanada og í Chile. Nú er fram- ieiðsluaðstaða í kvíum við íslands- strendur mun lakari en í Norður- Noregi, og er því varlega áætlað að framleiðslukostnaður hér sé a.m.k. 2 'A> sinnum meiri en við al- gengar aðstæður í samkeppnislönd- unum. Með vísaa til framangreindra staðreynda ætti málið raunar að vera útrætt: Eldi á laxi til matar við íslandsstrendur er fráleitt og má telja óðs manns æði að stofna til slíks atvinnurekstrar. Líku máli gegnir um strandeldi á laxi, en nýlegar kannanir á eldi sjóbleikju við slíkar aðstæður — aðallega framkvæmdar af hinu dugmikla fyrirtæki Smára hf. í Þorlákshöfn — benda til þess, að hér gæti orðið um ábatasama framleiðslu að ræða, svo fremi sem unnt sé að ráða seltu- magni eldisvatns og viðhalda við- hlítandi hita. II Á árunum 1984 og 1985 var hörgull á laxaseiðum í Noregi fyrir sjókvíaeldi og varð nokkur innflutn- ingur vegna þessa skorts. Haustið 1986 fór 10 manna hópur íslenskra laxamanna í kynnisferð til Noregs og lagði þá hart að Norðmönnum að kaupa íslensk laxaseiði. Mátti hópurinn þó vita, að vegna þess hve íslenskur lax verður snemma kyn- þroska má hann heita ónothæfur fyrir sjóeldi. Enda varð árangurinn af srnávægilegum útflutningi seiða frá íslandi afleitur, bæði til Noregs og írlands. Nú, tæpum 3 árum eft- ir umrædda Noregsför, er umfram- framleiðsla eldisseiða í Noregi slík, að talað er um að setja í gúanó eða selja Sovétmönnum til neysiu um 20 milljónir laxaseiða. Og sam- kvæmt nýlegum fréttum Morgun- blaðsins er talið, að á þessu ári verði um 100 áf 370 seiðaeldis- stöðvum Norðmanna gjaldþrota. III íslenskar eldisstöðvar hafa jafn- an verið taldar öfundsverðar fyrir að ráða yfir volgu og köldu, ómeng- uðu lindarvatni. En eins og síðasti kafli (II) sýnir, hafa Norðmenn komist upp á lag með að framleiða hraust sjógönguseiði, án jarðhita eða ómengaðs vatns, og líku máli gegnir um aðrar laxaþjóðir við Atl- antshaf. Því má segja að yfirburðir okkar á þessu sviði hafi að mestu horfið. En sérstaða okkar að þessu leyti ásamt voninni um seiðaútflutn- ing munu hafa verið aðalhvatar þess, að risið hafa upp margar seiðaeldisstöðvar án þess að eiga vísan markað fyrir framleiðsluna. Svo þegar ekki tókst að selja seið- in, var gripið til þess óyndisúrræðis að ala þau í matfiskstærð í eldis- kvíum serfi komið var fyrir víðsveg- ar við strendur landsins. Afleiðing- um þessara mistaka hefur verið lýst hér að framan. Þá hefði verið nær að fara að dæmi Norðmanna og farga hinum óseljanlegu seiðum í gúanó. Ákjósanlegast hefði þó verið að sleppa þeim til hafbeitar, en til þess að sæmilega mætti til takast um slíka meðferð voru undir- búningur og aðstaða ónóg. IV Nú skulum við líta á mottó þess- arar greinar. í dag myndi efni þess óbreytt af minni hálfu nema hvað upphæðina 2.500 milljónir yrði að hækka allverulega. Mér er ekki kunnugt um að birtar hafi verið upplýsingar um heildarfjárfestingu vegna stofn- og rekstrarkostnaðar laxeldisstöðva. Það eina sem ég hef fregnað í þessu sambandi er að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar ábyrgðist 800 milljóna króna stofn- lán fyrir fiskeldisstöðvar, væntan- lega fyrst og fremst vegna frameld- is á óseljanlegum seiðum. Jafnframt jukust umkvartanir og áróður lax- eldismanna, því að það þurfti að greiða fyrir seiðin og síðan að fóðra þau! Með talsverðu brambolti tókst núverandi ríkisstjórn í byrjun þessa árs að fá Alþingi til að samþykkja 2.000 milljóna króna ábyrgð vegna rekstrarkostnaðar stöðvanna. En Landsbankinn, sem hafði hugboð um að viðkpmandi eldisfyrirtæki myndu aldrei geta greitt lánin, neit- aði að taka gilda ábyrgð ríkissjóðs. Þá var með pennastriki ákveðið af stjórnvöldum, að Framkvæmda- sstofnunin skyldi sjá svo um að bankinn yrði ekki fyrir skakkaföll- Björn Jóhannesson „Og þá kemur að spurn- ingunni: Hverjir eru valdir að einu afdrifa- ríkasta víxlspori íslenskrar atvinnuþró- unar? Svarið er auðsætt að því leyti, að hrak- föllunum hefur ráðið einstefnu-áróður í fjöl- miðlum.“ um í þessu sambandi. Það er að vísu mjög ágiskanakennt, en ég myndi telja varlegt að breyta orða- lagi umrædds mottós á þann veg, að í stað upphæðarinnar 2.500 milljónir — sem er rúmlega 2ja ára gömul áætlun — komi talan 5.000 milljónir. Þetta svarar til 100.000 króna meðalálags á hveija fimm manna fjölskyldu í landinu. Sé tap- að hlutafé gjaldþrota fyrirtækja innifalið í þessari upphæð, er efalít- ið um varlega áætlun að ræða. Verði vítahringnum fram haldið, aukast álögurnar jafnframt. Ég auðkenni þetta sem „álag“, með því að langmestur hluti, ef ekki allur hluti, þessa fjár er fyrirsjáanlega glataður, og þar vai'ður almenning- ur, eða varnarlausir skattborgarar, fyrst og fremst fyrir áfallinu. En framkvæmdaaðilar og byggðarlög verða einnig fyrir umtalsverðu tjóni, og afleiðingarnar geta orðið hörmu- legar fyrir lítil sveitarfélög og ein- staklinga, sem kunna að hafa veð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.