Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 38
68 38 'fiSftijaaajfaeaa Áhrifamikil bók sem lætur enjun í f riði ■ • ert "u ...... fcrónu Þrátr fyrir bar- raZV>r?"*n- »«* í«5ís œaíBís SSSfSSSgfflB: unum og ég fyrirþigað er allt Hér er á ferö örlagasaga íslenskrar konu, Hebu Jónsdóttur, sem giftist einum af núverandi sendiherrum íslenska lýðveldisins, Tómasi Á. Tómassyni. Hjónabandsárin reyndust þrautaganga meö stuttum og stopulum sólskins- stundum. Heba segir frá íslensku untanríkisþjónustunni og þá sérstaklega þeirri hlið sem almenningur ekki þekkir. Heba hefurfyrir löngu ákveöiö aö segja sögu sína og telur aö meö því aö segja sann- leikann geri hún þjóðfélagslegt gagn. Hún hlífir engum, heldur ekki sjálfri sér. _Áhrifamikil bók sem lætur eng- an í friði. Eg er fcvergi sweyk var ~— ; r-ö«4 uuKin ke a en þetta Heba j Skjeddborg Ármúla23 - 108 Reykjavík Símar: 67 24 00 6724 01 315 99 Rækjuveiðar Grænlendinga: Gjaldþrot blasir við útgerðinni Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. VEIÐAR grænlensku rækjutog- aranna við Austur-Grænland hafa gengið illa í ár vegna lé- legra gæfta og er útkoman það. sem af er ári langtum verri en í fyrra, að sögn Hans Pavia Egede, formanns samtaka togaraeig- enda, APK. Að sögn Egede eru tekjur einka- togaranna af rækjuveiðunum til nóvemberloka 20 milljónum dan- skra króna, eða 185 milljónum ísl. kr., lægri ef miðað er við sama tíma í fyrra. Um þessar mundir eru 25 af 35 rækjutogurum í einkaeign á veiðum við Austur-Grænland. Að sögn Egede hefur veiðin verið treg hjá þeim að undanförnu vegna slæms veðurs. Fimm tonn á viku er algeng- ur afli en í góðu veðri er það eðlileg- ur dagsafli. Það er skoðun Hans Pavia Egede að afkoma einkaútgerðanna verði 100 milljónum danskra króna verri í ár en fyrra. Segir hann gjaldþrot blasa við þar sem rækjuverð hafi lækkað um leið og afli minnkar, þá hafi gengisskráning orðið óhag- stæðari, vextir á lánum hækkað og skattar heimastjórnarinnar á út- gerð og vinnslu hækkað. Pelikamnn hverfiir af Penguin-bókum St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Moi'gunblaðsins. PENGUIN útgáfúfyrirtækið hef- ur ákveðið að hætta að nota pe- likanamerkið á alþýðleg fræðirit, sem það setur á markað. Merkið er eitt það frægasta í brezkri bókaútgáfu. Árið 193.7 hóf Penguin útgáfu- fyrirtækið að gefa út alþýðieg fræðirit, sem öll voru fölblá að lit. Þau kostuðu þá tvö og hálft pence eða tvær krónur og fimmtíu aura. Þá kostuðu harðkiljur, sem sam- svaraði 38 krónum. Þau ollu bylt- ingu í lestrarvenjum brezks almenn- ings, sem í fyrsta skipti átti kost á ódýrum bókum til sjálfsnáms. Allen Lane, stofnandi Penguin útgáfunnar, átti hugmyndina að flokknum. Fyrsta bókin í flokknum var eftir George Bernard Shaw og nefndist Handbók greindrar konu um sósíalisma, kapítalisma, sov- étisma og fasisma. Á næstu tveim- ur árum voru gefnir út yfir 300 titlar undir Pelikan-merkinu og seldust í meira en 28 milljónum eintaka. Ymsir telja að þessi flokkur hafi verið mjög mikilvægur fyrir þróun á lestrarvenjum brezks almennings. Kingsley Amis, einhver þekktasti rithöfundur Breta um þessar mund- ir, segir tilgang lesendanna hafa verið annan: „Við keyptum allir þessar bækur því við þurftum að fræðast um greindar konur.“ Önnur þekkt bók í Pelikan- flokknum var Sálmeinafræði dag- legs lífs eftir Sigmund Freud. Stjórnmálarit í Pelikan-flokknúm hafa flest verið vinstra megin við miðju og stundum hafa þau verið talin þáttur í kosningasigrum Clem- ents Attlees, foringja Verkamanna- flokksins, árið 1945 og Harolds Wilsons árið 1964. En nú er svo komið að það heft- ir sölu bóka að vera með Pelikan- merkið. Bókakaupendum finnst eins og verið sé að tala niður til sín, þegar bækur eru ætlaðar fróð- leiksfúsri alþýðu. í marz á næsta ári verður útgáfu Pelikan-bóka hætt á vegum Penguin fyrirtækis- ins, en þeir titlar, sem nú eru á markaði, halda merkinu þar til upp- lagið er þrotið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.