Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 57
L
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
57
Dagrún Kristjánsdóttir
„Guð er réttlátur, þó
svo að okkur mönnun-
um sýnist stundum ann-
að, hann hugsar ekki í
mánuðum og árum,
hann hugsar í öldum og
eilífðin er löng og engin
hætta á öðru en að rétt-
læti Guðs nái fram að
ganga.“
Skapara himins og jarðar meira
rúm í hjörtum sínum, þá væri ekki
svo illa komið fyrir mannkyninu.
Mennimir tóku öll ráð í sínar hend-
ur og gleymdu þeim Guði sem
gefið hefur allar þær gjafir sem
mennirnir ráðskast með bæði óvit-
urlega og illa. Það fer fjarri því
að Guð sé ímyndun og rugl. Hann
er staðreynd, og hann er máttugri
en margur myndi óska, ef til kem-
ur að honum yrði ofboðið með
ranglæti og grimmd mannanna
hvers í annars garð. Ég geri ráð
fyrir að sú stund sé löngu komin,
en Guð er þolinmóður og vonar í
lengstu lög að mennimir sjái að
sér og að hann þurfi ekki að grípa
til harkalegra aðgerða. Hann von-
ar að mennimir sjái að sér og iðr-
ist illverka sinna.
Það er vert að íhuga að ef til
vill hefði ástandið verið langt um
verra ef enginn Guð væri til, því
að ömggt er að hann reynir að
hafa áhrif á mennina til góðs, en
fáir hlusta. Alltof margir þagga
niður rödd samviskunnar í hjarta
sínu, en rödd samviskunnar er
rödd Guðs í sjálfum þér. Hvað er
svo mikilsvert í þessum forgengi-
lega heimi að það borgi sig að
neita að hlýða á þá rödd sem vill
leiðbeina þér og búa þér langt um
betra líf, bæði á jörðu og á himni?
Það eina sem þú þarft að gera er
að hlusta eftir rödd þíns betri
manns og reyna að fylgja henni.
Það er ekki einhlítt að gull og
VELA-TENGI
7 / 2
Allar gerðir
Öxull - í - öxul.
Öxull - í - flans.
Flans - í - flans.
.i^L
©teMfflaDgBW cSémsMira & M.
Vesturgötu 16 - Simar 14680-132»
grænir skógar gefi þér þá ham-
ingju sem þú leitar. Það er eðlilegt
að allir vilji vera gæfusamir, en
leiðin til þess liggur ekki í því að
geta gert allt sem hugurinn gim-
ist. Mennimir em svo .skammsýnir
að þeir sjá ekki að’*með ágirnd
sinni og eigingimi em þeir að
hlaða upp nær óyfirstíganlega tor-
færa fyrir sjálfa sig seinna þegar
að skuldaskilum kemur. Það er
ekki Guð sem leggur torfæramar
heldur hver og einn fyrir sjálfan
sig. Hver röng hugsun, orð og
gerðir — mætir okkur seinna óum-
flýjanlega og veldur okkur erfið-
leikum á langri leið til hærri og
betri heima. Illt er að verða fyrir
ranglæti af öllum toga, en betra
er það þó, en að valda því sjálfur.
Þetta hendir okkur öll og ekki
neinn undanskilinn. Það er mjög
slæmt, en ef að við hlýðum á rödd
Guðs í hjarta okkar, þá ættum við
að sjá að við höfum gert það sem
rangt er og reyna að bæta fyrir
það og gera það ekki aftur að öllu
sjálfráðu.
Hinn frjálsi vilji mannsins gerir
það að verkum að hann leiðist
auðveldlega afvega. Er það eink-
um vegna þess að það sem illt er,
sýnist flest vara svo eftistóknar-
vert, einnig það, að það er auðveld-
ara að fara niður brekkuna en
upp. Það er léttara að fylgja
múgnum en að standa einn á
móti, það er léttara að segja ósatt
en satt í mörgum tilyikum, það
er léttara að launa illt með illu en
góðu. En hvað stendur skrifað í
helgri bók: Elska skaltu náungann
eins og sjálfan þig. Það er rétt
að þetta er flestum mönnum of-
viða, en mætti ekki vera einhver
millivegur? Guð býst ekki við því
að mennirnir nái því á einu stuttu
æviskeiði að verða honum líkir að
fullu, en hann ætlast til þess að
mannkynið þokist upp í þroska og
reynist meðbræðram sínum betur
en nú er. Það er að öllu leyti óskyn-
samlegt að böðlast í gegn um lífið
með það eina augnamið að ná sem
mestum eiginhagsmunum, það
leiðir aðeins ógæfu yfir okkur, ef
ekki í þessu lífi, þá í því næsta.
Við megum ekki vera svo skamm-
sýn að halda að jarðlífið sé allt
og eftir það ekkert. Það er rangt
að álíta það- Það er betra að trúa
á annað líf eftir jarðlífið, — þó að
það reynist rangt — því að trúum
við ekki á það og það reynist
rangt, mun það hafa mikla erfið-
leika í för með sér. í fyrra tilfell-
inu vitum við ekki af því þó að
okkur skjátlaðist, í því síðara geta
afieiðingarnar af trúleysi okkar
orðið dýrkeyptar.
Við munum þurfa að greiða
skuldir okkar til síðasta eyris, þær
sem við höfum stofnað til með
eigingjömum og illum hætti á
æviskeiði okkar. Eins munu okkur
verða greidd ríkuleg laun fyrir það
sem við geram vel og viljum gera
vel jafnvel þó að aðstæður komi í
veg fyrir að við getum það.
Guð er réttlátur, þó svo að okk-
ur mönnunum sýnist stundum
annað, hann hugsar ekki í mánuð-
um og áram, hann hugsar í öldum
og eilífðin er löng og engin hætta
á öðra en að réttlæti Guðs nái
fram að ganga. Það eina sem við
þurfum að gera er það að muna
eftir honum, vita að hann hjálpar
okkur ef við erum í erfiðleikum •
og biðjum hann um hjálp. En
umfram allt eigum við að hlýða á
rödd Guðs í hjarta okkar og reyna
að fara eftir henni.
Höfundur er fyrrvenindi
húsmæðrakennari.
SAMEIGINLEGT
ARSKORT fyrir skíðasvæðin í Bláfjöllum, Skálafelli og Hamragili
Sala er hafin!
Fullorðnir kr. 7-800,-
■0^ -ív' ^ Börn kr. 3.900,-
SÖLUSTAÐIR ÁRSKORTA
Sportval Sportmarkaðurinn Útilíf
Hlemmi Skipholti 50E Glæsbæ
Sportval Rakarastofan Sportlíf
Kringlunni Vesturgötu 48 Eiðistorgi 13,
Byko Bókab. Ásfeli Seltjarnarnesi
Hafnarfirði Þverholti, Mosfellsbæ Níels Ingólfsson
Byko Sína Þórðardóttir Heiðvangi 22,
Breiddinni Birkiteigi 2, Hafnarfirði
Skíðaleigan Mosfellsbæ Jón Sævar
Hringbr. Sjúkraliðaskólinn Hlíðabyggð 6,
Fálkinn Kristbjörg Þórðar Garðabæ
Suðurlandsbraut 84476
Bikarinn Víkingur skíðaskáli
Skólavörðustíg 98-34666
Markið
Ármúla
Skálafell
Raftækjaverslunin
Hekla
KR-heimilið
Bláfjallanefnd
Fríkirkjuvegi 11
Bláfjallaskáli
Skíðamiðstöð
Bláfjöllum
SPARIÐ FÉ, TÍMA OG FYRIRHÖFN!