Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 20
20-’SÖRGUNBLAÐJÐ ÞRIÐJUDAGUR 19, ÐESEMBER 1989 Ó%nciuetá/<z /uo: i fiaAAj /pamem/tevt-<jpeéra& meá ió//>evýaAuA6u. ý mAlaéav ^amAAuaaénieíáa^ meA bmjöve. ÍAoev'fA ^áom má /e/rta/jAi oejf /iœ<já/e<fa //ytiAj'i/, óáom/ (jfö/a<jfum </t">f/A l ýo//e<jfa f/oAÍ. Osta- og smjörsalan sf. MANNRÁN Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Höfundur: Mette Newth. Myndir: Gerðar eftir mynd- skreytingum inúíta frá Alaska, Kanada og Grænlandi. Þýðing: Kristján Jóhann Jóns- son. Prentverk: Prentsmiðja Friðriks Jóelssonar. Útgefandi: Iðunn. Höfundur hlaut Norrænu barna- bókaverðlaunin árið 1988 fyrir þetta verk, og hér er það gefið út með styrk frá Norræna þýðingar- sjóðnum. Kannske segir þetta meir um bókina en nokkur ritdómur. Það er líka skemmst af að segja, að þetta er bók sem vekur til umhugsunar, neyðir lesandann að horfast í augu við sjálfan sig, meta þau gildi er hann telur æðst í lífinu. í raun er þetta saga þriggja fanga, þræla, -í eigu Mowinckels meistara, útgerðarmanns. Það er skip í þjónustu hans, sem heldur norður í höf í leit að einhyrnings- hornum. Þau finnur skipshöfnin ekki, en flækist að byggðum in- úíta, fremur þar fólskuverk, og hefir heim með sér ungmennin Osuqo og unnusta hennar Poq. Skipshöfnin kom ekki öil til baka, sumir mannanna höfðu lent í hafi, þeirra á meðal Pederson, sá einn sem sýnt hafði samúð hjálparvana teipunni. Á bryggju, heima, stóð dóttir hans, Christine, handvisin telpa, þjónusta á heimili útgerðar- mannsins. Höfundur lætur þessar tvær telpur segja okkur söguna, leiða okkur í tvo ólíka heíma, en samt á einni og sömu jörð. Heimur telpunnar, norðan úr hafi, er í nánum tengslum við náttúruna, þar ríkir enn bræðralag milli manna, óspilltur hugur barnsins sem á vin í manni, gróðri og dýri. í heimi hinnar telpunnar er mengunin slík, að viðbjóð vekur. Þar er ágirndin, mannfyrirlitning- in, hrokinn, ógeðsleg ofsatrúin, já, lífið allt kámað af skítugum hönd- um manna. Ekki allt, það er of- sagt. Útgerðarmaðurinn á soninn Henrik. Hann leggur sig fram um að skilja ungmennin norðan úr hafi, læra tungu þeirra, veija þau fyrir álygum, fordómum, og að lokum tekst honum, með hjálp Christine, áð ræna þeim á ný, Mette Newth senda þau móti frelsisfaðmi hins opna hafs. Kannske beið dauðinn þar, en frelsi er hann í samanburði við tjóður þeirra þjóða, sem dýrinu í sjálfum sér kijúpa. Þær brenna sumar setningar skáldsins: „Ekki gat hún skilið að sál settist að í svo mikilli illsku og kulda.“ (78/Osuqo); „Tveir litiir spörfuglar gegn soltnum hröfn- um.“ (115/átt við baráttu Henriks og Christine); „Sérðu ekki að við erum skurnin tóm.“ (122/Osuqo um sig og Poq, eftir nauðgun líkama og sálar). Sem betur fer er þessi heimur hrokans að hrynja. Múrar falla, fangelsi, trúar og stjórnmála, eru moluð til grunna, og með tárvotum augum göngum við til hreinsunar- starfa á mengaðri jörð, sem er orðin ruslahaugi líkust. En það var ekki 1986 og 1987, er skáldið hróp- aði viðvörunarorð með þessari bók sinni, hrópaði á miskunn kærleik- ans og líkn. Mjög vel skrifuð bók, fyrir þroskaða unglinga og fullorðið fólk. Þýðing Kristjáns er frábær, málið fallegt, vandað. Útgáfunni mikill sómi að þessu verki. Hafið þökk fyrir. Woidltrfca HANDy SCANNEK Mannesmann Tally prentarar Verðfrákr. 18.810 Handy Scanner 3000 plus Verðkr. 23.655 Victor tölvur VPC llc/2 diskettudrif Verð frá kr. 93.575 • • WordPerfect 4.2 ritvinnsla Verð frá kr. 28.405 Microsoft mýs Verð frá kr. 5.890 JOIiUiJMIK TOLVUFOLKSIIVS A HEIMILMI V/SA Samkort Hagnýlar gjaflr á góðu verði Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 686933 Greiðslukjör — samningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.