Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
5
Fleiri börn með
belti í bifreiðum
MIKIL aukning hefur orðið á að
börn sem eru í aftursæti bifreiða
séu í bílstól eða á bílpúða með
belti. Þetta kemur fram í könnun
Stórvelda-
slagur í
skák á Islandi
Fjörutíu skákmenn frá fjórum
heiinssvæðum munu keppa hér á
landi í mars í keppni sem nefhd
hefur verið Stórveldaslagur. Þar
keppa landslið Sovétríkjanna,
Bandaríkjanna, Bretlands auk úr-
valsliðs Norðurlandanna sem
verður skipað íslenskum stór-
meisturum að hálfu.
Keppnin verður haldin 9.-15. mars
í skákmiðstöð Taflfélags Reykjavíkur
og Skáksambands íslands í Faxafeni
12. Teflt verður á 10 borðum, tvö-
föld umferð og er vonast til að sterk-
ustu skákmenn heims verði meðal
keppenda. Fyrirtækin VISA og IBM
styrkja keppnina.
Strax að stórveldaslagnum lokn-
um hefst 14. Reykjavíkurskákmótið.
Heildai’verðlaun í Reykjavíkurskák-
mótinu nema 2 milljónum króna.
Mótið er opið og verða tefldar 11
umferðir eftir Monrad-kerfi.
sem lögreglan gerði fyrir Um-
ferðarráð í október. Fjöldi bif-
reiða í umferðarkönnuninni var
1.516. I þeim 152 bifreiðum sem
böm voru í aftursæti, voru 114
með belti, eða 75%. Hlutfallið var
aftur á móti 43,9% 1988, 39%
1987 og 32,3% 1986.
„Þetta er ánægjuleg þróun, en
aftur á móti skyggði það nokkuð á
að níu börn voru laus í framsæti í
þessari árlegu könnun. Það er níu
börnum of mikið,“ sagði Óli H.
Þórðarson, framkvæmdastjóri Um-
ferðarráðs. Fjöldi barna var 26 árið
1988, 48 árið 1987 og 81 árið 1986.
Óli sagði að það væri einnig athygl-
isvert að færri ökumenn hafi nú
verið í beltum heldur en í fyrra.
„Það er greinilegt að slakað hefur
verið á að brýna fyrir ökumönnum
að nota bílbeltin. Við þurfum að
herða það tak aftur.“
92,5% ökumanna voru með
bílbelti 1988, en í ár voru 86,8%
ökumanna með belti, eða 1.299 af
1.516 ökumönnum. Af 477 far-
þegum í framsæti voru 393 með
bílbelti, eða 85,4% á móti 91,6% í
fyrra. Fullorðnir farþegar í aftur-
sæti voru 74. Þar af voru 38 með
bílbelti, sem er 51%. Það er fjölgun
frá því í fyrra, en þá voru 44,5%
af farþegum í aftursæti með belti.
v Jólastemmning við höfhina
Vestmannaeyjum.
JÓLASTEMMNING ríkir nú í Eyjum. Fullur máninn hefur lýst á heiðskírum himni frostnæturinnar. Flest-
ir Eyjabátar eru nú komnir í jólafrí og hefur verið komið fyrir jólaljósum á mörgum þeirra. Það ríkti því
sannkölluð jólastemmning við höfnina í Eyjum þegar Sigurgeir smellti þessari mynd af þar.
Grímur
«
|
@
Alitlegur kostur til að lækka tekju- og eignaskatt
Kaup á hlutabréfum í traustum fyrirtækjum er
mjög álitlegur kostur fyrir þá sem vilja umtals-
verða skattalækkun, efla íslenskt atvinnulíf og
Qárfesta á öruggan hátt.
Umtalsverð skattfríðindi
Hlutabréf að nafnverði allt að 1.080.000 kr. eru
undanþegin eignaskatti. Þessi upphæð er
2.160.000 kr. hjá hjónum.
Tekjuskattur hjóna lækkar allt að 75.000 kr.
Ef hlutabréf eru keypt fyrir áramót lækkar tekju-
skattstofninn um þá upphæð sem íteypt er fyrir
allt að 100.000 kr. hjá einstaklingi og 200.000 kr.
hjá hjónum.
Arður allt að 10% af nafnverði, hæst 108.000 kr.
eða 216.000 hjá hjónum, mun verða skattfrjáls.
Vænleg ijárfesting
Til að hlutabréfaeigendur njóti þessara fríðinda
þurfa viðkomandi fyrirtæki að uppfylla ákveðin
skilyrði ríkisskattstjóra. Hjá Verðbréfamarkaði
Fjárfestingarfélagsins Iiggur frammi skrá um
hvaða fyrirtæki það eru.
I þessum hópi eru traust fyrirtæki á borð vio
Verslunarbankann, Iðnaðarbankann, Flugleiðir,
Eimskip, Tollvörugeymsluna, Hampiðjuna o.fl.
Efling atvinnulífs
Um leið og þú bætir eigin afkomu með hlutabréfa-
kaupum tryggir þú að fjármunir þínir efli íslenskt
atvinnulíf og renni þannig styrkari stoðum undir
afkomu komandi kynslðða.
Þannig virka hlutabréfakaupin:
Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir 200.000 kr. fyrir
áramót fá endurgreiddar rúmar 70.000 kr. frá
skattinum á næsta ári.
Auk þess eru hlutabréfin eignaskattsfrjáls að
vissri fjárhæð, og arðgreiðslur að vissu marki
tekjuskattsfrjálsar.
Höfum til sölu hlutabréf í
eftirtöldum fyrirtækjum:
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
HAMPIÐJAN
HLUTABRÉFASJÓÐUR
IÐNAÐARBANKINN
OLÍUFÉLAGIÐ
TOLLVÖRUGEYMSLAN
ÚTGERÐAREÉLAG AKUREYRINGA
VERSLUNARBANKINN
ATH: Upphæðirnar hér að framan eru
samkvæint fyrirliggjandi frumvarpi frá Alþingi.
VERÐBREFAMARKAÐU R
FJÁRFESTING ARFÉLAGSINS HF
Hafnarstræti 7
28566
Kringlunni
689700
Akureyri
25000