Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 66
Bé - - ,MÖRGÚXB1-\ÐIÐ .ÞIiIDJiaDAaUlt 3§í ÚESEMBER J$B Viðhorf BHMR til viðræðna EFTA-EB Hér fer á eftir samþykkt launa- málaráðs BHMR varðandi EFTA-EB-viðræðurnar: 1. Inngangur Ljóst er að staða íslands í EFTA- EB-viðræðunum sem nú standa yfir hlýtur að mótast af þeirri staðreynd að íslendingar eru smáþjóð sem byggir afkomu sína á takmörkuðum náttúruauðlindum. Því verður að gæta ýtrustu varfærni í samningum við stærri efnahagslegar heildir. Styrkur íslands í viðræðunum er ekki ljós né hversu eftirsóknarvert það er fyrir EB að eiga viðskipti við okkur. Engu að síður hlýtur afstaða BHMR sem heildarsamtaka háskólamenntaðra opinberra starfs- manna til viðræðnanna að mótast af eftirfarandi þremur atriðum: (1) stöðu BHMR sem heildar- samtaka stéttarfélaga: (2) stöðu BHMR sem hagsmuna- samtaka háskólamanna, (3) stöðu BHMR sem almennra hagsmunasamtaka í þjóðfélaginu. 2. Aðdragandi viðræðna EFTA og EB: Árið 1984 var haldinn sameigin- legur fundur ráðherra EFTA- og EB-ríkja í Lúxemborg. Þar var ákveðið að hefja viðræður um auk- ið samstarf ríkjanna á sviðum við- skipta-, vísinda-, mennta- og um- hverfismála. Þessar viðræður EFTA og EB („Lúxemborgarferillinn") skiluðu þó litlu vegna þess að EB- ríkin ákváðu að setja skjótan sam- runa EB-ríkjanna á oddinn. Með sameiginlegum lögum (1987), ein- ingarlögunum, var tekin stefnan á sameiginlegan innri markað EB- ríkjanna fyrir árslok 1992. TULIPANAR TILHEYRA JÓLAHALDI Eru komnir í blómaverslanir! Bætið lífið með blómum 7 Blómamiðstöðin hf. í desember 1988 komu tillögur frá framkvæmdastjórn EB um að hleypa nýju lífi í viðræður EFTA- og EB-ríkja. Markmiðið var að koma á óhindruðum flutningum á vörum, þjónustu, fjármagni og fólki og kanna möguleikann á samruna Evrópu í eitt evrópskt efnahags- svæði, EES. Viðræður embættis- mannanefnda hafa staðið þetta ár í hópum um vöruviðskipti, þjónustu- viðskipti, atvinnu- og búseturétt, ,jaðarverkefni“ (þ.e.a.s. umhverfis- og neytendamál o.fl.) og réttarregl- ur og stofnanir. í skýrslu utanríkis- ráðherra er helstu niðurstöðum embættismannaviðræðna lýst þannig: — að óhindruð vöruviðskipti á evrópsku efnahagssvæði verði að grundvallast á reglum um sölu- hæfni vöru og annaðhvort stefnt að tollabandalagi eðá friverslunar- svæði; — að óhindraðir fjármagnsflutn- ingar geti orðið regla gagnvart öll- um ríkjum heims; — að óhindruð þjónustuviðskipti virðast framkvæmanleg innan evr- ópska efnahagssvæðisins; — að óhindruð atvinnu- og bú- seturéttindi virðast framkvæman- leg innan evrópska efnahagssvæð- isins; — að aukið samstarf um jaðar- verkefni sé mögulegt; — að. nauðsynlegt sé að EFTA- ríkin taki þátt í ákvörðunum með EB um það sem varðar evrópskt efnahagssvæði framtíðarinnar. Sjá skýrslu utanríkisráðherra um „atriði sem ræða verður í samninga- viðræðum". Ekki er formlega ráðgert að ræða aðild EFTA eða einstakra EFTA- ríkja að EB. En ofangreind við- ræðuefni bera með sér að EFTA og EB ætla sér að stefna að sam- „Sameiginlegur vinnu- markaður og full og gagnkvæm búseturétt- indi allra íbúa EB- og EFTA-ríkja eru án vafa ógnun við menningar- legt sjálfstæði Islend- inga. Af þessari ástæðu telur BHMR að íslend- ingar geti ekki gengið að skilmálum EB um frjálsan búsetu- og at- vinnurétt.“ runa á sama viðskiptalegum grund- velli og tengir EB-ríkin saman. En það sem gerði EB-ríkjum endanlega fært að mynda eitt efnahagssvæði voru ekki einungis hinar viðskipta- legu forsendur heldur einnig stórir sameiginlegir sjóðir um landbúnað og byggðastefnu til að tryggja efna- hagslega og félagslega velferð í öllum ríkjum EB. Ekki er gert ráð fyrir að samruni EFTA- og EB- ríkja taki til þessara sjóða. Með því að fallast á „aquis communautaire“ (EB-réttur) sem umræðugrundvöll hafa EFTA-ríkin einnig fallist á að EB-réttur verði ráðandi. 3. Afstaða BHMR sem almennra hagsmunasamtaka í þjóðfélaginu BHMR géngur út frá því í fyrsta lagi að með viðræðum tEFTA- og EB-ríkja sé ekki stefnt að aðild ís- lands að EB. í öðru lagi gengur BHMR út frá því að viðræður ís- lendinga við EB byggist á gagn- kvæmum forsendum aðila um eigið efnahagslegt og félagslegt sjálf- stæði. I þriðja lagi má vera ljóst að viðræður við EB-ríkin breyta ekki stefnu þeirra og sjóðakerfi í landbúnaði, fiskveiðum og byggða- málum en í þeim efnum fer lítið fyrir þeim fríðindum sem kennd eru við frelsin fjögur. íslendingar hljóta á sama hátt að gæta hagsmuna sinna í sjávarútvegi, landbúnaði og byggðamálum. Verkaskipting^ og atvinnustig: Atvinnulíf á íslandi er fábreytt og þjóðin er fámenn. Fiskur og orka gegna lykilhlutverkum. Þátttaka Islands í evrópskum efnahagssam- runa myndi að öllum líkindum fyrst og fremst byggjast á þróun fram- leiðslu á þessum aðföngum og leiða til vaxandi einhæfni atvinnulífs. Hagkvæmnisrök og hagfræðilega skynsamleg verkaskipting innan stórrar efnahagslegrar heildar mælir með því en önnur rök gilda fyrir þjóðríkið. Áhrifin af evrópsk- um samruna á atvinnustig og at- vinnulíf gætu þess vegna orðið mik- il og myndu staðfesta enn betur hlutverk íslands sem hráefnisfram- leiðanda í vérkaskiptingu á nýjum markaði. Fullvíst má telja að slíkt myndi leiða til brottflutnings fjölda margra af landinu í leit að fjöl- breyttari atvinnutækifærum. Óbeinu áhrifin á fjölskrúðugt menningarlíf skyldu heldur ekki vanmetin. BHMR telur óskynsamlegt að taka skref sem kunna að leiða til enn frekari einhæfni atvinnulífs. Nauðsynlegt er að líta til allra val- kosta með tilliti til fleiri en eins markaðar til að renna stoðum und- ir fjölbreytt framleiðslukerfi og at- vinnulíf. „Frelsin fjögur": Helstu einkenni samstarfssamn- ings EB-ríkjanna er áherslan á „frelsin fjögur“, þ.e. frjáls viðskipti með vörur, fjármagn og þjónustu og ftjáls réttur til búsetu og at- vinnu. Frelsi til vöruviðskipta: í grundvallaratriðum er afstaða BHMR til frjálsra viðskipta með vörur ekki neikvæð. EB-ríkin hafa miklar takmarkanir á viðskiptum með landbúnaðarvörur og fisk en talsvert fijálsræði með iðnaðar- varning. Hagsmunir íslenska hag- Braun hugsar fyrir öllu Brauðristin sem beðið var eftir Þegar þei r hjá BRAUN snéru sér að þv( aö betr- umbæta brauðristina stóð ekki á nýjum hug- myndum og formskynjunin var óaðfinnanleg eins og fyrri daginn. Aðalnýjungin var CONT- ROL SENSOR, þ.e. HITASKYNJUN, sem við endurskin hitans frá brauðinu slekkur á rist- uninni á réttu andartaki. Ristunin verður hvorki of né van, heldur einfaldlega rétt — eða réttara sagt alltaf eftir þínum smekk. SKOÐUM ÞETTA NÁNAR: 1. A þessari teikningu sjáum við hvernig hitaskynjarinn virkar. 2. Brauðristin er svo vel ein- angruð að hitinn á ytra borði fer ekki yfir likamshitastigið. 3. Sjáið þessa einföldu lausn á brauömylsnubakkanum. 4. Rafmagnssnúran á sínum staðog þú dregurhanaúteftir þörfum. 5. (Tlmarofi) og slökkvari hlið -við hlið. Þú finnur þann ristun- artfma sem er þér að skapi. \|e^ 6. Og ekki má gleyma þvl hve gott er að hita upp rúnnstykk- in á nýju BRAUN brauðristinni — sem senn verður þín. YS- A&07 Borgartúni 20 og Kringlunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.