Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 70
G8(Jf H39M323<3 .(H HUOÁCI^JÍÖIHh CtKJAJÖVÍUOHÓM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER .1989 ' [ V 70 Minning: Helga Jónsdóttir Fædd 1. jaiiúar 1896' Dáin 10. desember 1989 í dag kveðjum við ömmu okkar, Helgu Jónsdóttur, sem andaðist 10. desember. Hún fæddist 1. janúar 1896- í Njarðvík við Bofgarfjörð eystri, dóttir hjónanna Jóns Hall- geirssonar og Sigþrúðar Bjarna- dóttur. Þau áttu auk ömmu fjóra syni; Hallgeir, Stefán, Jón og Óla sem allir eru látnir. Móður sína missti hún 4 ára að aldri og fluttist hún þá með föður sínum, tveimur bræðrum, þeim Hallgeiri og Óla, ásamt föðurömmu sinni, Helgu Ólafsdóttur, til Bakkafjarðar. Amma minntist Helgu ávallt með hlýhug. Tvær hálfsystur eignaðist amma, þær Jóhönnu, sem er látin, og Jónu, sem býr í Hveragerði. Jón faðir ömmu drukknaði ásamt Hall- geiri bróður hennar þegar hún var 12 ára. Arin ömmu á Bakkafirði er hún í fóstri hjá Halldóri Runólfs- syni og konu hans, Sólveigu Björns- dóttur. Var henni tíðrætt um þessi ár og greinilegt að þarna hefur hún notið alls góðs. Um tvítugt fer hún suður til Reykjavíkur og er hér veturlangt. Hún vann fyrir sér á greiðasölustað sem þá var rekinn í Iðnó við Tjörn- ina. Þar nemur hún þekkingu sína í matargerðarlist, sem hún bjó að alla tíð. Frístundir notaði hún til náms hjá nunnunum í Landakoti og Jærði hjá þeim hannyrðir. Árið 1918 giftist amma Kristni Andrési Jónssyni og eignuðust þau 6 börn; Áróru, sem er látin, Mínervu, gift Siguijóni Valdasyni, en hann er látinn, Iðunn, gift Ágústi Kjartanssyni, Jón, sem býr með Sigríði Eysteinsdóttur, Halldór og Sólveigu, sem gift er Einari Guðmundssyni. Kristinn afi lést árið 1967. Við systkinin vorum heimagang- ar hjá ömmu þó að við byggjum ekki í næsta nágrenni við hana. Alltaf var gott að koma til hennar, hvort heldur það var í hangikjötið á Þorláksmessu eftir erfiðan dag, eða bara til að fjalla um lífið og tilverana. Amma hafði létt skap og var alltaf tilbúin til að ræða alla hluti, bæði í gamni eða alvöru. Hún var framkvæmdasöm og var sífellt með einhverjar áætlanir um það sem hún ætlaði að koma í fram- kvæmd. Heimilið og fjölskyldan var henni mikils virði og sinnti hún hvoru tveggja af mikilli kostgæfni. Amma var komin á sjötugsaldur- inn þegar við eldri systkinin munum hana fyrst. Henni var mikið í mun að taka þátt í því sem við vorum að gera og reyndi hún af fremsta megni að setja sig inn í okkar hugð- arefni. Hún var því ekki bara amma okkar heldur einnig góður vinur, sem vildi okkur allt hið besta. Það var fengur fyrir okkur sem yngri vorum að njóta af lífsreynstu henn- ar. Hún hafði skoðanirá hlutunum, þannig gerði hún mikinn greinar- mun á þýskri „glæsikerru" og jap- önskum „smábíl“ og vildi að sjálf- sögðu frekar aka í glæsivagni held- ur en í smábílnum okkar. Þetta var eitt af því sem gerði ömrnu sérstaka í okkar augum og því gaman og spennandi að umgangast hana. Það gat jafnvel verið hún, sem stakk upp á því hvort við ættum ekki að fá okkur „snarlfæði". Þannig reyndi hún að lifa í takt við tíðarandann. Umhyggja hennar fyrir okkur kom berlega í ljós, þegar.foreldrar okkar voru búsettir erlendis og við í námi hér heima. Ef við vorum ekki fyrri til, þá hafði hún samband við okkur, til þess að vita hvernig við hefðum það eða bjóða okkur í mat, þá um nírætt. Lífið var ömmu ekki alltaf auð- velt, fremur en mörgum öðrum sem t Systir okkar, ELÍSABET ÞÓRÐARDÓTTIR, Hamrahlíð17, lést í Hafnarbúðum laugardaginn 16. desember. Karl Þórðarson, Viktor Þórðarson. t Elskuleg móðir okkar, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Unhól, Þykkvabæ, lést í Landsspítalanum að morgni 18. desember. Börnin. t Bróðir okkar og móðurbróðir, STEFÁN GUNNARSSON, Samtúni 10, lést i Landspítalanum 15. desember. Ragna Gunnarsdóttir, Garðar S. Helgason Guðrún Gunnarsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Gunnar Bjartmarsson. t Elskulegur sonur minn og bróðir okkar, GUNNAR ÓLAFUR GUNNARSSON, Hamrahlíð23, Reykjavík, varð bráðkvaddur ó heimili sínu 6. desember. Jarðarförin fór fram í kyrrþey. Þorbjörg S. Sigurbergsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Þórunn Gunnarsdóttir. t Maðurinn minn, VALGARÐUR KRISTINN MAGNÚSSON málarameistari, er látinn. Jarðarförin auglýst siðar. Magnea Ósk Kristvinsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför BJARNHÉÐINS HALLGRÍMSSONAR, Grensásvegi 56. Dagný Pálsdóttir og dætur. Björný Hall Svems dóttir — Minning Fædd 10. ágúst 1922 Dáin 10. desember 1989 í dag fer fram útför elskulegrar ömmu okkar, Björnýjar Hall. Hún fæddist 10. ágúst 1922 að Eiðurn í Garði. Foreldrar hennar voru Sveinn Ásmundsson, prentari og þúsundþjalasmiður, og Halldóra Sigvaldadóttir. Hún var enn korna- barn þegar henni var komið í fóstur ■til sæmdarhjónanna Þorleifs Ingi- bergssonar, útvegsbónda, og Júlí- önu Hreiðarsdóttur að Hofi í Garði. Þar ólst hún upp við gott atlæti í hópi uppeldissystkina sinna, Sigur- bergs sem nú er nýlátinn, Sigríðar, Júlíönu Guðrúnar og Pálínu Hreið- bjargar. Amma átti líka hálfsystur sem enn lifir, Sveinbjörgu Svein- björnsdóttur, og býr að Hvammi í Garði. 17 ára ræður amma sig í vist í Reykjavík, svo sem títt var á þeim árum. . Síðan liggur leiðin til Husavíkur, þar sem hún kynnist verðandi eiginmanni sínum, Hall- grími Magnússyni frá Múlakoti í Lundarreykjadal. Þau bjuggu sinn búskap í Reykjavík, þar sem afi var múrarameistari. Böm þeirra eru: Julíana Erla, fædd 1941, Magnús Anton, fæddur 1943, tvíburarnir Þorleifur og Gunnar, fæddir 1947. Þeir eru báðir látnir. Halla Helga, fædd 1950, Þorleifur Jónatan, fæddur 1953, og Ástráður Elvar, fæddur 1959. Þær eru eftirminnilegar stund- irnar sem við áttum saman með ömmu í Fellsmúlanum. Hún stjórn- aði stóru heimili af skörungsskap, og sat löngum við hannyrðir. Saum- aði hún út púða, stóla og myndir. Hún var með eindæmum fljót að taka upp nýjungar og til þess að fylgja eftir ýtmstu kröfum sínum um hreinlæti og óaðfinnanlegan brag á heimilinu lét hún sérpanta bónvél frá Englandi, áður en ryk- sugan hafði einu sinni náð umtals- verðri útbreiðslu hér á landi. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fara að heimsækja ömmu því að alltaf fengum við svo góðan mat hjá henni. Hún var mikill tónlistar- unnandi, hafði yndi af að hlusta á tónverk meistaranna, en lék jafn- framt sjálf á píanó. Amma var allt- af greiðvikin og hjálpsöm við þá sem áttu um sárt að binda. Hún var mikil félagsvera, undi sér best þeg- ar tekið var í spil á góðri stund. Amma veiktist fyrir 10 árum og náði sér aldrei til fulls eftir það. A þessum tíma reyndist afi henni frá- bærlega vel. Síðustu árin vann hún í frystihúsi Sambandsins á Kirkju- sandi. Hún las mikið og pældi í hlutum sem fæstir gefa sér tíma til að velta vöngum yfir. Nú þegar amma er horfin frá okkur hugsum við til þeirra stunda sem við áttum þess kost að verá samvistum henni síðustu árin, eink- um sumarleyfin í bústöðum á Laug- t Eiglnmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÓLAFSSON húsgagnasmfðameistari, Frakkastíg 15, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum að kvöldi 5. desember sl. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir hönd aðstandenda, Sesselfa Einarsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Gylfi Guðmundsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, og Kolbrún Guðmundsdóttir. Lokað í dag, þriðjudaginn 19. desember, vegna jarðarfarar Jóhanns Ólafssonar. Forval hf. hafa lifað langa ævi. Hún þekkti ár kreppunnar. Fóru þau afi ekki varhluta af þeim erfiðleikum sem henni fylgir. En hún kvartaði ekki, það samræmdist ekki hennar skap- gerð. Hún hélt sitt eigið heimili alla tíð. Það var henni til sóma hvernig sem á er litið, þó efni hafi ekki allt- af verið mikil. Hún prýddi það með hannyrðum, sem hún vann sjálf og var margt af því unnið eftir að hún komst á efri ár. Eftir að amma lagðist inn á spítala í febrúar sl. var það hennar þrá að komast heirn, til að sinna því heimili sem hún hafði búið sér, vera innan urn hlutina sína, þar sem henni hafði liðið vel. Hún vildi ekki vera baggi á neinum. Hún hafði alla sína tíð verið sjálfstæð. Þegar heilsan bilaði, þótti henni þrátt fyr- ir það gott að njóta umönnunar starfsfólks á Landakotsspítala og síðar í Hafnarbúðum, en umönnun þessa fólks var til fyrirmyndar og mat hún það. Við systkinin erum þakklát fyrir að hafa nötið umhyggju hennar í uppvexti okkar. Berghildur Ýr, Guðmundur Konráð, Helga og Kristín Andrea. arvatni og í Húsafelli. Hun ’nafði yndi af umgengni við börnin okkar og nutu þau ástúðar hennar og blíðs viðmóts. Blessuð sé minning ömmu okkar. Arna Björný Arnardóttir Iris Edda Arnardóttir Blómastofa Fnðfinm Suðurlandsbraut’lO 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öllkvöid tii kl. 22,-einnig um helgar. Skreytingar viö öll tilefni. Gjafavörur. Þ.ÞORGRÍMSSON &C0 Q0Í3OH00. gólfflísar- kverklistar ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.