Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRHÐJUDAGUR 11i9i DESEMRER 1989 1Ö Glímu- og hestakóngur Bókmenntir Sigurjón Björnsson Atli Magnússon: Þorgeir í Gufu- nesi. Bókaútgáfan Örn og Örlyg- ur. Reykjavík. 207 bls. Atli Magnússon blaðamaður sendir nú frá sér ævisögu Þorgeirs Jónssonar bónda í Gufunesi. Þar álít ég að hann hafi aflokið nokkuð vandasömu verki. Er þar fyrst til að nefna að í þetta sinn var ekki unnt að láta söguhetjuna tala sjálfa og svo að segja bera ábyrgð á text- anum. Höfundurinn varð að skríða úr skjóli, vega og meta og standa sjálfum fyrir mati sínu og dómum. í öðru lagi er svo skammt um liðið frá láti Þorgeirs (5. janúar 1989) að minningar um hann hafa ekki fengið á sig þann blæ fjarlægðar, sem einatt þykir æskilegur til þess að ná jafnvægi í ævisöguritun. Og í þriðja og síðasta lagi var Þorgeir í Gufunesi mjög margslunginn per- sónuleiki, ekki ávallt auðskilinn en auðveldlega misskilinn. Höfundur virðist hafa unnið verk sitt þannig að leita upplýsinga hjá miklum fjölda manna (54 skv. skrá aftast í bók), kanna prentaðar heim- ildir (viðtöl við Þorgeir, frásagnir af honum í fjölmörgum bókum og blöðum, fréttir af íþróttamótum, 011 07H '-ÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri L I I UU " L I 0 / V KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. LÖGG. FASTEIGNASr Til sölu er að koma auk annarra eigna: í tvíbýlishúsi við Bústaðaveg 3ja herb. neðri haeð 81,8 fm nettó. Sérinng. Sérhiti. Ágaet sameign. Stór lóð. Mikið útsýni. Laus fljótlega. Einkasala. Þríbýli - allt sér - stór bílskúr 5 herb. miðhæð í reisulegu steinhúsi rétt vestan við borgarmörkin. Hæðin er 104,3 fm nettó auk sérg'eymslu og sameignar. Stór ræktuð lóð. Tilboð óskast í hæðina. Nýleg raðhús - bflskúr - útsýni Við Brekkubyggð í Garðabæ með rúmg. 3ja herb. ib. á tveimur hæð- um. Frágengin lóð. Fjársterkir kaupendur óska eftir: 2ja herb. íb. á jarðhæð helst í Hlíðunum. 5-6 herb. sérhæð í borginni. Margskonar eignaskipti. 2ja herb. íb. á 1. hæð. Ekki í kjallara. Einbýlishús og raðhús á einni hæð í borginni og nágrenni. Margir bjóða útborgun fyrir réta eign. Margskonar eignaskipti. Gott einbýlishús til sölu á Rifi á Snæfellsnesi. Eignaskipti möguleg. AIMENNA FASTEIGWASAIAH lÁuGAVEGM^ÍMA^ÍÍ5Ö-2Í37Ö r HUSVAIVGIJR BORGARTÚNI29,2. HÆÐ. ** 62-17-17 Stærri eignir Einb. - Klapparbergi 123 fm nettó fallegt einb. á einni hæð ásamt bílsk. 4 svefnherb. o.fl. Jaðarlóð m/fráb. útsýni yfir Elliðaárdalinn. Verð 11,2 millj. Áhv. 2,3 milij. veðdeild. Framnesvegur - 4ra-5 Ca 107 fm nettó glæsil. íb. á Bráðræðis- holti. Nýtt bað, 3-4 svefnherb. o.fl. Parket. Sérhiti. Þvottaherb. innan íb. Verð 6,9 millj. Laugarnesv. - sérinng. 127 fm nettó falleg jarðh. m. sérinng. Sérhiti. 3 rúmg. svefnherb., 2 saml. stofur o.fl. Austurberg - laus Falleg endaíb. á 3. hæð. 4 svefnherb. Þvherb. og búr innaf eldhúsi. Suðursv. Bílsk. Verð 6,6 millj. 1 Einb. - Stigahlíð Ca 329 fm vandað einb. m. innb. bílsk., vel staðs. í Stigahlíð. Hús- ið er smekkl. hannað og hefur verið vel við haldið: Fallegur garður. Verð 17,8 m. Einb. - Efstasundi Ca 100 fm einbhús, hæð og kj. Verð 7,4 millj. Áhv. 2,6 millj. Útb. 4,8 millj. Lóðir - Seltjnesi Höfum 2 góðar einbhúsalóðir við Bollagarða. Önnur fyrir tvfl. hús, hin fyrir einl. Verð frá kr. 1,9 millj. 3ja herb. Langholtsvegur - ris Góð risíb. í steinh. Skiptist í 2 svefnherb. o.fl. Básendi - ákv. sala 61 fm nettó falleg kjíb. í þríbhúsi. Park- et á stofu. Verð 4,5 millj. Rauðagerði - sérinng. 96 fm nettó lítið niðurgr. kjíb. Parket. Sérhiti. Sérinng. Fallegur garður í rækt. Hátt brunabmat. Verð 5,5 millj. Skipholt - sérinng. 96 fm nettó jarðhæð í þríb. Ný eld- húsinnr. Sérinng. Sérhiti. Nýtt þak. Verð 5,5 millj. 2ja herb. Parh. - Víðihlíð Ca 285 fm glæsil. parh. í ról. og góöu hverfi. Bílsk. Góður suðurgarður. Vönd- uð eign. Hagst. lán. Raðhús - Völvufelli 120 fm nettó raöh. á einni hæð með bílsk. Vandaðar innr. Mikið endurn. eign. Snjóbræðsla í stéttum. Raðhús - Engjaseli Ca 200 fm gott raðh. viö Engjasel meö bílgeymslu. Skipti á minni eign mögul. 4ra-5 herb. Irabakki - endaíb. Falleg endaíb. á 2. hæð. Svalir meðfram allri íb. Hátt brunabótamat. V. 5,3 m. Boðagrandi - ákv. sala Tæpl. 100 fm falleg 4ra-5 herb. íb. á 2. hæð í vinsælli lyftubl. Suðursv. Hús- vörður. Fallegt útsýni yfir sjóinn. Bílgeymsla. Verð 7,7 millj. Stóragerði 95 fm nettó falleg íb. á 3. hæð. 2 svefn- herb., stór tvískiptanl. stofa. Aukaherb. í kj. meö aðgangi að snyrtingu. Hátt brunabótamat. V. 6,2 m. Engihjalli - lyftuh. 63 fm nettó falleg íb. á 7. hæð í lyftuh. Tvennar svalir. Verð 4,4 millj. Hrísat. m/sérinng. Ca 40 fm gullfalleg endurn. íb. á jarðh. Allt nýtt. Sérinng. Skipti á stærri íb. mögul. Æsufell - lyftubi. 56 fm nettó góð íb. á 4. hæð í lyftuh. Gervihnattasjónv. Verö 4,1 millj. Furugrund - Kóp. 40 fm falleg íb. á 1. hæð í litlu fjölb. Suöursv. Laus fljótl. Verð 4,1 millj. Austurbrún - 2ja-3ja 83 fm falleg íb. á jarðh. í þríb. Sérinng. Sérhiti. Verð 4,8 millj. Óðinsgata - nýuppg. Góð nýuppg. kjíb. Verð 3,1 millj. Drápuhlíð - sérinng. 67 fm falleg kjíb. með sérinng. Dan- foss. Verð 4,2 millj. Þverholt - nýtt lán 50 fm ný risíb. Afh. tilb. u. trév. og máln. í nóv. nk. Verð 4,6 millj. Áhv. veðd. 2,7 míllj. Útb. 1,9 millj. hestamótum o.m.fl.), auk þess sem hann hafði lausleg kynni af Þor- geiri á efri árum hans. Vissulega er efni sem þetta vandmeðfarið og þarf góða kunnáttu og listfengi til að ekki verði úr því brotakennd og heldur leiðigjörn skýrslugerð. Höf- undi hefur að mínu viti tekist að vinna þetta verk mætavel. Þorgeir í Gufunesi rís upp úr þessum brot- um _sem sá heilsteypti, sanni og þrekmikli garpur sem hann var. Vitur maður og undra hlýr en með furðu marga fleti á persónuleika sínum, sem allir áttu sér þó ein- hvern samnefnara innst inni í hon- um sjálfum. Höfundur kemst sem sé undir yfirborðið, þó að hann haldi engu að síður þeim léttleika og glaðværð í frásögn sem ein- kenndi söguhetjuna. Bókin skiptist í fimm alllanga kafla og hefur hver fyrir sig nokkr- ar millifyrirsagnir. Fyrsti kafli (Vin- ir í varpa) segir frá nánustu ætt- mönnum Þorgeirs, uppvexti hans í Varmadal á Kjalarnesi, erli og at- höfnum, t.a.m. vaxandi íþrótta- áhuga og tveimur góðhryssum, Moldu og Flugu gömlu, rauðskjóttu góðhryssi, sem kemur mjög við sögu þeirra bræðra Þorgeirs, Ágústs og Jóns. Allir eignuðust þeir Flugu einhvern tíma og töldu sig allir eiga kvonfang sitt henni að þakka. Frá kvonfangi Þorgeirs segir og í þessum kafla. I öðrum kafla greinir einkum frá íþróttaafrekum. Þorgeir reynist af- burða íþróttamaður, sem slær met í fleiri en einni grein fijálsra íþrótta — og þau met stóðu lengi — og verður Ioks giímukóngur íslands. Ekki lét þessi knái piltur sig muna um það að skokka úr Varmadal til Reykjavíkur að sækja æfingar, ef önnur ferðaráð þraut. Hér segir einnig frá frægri glímuför til Nor- egs og Danmerkur og vetrardvöl í Danmörku á fimleikaskóla. En hvert stefndi annars hugur Þor- geirs? Frá því segir í þriðja kafla. Þá er Þorgeir kominn í búskapar- hugleiðingar. Fyrst býr hann í Norðurmýrinni í Reykjavík, þar sem hét Sunnuhvoll. Seldi Reykvíking- um mjólk, þeysti á gæðingum sínum um götur Reykjavíkur, sundlagði þá fram af Skúlagötunni. Iðkaði íþróttir á túninu sínu um hádegis- bil og fann upp á ýmsu skrítilegu, því að mikið spaug var í pilti og hann kunni vart orku sinni og kröft- um hóf. Nú taka góðhrossin að koma meira við sögu. Fluga gamla vinnur sér frægð á skeiðvelli og í kjölfar koma Stormur, Glói, Perla, Gjósta, gamli Gnýfari og Drottning. Eitt ár býr Þorgeir svo í Viðey. Og nú erum við komin í Gufunes þar Atli Magnússon sem fjórði kafli hefst. Þá skrifast árið 1938 og söguhetjan er hálffer- tug. Þar bjó hann uns ævi lauk eða í hálfa öld. Margt er að segja frá Gufunes- árum: frá stórbúskap ýmist með fjölda nautgripa, fjárhjörð eða stóð- hrossa- og góðhrossafjöld. Hið síðastnefnda tók yfirhönd þegar á leið ævi. Gerðist þá Þorgeir býsna sjálfstæður og snjall ræktunarmað- ur og ræktaði sitt „eigið kyn“ úr ýmsum stofnum. Fór hróður hans sem ræktunarmanns vítt um land og frábæra skeið- og stökkhesta sendi hann á kappreiðar ár hvert. En fleira gerðist á árum þessum. Það voru styijaldarár með hermenn og hervirki upp við bæjarvegg. Og það sem sköpum skipti: konumissir. Fimmti og síðasti kaflinn ber heitið „Gufunessgoðinn". Það er yfirskrift með sönnu. Síðustu ára- tugina bjó Þorgeir við sívaxandi . virðingu og vináttu fjölmargra. Hann lét sér fátt um heimsins gling- ur og hégóma, undi við hross sín sem hann elskaði eins og lífið í bijósti sér, sótti heim vini og kúnn- ingja og þeir sóttu til hans. Okrýnd- ur konungur hestamanna á efri árum. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að verða einn af kunningjum Geira á efri árum hans (hefði mátt vera fyrr). Gæfu, segi ég, því að sam- fundir við hann voru mannbætandi og fylltu mann lífsorku og gleði. Eitt sinn keypti ég af honum fola. Endilega átti ég að kaupa móðurina með, því að þeim myndi líða svo miklu betur saman. Ég þarf varla að taka fram að bók þessi er hin skemmtilegasta aflestrar auk þess að vera vönduð ævisaga. Barmafull er hún af frá- sögnum vina og kunningja um Þor- geir og af skrítnum og oft djúpspök- um tilsvörum hans og athugasemd- um. Alti Magnússon hefur reist þess- um sérstæða merkismanni fagran og réttan minnisvarða, svo sem hann átti skilið. Höfundur er ber- sýnilega prýðisvel ritfær maður. Málfar er vandað, tilgerðarlaust og stíll lipur og fjörlegur. Margar góð- ar myndir prýða. Þá vil ég að lokum geta þess sem hér er að finna en oft skortir í rit af þessu tagi: I bókarlok er skrá yfir heimildar- menn. Nafnaskrá er þar einnig, svo og skrá yfir helstu hesta sem við söguna koma. Það befði Þorgeiri líkað vel. Konurnar þeirra Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Betri helmingurinn. Viðtöl við fimm eiginkonur þekktra manna í íslensku samfélagi. Siguijón M. Egilsson: Ebba Guð- rún Sigurðardóttir, kona _ Herra Ólafs Skúlasonar. Örn Bjarnason: Jónína Bene- diktsdóttir, kona Svavars Gestssonar. Jón Daníelsson: Gerður Unndórs- dóttir, kona Vilhjálms Einars- sonar. Jón Guðni Kristjánsson: Margrét Kristín Sigurðardóttir, kona Ragnars Halldórssonar. Iiaukur L. Hauksson: Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir, kona Guðjóns B. Olafssonar Útg. Skjaldborg 1989. F innbogi Krist jánsson, Guftmundur B jöm Stí inþórsson, Kristm PéturwL, GuðmundurTómas9on,VióarBöðvarsson,vi6skiptafr.-fasteigna8ali. FANNAFOLD - PARHUS - NÝTT LÁN Ca 126 fm nýtt parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. 3 svefnherb. Húsið afh. nærfrág. að utan, fokh. að innan. Áhv. ca 4,1 millj. frá veðdeild. Verð 6,5 millj. SKÓGARÁS - 6 HERB. Ca 180 fm íbúð á tveimur hæðum. íb. er ekki fullfrág. að innan. Parket. Sérstaklega skemmtileg og rúmgóð eign. Áhv. ca 3,5 millj. SMYRLAHRAUN - HF. - STÓR SÉRHÆÐ Glæsileg ca 160 fm efri sérhæð í fallegu tvíbhúsi ásamt góðum bílskúr. Arinn í stofu, 4 svefnherb. Skipti mögu- leg á 3ja herb. íbúð. Verð 11 millj. EIRÍKSGATA - 4RA HERB. - NÝTT LÁN Glæsileg 4ra herb. efri hæð í góðu steinhúsi. Áhv. ca 3,5 millj. 'Nýtt eldhús og bað. Parket. Verð 6;5 millj. BRÆÐRABORGARST. - 4RA - MIKIÐ AHV. Falleg 4ra herb. risíbúð. 3 svefnherb. Parket. Áhv. ca 3 millj. langtímaián. Verð 5,1 millj. HRAFNHÓLAR - BÍLSKÚR - NÝTT LÁN Falleg 5 herb. íbúð á 2. hæð ásamt ca 30 fm bílskúr. Áhv. langtímalán ca 3,8 millj. Verð 6,7 millj. BOÐAGRANDI - ÞVERBREKKA - VÍKURÁS Höfum glæsilegar 2ja herb. íbúðir á ofangreindum stöð- um. Verð 4-4,5 millj. Sjá fleiri eignir í Morgunblaðinu sl. sunnudag. jm Gimli fasteignasala, II Þórsgötu 26 - sími 25099. Hugstætt efni, konan í breyttum nútíma. Heilabrot og umræður um stöðu kvenna eru ekki jafn nýjar af nálinni og margir fjálgir skrif- finnar virðast halda. Jafnréttis- barátta kvenna er heldur ekki nýtt fyrirbrigði sem betur fer, þó svo að okkur kvenfólkinu finnist oft og oftast með réttu að hægt miði. En margir hyllast til að leiða hjá sér baráttu fyrri tíma og einblína á nútímann, setja ekki atburðarásina í rétt samhengi. Sú atlaga sem var gerð að hús- mæðrum í lok sjöunda áratugarins breytti töluvert umræðum og mati um hríð. Augljóslega hafa viðmæl- endurnir fimfn í bókinni allir að meira leyti eða minna talið sig verða fyrir barðinu á því viðhorfi. Fjórar af fimm hafa verið í fullu húsmóður- starfi uns börnin eru flogin eða að fljúga úr hreiðrinu. Þá leita þær líka ýmissa leiða og íhuga hvaða mögu- leika þær hafi og hvað þær eigi að gera við sitt líf. Sumar þeirra hafa þegar fundið sinn farveg. Mér þótti galli á bókinni að ekki skyldi einhver vera skrifaður fyrir henni sem hefði getað yfirfarið kaf- lana því ekki hefði veitt af ákveð- inni samræmingu þó það sé fjarri mér að þar með hefði átt að reyna að steypa allar í sama mót. í öðru lagi vantar góðan og ítarlegan form- ála þar sem hefði verið skrifað skil- merkilega um þessar konur og aðr- ar, misjafnar aðstæður kvenna til þess að vera konur manna sinna. Síðast en ekki síst hefði slík rit- stjórn orðið kaflahöfundunum til hjálpar; það er líkast því sem þeir viti ekki alls kostar hvaða pól þeir eigi að taka í hæðina. Vegna þessa stjórnleysis á bók- inni ef ég mætti orða það svo verð- ur hún sundurlausari en ella. Aug- ljóslega hafa höfundarnir einhverra hluta vegna haft knappan tíma til að vinna viðtölin — eða þau komu mér alltjent þannig fyrir augu. Ég sé ekki ástæðu til að gefa köflunum hveijum fyrir sig einkunnir. Sumar kvennanna eru sléttari og felldari en aðrar og hefði þurft að gefa þeim meiri tíma. En þær eru allar geðþekkar og sumar spennandi per- sónuleikar. Þær eru að bræða ýmis- legt með sér sem hefði að ósekju mátt gera fyllri skil fýrst var verið að þessu á annað horð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.