Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLADIÐ ÞfiIi)JUDAGU|l 1,9, DESEMBKH 1989
39
Reuter
Jelena Bonner, ekkja Andrejs Sakharovs, leggur blóm við hliðina á líki eiginmanns síns.
Andrejs Sakharovs minnst í Moskvu:
Um 100 þúsund
manns gengu
hjá líkbörunum
Moskvu. Reuter.
MEIRA en hundrað þúsund
manns sýndu mannréttindafröm-
uðinum Andrej Sakharov hinstu
virðingu á sunnudag með því að
ganga fram hjá líkbörum hans í
æskulýðshöllinni við breiðgötuna
Komsomolskíj Prospekt í
Moskvu. Tveim stundum áður en
húsið var opnað um morguninnn
hafði myndast biðröð, þrátt fyrir
20 gráðu lrost. Ætlunin var að
loka húsinu um fimmleytið en
þá var enn tveggja kílómetra
löng röð fyrir utan og var fólki
hleypt inn fram undir miðnætti.
Ekkja Sákharovs, Jelena Bonner,
sat við börurnar. Fremstur í sér-
stökum heiðursverði var Jevg-
eníj Prímakov, sem sæti á í
stjórnmálanefhdinni, helstu
valdastofhun landsins en Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétleiðtogi, er
leyfði Sakharov-hjónunum að
snúa heim frá Gorkí til Moskvu
árið 1986, kom ekki á staðinn.
lýðshöllina og óttuðust yfirvöld
greinilega að tii mótmæla kæmi en
allt fór friðsamlega fram. í Bulg-
aríu komu um 1000 manns saman
á sunnudag fyrir utan aðalstöðvar
ríkissjónvarpsins og kröfðust fjöl-
miðlafrelsis. Við sama tækifæri var
flutt sálumessa fyrir Sakharov.
„Hann var samviska þjóðarinn-
ar,“ var viðkvæði viðstaddra sem
voru úr ölium stéttum og margir
- grétu. Borodín-strengjakvartettinn
lék hátíðleg verk eftir Tsjajkovskíj
og Beethoven er fólkið gekk kapp-
klætt með blóm í höndum inn í
húsið og fram hjá líkinu en andiit
þess var að rússneskum sið ekki
hulið. „Ég varð að koma. Hann
barðist fyrir frelsi föður míns. Hann
var samviskan og _ heiðarleikinn
holdi klædd,“ sagði Úkraínumaður
sem missti föður sinn í þrælkunar-
búðum í Úral-fjöllum árið 1983.
Miðaldra húsmóðir hélt á þrem rós-
um sem hún hafði vafið í dagblaða-
pappír og hugðist leggja við líkbör-
urnar. Hún sagði tárfellandi að
Sakharov hefði verið eini maðurinn
í heiminum sem hún hefði borið
traust til.
Á bekk með Gandhi og
Tolstoi
„Þeir sem vilja vita hvað almenn-
ingi fannst um föður minn geta
horft á fólkið hérna,“ sagði sonur
friðarverðlaunahafans, Dmitríj
Sakharov. Nær allir frammámenn
róttækra umbótasinna í landinu
komu í æskulýðshöllina og má
nefna Borís Jeltsín og leikhússtjór-
ann Júríj Ljúbímov ásamt skáldun-
um Andrej Voznessenskíj og Jevg-
eníj Jevtúsjenko. Málgagn komm-
únistaflokksins, Pravda, birti á
sunnudag ljóð eftir Jevtúsjenko til
minningar um Sakharov og sagði
þar að fráfall Sakharovs hefði skil-
ið eftir sig „skelfilegt, siðferðislegt
tóm.“ Jevgeníj Velikov, varaforseti
sovésku vísindaakademíunnar,
sagði í minningargrein í blaðinu að
Sakharov yrði skipað á bekk með
Mahatma Gandhi og Leo Tolstoi í
sögunni fyrir siðferðisstyrk sinn.
Stjórnvöld minnast
vísindaafreka
Stjórnvöld sendu frá sér opinber
minningarorð, undirrituð af Gor-
batsjov og fleiri ráðamönnum, þar
sem Sakharov voru þökkuð vísinda-
afrek hans, einkum við smíði fyrstu
sovésku vetnissprengjunnar. Farið
var fljótt yfir sögu þegar kom að
baráttu hans fyrir mannréttindum
í Sovétríkjunum. Sjónvai'pið gerði
pölitískri baráttu Sakharovs hins
vegar góð skil. Harðiínumenn hafa
einnig heiðrað minningu Sakharovs,
þ. á m. Jegor Lígatsjov, sem lofaði
einlægni hins látna.
Tugir herflutningabíla og lög-
reglubíla voru fyrir utan utan æsku-
m TULIP PC-T0LVUR
Eáf.: ___
V A EINST0KU
iv"" / i
7\‘
JOLA-PAKKAVERÐI
kiirnni l • i
PAKKI7
Tölva: TULIP PC með s/h skjá og 2 drif.
Prentari: STAR LC-10 og prentarasnúra.
Pappír: 500 blöð.
Hugbúnaður: HeimilisKORN heimilisbókhald.
JÓLA-PAKKAVERÐ: 99.900*
PAKKI2
Tölva: TULIP XT með s/h skjá og
20 MB hörðum diski, 30 ms.
Prentari: STAR LC-10 og prentarasnúra.
Pappír: 500 blöð.
Hugbúnaður: SamRÁÐ, ritvinnsla,
töflureiknir, gagnagrunnur, grafík,
HeimilisKORN heimilisbókhald, o.fl.
Námskeið: PC-Grunnnámskeið.
Disklingar: 10 stk.
JÓLA-PAKKAVERÐ: 159.900
t-J
PAKKI3
Tölva: TULIP AT með s/h skjá og
20 MB hörðum diski, 30 ms.
Prentari: STAR LC-10 og prentarasnúra.
Pappír: 500 blöð.
Hugbúnaður: MS-Windows 286,
MS-Write ritvinnsla, MS-Paint teiknikerfi og
HeimilisKORN heimilisbókhald, o.fl.
Námskeið: PC-grunnnámskeið.
Disklingar: 10 stk.
JÓLA-PAKKAVERÐ: 189.900
Verð miðast við staðgreiðslu og
gengi NLG = 31,4021, 7. des. 1989.
Euro og VISA raðgreiðslur.
Tulip-tölvurnar eru hollensk framleiðsla og
nýjung sem þegar hefur slitið barnsskónum
hér á landi.
Tulip hefur átt miklum vinsældum að fagna
fyrir áreiðanleika, vinnsluhraða, lipurð í
meðförum og hagstætt verð.
Tulip PC-tölvurnar bjóðast þér nú á
viðráðanlegu jóla-pakkaverði.
Komdu eða hafðu samband og kynntu þér
tilboð okkar.
ÖRTÖLVUTÆKNI
Tölvukaup hf„ Skeifunni 17,108 Reykjavík.
Sími 687220, Fax 687260.