Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 18
I aaMsrsaG ,®i siioacitjiíhíh <hsa. OJÍ • TVTOKGUNBLAÐIÐ' PRIÐJUDAUUR19: DESEMBER 1989 TVfR VINSJELAR í jolapakkann Vílhjálmur Hjálmarsson VERÐLAUNA- SKALDSAGA SEM GRÍPUR LESANDANN STERKUM TÖKUM Sigríöur Gunnlaugsdóttir hlaut 1. verölaun í skáldsagnakeppni I.O.G.T.fyrir þessa athyglis- veröu sögu, LÍFSÞRÆÐI. Sagan segir frá endurfundum átta kvenna, sem voru skóla- systur í menntaskóla. Ýmislegt hefur á dag- ana drifið; margt fariö öðruvísi en ætlaö var; annað eins og aö varstefnt. Það er tilhlökkun- aref ni að hittast. Samt reynist sumum þaö sárt. Lífsþræðir eru stundum einkennilega ofnir. Þeir sem velja vandaðar, viðurkenndar og skemmtilegar bókmenntir velja LÍFSÞRÆÐI. Frczndi Konráðs föðurbróðir minn Æviminningar Hermanns Vilhjálmssonar ÆVISAGA HERMANNS VILHJÁLMS- SONAR FRÁ MJÓAFIRÐL Skráð af Vilhjálmi Hjálmarssyni fyrrverandi ráðherra. Reykvíkingar þekktu Hermann undir nafninu Hemmi, oft meö viðurnefni dregiö af því að hann togaðist stundum á við stráka um túkall eða krónu. Vilhjálmur Hjálmarsson segir sögu föðurbróður síns á gamansaman og hugþekkan hátt. Þess vegna er unun að lesa hana þó að hún fjalli um óvenjulegt lífshlaup manns er aldrei fékk notið hæfileika sinna. FRÆNDI KONRÁÐS- FÖÐURBRÓÐIR MINN er bók fyrir þá sem vilja ÖÐRUVÍSI ævisögu sagðaaf hreinni snilld. Kappar og konungar Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Endursagnir á íslendingaþáttum Endursögn: Guðlaug Richter Myndir: Pia Falck Pape Hönnun kápu: Næst hf. Prentverk: Prentsmiðjan Oddi hf. Útgefandi: Mál og menning Stundum er bijóst mitt barma- fullt af þakklæti fyrir moldarkofana gömlu, fyrir fátækt þeirra sem þar hírðust, eins og mýs í holu, horfðu súrum augum á raunan hlóðarstein- inn eða flöktbjarma grútarlampans, en dreymdi þó um vor, birtu og yl, bæði í svefni og vöku. Hinn svanga dreymir brauð; hinn fátæka gull og skrúða. Ég trúi því sem sé, að hvergi nema í niðurlægingu okkar og kvöl hafi slíkur fjársjóður and- ans, sem íslendingasögurnar eru, • getað orðið til. Draumur fólksins var allur annar en dagmyndin, það hafði ekki getu, ekki þrek, til þess að lifa drauminn nema í þykjust- unni. Þá var sálinni fróun að heyra um þann, sem gat og þorði, bauð öldum hafsins byrginn, gisti kon- unga, flutti þeim gull málsins eða hjó fyrir þá óvini á velli, kom síðan heim með drekkhlaðin skip ger- sema, gjafa, sem kóngafólkið hafði hetjunni rétt. Enn meiri ylur fylgdi, ef í horni var karl eða kona, sem kunnu þá list að rekja ætt til kapp- ans. Enginn skortur var á slíkum í húmi kofans, og það endaði með þeirri sátt við lífið og sannleikann, að öll værum við af kóngum komin. Blátt blóð fer miklu betur í æðum og rennur lengur en rautt. Því held ég fram, að íslendingasögurnar séu, flestar, aðeins draumur fólks sem langar að lifa, en hefir ekkert nema hugarorkuna til þess. Af för á egggrjóti apalhrauns eymdar eru því þessar gersemar heimsbók- ' menntanna aldar, gersemar, sem eiga sér fáar iíkar. Um tíma týndum við takti við þær í flóðlýstum húsum og á dagbjörtum strætum, en mun- um þær nú aftur, og viljum rétta þær börnum okkar. Til þess þarf að vekja forvitni þeirra á uppruna sínum, þrá að lesa um hann og skilja. Því er vel, er sagnaþulir og listamenn rétta ungu fólki hönd, bjóða því að leiða það inná lendur, þar sem andans flug varð mest með okkar þjóð. Þessi bók Máls og menningar er tilraun til þess, lof- svert framtak. Guðlaugu lætur vel að endur- segja texta. Hun á tungutak lipurt og skýrt, hreint og fallegt, svo hverju barni er hollt að leggja við hlustir. Hún velur hér tíu hetjusög- j ur og segir þær af þeirri leikni, að 4 * i < ER ÞINN SÍMIÚTIÍ KULDANUM? ■ Sparisjóður Reykjavikurog nágrennis Vinningar eru skattfrjáisir ,___VERÐ KR______ | 500-00 I Upplýsingar um vinninga í símsvara 91-686690 og á skrifstofu félagsins í síma 91-84999 DreglA 23. desember 1989 SIMAHAPPDRÆTT11989 STYRKTARFELAG LAMADRAOC FATLAÐRA Háaleitisbraut 11-13 Reykjavik I (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.