Morgunblaðið - 19.12.1989, Qupperneq 18
I
aaMsrsaG ,®i siioacitjiíhíh <hsa.
OJÍ
• TVTOKGUNBLAÐIÐ' PRIÐJUDAUUR19: DESEMBER 1989
TVfR VINSJELAR
í jolapakkann
Vílhjálmur Hjálmarsson
VERÐLAUNA-
SKALDSAGA
SEM GRÍPUR LESANDANN
STERKUM TÖKUM
Sigríöur Gunnlaugsdóttir hlaut 1. verölaun í
skáldsagnakeppni I.O.G.T.fyrir þessa athyglis-
veröu sögu, LÍFSÞRÆÐI. Sagan segir frá
endurfundum átta kvenna, sem voru skóla-
systur í menntaskóla. Ýmislegt hefur á dag-
ana drifið; margt fariö öðruvísi en ætlaö var;
annað eins og aö varstefnt. Það er tilhlökkun-
aref ni að hittast. Samt reynist sumum þaö sárt.
Lífsþræðir eru stundum einkennilega ofnir.
Þeir sem velja vandaðar, viðurkenndar og
skemmtilegar bókmenntir velja LÍFSÞRÆÐI.
Frczndi Konráðs
föðurbróðir minn
Æviminningar
Hermanns Vilhjálmssonar
ÆVISAGA
HERMANNS
VILHJÁLMS-
SONAR FRÁ
MJÓAFIRÐL
Skráð af Vilhjálmi Hjálmarssyni
fyrrverandi ráðherra.
Reykvíkingar þekktu Hermann undir
nafninu Hemmi, oft meö viðurnefni dregiö
af því að hann togaðist stundum á við
stráka um túkall eða krónu.
Vilhjálmur Hjálmarsson segir sögu
föðurbróður síns á gamansaman og
hugþekkan hátt. Þess vegna er unun
að lesa hana þó að hún fjalli um
óvenjulegt lífshlaup manns er aldrei fékk
notið hæfileika sinna.
FRÆNDI KONRÁÐS-
FÖÐURBRÓÐIR MINN er bók fyrir þá
sem vilja ÖÐRUVÍSI ævisögu sagðaaf
hreinni snilld.
Kappar og
konungar
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Endursagnir á íslendingaþáttum
Endursögn: Guðlaug Richter
Myndir: Pia Falck Pape
Hönnun kápu: Næst hf.
Prentverk: Prentsmiðjan Oddi
hf.
Útgefandi: Mál og menning
Stundum er bijóst mitt barma-
fullt af þakklæti fyrir moldarkofana
gömlu, fyrir fátækt þeirra sem þar
hírðust, eins og mýs í holu, horfðu
súrum augum á raunan hlóðarstein-
inn eða flöktbjarma grútarlampans,
en dreymdi þó um vor, birtu og yl,
bæði í svefni og vöku. Hinn svanga
dreymir brauð; hinn fátæka gull og
skrúða. Ég trúi því sem sé, að
hvergi nema í niðurlægingu okkar
og kvöl hafi slíkur fjársjóður and-
ans, sem íslendingasögurnar eru,
• getað orðið til. Draumur fólksins
var allur annar en dagmyndin, það
hafði ekki getu, ekki þrek, til þess
að lifa drauminn nema í þykjust-
unni. Þá var sálinni fróun að heyra
um þann, sem gat og þorði, bauð
öldum hafsins byrginn, gisti kon-
unga, flutti þeim gull málsins eða
hjó fyrir þá óvini á velli, kom síðan
heim með drekkhlaðin skip ger-
sema, gjafa, sem kóngafólkið hafði
hetjunni rétt. Enn meiri ylur fylgdi,
ef í horni var karl eða kona, sem
kunnu þá list að rekja ætt til kapp-
ans. Enginn skortur var á slíkum
í húmi kofans, og það endaði með
þeirri sátt við lífið og sannleikann,
að öll værum við af kóngum komin.
Blátt blóð fer miklu betur í æðum
og rennur lengur en rautt. Því held
ég fram, að íslendingasögurnar
séu, flestar, aðeins draumur fólks
sem langar að lifa, en hefir ekkert
nema hugarorkuna til þess. Af för
á egggrjóti apalhrauns eymdar eru
því þessar gersemar heimsbók-
' menntanna aldar, gersemar, sem
eiga sér fáar iíkar. Um tíma týndum
við takti við þær í flóðlýstum húsum
og á dagbjörtum strætum, en mun-
um þær nú aftur, og viljum rétta
þær börnum okkar. Til þess þarf
að vekja forvitni þeirra á uppruna
sínum, þrá að lesa um hann og
skilja. Því er vel, er sagnaþulir og
listamenn rétta ungu fólki hönd,
bjóða því að leiða það inná lendur,
þar sem andans flug varð mest með
okkar þjóð. Þessi bók Máls og
menningar er tilraun til þess, lof-
svert framtak.
Guðlaugu lætur vel að endur-
segja texta. Hun á tungutak lipurt
og skýrt, hreint og fallegt, svo
hverju barni er hollt að leggja við
hlustir. Hún velur hér tíu hetjusög-
j ur og segir þær af þeirri leikni, að
4
*
i
<
ER ÞINN SÍMIÚTIÍ KULDANUM?
■
Sparisjóður Reykjavikurog nágrennis
Vinningar eru skattfrjáisir
,___VERÐ KR______
| 500-00 I
Upplýsingar um vinninga í símsvara
91-686690 og á skrifstofu félagsins í síma 91-84999
DreglA 23. desember 1989
SIMAHAPPDRÆTT11989
STYRKTARFELAG
LAMADRAOC FATLAÐRA
Háaleitisbraut 11-13 Reykjavik
I
(