Morgunblaðið - 19.12.1989, Blaðsíða 4
4
MflF H3ffM383a .(ÍI J?Ur)/.0'U.ÖI>f<f aíGAJaMUnffOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
Kópasker:
. >
Engin tilboð í Arlax
Til greina kemur að leigja stöðina
ENGIN tilboð bárust í eiguir
Jirotabús fiskeldisstöðvarinnar
Arlax hf. á Kópaskeri og Keldu-
hverfi en tilboðsfrestur rann
út í gær. Samvinnubankinn,
sem á veð í fiski stöðvarinnar,
hefúr fjármagnað reksturinn
Eignaskattsdeild
Húseigendafélags:
Almennur
félagsfund-
ur í kvöld
Almennur félagsfundur verður
í eignaskattsdeild Húseigenda-
félagsins í Skipholti 70 kl.
20.00 í kvöld, þriðjudagskvöld.
Fjallað verður um nýkomið
lagafrumvarp um breytingu á
lögum um tekju- og eignaskatt.
firá því stöðin var tekin til gjald-
þrotaskipta á dögunum. Til
greina kemur að leigja stöðina.
Örlygur Hnefill Jónsson bústjóri
segir að nú verði helstu kröfuhafar
að fara yfir stöðuna. Hann segir
að það hafi verið samdóma álit
þeirra að best væri að halda rekstri
áfram, það tryggði hagsmuni
þeirra best. Nú þegar ljóst væri
að enginn markaður væri fyrir
fiskeldisstöðvar þyrfi að athuga
aðra möguleika og kæmi til greina
að leigja stöðina.
Árlax rak seiðaeldisstöð í
Kelduhverfi og matfiskeldisstöð
við Kópasker. Þá átti félagið Lind-
arbakka í Kelduhverfi, ýmis tæki
og fisk. Við gjaldþrot var verð-
mæti fasteigna talið 163 milljóna
króna virði og fiskbirgðir metnar
á 23 milljónir kr. Skuldir voru þá
taldar 214 milljónir kr. Kröfulýs-
ingarfresti lýkur 6. febrúar og
fyrsti skiptafundur verður 1. mars.
Omerktur lögreglubíll við gatnamót
Morgunblaflið/Sverrir
Lögreglan í Reykjavík hefur undanfarna daga notað óeinkenndan bíl við eftirlit við gatnamót og hafa
tugir ökumanna verið kærðir fyrir að aka mót rauðu umferðarljósi. Að sögn Arnþórs Ingólfssonar aðstoðar-
yfirlögregluþjóns hafa allt að fimmtán ökumenn verið kærðir daglega fyrir að aka yfir á rauðu ljósi og
verður þessum aðgerðum fram haldið næstu daga.
VEÐURHORFURIDAG, 19. DESEMBER.
YFIRUT í GÆR: Yfir N-Grænlandi er 1.027 mb hæö.' en 960 mb
heldur minnkandi lægð austur við Noreg þokast norðnorðaustur.
SPÁ: Norðaustlæg átt, víöast stinningskaldi eða allhvasst og él
um norðan- og austanvert landið, en heldur hægari og léttskýjað
sunnanlands. Áfram kalt í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Minnkandi norðan-
átt en gengur í vaxandi aust-norðausturátt einkum um sunnan-
og austanvert landið. Él á Norður-, Austur- og síðar einnig á Suð-
austurlandi, en þurrt að mestu vestanlands. Talsvert frost um allt
land.
TÁKN:
k
Heiðskírt
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, líeil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
# * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V E1
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri *5 alskýjað Reykjavík -f5 léttskýjað
Bergen 5 alskýjað
Helsinki ■irA frostrigning
Kaupmannah. 8 hálfskýjað
Narssarssuaq t-3 léttskýjað
Nuuk tZ skýjað
Osló 1 léttskýjað
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 1 alskýjað
Algarve 15 skúr
Amsterdam 10 rigning
Barceiona 17 þokumóða
Beriin 11 skýjað
Chicago +16 heiðskirt
Feneyjar 8 rigning
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 6 léttskýjað
Hamborg 11 skýjað
Las Palmas 24 léttskýjaö
London 10 rigning
Los Angeles 8 þokumóða
Lúxemborg 10 rigning
Madríd 12 skýjað
Malaga 16 skúr
Mallorca 21 skýjað
Montreal +17 léttskýjað
New York +8 léttskýjaö
Orlando 13 snjóél
Paris 10 rigning
Róm 20 skýjað
Vín 12 léttskýjað
Washington +8 skýjaö
Winnipeg +32 kornsnjór
Einangrunarstöðin í Hrísey:
Hreinræktun Gallo-
waystoftisins lýkur
á næstu þrem árum
HREINRÆKTUN Galloway-
nautgripa á einangrunarstöðinni
í Hrísey lýkur væntanlega á
næstu þremur árum, að sögn
Ólafs E. Stefánssonar, nautgripa-
ræktarráðunautar Búnaðarfé-
lags íslands. Aðeins einstaka
áhugamenn meðal bænda hafa
ræktað stofn Galloway-nautanna
áfram, en að sögn Ólafs hafa
stjórnvöld ekki framfylgt ákvæð-
um búfjárræktarlaga um að
ræktun kynsins verði varðveitt í
landinu.
ei veitt til þess fjármagni," sagði
Ólafur.
Ekki er lengur nauðsynlegt að
rækta upp hjörðina í landi á sama
hátt og gert hefur verið í, Hrísey
að sögn Olafs, þar sem nú er leyfi-
legt að flytja fijóvguð egg þaðan í
land að uppfylltum settum skilyrð-
um. „Þetta verður væntanlega gert
með þeim hætti að best ræktuðu
kýmar í Hrísey verða látnar fram-
leiða fjölda eggja, sem síðan verður
komið fyrir í fósturmæðrum, en ég
geri ráð fyrir að feðurnir að þessum
fóstrum verði hreinræktuð Gallowa-
„Hreinræktun hjarðarinnar í
Hrísey er langt á veg komin, og
eru nautin þar nú flest af fjórða
ættlið, en nokkrir kálfar eru þó
fæddir af fimmta ættlið. Það hefði
þurft að vera tiibúin ræktunarstöð
í landi fyrir tíu árum, þar sem
hægt hefði verið að rækta þessa
hjörð áfram til varðveislu, og sam-
kvæmt búfjárræktarlögunum var
þetta skylt, en stjórnvöld hafa aldr-
y-naut.“
Sæði úr holdanautum fæddum á
einangrunarstöðinni í Hrísey hefur
verið flutt í land síðan 1979, og
sagði Ólafur að það hefði verið tals-
vert notað. Hann sagði hagkvæmt
að nota sæðið í íslenskar mjólkur-
kýr, þar sem bændur þyrftu þá
ekki að vera með sérstakan stofn
af holdagripum, en einungis fáir
áhugamenn hefðu lagt stund á að
rækta stofninn áfram í landi.
Metsölulisti
Eymundssonar
Eymundsson hefur tekið saman lista yfir söluhæstu bækurnar
í versluninni. Listinn byggir á upplýsingum úr tölvuvæddu sölu-
kerfi Bókaverslana Sigfúsar Eymundssonar við Austurstræti og
í Kringlunni dagana 15., 16. og 18. desember.
1. Sagan sem ekki mátti segja. 11. I kjölfar Kiiunnar.
Nanna Rögnvaldsdóttir. Þorbjörn Magnússon og
2. Dauðalestin. JJnnur Þóra Jökulsdóttir.
Alistair MacLean.
3. Sendiherrafrúin.
HebaJónsdóttir.
4.-5. Fransí biskví.
Elín Páimadóttir.
4.-5. Égoglífið.
Inga Huid Hákonardóttir.
6. Ég heiti ísbjörg - Ég er ljón.
Vigdís Grímsdottir.
7. Ráðgátan á Klukknahvoli.
Enid Blyton.
8. Með fiðring í tánum.
Þorgrímur Þráinsson.
9.-10. Fimm hittast á ný.
Enid Blyton.
9.-10. Latastelpan.
Emil Ludvig og Zdenék Miler.
12. Náttvíg.
Thor Vilhjálmsson.
13.-15. FYændi Konráðs.
Viihjálmur Hjálmarsson.
13.-15. Helgi læknir Ingvarsson.
Guðrún P. Helgadóttir.
13.-15. Sandkom tímans.
Sidney Sheldon.
16. Orrustuskipið Bismarck.
Von Mullenheim-Rechberg.
17. Solla Bolla.
Elva Gísla og Gunnar Karlsson.
18. Krakkar í klípu.
Zilpha Keatley Snyder.
19. Ég get séð um mig sjálf.
LizBeny.
20.-21. Stafirnir okkar.
Rod Campell.