Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 1
88 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
278. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
GATT-viðræðurnar:
EB verður að koma
með nýjar tillögiir
fyrir hádegi í dag
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Samningamönnum Evrópubandalagsins (EB) í GATT-viðræðunum
um greiðari milliríkjaviðskipti hefur verið gefinn frestur til hádegis
í dag til að leggja fram nýjar tillögur um niðurskurð á styrkjum
og útflutningsbótum í landbúnaði innan bandalagsins. Fyrirhugað
var að ljúka viðræðunum í þessari viku í Brussel en þær hafa staðið
í fjögur ár. Harðar deilur um styrki til landbúnaðar hafa stefnt
árangri viðræðnanna í hættu.
Frans Andriessen, einn fram-
kvæmdastjóra EB, sagði í Brussel
í gær að bandalagið gæti ekki geng-
ið lengra í tillögum sínum nema
aðrir gæfu eitthvað eftir að sama
skapi. Samkvæmt heimildum í
Brussel vill EB setja það skilyrði
fyrir frekari tillögum um landbúnað
að Bandaríkjamenn láti af andstöðu
sinni við greiðari þjónustuviðskipti.
Carla Hills, aðalsamningamaður
Bandaríkjanna, sagði að ef EB
kæmi ekki með viðunandi tilboð
yrði ekkert samkomulag á fundin-
um. Fulltrúar Nýja-Sjálands, Ástr-
alíu og fleiri ríkja hafa tekið í sama
streng.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, átti í gærkvöldi fund með
Francois Mitterrand, forseta Frakk-
lands, og var gert ráð fyrir því að
þeir reyndu að ná samkomulagi um
tillögur sem ganga lengra en þær
sem nú liggja fyrir. .
Landbúnaðar- og viðskiptaráð-
herrar EB héldu fund í Brussel í
gærkvöldi til að leita viðunandi
Iausnar á deilununi fyrir hádegi í
dag.
Persaflóadeilan:
Reuter
Langþráður
maturað vestan
Anastasíja Andrejeva, 83 ára gam-
all Moskvubúi, grípur um höfuðið
og starir sem dáleidd á matvæli er
Þjóðveijar hafa sent til Sovétríkj-
anna. Borgarráð Moskvu og Rauði
krossinn hafa gefið út ströng fyrir-
mæli um dreifingu matarins til
barna og sjúkrahúsa til að reyna
að minnka líkurnar á að birgðirnar
lendi í höndum svartamarkaðs-
braskara. Fjöldi starfsmanna í ríkis-
verslunum í Leníngrad hefur verið
fundinn sekur um að geyma á laun
birgðir af mat og sígarettum og
mun verða'refsað, að sögn Moskvu-
útvarpsins í gær. Verkamenn og
þingmenn frá Leníngrad fundu
varninginn er þeir gerðu skyndi-
könnun í geymslusölum nokkurra
stórverslana. í síðustu viku tók
borgarstjórnin, þar sem kommún-
istar eru ekki lengur einráðir, upp
skömmtun á matvörum í fyrsta sinn
frá því í síðari heimsstyijöld.
Karpov sigr-
ar Kasparov
Lyon. Reuter.
ANATOLÍJ Karpov, áskor-
andinn í heimsmeistaraein-
víginu í skák, sigraði Garríj
Kasparov heimsmeistara í 17.
skák þeirra, sem tefld var í
Lyon í gærkvöldi.
Kasparov gaf skákina í 40.
leik. Skákmennirnir standa því
jafnit' að vígi, með 8,5 vinninga
hvor.
Næsta skák verður tefld á
laugardag og hefur Kasparov
þá hvítt.
Sjá skákskýringu á bls. 41.
Baker hótar íröskum stj óm-
völdum öflugri skyndiárás
írakar fallast formlega á tilboð Bush um viðræður
Washington, Lundúnum. Reuter, Daily Telegraph.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjamenn myndu gera öfluga skyndiárás á Iraka ef þeir neit-
uðu að kalla hersveitir sínar í Kúvæt heim án skilyrða og láta alla
erlenda gísla lausa. Stjórnin í írak féllst í gærkvöldi formlega á til-
boð George Bush, forseta Bandaríkjanna, um viðræður ríkjanna.
„Ef beita þarf íraka hervaldi er
markmið okkar að gera það með
öflugri skyndiárás,“ sagði Baker er
hann ávarpaði utanríkismálanefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Hann sagði að tilboð George Bush
Bandaríkjaforseta um að Tareq
Aziz, utanríkisráðherra íraks, kæmi
til Washington í næstu viku og að
Baker ræddi við Saddam Hussein
íraksforseta í Bagdad væri síðasta
og besta tækifærið til að leysa
Persaflóadeiluna með friðsamlegum
hætti. Tilslakanir af hálfu Banda-
ríkjamanna kæmu þó ekki til
greina. „Verkefni mitt verður að
reyna að útskýra fyrir Saddam að
hann eigi aðeins tveggja kosta völ;
að virða ályktanir Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna eða hætta á
að leiða hörmungar yfir íraka,“
sagði hann. Utanríkisráðherrann
bætti við að eina friðsamlega lausn-
in sem til greina kæmi fælist í því
að írakar kölluðu hersveitir sínar í
Kúvæt heim tafarlaust og án skil-
yrða.
Iraskur embættismaður í samtali við Morgunblaðið:
Höfum unnið hálfan sigur með
viðræðum við Bandaríkjamenn
Framboð á nauðsynjum fer minnkandi og eftirlit með skömmtun hefur verið hert
Bagdad. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
„ÞAÐ eru allir mjög ánægðir yfir því að Bandaríkjaforseti hefur
loks séð að það tjóar ekki að hóta okkur. Það er hálfur sigur að
George Bush vill senda James Baker utanríkisráðherra hingað til
beinna viðræðna við Saddam Hussein og óskar eftir að Tariq
Aziz, utanríkisráðherra Iraks, komi snarlega til Washington," sagði
háttsettur embættismaður upplýsingaráðuneytisins í Bagdad í sam-
tali við Morgunblaðið á þriðjudagsmorgun.
Þetta er greinilega almenn Það er þó eftirtektarvert að írösk
skoðun hér í borginni og því er
bætt við að Bush hafi líkast til
orðið skelfingu lostinn þegar rann
upp fyrir honum að eftir 15. jan-
úar ætti hann engra kosta völ en
að ota hermönnum út í stríð þegar
samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna þar aðiútandi var í höfn.
blöð eru mjög hógvær í skrifum
sínum um málið og ekki eins sigri
hrósandi og fólk sem tekið er tali.
Væntanlega er það skipun að ofan
að gera eða segja fátt sem leitt
gæti til þess að Bush fengi ástæðu
til að skipta um skoðun.
Hér má sjá breytingu frá í októ-
ber hvað varðar fáanlegar vörur.
Auk mjólkur er brauð nú nánast
hvergi að fá, minna er af mörgum
matvörum og eftirlit hefur verið
hert með skömmtun á ýmsum
nauðsynjavarningi. Verðlag hefur
rokið upp á þessum vikum sem
liðnar eru frá því ég kom hér
síðast og svarti markaðurinn hefst
eiginlega áður en komið er í gegn
um vegabréfsskoðun. Starfsmenn
upplýsingaráðuneytisins sögðu að
nú væri fat'ið að rigna inn hundr-
uðum beiðna blaðamanna um árit-
un vegna væntanlegrar komu
James Bakers. Þessa stundina eru
ekki margir blaðamenn í Bagdad.
Ég spurði herra Jadoni, yfir-
mann fjölmiðladeildar ráðuneytis-
ins, sem var einhverra hluta vegna
sendur að taka á móti mér á Sadd-
am Hussein-flugvelli á mánudags-
kvöld, hvort hann héldi að Baker
myndi fá áritun snarlega en eftir
henni iiafa margir fyrrverandi
stjórnmálamenn evrópskir þurft
að bíða dögum saman í Amman í
Jórdaníu. „Það verður í lagi ef
Bándaríkjamenn verða ekki með
neinn frekari belging á næstu
dögum,“ sagði hann og stökk ekki
bros.
James Baker
Bandaríska utanríkisráðuneytið
tilkynnti í gærkvöldi að íraska
stjórnin hefði tekið tilboði Bush og
undirbúningur viðræðnanna væri
hafinn. George Bush, sem er í heim-
sókn í Argentínu, lét í ljós efasemd-
ir um að viðræðurnar yrðu til þess
að deilan leystist með friðsamlegum
hætti. Ali Salem al-Baidh, varafor-
seti Jemens, hvatti til þess að leið-
togar Arababandalagsins kæmu
saman til að freista þess að afstýra
stríði við Persaflóa.
Breska gervihnattasjónvarpið
Sky News skýrði frá því í fyrra-
kvöld að Irakar væru reiðubúnir að
fara úr Kúvæt ef Vesturlönd lofuðu
að beita þá ekki hervaldi. Þeir léðu
máls á því að gefa eyjarnar Buhiy-
an og Warha upp á bátinn gegn
því að þeir fengju að leigja þær af
Kúvætum til að tryggja sér sigl-
ingaleið á Persaflóa. Sky News
sagði að Saddam Hussein hefði
rætt þessa lausn við erlenda sendi-
menn en talsmenn bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins kváðust engar
upplýsingar hafa fengið um slíkt.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, vitjar breskra hermanna
við Pei'saflóa á næstu vikum til að
leggja áherslu á að breska stjórnin
hafi í engu breytt afstöðu sinni til
innrásarinnar í Kúvæt.