Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 5
[SLENSKA AUCLÝSINCASTOFAN HF. _ , ÍSLENSKA AUCLÍSINGASTOFAN HF.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
S.A %
oJC
T S J
IÐUNN
GARÐAR SVERRISSON
Kristj án
Astir, sorgir og glæstir sigrar
Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska
þjóðin hefur eignast; jámsmiðnum frá Akureyri sem
fómar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi
óperunnar þar sem honum tekst með fágætum
viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum.
Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er
viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frásagnar.
Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og
hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá
vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og
utan, frá ástríðu og sorgum, ljóma sviðsljósanna og
skugga öfundar og umtals.
Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir
metsölubókina „Býr Islendingur hér“ en saga hans
um Kristján Jóhannsson er grípandi og
feikilega vel skrifuð.
VANDAÐAR BÆKUR
♦ í 45 ÁR ♦
"S
IÐUNN
Erlingur Þorsteinsson læknir hefur frá mörgu að segja af
langri og viðburðaríkri leið. Frásögnin er krydduð glettni og
gamansemi, víða er komið við og manna og málefna
minnst af hreinskilni og einurð.
Hann dregur upp persónulega mynd af föður sínum,
Þorsteini Erlingssyni skáldi, og lýsir á eftirminnilegan
hátt æskuheimilinu sem sorgin sótti snemma heim við
fráfall heimilisföðurins. Þar áttu listir, menning og
mannleg hlýja rætur, þangað lögðu margir þjóðkunnir
menn og konur leið sína í dagsins önn, og þeir
sem hjálpar voru þurfi áttu þar öruggt athvarf.
Ur skjóli foreldrahúsanna liggur leiðin til náms og starfa,
og að loknu sérnámi í háls-, nef og eyrnalækningum á
stríðsárunum í Danmörku snýr hann heim reynslunni
*- ríkari eftir að hafa lent í lífshættulegum ævintýrum þar.
Af alúð og einbeitni tekst hann á við læknisstarfið,
hugðarefnin og baráttumálin. Hér er á ferðinni
ffásögn mikils athafnamanns.
VA NDAÐAR BÆKUR
♦ í 45 ÁR ♦