Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Mannlegt eða
hálfmannlegt
Bókmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Bleikfjörublús
Höfundur: Þorvarður Helgason
'■Útgefandi: Fjölvi
Bleikfjörublús er ný skáldsaga,
sem ætlað er að vera nútima samfé-
lagsskoðun og fjalla um mannlega
tilvist og örlög. Varla hægt að
hugsa sér háleitari markmið við að
rita skáldsögu. En það er nú svo
að skilgreiningar á samfélagi, tilvist
og örlögum eru líklega eins margar
og mannfólkið. Meira að segja
„mannlegt" getur haft margvísleg-
an hljóm.
Bleikfjörublús segir frá hjónum,
Bjarka og Dagnýju, sem eru á sólar-
strönd um jólaleytið - bara tvö -
þó svo að þau eigi böm sem enn
þurfa á barnapíum að halda, ef for-
eldramir bregða sér bæjarleið. Þau
börn koma aldrei við sögu og reynd-
ar kemur ekki í ljós fyrr en um
miðbik sögunnar að þau em til.
Fram að þeim tíma ímyndar maður
sér þau hjónin rúmlega miðaldra
með ungana flogna úr hreiðrinu.
Samhliða sögunni af Bjarka og
Dagnýju er sagan af Einari. Hann
er líka á sólarströnd og þau hjónin
hitta hann einu sinni og svo frúin
einu sinni og biður um að fá að
koma í heimsókn. Hún fer í heim-
sókn, þiggur eitt koníaksglas og
Einar málar af henni mynd. Hann
eyðir nefnilega sólarferðinni mest-
megnis innandyra við að láta gaml-
an draum rætast; að mála. Og allt
gott um það að segja, þótt þetta
sé látið líta út sem komplex af því
hann er auglýsingateiknari.
Um miðbik sögunnar er sólar-
ferðinni lokið. Allir komnir heim.
Bjarki, sem hefur verið drykkfelld-
ur, er til fyrirmyndar. Hann hafði
nefnilega öðlast karlmannlega reisn
í ferðinni, þegar hann hélt framhjá
frúnni. Frúin er brún og falleg og
sést ekki á henni að hún hafi átt
þijú böm. Hún eyðir mestum tíma
sínum í að dást að líkama sínum,
rækta hann og vera girnileg fyrir
karlugluna sem er eins og rófulaus
hundur um allan bæ. Og Einar hitt-
ir tiltölulega unga konu, einstæða
móður með tvö böm, og verður
ástfanginn. Kemst út úr slæmu
hugarástandi, sem hefur varað frá
því að frúin yfirgaf hann og hann
Iosnaði við allt það yfirborðslega líf
sem henni og öllum hennar ættboga
fylgdi.
Það er nú það.
Það var heljarinnar kvalræði að
lesa sig í gegnum þessa bók. Hún
er ákaflega illa skrifuð - af innan-
tómleika og lélegu valdi á íslenskri
tungu og engu skynbragði á setn-
inga- og orðaskipan, eins og til
dæmis á blaðsíðu 20, þegar þau
hjónin, Bjarki og Dagný, hafa ný-
lokið sér af: „Og tvær manneskjur
liggja eins og grindhvalir í andar-
slitmnum á dauðaströndinniþær
leita ekki hvor hinnar heldur er sem
lík algleymisaugnabliksins sé orðið
að tjaldi sep skilji þær að, valdi
tilfinnanlegri aðskilnaði en fyrir
skyndiförina til.óminnisins sem var-
ir svo sárlega stutt. Konan veit af
áralangri reynslu að daprar hugsan-
ir hennar breyta ekki því sem er -
hún lætur eftir mókþörf holdsins
en á eftir ætlar hún að vera góð
við manninn sinn - og fara með
honum að kaupa hrásilkiblússu sem
hún sá í búðarglugga í gær, hrásilk-
ið lætur svo vel að hömndi hennar.“
Ef þetta væri eina málfarslega
klúðrið í bókinni, gæti maður hugs-
að; „svei prófarkalesaranum", en
svo er ekki. Öll bókin er svona. Ein
samhengislaus orðabuna út í gegn.
Fyrir utan það að ég skil ekki hvern-
ig nokkurri konu dettur í hug að
sýna manni sínum góðsemi með því
að fara með honum að kaupa hrá-
silkiblússu.
Þegar líða tekur á bókina, er eins
og sjálfur höfundurinn sé búinn að
missa tökin á henni; eins og hann
sé með óráði. Það er á síðu 95, sem
Dagný mætir Einari á ströndinni:
„Hana langar að tala við þennan
rauðbrysta sveitta hlaupara með
upplitaða loðnu framan á sér.
Hann hægir á sér, stansar og
gengur til hennar.
- Góðan daginn, fallegur þessi,
fínnst þér ekki? segir hann.
- Góðan daginn, jú hann er mjög
fallegur.
Hún þagnar og finnst óþægilegt
að hafa sagt þetta því það er sem
Þorvarður Helgason
næst það sama sem hún hugsar um
manninn sem hún er að horfa á.
Hún hlær lágt að hugsun sinni og
hann horfir á hana vandræðalegur.
- Eg verð að halda áfram, ann-
ars missi ég sveifluna.
- Bíddu, ég sá þig koma út úr
hótelinu þínu, hvar býrðu?“
Það er von að konan spyrji.
í lok bókarinnar er höfundurinn
kominn í einhver vandræði með að
binda enda á ósköpin, svo hann
sendir aðalpersónurnar, sem bókin
hófst á, í bílslys. Hann hreinlega
kálar þeim - og þá er hin pena
sérrídama, Dagný, orðin alki. Víst
búin að vera það allan tímann og
enginn vissi neitt. Svo heldur bara
sögu Einars áfram - hann á jú
eftir að taka tvö lostaköst með
nýju dömunni sinni, áður en hægt
er að enda bókina - annað í rúm-
inu, hitt á eldhússtól.
Fyrir utan að vera illa skrifuð
er bókin hundleiðinleg. Hún á Iík-
lega að vera „alveg svakalega ber-
orð og ögrandi". En hún er það
ekki. Hún er klúr; uppfull af sam-
förum og samfarahugsunum, eigin-
lega svo að manni finnst höfundur-
inn fastur í „sköpunum“ á öllum
sögupersónum sínum, rétt eins og
hann í getuleysi sínu sem rithöfund-
ur, hafi ákveðið að öruggast væri
að halda sig þar. Svei mér, ef það
væri einu sinni afsakanlegt að gefa
þetta út á endurunnum pappír.
Skáldsaga eftir
Oskar Aðalstein
NÝ skáldsaga eftir Óskar Aðal-
stein er komin út hjá Fjölva. Hún
heitir Mjöll - stúlkan í fjörunni.
í kypningu útgefanda segirm.a.:
„Bókin er margslungin ástarsaga,
sviðið er mest í sjávarplássi á Vest-
fl'örðum, en með viðkomu í höfuð-
borginni og í langdvölum erlendis,
þar sem aðalsögupersónan Mjöll
vinnur við barnahjálp á hungursvæð-
um Afríku, en Jón Jökull flækist
með farskipum til Ástralíu.
Bókin um Mjöll fjallar um sterk
mannleg átök, þar sem náttúruöflin
grípa inn í. Sviðið í Jökulvík er nokk-
uð auðþekkt eins og því og ýmsum
persónum er lýst, þar sem bærinn
stendur undir Víkurhyrnu og hrika-
leg snjóflóð falla á veginn inn í Fjörð.
í sögunni beijast tveir menn um
hylli sömu stúlkunnar í ástríðu þar
sem jafnvel er gripið til skotvopns,
en líka setja spilaklúbbar með
ástríðu til fjárhættuspils mark sitt á
söguna, þar sem menn verða öreigar
og leggja líf sitt í og sinna nánustu
í rúst.“
Bókin um Mjöll er 186 bls. Kápu-
teikningu gerði Jean Posucco, en
prentun og bókband annaðist G.
Ben. prentstofa.
Óskar Aðalsteinn.
Frábær tæki til heimilisins og í jólapakkann...
... á ómótstæðilegu jóla-tilboÓs-verÓi
ELTA 3630
Ferðaútvarp.
Verð kr. 2.390,-
ELTA 6080
Einfalt mónó ferðatæki.
Verð kr. 4.990,-
ELTA 3850
Vasaútvarp m/hejmartækjum.
Verð kr. 1.390,-
ELTA 4220
Útvarpsklukka m/vekjara.
Verð kr. 2.390,-
DM-200 HLJÓMBORÐ
Bamahljómborð, 4 litir.
Verð kr. 6.990,-
m \ W mm.
8 jll' | jl j
*mwmm ''
ELTA 5751
ELTA 6248
ELTA 5865
ELTA 6456
CD-ferðadiskspilari m/tosku og fl. Einfalt stereó ferðatæki.
Verð kr. 15.990,-
Verð kr. 5.990,-
ELTA 6445
Vasadiskó m/útvarpi FM og MW. Tvöfalt stereó ferðatæki FM, SW, MW og LW. Tvöfalt stereó ferðatæki FM, MW og LW.
Verð kr. 2.790,- Verð kr. 11.590,- Verð kr. 6.990,-
ELTA 2524
ELTA 6438
Sambyggt hljómflutningstæki m/ Tvöfalt stereó ferðatæki mí
fjarstýringu og hátölurum.
Verð kr. 16.690,-
ELTA 2012
14“ litasjónvarp m/fjarstýringu.
tóiyafnara og lausum hátölurum. Verð kr. 27.990,-
Verð kr. 10.490,-
Graiðslukjör
við allra hæfí Allt verð er staðgreiðsluverð.
ix
Nett heymartæki m/spöng,
vasadiskóstærð.
Verð frá kr. 490,-
ELTA 6891
Tvöfalt stereó ferðatæki
m/CD geislaspilara, FM, MW og LW.
Verð kr. 25.990,-
Gæði á góðu verði
Faxafeni 12, slmi 670420
K/Sá