Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
33
Myndir eftir Gunnlaug Scheving frá 1922-1925:
Skoðaði myndim-
ar oft, ogþótti
afar vænt um þær
- segir Kristín S. Ólafsdóttir, sem geymdi tuttugu og
fimm myndir Schevings í kassa á heimili sínu í áratugi
TUTTUGU og fimm myndir eftir Gunnlaug Scheving, málaðar á
árunum 1922-1925, eru komnar fram í dagsljósið og verða sýndar
í Gallerí Borg á laugardag og sunnudag. Þetta eru vatnslitamynd-
ir, olíumyndir og blýantsskissur, sem keyptar voru á uppboði um
miðjan þriðja áratug aldarinnar, hafa verið geymdar í kassa síðan
en voru nýverið rammaðar inn.
Kristín S. Ólafsdóttir, sem bú-
sett er á Laugarvatni, eignaðist
umræddar myndir um miðjan
þriðja áratuginn, skömmu eftir
að þær voru málaðar. Hún geymdi
myndirnar í kassa á heimili sínu
í áratugi, þar til fyrir nokkru er
hún lét ramma þær inn. Myndim-
ar eru nú í einkaeign.
„Ég vissi alltaf af myndunum,
skoðaði þær oft, og þótti afar
vænt um þær,“ sagði Kristín í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Þannig er mál með vexti að móð-
ir Kristínar, Þrúður G. Jónsdóttir,
kona Ólafs Magnússonar, kaup-
manns í Fálkanum, fór oft á upp-
boð á þessum tíma, á árunum
1920 til 1928. „Það var sem upp-
lyfting fyrir hana,“ tilbreyting frá
umfangsmíklu heimilishaldi á
Rauðarárstíg 3, segir Kristín nú.
Gunnlaugur Scheving, sem
fæddist 1904 og var að hefja list-
nám á þessum árum, bjó ekki í
foreldrahúsum heldur hjá eldri
hjónum. Ýmislegt úr búi þeirra
var boðið upp er þau féllu frá,
þar á meðal umræddar myndir.
Kristín segir alltaf hafa verið
mikið fjör í salnum á uppboðum
þessa tíma, þar sem menn keppt-
ust við að bjóða og þarna hafi
alls kyns húsmunir verið til sölu.
Oft, eins og í þessu tilviki, var
ýmsu blandað í kassa, þar voru
bæði búsáhöld og aðrir munir svo
sem þessar myndir. Móðir Kristín-
ar bauð í kassann og vissi þá
ekki hvert innihaldið var. Þegar
heim kom og betur var að gáð
komu myndirnar í ljós. Kristín
segist strax hafa orðið mjög hrif-
in af þeim, hafí oft skoðað mynd-
irnar en alltaf sett þær í kassann
aftur, hann hafi verið samastaður
þeirra. Nokkrum dögum eftir upp-
boðið segir Kristín móður sína
hafa gefið sér myndimar, „senni-
lega vegna þess að ég var sú eina
á heimilinu sem sýndi þeim ein-
hvern áhuga.“
Myndirnar hefur Kristín geymt
í kassanum góða allar götur síðan,
nema eina sem hún hafði uppi við
í herbergi sínu þegar hún var
yngri. Það var teikning af karl-
manni, mynd sem Kristín var
mjög hrifín af, en það er sú eina
þessara mynda sem ekki finnst í
dag. „Ég hef leitað mikið en finn
hana ekki.“
Kristín fluttist að Laugarvatni
1951 er eiginmaður hennar, dr.
Haraldur Matthíasson, gerðist
kennari við Menntaskólann. Þá
setti hún myndirnar upp á háa-
loft. Segir það góðan geymslu-
sfað. „Eg var stöðugt að passa
myndirnar fyrir krökkunum, svo
Ljósmyndir Gunnar Gunnarsson
Tvær myndanna 25 eftb- Gunnlaug Scheving, sem Kristín geymdi
í kassanum í áratugi og nýlega voru rammaðar inn.
þau næðu ekki í þær og skemmdu. ari: „ég safna öllu mögulegu sem
En þau skoðuðu myndirnar að tengist hug og hendi, það sem
sjálfsögðu oft án þess að ég vissi ' fólk lætur frá sér af listrænni
af því, og þær eru heilar enn. Ég framleiðslu. Þetta eru ekki allt
skoðaði þær líka alltaf af og til, merkilegir hlutir en það er upp-
en réðist í það fyrir stuttu að láta lyfting að þessar myndir skuli
ramma þær inn.“ vera hægt að meta eitthvað,“ seg-
Kristín segist vera mikill safn- ir Kristín S. Ólafsdóttir.
I
RÁÐGJÖF
KAUPÞINGS
I
Fræðslufundur
um hlutabréf.
Kaupþing hf. gengst fyrir fræðslufundi um
hlutabréf mánudaginn 10. desember í Kristalssal
Hótels Loftleiða kl 20:30.
Frummælendur eru:
Stefán Halldórsson framkvæmdastjóri
Ráðgjafar Kaupþings hf.:
n Mat á hlutafélögum
Pétur H. Blöndal framkvæmdastjóri
Kaupþings hf.:
Skattalegt umhverfi hlutabréfamarkaðar
Guðmundur Magnússon prófessor í
hagfræðideild HL:
Framtíðarþróun hlutabréfamarkaðar
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
KAUPÞING HF
Kringlutini 5, stmi 689080