Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
53
Um gerilsneyðingn mjólk-
ur og mjólkurafurða
Landsmenn þurfa að læra að geta
gert greinarmun á leiðsögumönn-
um, sem eru menn með gott vald
á íslensku (oftast mjög gott, enda
margir áhugamenn um gott málfar
í okkar röðum), góða sérmenntun
og réttindi annars vegar og erlend-
um meðreiðasveinum hins vegar,
sem ég leyfði mér að kalla furðu-
fugla í fyrri grein minni.
Við leiðsögumenn eigum lítið
sameiginlegt með þessum mönnum,
og ég fyrir mitt leyti harðneita að
líta á þessa menn sem „starfsbræð-
ur mína“. Starfssystkini mín eru
rúmlega 350 talsins. Þau hafa öll
hlotið nauðsynlega menntun og
staðist erfið próf. Óll tala þau tung-
umál þjóðar þess -lands sem þau
fylgja ferðamönnum um, nefnilega
íslensku!
Afram á réttri braut
Vel má vera að Oddný Sv. Björg-
vins hafi þarfara að gera en að
skiptast á orðum við mig. En ekki
er margt þarfara á þessari stundu
fyrir þá sem vinna á sviði ferða-
mála en að fást við sívaxandi um-
svif erlendra útgerðarmanna.
Mér skilst að skriður sé að fara
að komast á þessi mál. Ef svo er
og við berum gæfu til að beina
þróuninni á rétta braut getum við
fljótlega gleymt orðavali mínu og
hneykslun Oddnýjar á því. Þá hefð-
um við loksins lagt út í það „að
sakast við okkur sjálf“, sem bæði
Oddný og aðrir aðilar vilja, og bætt
úr því sem miður hefur farið hér
hjá okkur. Til þess var leikurinn
gerður.
PS. Að lokum þetta, Oddný. Eitt
atriði af mörgum í hinu íslenska
þjóðfélagi sem ég tel vera betra en
t.d. í þýskumælandi löndum er það
að menn ávarþa hver annan með
eiginnöfnum. Jafnvel þó að viðkom-
andi sé ekki kenndur við föður sinn
notar fólkið oftast eiginnafnið frek-
ar en ættarnafnið. Hingað til hafa
allir aðilar sem umgangast mig í
ferðaþjónustu vitnað í mig með eig-
innafni mínu.
Þú ræður auðvitað sjálf þinni
framkomu við annað fólk. En mér
finnst hitt skemmtilegra, enda góð-
ur rótgróinn siður hérlendis.
Með kærri kveðju.
Höfundur starfar m.a. sem
leiðsögumaður.
eftirKarl G. Kristins-
son og Olaf
Steingrímsson
Gerilsneyðing mjólkur og mjólk-
urafurða hefur verið nokkuð til
umræðu í fjölmiðlum að undan-
förnu. Því hefur verið haldið fram
að mjólk sé hollari fyrir gerilsneyð-
ingu en eftir. í umræðunni virðist
gæta nokkurrar vanþekkingar á
smithættu af völdum mjólkuraf-
urða og er því rétt að benda á
eftirfarandi staðreyndir.
Mjólk og mjólkurafurðir eru góð
næring fyrir fjölda sýkla. Sýklar
geta borist í mjólkurafurðir frá
sýktum kúm og frá þeim sem
hugsa um þær. Þegar sýklar ber-
ast í mjólk getur þeim fjölgað veru-
lega. Til að drepa sýkla og fækka
bakteríum (gerlum) sem geta
skemmt mjólkina er hún geril-
sneydd. Gerilsneyðing byggir á því
að mjólkin er hituð upp í hátt hita-
stig en síðan snöggkæld. Þessi
meðferð drepur sjúkdómsvaldandi
örverur (sýkla), en hitaþolnar bakt-
eríur eins og ákveðnir keðjukokkar
og mjólkursýrugerlar lifa af geril-
sneyðinguna, enda súrnar geril-
sneydd mjólk og skemmist við
geymslu. G-mjólk er hins vegar
hituð nægilega til að drepa þessar
hitaþolnu bakteríur.
Það kemur því ekki á óvart að
þar sem ógerilsneyddrar mjólkur
og mjólkurafurða er neytt eru sýk:
ingar tengdar þeim vandamál. í
Englandi og Wales var til skamms
tíma hægt að kaupa ógerilsneydda
mjólk í verslunum, þótt lang-
stærsti hlutinn (97% árið 1985)
hafi verið gerilsneydd. Á árunum
1951-80 voru 233 smitsjúkdóma-
faraldrar tengdir mjólk og mjólkur-
afurðum í þessum löndum og veikt-
ust í þeim 10.000 manns. I Skotl-
andi var sala ógerilsneyddrar
mjólkur bönnuð 1983, en þar hafði
ógerilsneydd mjólk valdið 50 salm-
„Þau rök sem færö hafa
verið fyrir neyslu óger-
ilsneyddrar mjólkur .
eru léttvæt með tilliti
til hættu á sýkingum
tengdum neyslu á óger-
ilsneyddri mjólk, sem
valdið getur miklum
veikindum, kostnaði og
stundum dauða.“
onellafaröldrum 1970-80, sýkt
3.518 og dregið 12 til dauða. Frá
1983 hafa sýkingar tengdar mjólk
hins vegar verið nánast óþekktar
í Skotlandi.
Ekki þarf að leita til útlanda til
að meta gagnsemi gerilsneyðingar.
Gerilsneyðing var fyrst tekin upp
á íslandi af Mjólkurfélagi Reykja-
víkur árið 1917, en var lögboðin
árið 1934 með mjólkurlögunum
svokölluðu. Um tíma, eftir að lögin
voru sett, var heimilt að selja óger-
ilsneydda mjólk beint frá kúnum
og enn eru ógerilsneyddar mjólkur-
afurðir nýttar til sveita (af sum-
um). Snemma á 6. áratugnum kom
upp salmonellafaraldur á Seltjarn-
arnesi, en þá sýktust á annað
hundrað manns eftir að hafa
drukkið ógerilsneydda mjólk,
mengaða af salmonellu. Á Holum
í Hjaltadal sýktust, snemma á 7.
áratugnum, tvö ungmenni af berkl-
um sem raktir voru til mjólkur frá
sýktum kúm. Fleiri dæmi eru þekkt
en verða ekki rakin hér. Enn í dag
virðast nokkur brögð vera af því
að fólk sýkist á íslandi af völdum
salmonella og campylobacter bakt-
eríunum eftir að hafa neytt ógeril-
sneyddrar mjólkur (í sveit).
Fjölmargir sýklar geta borist
með mjólk. Hér á landi eru salmon-
ella og campylobacter (Cam-
pylobacter jejuni, veldur slæmum
niðurgangi) bakteríurnar langal-
gengastar. Aðrir sýklar sem eru
vel þekktir af því að berast með
mjólk eru t.d. berklabakterían,
taugaveikibakterían, Listería
monocytogenes (getur valdið heila-
himnubólgu hjá nýburum og fóst-
urláti hjá ófrískum konum), Stap-
hylococcus aureus (ýmsar sýkingar
þ. á m. eitrun með heiftarlegum
uppköstum), Streptococcus pyogé-
nes og Streptococcus zooepidernic-
us (hálsbólga, skarlatsótt, blóðsýk-
ing o.fl., í Danmörku smituðust
2.400 í einum faraidri í seinni
heimsstyijöldinni af ógerilsneyddri
mjólk og 24 dóu), Yersinia enteroc-
olitica (niðurgangur), brucella (öld-
usótt) og Coxiella burneti (hvísótt,
þ.e. lungnabólga ásamt fleiri ein-
kennum). Ljóst er að innleiðing
gerilsneyðingar á mjólkurvörum
var meðal mikilvægustu framför-
um þessarar aldar í baráttunni við
smitsjúkdóma.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir
er því miður líklegt að áróðri fyrir
ógerilsneyddri mjólk verði haldið á
lofti, en þau rök sem færð hafa
verið fyrir neyslu ógerilsneyddrar
mjólkur eru léttvæg með tilliti til
hættu á sýkingum tengdum neyslu
á ógerilsneyddri mjólk, sem valdið
getur miklum veikindum, kostnaði'
og stundum dauða.
Heimildir: Roberts, D. Sources of infecti-
on: food, Lancet 1990, 336:859-861.
Sharp, J.C.M. Peterson, G.M. Barrett, N.J.
Pasteurisation and the control of milk-
bome infection in Britain. British Medical
Joumal 1985; 291:463-464. Skovgaard,
N., Hvorfor ubetinget nej til salg af rá
mælk? Dansk Vet. Tidskrift 1985; 68:368-
371. Galbraith, N.S., Forbes, P., Clifford,
C., Communicable disease associated with
milk and dairy products in England and
Wales 1951-80. British Medical Journal
1982; 284:1761-1765. Páll A. Pálsson,
fyrrverandi yfírdýralæknir. Munnlegar
upplýsingar.
Höfundar eru dósentar í
sýklafræði.
FYRIR NÚTÍMA KARLMENN
H6RRARÍKI
SNORRABRAUT 56
Simar: 13505 14303
KJÖRBÓK
...sþakra
manna siður
Landsbanki
íslands
Banki allra iandsmanna