Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 76
25 áður óþekktar myndir
Gunnlaugs Scheving sýndar
Voru geymdar í kassa í áratugi
TUTTUGU og fimm myndir
eftir Gunnlaug Scheving list-
málara, unnar 1922-1925, koma
fyrsta sinni fyrir almennings-
sjónir um helgina. Myndirnar,
sem eru í einkaeign, voru
keyptar á uppboði í Reykjavík
á miðjum þriðja áratugnum,
hafa allar götur síðan verið
geymdar í kassanum sem þær
voru boðnar upp í, en voru
nýlega rammaðar inn.
Hér er um að ræða vatnslita-
myndir, olíumyndir og blýants-
skissur. Gunnlaugur Scheving
fæddist 1904 og var að hefja list-
nám á þessum árum. Sérfræðing-
ar, sem Morgunblaðið ræddi við
í gær, segjast ekki vita um eldri
myndir en þær sem hér um ræð-
ir, sem Gunnlaugur hafi látið frá
sér fara.
Kristín S. Ólafsdóttir, sem bú-
sett er á Laugarvatni, eignaðist
myndirnar skömmu eftir uppboð-
ið, en það var móðir hennar, Þrúð-
ur G. Jónsdóttir, kona Ólafs
Magnússonar, kaupmanns í Fálk-
anum, sem keypti þær.
Kristín segist, í samtali við
Morgunblaðið í dag, strax hafa
orðið mjög hrifin af myndunum
og nokkrum dögum eftir uppboðið
hafi móðir sín gefið sér þær,
„sennilega vegna þess að ég var
sú eina á heimilinu sem sýndi
þeim einhvern áhuga“.
Sjá: „Skoðaði myndirnar
oft...“ á bls. 33.
DAGAR
TIL JÓLA
Borgarráð:
Sandur í
stað salts
BORGARRÁÐ hefur samþykk
tillögu Inga Ú. Magnússonar
gatnamálastjóra, um að gerð
verði tilraun með sanddreifingu
í stað salts við hálkueyðingu í
borginni.
í tillögu gatnamálastjóra er gert
ráð fyrir endurskipulagningu á
hálkueyðingarkerfi borgarinnar
þannig að í Kringlu-, Gerðis- og
Fossvogshverfi verði dreift sandi í
stað salts í tilraunaskyni. Um er
að ræða svæði, sem takmarkast af
Kringlumýrarbraut að vestan,
Miklubraut að norðan, Reykjanes-
___þraut að austan og Fossvogsbraut
að sunnan. Á Kringlumýrarbraut,
Miklubraut, Reykjanesbraut og
Réttarholtsbrekkuna milli Mikiu-
brautar og Sogavegar verður eftir
sem áður dreift salti.
Manganfundurinn
á Reykjaneshrygg:
„Hafsbotns-
nefnd sækir
um fé til
rannsókna
Kristín S. Ólafs-
dóttir heldur á
einni af myndum
Gunnlaugs. Á inn-
felldu myndinni
sést önnur mynd
en þetta eru elstu
myndir lista-
mannsins sem vit-
að er um.
HAFSBOTNSNEFND iðnaðar-
ráðuneytisins ákvað á fundi
sínum á þriðjudag að sækja um
sérstaka fjárveitingu til frekari
rannsókna á svæði því á Reykja-
neshrygg þar sem mangangrýti
fannst i byrjun nóvember.
Að sögn Guðmundar Pálmason-
ar, formanns hafsbotnsnefndarinn-
■*r, hefur enn ekki verið tekin
ákvörðun um það í einstökum atrið-
um hvernig að rannsóknum á svæð-
inu verður staðið fáist fjárveiting
til þeirra.
Forsvarsmenn Þýsk-íslenska dæmdir í sakadómi Reykjavíkur:
Aðaleigandi dæmdur í 15 mán-
aða fangelsi og 40 millj. kr. sekt
ástand bókhalds fyrirtækisins væri
mjög lélegt. Samt hafi verið gerðir
ársreikningar þrjú ár í röð og skatt-
framtölum skilað án þess að úr væri
bætt. Bókhald og gerð ársreiknings
fyrir rekstrarárið 1984 hafi verið
flarri því að uppfylla kröfur um góða
bókhalds- og reikningsskilavenju.
Dómurinn gerir Þýsk-íslenska hf.
að bera ábyrgð á greiðslu fyrr-
greindra sekta hinna^ ákærðu en
gjaldist þær ekki skuli Ómar afplána
sekt sína með 12 mánaða fangelsi,
til viðbótar 15 mánuðunum, og Guð-
mundur sekt sína með 2 mánaða
fangelsi, til viðbótar þeim 5 mánuð-
um sem áður var getið um.
Hafnað var kröfum um að svipta
■ Þýsk-íslenska leyfi til verslunar-
atvinnu. Dómurinn taldi að líta bæri
til þess að strax eftir að málið kom
upp, fyrir 5 árum, hafi verið gerðar
ráðstafanir til þess að bæta úr þeim
ágöllum sem enn voru á bókhaldinu.
Dóminn skipuðu Helgi I. Jónsson,
sakadómari, og meðdómsmenn hans,
Sigurður Stefánsson og Sigurður
H. Pálsson, löggiltir endurskoðend-
ur.
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
skilum félagsins fyrir rekstrarárið
1984. Meðal annars hafi hagnaður
félagsins fyrir tekju- og eignaskatt
rekstrarárið 1984 verið vantalinn
um 43,9 millj. króna. Ákæruvaldið,
taldi undandreginn tekju- og eignar-
skatt nema 33 milljónum króna. Þá
voru mennirnir ákærðir fyrir að hafa
sýnt vanrækslu og óreiðu í grund-
vallaratriðum bókhalds ársins 1984.
Sakadómur gerði sjálfstæða at-
hugun á ársreikningum Þýsk-
íslenska hf. fyrir árin 1981-1984 og
er síðasta árið miðað við leiðréttan
ársreikning sem forsvarsmenn fyrir-
tækisins óskuðu eftir að yrði lagður
til grundvallar við endurákvörðun
opinberra gjalda, eftir að rannsóknin
hófst. Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að skotið hafi verið undan
tekju- og eignarskatti ekki lægri
fjárhæð en 26,161 milljón króna og
sé sú fjárhæð meðal annars vegna
uppsafnaðra tekna allt frá 1981, sem
áður höfðu ekki verið taldar fram
og hafi þá verið gætt allra vafaat-
riða og þau túlkuð fyrirtækinu í hag.
Einnig segir að fram hafi komið
að fyrir hafi legið þegar 1982 að
SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Ómar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóra og aðaleiganda Þýsk-íslenska hf., til 15 mánaða óskilorðs-
bundinnar fangelsisvistar og greiðslu 40 millj. króna sektar, og Guð-
mund Þórðarson, hdl, fyrrum stjórnarmann og umsjónarmann bók-
halds fyrirtækisins til 5 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar og
greiðslu 1 milljón króna sektar. Þeir eru sakfelldir fyrir það meðal
annars að hafa með skjalafalsi, bókhaldsbrotum og brotum gegn lögum
um tekju- og eignarskatt skotið að minnsta kosti 26.161.381 krónum
undan tekju- og eignarskatti á árinu 1984 með því að skila inn skatt-
skýrslu sem þeim gat ekki dulist, að mati dómsins, að var röng. Menn-
irnir hafa báðir lýst yfir áfrýjun dómsins til Hæstaréttar.
Mál þetta kom upp við rannsókn
rannsóknardeildar ríkisskattstjóra í
nóvember 1985 á skattskilum og
bókhaldi fyrirtækisins. í ákæru ei
rakin fjöldi atriða þar sem rangleg
sé frá greint í reiknings- og skatt;
Búið að salta í 85.500 tunnur
BÚIÐ var að salta síld í 85.500 tunnur á miðvikudagsmorg-
un, þar af 3.000 tunnur á innanlandsmarkað. Búið var að
salta í 195.300 tunnur á sama tíma í fyrra en saltað var í
10.500 tunnur á innanlandsmarkað á síðustu vertíð.
Síldarútvegsnefnd hefur gert
samninga um sölu á um 107
þúsund tunnum af síld til Evrópu
og Norður-Ameríku á þessari
vertíð en Síldarútvegsnefnd seldi
samtals 229 þúsund tunnur áf
síld til 11 landa á síðustu vertíð.
Sovétmenn hafa enn ekki fal-
list á að kaupa þær 50 þúsund
tunnur af saltsíld, sem samið
hafði verið um að þeir keyptu á
þessari vertíð fyrir um 5,5 millj-
ónir Bandaríkjadala, eða um 300
milljónir króna.