Morgunblaðið - 20.08.1991, Page 19

Morgunblaðið - 20.08.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991 19 Tíminn verður ekki stöðvaður segir Aleksander Kan sagnfræðiprófessor „Það er ekki hægt að stöðva tímann eða seinka honum. Ef hinir nýju valdhafar ná að festa sig í sessi komast þeir ekki hjá því að framkvæmda margt að því sem Gorbatsjov hefur boð- að,“ segir Aleksander Kan pró- fessor í sagnfræði við Uppsalahá- skóla. Kan var einn helsti sér- fræðingur um sögu Norðurlanda við sovétsku vísindaakademína á árunum 1960-86. Fyrir bænir forsætisráðherra Noregs og Svíþjóðar leyfði Gorbatsjov Kan og fjölskylda hans að flytjast frá Sovétríkjunum. Síðastliðinn laugardag hélt pró- fessor _Kan fyrirlestur í Þjóðskjala- safni Islands um ástandið í Sov- étríkjunum; hvort ríkjasambandið væri að liðast í sundur. Þá lét Kan í ljós vonir um að Sovétríkin, a.m.k. Rússland og flest lýðveldin þróuð- ust í átt til lýðræðis og blandaðs hagkerfis eftir sósíal- demókratísk- um leiðum. Fyrirlesari benti einnig á þann möguleika að Gorbatsjov kynni að fatast flugið. Morgunblaðið náði tali af Kan um hádegisbilið í gær þar sem hann sat þing norrænna sagnfræðinga um stjórnmálasögu austur á Laug- arvatni. Prófessorinn sagði fréttirn- ar enn vera óljósar en taldi athyglis- vert Gorbatsjov hefði sjálfur skipað þá menn sem nú virtust hafa velt honum úr sessi. Þetta væru herfor- ingar, skriffínnar og fulltrúar mið- stýringar sem vildu halda í sín völd. Menn sem teldu flokkskerfið ekki vera dautt úr öllúm æðum. Þegar Kan var spurður hvort hann teldi að verið væri að snúa aftur til eldri stjórnarhátta kvaðst hann telja að tímanum yrði ekki seinkað. Það væri enn von og mögu- leiki, að verkföll og mótspyrna al- mennings brytu þessa valdatöku á bak aftur. Slíkt myndi fyrst og fremst styrkja Jeltsín. Hann var þá inntur eftir því hvað hann teldi að gerðist, ef nýjum vald- höfum tækist að sitja í valdastólum? Hann sagði að í fyrsta lagi myndu valdhafar þá reyna að róa vestrið, sannfæra það um að Sovétríkin myndu st'anda við sáttmála og skuldbindingar. í öðru lagi yrði reynt að friða almenning heima fyrir með „vinsælum ráðstöfunum", t.a.m. með auknu vöru- og matar- framboði. Prófessor Kan sagði mönnum Óhugsandi væri að endurreisa hann eftir það sem á undan er gengið. Hann sagði vitanlega óljóst enn hver yrði framvinda mála. „Þeir þrír sem hafa nú tekið við hafa ekki verið neinir bardagamenn fyrir lýðræðinu. Mér þykir mjög undarlegt að Jeltsín hafi ekki verið tekinn úr umferð. Hann hefur styrkt stöðu sína síðustu mánuði um leið og Gorbasjov hefur misst allan stuðning. Stefna Jeltsín var að gera Rússland að þingbundnu lýðræðisríki og það fór fyrir bijóstið á mörgum valdamönnum. Það stóð styrr um það í nefndinni sem var að semja bandalagssáttmála lýðveld- anna. Gorbatsjov samþykkti í orði bandalag fullvalda ríkja en krafðist samtímis að fulltrúarnir skrifuðu undir að völdin væru^áfram í ráðu- neytunum í Moskvu. Fyrir þá menn sem tóku völdin nú var aðeins um eitt að ræða; að skella á algerri ógn- arstjóm strax og taka alla hugsan- lega andstæðinga höndum. En þetta gerðu þeir ekki og mér finnst frekar ótrúlegt að þeir geti haldið völdum lengi með byssustingjum. Mér þykir líklegt að margir hugsi sem svo að þetta skipti ekki öllu máli ef þeir fái eitthvað að éta. Það skapast því ekki þjóðareining gegn þessari nýju stjóm í einu vetfangi," sagði Arnór Hanni- balsson að lokum. vera ljóst að gamla kerfið einfald- lega virkaði ekki, skorturinn á mat- og neysluvörum væri alkunnur. Hann taldi því að hinir nýju valdhaf- ar myndu fyrr en síðar reyna „kínversku leiðina“; auka fijálsræði í atvinnurekstri en herða tökin á stjórnmálasviðinu. „Það er í fyrstu yfirlýsingum sagt að verið sé að forða stjórnleysi. Þarna er átt við andkommúnismann í fjölmiðlum og umræðuna um að flokkurinn og flokkskerfið hafi staðnað. Þessi valdataka á að sýna að kerfið er ekki dautt úr öllum æðum.“ — Eiga þeir ekki við nýjan sam- bandssáttmála Sovétríkjanna sem Gorbatsjov ætlaði að undirrita? „Það em takmörk fyrir því hvað valdhafar geta barist við marga andstæðinga," svaraði Kan. „Eg held að þeim sé ekki önnur leið fær en að undirrita sáttmálann. Það er líka athugandi að hann er almennt orðaður og mörg túlkunaratriði þar að finna. En eins og ástandið er núna er vafamál að fulltrúar lýð- veldanna treysti sér til að skrifa undir. Ráðamenn í lýðveldunum standa miklu nær Gorbatsjov heldur en nýju valdhöfunum. Sambands- sáttmálinn er að miklu leyti sköpun- arverk Gorbatsjovs og það hefði með vissum hætti styrkt stöðu hans að undirrita sáttmálann. Ef til vill rændu þessir menn völdunum ein- mitt núna vegna þess að þeir töldu að það yrði erfiðara að velta Gorb- atsjov úr sessi eftir undirritun," sagði prófessor Aleksander Kan. Aleksander Kan Morgunblaðið/Bjarni LLSU gw ai _P Jj Amerísk gæði, öryggi og þægindi eru aðalsmerki Jeep Cherokee. Þetta er btll sem upplyllir ströngustu kröfur um góða aksturseiginleika; ijúfur og lipur sem fólksbíll innanbæjar, viljugur, kröftugur og áreiðanlegur utanbæjar, í vegleysum eða ófærð. Jeep hófu fyrstir framleiðslu á jeppum, fyrir fimmtíu árum, og í dag leiða þeir lest allra þeirra sem fylgdu í kjölfarið. Það er óhætt að treysta leiðtoganum. JEEP CHEROKEE, ÁRGERÐ 1991, FRÁ KR. 2.397.000,- 4.0 lítra, 6cyl. vél, 190hestöfl Fjögurra þrepa sjáífskipting eöa fimm gíra með yfirgír. Select-trac millikassi meö sjálfskiptingunni. Læst mismunadrif aö aftan. Styrkt fjöörun og höggdeyfar. Rafdrifnar rúður. Samlæsing huröa með fjarstýringu. o.m.fl. ftiÍilíÉi NÝBÝLAVEGI 2 S 42600 ' ' . • ..............................................................................................................................................................................................................................

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.