Morgunblaðið - 20.08.1991, Síða 29

Morgunblaðið - 20.08.1991, Síða 29
I s I a n d i MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991 SÍATO ðu Davíð Oddsson forsætis- ráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra kynna ályktun ríkisstjórnarinnar vegna valdaránsins í Kreml. endiherrans: ríkjanna segir at- >g innanríkismál til borg’arastyrjaldar dragi kvíða um hvort stöðvuð verður sú þróun í átt til lýðræðis og réttarrík- is, sem verið hefur í Sovétríkjunum. Einnig er alvarlegt áhyggjuefni hvað þessir atburðir kunna að þýða fyrir framtíð þeirra þjóða sem í fararbroddi hafa staðið í endur- heimt sjálfstæðis, þ.e. Eystrasalts- landanna. Islensk stjórnvöld munu fylgjast grannt með þróun mála í Sovétríkj- unum og hafa náið samráð við ríkis- stjórnir annarra Norðurlanda, Atl- antshafsbandalagsins og nágranna- ríkja Sovétríkjanna í Mið-Evrópu. Sendiherra Sovétríkjanna tók að sér að koma yfirlýsingum íslenskra stjórnvalda á framfæri heimafyrir. Jón Baldvin ræddi réttarstöðu Eyst- rasaltsríkja við Krasavín. „Ég árétt- aði sérstaklega þau sjónarmið íslenskra stjórnvalda að Litháen er sjálfstætt ríki viðurkennt af Islandi og að Eystrasaltsríkin eru að rétt- um alþjóðalögum ftjáls að því að segja sig úr lögum við Sovétríkin, þar sem þau voru innlimuð með valdi. Frekari orðaskipti urðu nú ekki, en Krasavín afhenti mér yfir- lýsingu hinna nýju valdhafa í Moskvu og orðsendingu þeirra til erlendra ríkisstjórna þar sem gerð ertilraun til réttlæta valdatökuna.“ Jón Baldvin situr f dag fund ut- anríkisráðherra Norðurlanda í Dan- mörku, sem haldinn er að loknum fundi utanríkisráðherra EB-landa. Til fundanna var boðað fyrir nokkru en atburðirnir í Sovétríkjunum verða þar efst á baugi. Jón segist leggja áherslu á samstarf við bandalagsþjóðir í NATO og RÖSE, auk Norðurlanda, um frekari við- brögð. órn Islands for- aldaran geri allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja að afleiðingar þessara alvarlegu atburða verði ekki varanlegar. Snúi Sovétríkin af braut lýðræðisþróunar hljóta samskipti þeirra og Yesturlanda að gjörbreytast. Ríkisstjórnin vekur athygli á að Sovétríkin eru sama herveldið og fyrr og sú ró sem umbótavilji Gorbatsjovs skapaði á Vestur- í Kreml löndum er nú rofin. Vestræn ríki hljóta því að vera í viðbragðsstöðu og fylgjast grannt með þróun mála í Sovétríkjunum. ísland mun hafa náið samstarf við bandalags- þjóðir sínar í Atlantshafsbanda- laginu, ríkisstjórnir Norðurlanda og innan „RÖSE“-samstarfsins. í Reykjavík, 19. ágúst 1991.“ Utanríkismálanefnd Alþingis: Stj órnmálasamband við Litháen enn til athugunar Tveir alþing-ismenn halda til Eystrasaltslanda í dag „VIÐ tökum undir fordæmingu ríkisstjórnarinnar á þeiin liroða- legu atburðum sem eiga sér stað í Sovétríkjunum,“ segir Eyjólfur Konráð Jónsson formaður ut- anríkismálanefndar Alþingis. Iiann segir að nauðsynlegt sé að aðhafast allt það sem orðið gæti til hjálpar við að snúa þróun á „ÞAÐ ER nauðsynlegl að bregð- ast strax hart við því sem gerst hefur í Sovétríkjunum,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingmaður Kvennalista, sem sæti á í utanrikismálanefnd. „En ég vara eindregið við því að slegnar séu einhveijar kaldastríðsbumb- ur og þannig alið á trú á því að vopn og völd tryggi frið. Það gera þau ekki. Framhald atburða ræðst fyrst og fremst heima fyr- ir, en Vesturlönd geta beitt margvíslegum þrýstingi og veitt andófsöflum siðferðilegan stuðn- ing. Eg held að staða Eystrasalts- landanna verði mjög erfið nú, Gorbatsjov var kannski þeirra eina von þótt þau væru að mörgu leyti óánægð með hann.“ Ingibjörg Sólrún segir að frétt- irnar frá Sovétríkjunum í gær hafi minnt á fyrstu frásögn af valdarán- inu í Chile 1973. „í báðum tilvikum hrifsa völdin afturhaldsöfl sem ekki þola lýðræði og er í nöp við það. Ég vek athygli á að ýmsir vöruðu við atburðarás eins og nú á sér stað. Shevardnadze reyndist til dæmis sannspár í Morgunblaðsviðtali fyrir skömmu; hann sagði sundruð um- „Þessi afturhaldshópur gengur fram með þeim hætti að bersýni- lega væri best að hann skilaði aftur þeim völdum sem hann hefur svipt aðra,“ segir Svavar. „Stjórn- arskiptin í Kreml eru atburður sem verður að fordæma. Atburður sem hlýtur að vekja áhyggjur með hveijum einasta hugsandi manni. Mér finnst eðlilegt að utanríkis- ráðherrar Norðurlanda hittist og stilli saman strengi sína, ekki síst hvað varðar Eystrasaltsþjóðirnar. Okkur er skylt að sýna þeim um- hyggju og aðgát. Þá tel ég vel ný af hættulegum brautum í lýð- ræðisátt. Afram sé gert ráð fyrir að koma á formlegu stjórmnála- sambandi við Litháen. Tveir al- þingismenn halda í dag í funda- ferð til Eystrasaltsríkjanna. Eyjólfur Konráð segir að afstaða stjórnvalda hérlendis til Eystra- bótaöfl kalla yfir sig harðstjórn. Nú hefur það komið á daginn." Ingibjörg Sólrún segir öllu varða að stjórnvöld á Vesturlöndum bregðist við atburðunum án tafar. „Virkar leiðir til áhrifa á stjórnvöld í Sovétríkjunum án vopnavalds blasa við. Það má minnka eða hætta efnahagsaðstoð og beita öðrum pólitískum og diplómatískum þrýst- ingi.“ „MANN hryllir við því sem þarna hefur gerst og óttast afleiðing- arnar. Gorbatsjov átti mjög erf- iða tíma í fyrra en ég var farinn að halda að hann kæmist yfir þetta. Því miður hefur það nú gerst, sem svo oft; á sér stað í koma til greina að krefjast fundar utanríkisráðherra allra aðild- arrikja RÖSE-ráðstefnunnar svo- nefndu. Því fleiri ríki sem sýna samstillt og ákveðin viðbrögð, því meiri von er til að málin snúist. Mér finnst ástæða til að minna á að hermenn í rússneska og sov- éska hernum eru aldir upp við að uppreisn hermanna 1917 hafi ver- ið stórkostlegur viðburður. Standi þetta viðhorf hermönnum fyrir hugskotssjónum, óhlýðnist þeir hinum nýju yfirboðurum, hefur lausnin fengist.“ saltsríkjanna sé óbreytt. Utanríkis- málanefnd sé sammála um að hafa formlegt stjórnmálasamband við Litháen áfram til athugunar. Náið verði fylgst með framvindu mála og samband haft við önnur Norður- lönd, sérstaklega Danmörku, þar sem þar hafi aldrei frekar en hér verið viðurkennt að sjálfstæði Lit- háa frá 1922 væri niður fallið. Auðvitað þurfi þó að varast að að- hafast nokkuð sem hleypa myndi enn meiri ólgu í ástandið í Litháen. Utanríkismálanefnd komst að sögn Eyjólfs að þeirri niðurstöðu að hvika ekki að svo stöddu frá þvf að tveir fulltrúar Alþingis fari til Eystrasaltsríkjanna í boði þarlendra stjórnvalda. Ríflega 40 þingmenn frá um 12 löndum Vestur-Evrópu heimsækja í vikunni höfuðborgir landanna þriggja og ræða efnið „Eystrasaltslöndin og ný Evrópa". Ferð þingmannanna lýkur laugar- daginn 23. ágúst, en þann dag 1939 undirrituðu þeir Molotov og Ribb- entrop samning sem fól í sér inn- limun Eystrasaltsríkja í Sovétríkin. Þingmennirnir Lára Margi-ét Ragnarsdóttir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson hugðust seint í gær- kvöldi halda til Helsinki í morgun og fljúga þaðan síðdegis til Tallinn. Lára Margrét segir að eftir fund þar á morgun sé ferðinni heitið til Riga og farið til Vilníus á fimmtu- dagskvöld. fyrrverandi einveldisríkjum, að þeir sem höfðu völdin ásamt hernum, þola ekki að aðrir kom- ist að,“ segir Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsókn- arflokksins og fyrrverandi for- sætisráðherra. Steingrímur sagði að atburðirnir myndu áreiðanlega auka á spennu í alþjóðasamskiptum. „Ég trúi því þó ekki að valdhafarnir séu svo fífldjarfir að þeir muni fara aftur inn í Austur-Evrópulöndin,“ sagði hann. Steingrímur var spurður hvort hann teldi að Gorbatsjov hefði búist við valdaráni. „Því er erfitt að svara en þegar ég átti fund með Gorbatsj- ov árið 1987 spurði ég hann hvort ekki væri mikil andstaða við hug- myndir hans. Hann svaraði því strax og sagði; Eru ekki kerfiskarl- arnir heima hjá þér á móti öllum umbótum? Hann sagðist líka hafa fólkið með sér og herinn einnig að mig minnir. Ég held að menn í þessari stöðu geti alltaf búist við því að svona nokkuð geti gerst,“ sagði Steingrímur. „Þetta hefur vitanlega ekki áhrif á afstöðu okkar til Eystrasaltsland- anna og við þurfum að undirstrika hana vel með einhveijum hætti. Mér finnst að við ættum að gera það strax en það er spurning hvern- ig það verður gert, því það er erfitt að taka upp stjórnmálasamband við hernumið land. Það yrði þá við ein- hverskonar útlagastjórn. Ég óttast að Landsbergis vinur okkar eigi erfiða tíma framundan,“ sagði Steingrímur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Hörð viðbrögð nauð- synleg en kaldastríðs- bumbur hættulegar Svavar Gestsson: Samstillt og skjót við- brögð sem flestra ríkja „ÉG OTTAST að til borgarastyrjaldar dragi í Sovétríkjunum og tel að atburðir þar geti haft ógnvænleg áhrif á heimsfrið,“ segir Svavar Gestsson, fulltrúi Alþýðubandalagsins í utanríkismála- nefnd Alþingis. Svavar segist telja algera nauðsyn að tafarlaust verði beitt ákveðnum pólitískum, efnahagslegum og diplómatísk- um þrýstingi til áhrifa á atburðarás í Sovétríkjunum. Samstillt viðbrögð sem flestra ríkja séu þar auðvitað vænlegust til árang- urs. Steingrímur Hermannsson: Hélt að mestu erfíð- leikunum væri lokið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.