Morgunblaðið - 20.08.1991, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRlÐJÚÖÁöÚR 20. ÁGÚST 'íð&T
Þjóðverji á sjö-
tugsaldri ramm-
villtur á hálendinu
ÞJÓÐVERJI á sjötugsaldri gekk í tvo sólarhringa villtur á háiendinu
eftir að hafa reynt árangurslaust að grafa jeppa sem hann ók upp
með berum höndum. Maðurinn kom í skálann í Nýjadal á sunnudags-
morgun afar illa á sig kominn. Hjálparsveit skáta á Akureyri leitaði
að bíl mannsins á sunnudagskvöld, en lenti í snjókomu svo útsýni var
lítið. Bíllinn fannst er flogið var yfir svæðið í gærmorgun og fóru
skátar eftir honum, en von var á þeim til Akureyrar seint í gærkvöld.
Þjóðverjinn kom inn í Nýjadal á
sunnudagsmorgun, örþreyttur og
illa á sig kominn, með sár á fótum
eftir um'tveggja sólarhringa göngu.
Landvörður hafði samband við
Hjálparsveit skáta á Akureyri síð-
degis á sunnudag eftir að í ljós kom
að bfll mannsins var týndur og fóru
skátar af stað upp að Laugafelli
um kvöldmatarleytið, en landvörður
ók Þjóðveijanum þangað.
Smári Sigurðsson hjálparsveitar-
maður sagði að maðurinn hefði
ekið upp úr Eyjafirði á föstudag,
en miðja vegu frá botni Eyjafjarðar
og að Laugafelli hefði hann ekið
út af greiðfærri leiðinni þangað og
út á ómerkta og lítt notaða slóð.
Fljótlega hafi hann týnt slóðinni,
en ekið í um 20 kílómetra til aust-
urs áður en hann festi bíl sinn.
Maðurinn reyndi í um 7 klukku-
tíma að losa bíl sinn og gróf með
berum höndum, þar sem enginn
búnaður var til staðar. Maðurinn
Ekið á dreng
á reiðhjóli
EKIÐ var á barn á reiðhjóli á
sunudagskvöld og aðfaranótt
sunnudags varð fullorðinn
maður fyrir bifreið. Meiðsl
voru minniliáttar.
Fimm ára gamall drengur á
reiðhjóli varð fyrir bifreið á rhót-
um Skarðshlíðar og Sunnuhlíðar
nokkru fyrir kl. 20 á sunnudags-
kvöld. Hann var fluttur á slysa-
deild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, en fékk að fara heim
að lokinni skoðun.
Þá var ekið á fullorðinn mann
á gatnamótum Glerárgötu og
Tryggvabrautar aðfaranótt
sunnudags. Hann var einnig
fluttur á slysadeild, en meiðsl
hans voru ekki talin alvarleg.
Lögreglan á Akureyri kærði
nokkra ökumenn fyrir of hraðan
akstur um helgina og einn var
tekinn fyrir meinta ölvun við
akstur.
hafði hvorki síma né talstöð í bif-
reiðinni og taldi Smári að hans
hefði ekki verið saknað í bráð, en
hann ætti bókaða ferð út með Nor-
rænu í næstu viku.
Smári sagði að manninum hefði
verið gerð grein fyrir því að hann
yrði að greiða kostnað vegna flugs-
ins og hann fallist á það. Kostnaður
við leitina alla er um 400 þúsund
krónur. Smári sagði að vissulega
færi hjálparsveitin ekki í mann-
greinarálit áður en lagt væri af stað
til aðstoðar, sveitin væri kölluð út
í nokkrar ferðir upp á hálendið á
hvetju sumri til aðstoðar fólki sem
lent hefði þar í ógöngum og væri
ætíð fús til fararinnar. Mikilvægt
væri hins vegar að einhveijar reglur
giltu um umferð á hálendinu.
„Það tíðkast varla nokkurs staðar
nema hér á landi að útlendingar
geti komið inn í landið og gert nán-
ast hvað sem er án þess að hafa
neinar tryggingar á bak við sig.
Við getum ekki farið til Evrópu og
klifið þar fjöll án þess að hafa á
bak við okkur háa tryggingu og
sama gildir einnig þegar farið er
til Grænlands í sömu erindagjörð-
um, en hér á landi getur fólk sem
ókunnugt er staðháttum haldið upp
á hálendið, ekið þar utan vega ef
því sýnist svo og gert nánast hvað
svo sem því dettur í hug. Það er
tími til kominn að hætt verði að
ræða um þessi mál, það verður að
gera eitthvað," sagði Smári.
Dalvík:
Rúður brotnar í
lögreglustöðinni
ÞRJÁR rúður voru brotnar í lög-
reglustöðinni á Dalvík aðfara-
nótt mánudags.
Björn Víkingsson varðstjóri lög-
reglunnar sagði að aðkoman hefði
verið ófögur, en stórir gijóthnull-
ungar hefðu verið notaðir til verks-
ins og lágu þeir á víð og dreif bæði
inni sem og utandyra. Málið er
óupplýst.
*.*>' JSÍ
Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson
Börn lögðu sig öll fram í boðhlaupinu.
• 'ffl ’ V 3 1'v\B ■W- Æm t ■f f:.
í - cj**] '~'Z. mm ■ - |p ‘ r
gjfe ** '' jiiúx r», j«' 1 ww:'-3í || zi. WL-ó 1
Fjölmenni fagnaði 60 ára
afmæli Hríseyjarhrepps
SEXTÍU ára afmæli Hrís-
eyjarhrepps varjhaldið hátíð-
legt í blíðskaparveðri laugar-
daginn 17. ágúst. Ferjurnar,
Sævar og Sæfari, fluttu um
eitt þúsund manns til og frá
eyjunni á laugardaginn, en
mikið af brottfluttum Hrísey-
ingum sem og ferðafólki lagði
þangað leið sín í tilefni af
tímamótunum.
Jónas Vigfússon sveitarstjóri
sagði að hátíðin hefði í alla staði
tekist vel. Dagskráin hófst kl.
14 með helgistund sr. Huldu
Hrannar Helgadóttur sóknar-
prests, Guðjón Björnsson fyrr-
verandi sveitarstjóri flutti ávarp
og Sólveig Hjálmarsdóttir söng
nokkur lög við undirleik Pálínu
Skúladóttur. Þá flutti Árni
Tryggvason gamanmál.
Eftir að afmælisgestir höfðu
gert heilmikilli tertu í líki Hrís-
eyjar góð skil var farið í leiki,
en að því loknu tók sr. Kári
Valsson fyrrverandi sóknar-
prestur fyrstu skóflustunguna
að byggingu íbúða fyrir aldraða
í eynni. Undir kvöldið brettu
hreppsnefndarmenn og vara-
Það var heitt í kolunum hjá hreppsnefndarmönnum í Hrísey sem
grilluðu ófáar pylsur ofan í hungraða afmælisgesti.
menn þeirra upp ermarnar og Að lokum var dansað á plan-
hófust handa við að grilla pylsur inu við fiskverkun Rifs fram eft-
ofan í mannskapinn, en síðan var ir nóttu, en hlé gert á dansinum
kveiktur varðeldur og efnt til um miðnætti er flugeldum var
fjöldasöngs. skotið á loft.
ÝMISLEGT •
R.L. Rose Company, 19 Waterloo Street,
Glasgow, Skotlandi.
Antik
og gömul, skrautleg, austurlensk
teppi og renningar
í kjölfar heimsóknar Mr. R. L. Rose til ís-
lands í mars, vill hann gjarnan hitta þig á
Hótel Sögu frá fimmtudegi 22. ágúst til
fimmtudags 29. ágúst. Hann mun hafa til
sýnis og sölu úrval af gömlum, skrautlegum,
austurlenskum renningum og mun gefa ráð-
leggingar í sambandi við hreinsun, vjðgerðir
og verðlagningu o.fl.
Vinsamlegast hafið samband og pantið tíma
á Hótel Sögu, herbergi 640.
KVÓTI
Kvóti
Óskum eftir að kaupa þorsk-, ýsu-, ufsa- og
grálúðukvóta.
Upplýsingar í síma 95-35207.
Fiskiðja Sauðárkróks hf.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Hafnarfjörður
Verslunar- eða skrifstofuhúsnæði
Til leigu er mjög gott 165 fm verslunar- eða
skrifstofuhúsnæði á besta stað í Hafnarfiði.
Upplýsingar í símum 51296 og 52028.
Húspláss til leigu
á Ártúnshöfða
600 fm súlulaust. 6 m lofthæð. 5 m breiðar
innkeyrsludyr. Laust strax.
Upplýsingar í síma 671011.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Manntalsþing
Manntalsþing fyrir alla hreppa ísafjarðar-
sýslu verður haldið í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 1, ísafirði, föstudaginn 23.
ágúst 1991 kl. 10.00.
19. ágúst 1991.
Sýslumaðurirm í ísafjarðarsýstu,
Pétur Kr. Hafstein.