Morgunblaðið - 20.08.1991, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
Hótel Saga:
Þýsk matargerðar-
list verður í öndvegi
ÞÝSKALAND verður í öndvegi
á Hótel Sögu vikuna 23.-31.
ágúst.
Hótel Saga gengst fyrir þýsku
vikunni í samvinnu við þýska sendi-
ráðið í Reykjavík og Pullman Hotel
Mondial í Köln, en í apríl á síðast-
liðnu ári var haldin sérstök íslands-
vika á því hóteli.
Þýskir matreiðslumeistarar
munu sjá um eldamennskuna öll
kvöld og verða þýskir sérréttir á
matseðli Grillsins, en á hlaðborði
Skrúðs má fá þýskan hádegis- og
kvöldverð alla daga vikunnar. Þýsk-
ir ostar verða á boðstólum og
drykkjarföng sem borin verða fram
eru að sjálfsögðu þýsk að uppruna.
Þýski tónlistarmaðurinn Hans
Berger leikur á sítar fyrir gesti öll
kvöld á þýsku vikunni.
í fréttatilkynningu segir, að auk
þess sem hér hefur verið greint frá
verði fleira gert í þeim tilgangi að
skapa hið rétta andrúmsloft á
þýskri viku á Hótel Sögu.
Keflavík:
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Stórvirk vinnuvél notuð við að bijóta niður húsið við Hafnargötu
53, sem nú hefur verið fjarlægt.
Slysagildra fjarlægð
Keflavík.
HÚS númer 53 við Hafnargötu í
Keflavík hefur um nokkurt skeið
staðið autt og verið þyrnir í aug-
um margra. Það hefur nú verið
fjarlægt.
Nokkuð hefur verið um að börn
og unglingar sæktu í húsið sem
talið var mikil slysagildra. Einnig
hefur verið talsvert um útköll lög-
reglu og slökkviliðs að húsinu. Stór-
virkar vinnuvélar voru ekki lengi
að bijóta húsið niður og var það
síðan fjarlægt. Áður en húsið var
rifið fékk Slökkviliðið í Keflavík það
til afnota við brunaæfingu sem þó
stóð lengur en áætlað var þar sem
eldur er kveiktur var blossaði upp
aftur eftir að slökkviliðið var farið
af vettvangi.
-BB
Unnið við að koma fyrir sperrum á þak kjötvinnslunnar. Morgunbiaðíð/sigurður Jónsson
Selfoss:
Endurbygging hafin á kjöt-
vinnsluhúsi kaupfélagsins
Ingólfur Bárðarson kjötiðnaðarmaður KÁ við kjötskurð ásamt
öðrum starfsmönnum.
Selfossi.
VINNA er hafin við endur-
bygginjgu kjötvinnslu Kaupfé-
lags Arnesinga sem brann
fyrr á þessu ári ásamt brauð-
gerð fyrirtækisins. Búið er að
hreinsa brunarústirnar og
unnið við að koma þaki á hú-
sið. Stefnt er að því að starf-
semi kjötvinnslunnar hefjist í
hinum endurbættu húsakynn-
um fyrir jól.
Strax eftir brunann var hafíst
handa við að koma af stað starf-
semi í kjallara kjötvinnslurinar.
Þar fer nú fram öll einfaldasta
framleiðslan og þaðan er stýrt
þjónustunni við útibú og kjöt-
verslanir sem eru í viðskiptum
við kjötvinnsluna.
Ingólfur Bárðarson kjötiðnað-
armaður kaupfélagsins sagði að
bráðabirgðaaðstaðan í kjallaran-
um hefði komið sér mjög vel
fyrir þá ellefu starfsmenn sem
unnu í kjötvinnslunni. Það hefði
tekist að halda störfunum og
núna væru 12 manns á launa-'
skrá. Einnig hefði með því tek-
ist að halda dampi á starfsem-
inni og koma í veg fyrir að hún
legðist niður á meðan byggt
væri upp aftur.
Að sögn Sigurðar Kristjáns-
sonar kaupfélagsstjóra verður
kjötvinnslan í heldur stærra hús-
næði en hún var í áður og með
betri búnað. Hann sagði málefni
brauðgerðarinnar í athugun en
starfsemi hennar lagðist alveg
niður eftir brunann.
Sig. Jóns.
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
Hækkun vaxta mótmælt
STJÓRN og launamálaráð Starfsmannafélags ríkisstofnana hafa
ályktað gegn hækkun vaxta á eldri húsnæðislánum og afföllum af
húsbréfum sem þau telja að hafi „vegið að þeim stöðugleika sem
aðilar vinnumarkaðarins höfðu komið á með kjarasamningum sín-
um“. Jafnframt krefjast þessir aðilar þess að nýjar reglur um
greiðslur almannatrygginga á lyfjakostnaði verði afnumdar þegar
í stað.
í ályktun sem samþykktar voru
á fundi stjórnar og launamálaráðs
Starfsmannafélags ríkisstofn-
ana(SFR) segir að stjórn og launa-
málaráð SFR mótmæli „þeirri vaxt-
astefnu sem fylgt hefur verið í tíð
þessarar ríkisstjórnar." Lækkun
vaxta hafi verið ein mikilvægasta
forsenda núgildandi kjarasamninga
og því hafi verið vegið að þeim með
hækkun vaxta á eldri húsnæðislán-
um og afföllum af húsbréfum ásamt
miklum vaxtahækkunum.
í ályktuninni er breytingum á
greiðslum almannatrygginga á lyfj-
akostnaði mótmælt og segir m.a.:
„Enginn ágreiningur er um að lyfja-
verð er of hátt á íslandi. En í stað
þess að snúa sér að rótum van-
dans, sem liggur fyrst og fremst í
úreltu innflutnings- og dreifingar-
kerfilyfja þar sem milliliðir og heild-
salar maka krókinn, fer ríkisstjórn-
in þá leið að hækka skattaálögur á
almenning."
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
Helgin 16.-18. ágúst
Þessi helgi verður líklega að
teljast fremur viðburðalítil og ró-
leg á vettvangi lögreglumála. Þó
urðu tímasett útköll samtals 487
sem lúta að hinum ýmsu mála-
flokkum sem tilheyra lögreglu.
Samskipti borgaranna og Bakkus-
ar enduðu með því að í 81 tilfeili
varð að kalla til lögreglu að
skakka leikinn. Allmarga varð að
láta gista fangageymslu þar til
Bakkus losaði tökin, a.m.k. í bili.
í 84 tilfellum þurfti að kæra
ökumenn vegna yfirsjóna sem
þeir höfðu framið í umferðinni og
10 ökumenn voru staðnir að því
alvarlega broti að aka bifreiðum
eftir að hafa neytt áfengis. Það
skyldu menn aldrei gera og í því
sambandi er góð vísa aldrei of oft
kveðin.
40 árekstrar urðu þessa sólar-
hringa í umdæmi lögreglunnar í
Reykjavík. A.m.k. 80 bílar hafa
þar skemmst meira eða minna.
Dýr tilvik fyrir einstaklinga og
þjóðfélag.
Umferðarslys urðu fimm sem
voru tilkynnt til lögreglu en í einu
tilfellinu reyndist_ ekki vera um
meiðsli að ræða. Á föstudeginum
varð árekstur á mótum Bústaða-
vegar og Reykjanesbrautar þar
sem ökumaður annarrar bifreiðar-
innar var fluttur á slysadeild.
Sama dag varð stúlka á hjóli fyr-
ir bíl í Grafarvogi. Þar reyndust
ekki meiðsli. Á laugardag varð
barn fyrir bíl á Kalkofnsvegi við
Kolaportið og var barnið flutt til
meðferðar á slysadeild. Á sunnu-
dag varð bílvelta á Hafravatns-
vegi við Miðdal og var ökumaður
fluttur á slysadeild og að síðustu
var ökumaður fluttur á slysadeild
eftir árekstur á Bústaðavegi við
Reykjanesbraut.
Aðfaranótt sunnudags fannst
liggjandi, meðvitundarlaus maður
við eitt af samkomuhúsum borg-
arinnar. Á honum voru höfuðá-
verkar og blóðrennsli úr vitum.
Hann var að sjálfsögðu fluttur
undir læknishendur en málið að
öðru leyti er til rannsóknar hjá
RLR. Á föstudagskvöld voru
nokkrar annir hjá lögreglu vegna
vatnsskemmda sem urðu vegna
mikillar rigningar og einnig aðf-
aranótt sunnudags þar sem þá var
nokkurt hvassviðri og þá ýmislegt
lauslegt að fjúka.
Morgunblaðið/Óskar Jóhannsson
Skemmtibáturinn Harri frá Bolungarvík á strandstað á Hesteyri.
Hornstrandir:
Bátar losna í hvassviðri
Hesteyri.
EFTIR besta sumar í manna minnum á Hornströndum gerði smá
skot aðfaranótt sunnudags með 8-9 vindstiga suðvestan vindi.
Nokkuð var af fólki á Hornströndum um helgina og er ekki
vitað annað en því hafi reitt vel af, en plastfiskibátur af Sóma
800 gerð dró akkerið þar sem hann lá á Hornvík og var horf-
inn þegar birta tók á sunnudag. •
Björgunarbáturinn Daníel Sig-
mundsson leitaði bátsins allan
sunnudaginn án árangurs, en flug-
vél frá flugfélaginu Emir á Isafirði
fann bátinn um 11 mílur norður
af Hornbjargi um 8 leytið á mánu-
dagsmorgni. Hafsteinn Ingólfsson
kafari á ísafirði fór á bát sínum
Blika norður og fann bátinn eftir
nokkra leit, í hádeginu, en hann
hafði þá rekið um 5 mílur í norður
frá því flugvélin fann hann um
morguninn. Hafsteinn var með
eiganda bátsins með sér og gat
hann siglt honum til hafnar því
allt var í lagi um borð. Sömu nótt-
ina dró stór skemmtibátur úr Bol-
ungarvik legufærin þar sem hann
lá á læginu við Hesteyri svo hann
stóð á þurru þegar fólk kom á
fætur um morguninn. Pétur Run-
ólfsson í Bolungarvík kom norður
á bát sínum og tókst að ná sport-
bátnum út á næsta flóði að mestu
óskemmdum.
- Úlfar.