Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 31 Amerísldr hvíldarstólar Verð frá kr. 38.000,- afb verð Marco húsgagnaverslun Opið laugardag frá kl. 10-16 og sunnudag frá kl. 13-16 Langholtsvegi 111, sími 680 690 Frá La Coruna. Spánn Strönd Galasíu í hættu La Coruna. Reuter. ELDARNIR í gríska olíuskipinu, sem strandaði við borgina La Coruna á Norður-Spáni, slokkn- uðu í gær og gátu menn þá farið að einbeita sér að olíumengun- inni, sem ógnar ströndinni á stóru svæði. Svartan mökkinn frá eldunum lagði yfir La Coruna í rúman sólar- hring og loguðu þeir jafnt á sjónum í kringum skipið og á klettunum rétt við hafnarmynnið. I gær voru fyrstu yfirheyrslur yfir skipstjóranum á skipinu, en það var að flytja 80.000 tonn af hráolíu úr Norðursjó til olíu- hreinsistöðvar við La Coruna. Hið versta veður var þegar það strandaði á fimmtudag og brotnaði sundur skömmu síðar. Getgátur eru um, að lélegt skyggni og rafstormur, sem truflað hafi siglingatækin, hafí verið aðalástæða strandsins. Giskað var á í gær, að 25.000 tonn af olíu væru enn í skipinu og hafa þá 55.000 farið í sjóinn. Er þetta þriðja olíuslysið á 16 árum á Galasíuströnd, sem er fjölsótt af ferðamönnum og kunn fyrir auðugt jurta- og dýralíf. Flugslysið við Bromma-flugvöllinn í Svíþjóð Flugmanninum hafði ver- ið ráðið frá því að fljúga Pressens Bild Lítil einshreyfils flugvél af gerðinni Piper Malibu hrapaði skömmu eftir flugtak frá Bromma-flugvelli í Svíþjóð á fimmtudag. Hún lenti á bifreið á bílastæði, þar sem kviknaði í henni, og skall síðan á þetta íbúðarhús. Á stærri myndinni kanna lögreglumenn verksummerkin á slysstaðnum, en innfellda mynd- in er af flugvél af gerðinni Piper Malibu. ORSAKIR flugslyssins í Ákes- lund í vesturhluta Stokkhólms í fyrradag eru enn ókunnar. Grunur leikur þó einkum á því að flugmanninum, sem hafði flogið samtals 340 flugstundir frá því hann tók flugpróf, hafi orðið á afdrifarík mistök og misst stjórn á Piper Malibu flug- vélinni sem var mjög vandmeð- farin. Frá því 1970 hafa 32 flug- vélar farist í aðflugi eða brott- flugi frá Bromma. Enginn meiddist í 24 tilvika en dauðaslys urðu í fjórum. Skólastjóri flugskóla á Bromma- flugvellinum, sagði að flugmaður Piper Malibu flugvélarinnar hefði komið í skólann og leitað upplýs- inga og ráða varðandi fyrirhugaða Lundúnaferð daginn áður. „Ég sýndi honum veðurkortin og ráð- lagði honum eindregið að fara með áætlunarflugi. Það væri ekki flug- veður fyrir litlar vélar," sagði kenn- arinn. Árla á fimmtudag, daginn sem flugvélin fórst, var öllu kennslu- flugi skólans aflýst vegna veðurs og flugvélunum komið í skjól. Á sömu stundu lyfti Piper-vélin sér frá flugbrautinni með þrjá kaup- sýslumenn og kunningja innan- borðs. Formaður sænsku flugslysa- nefndarinnar sagði að skýringa væri ekki að leita eingöngu í veðr- inu. Þá benti frumathugun til þess að hreyfíll hefði verið í gangi þegar flugvélin kom niður. Vitni sögðust hafa , heyrt mikil vélarhljóð rétt áður sem gæti bent til þess að flug- manninum hefði tekist að koma dauðum hreyfli í gang. Hins vegar þótti augljóst að hægri vængur og hæðarstýri hefðu brotnað af vélinni vegna álagskrafta nokkru áður en hún skall í jörðina. Piper-Malibu þykir fullkomin flugvél, er eins hreyfils og sex sæta, með jafnþrýstiklefa, sem gerir að verkum að fljúga má henni í yfír 20.000 feta hæð, og afar hraðfleyg. Hún gerir miklar kröfur til flugmannsins og óeðlilega marg- ar flugvélar af þessari tegund hafa farist. Oftast hefur orsökin verið rakin til hreyfilbilunar. Ogætni við stjóm flugvélarinnar kynni að hafa afdrifaríkar afleið- ingar. Leyfilegur flughraði í kyrru lofti er t.d. rúmir 200 hnútar (400 km/klst) en í ókyrru lofti aðeins 136 hnútar. Sé hraðar farið í ókyrrð eykst hættan á að hún brotni í réttu hlutfalli við aukinn hraða. Þá er sterklega varað við notkun sjálfstýringar í brottflugi fyrr en a.m.k. 3.000 feta flughæð er náð, vegna hættu á að vélin byiji að velta um lengdarás sinn. Samkvæmt upplýsingum sæn- skra flugmálayfirvalda virtist allt vera eðlilegt við flug vélarinnar þar til samband rofnaði eftir tvær mín- útur. Það síðasta sem flugmaðurinn sagði við flugtum eftir að hann var komin í rúmlega 1.000 feta hæð var að hann ætlaði fyrst um sinn að fljúga í 4.000 feta hæð. Ratsjár sýna þó að hann komst þó aldrei hærra en í 2.400 fet. Drepist á mótor einshreyfíls flugvélar og reynist gangsetning að nýju árangurslaus á flugmaður- inn ekki annarra kosta völ en leita heppilegs lendingastaðar og búa sig og flugvélina undir lendingu á þeim bletti. Einkaflugmenn fá rækilega þjálfun í því. Eru vegir t.d. ákjósanlegir lendingastaðir sé flugbraut of langt í burtu. Vekur líklega upp deilur um flugvelli í þéttbýli Slysið verður ugglaust til þess að vekja upp deilur um staðsetn- ingu flugvalla með tilliti til íbúða- byggðar. Haldinn var borgarafund- ur í Ákeslund og íbúarnir sam- þykktu að gera ekki kröfur um að flug yrði bannað á Bromma. Víðar í Svíþjóð er ástandið svip- að og við Bromma. í Karlstad, þar sem er stór flugvöllur, eru íbúðahús nú í aðeins 300 metra ijarlægð frá brautinni. Ætlunin er að loka hon- um 1997 og taka nýjan völl fjær byggð í notkun en málið er óútklj- áð þar sem umhverfíssinnar hafa lagst gegn staðsetningu nýja vall- arins. -ágás. Ruggustóll.. hvíldarstóll.. og jafnvel svefnstóll ALLT ÞETTA I EINUM OG SAMA STOLNUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.