Morgunblaðið - 05.12.1992, Síða 44

Morgunblaðið - 05.12.1992, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 T^rr-t—r.-rv?'!’111..?" .-r vv'J 'r ■■1 >■» ■ ■■ ■ Friáls aðild að Stúdentaráði eftirHörðH. Helgason HÉR að neðan verður fjallað um réttmæti þess að leyfa stúdentum við Háskóla íslands að velja hvort þeir gerist aðilar að Stúdentaráði HÍ eða ekki. Stúdentaráð Háskóla íslands Við Háskóla íslands starfa samtök stúdenta sem kallast Stúdentaráð Háskóla íslands (SHÍ). Árlega eru 30 stúdentar kosnir listakosningu til tveggja ára setu í ráðinu. í kjölfarið kýsSHÍ sér stjóm, velur sér formann og ræður framkvæmdastjóra, allt til eins árs í senn. Fyrir starf sitt þiggja formaður, framkvæmdastjóri og rit- stjóri tímarits SHÍ föst mánaðarlaun frá ráðinu. Á vettvangi þess fer fram margvísleg starfsemi, þ. á m. rekstur skrifstofu, blaðaútgáfa, húsnæðis- og atvinnumiðlun, ráðgjöf vegna Lánasjóðs íslenskra námsmanna o.m.fl. Auk þess ályktar ráðið um ýmis málefni í nafni sinna félags- manna, líkt og önnur hagsmunasam- tök gera gjaman. Frelsi til að ve^ja Á síðari ámm hafa stúdentar ver- ið skyjdaðir til að greiða félagsgjöld til SHÍ við skráningu í skólann. Gegn því hafa þeir talist félagar í samtök- unum meðan á skólavist hefur stað- ið, hlotið kosningarétt til ráðsins og notið hinna ýmsu fríðinda sem aðild- inni fylgir. Hafi stúdentar neitað að greiða þetta gjald og hafnað aðild að SHÍ hefur þeim einfaldlega verið neitað um skráningu í skólann. Rökræða Helstu rök gegn fijálsri aðild eru þau, að hér sé um samfélag stúdenta að ræða sem ekki sé hægt að segja sig úr nema með þvf að hætta námi. Háskólasamfélagið sé ríki í ríkinu sem menn geti ekki gerst aðilar að í áföngum. Gegn ofannefndum rökum verða þau mótrök færð, að eðlilegra sé að bera SHÍ og samfélag stúdenta sam- an við önnur hagsmunasamtök og þá hópa sem að þeim standa, heldur en að líkja ráðinu við ríkisvald í þjóð- félagi. Bæði sé, að ríkisvaldið sé ill nauðsyn og að skylduaðild að þjóðfé- laginu sé lífsnauðsynleg til að þegn- amir lúti einni lögsögu. Þyngra vega þó rökin um rétt manna til náms. Á meðan svo er verður að skýra allar kvaðir á þeim rétti þröngt og geta þær aðeins komið trl af brýnni nauð- syn. Aðild að skólafélagi er ekki slík brýn nauðsyn. Því er það gróft brot á rétti fólks til náms að banna því að setjast á skólabekk nema það gangi í tiltekið félag og greiði til þess félagsgjöld. Þá standi SHÍ fyrir margvíslegri starfsemi til hagsbóta fyrir alla stúd- enta. Óréttlátt væri að sumir gætu staðið utan félagsins en notið þess góðs sem samtökin komi til leiðar. Vegna þess að starfsemi einna samtaka bætir aðstöðu annars fólks á að skylda það til að gerast aðilar að samtökunum. Sú röksemdafærsla heldur ekki vatni. Stúdentar njóta góðs af afrakstri fijálsra samtaka stúdenta og deildarfélaganna í sinni deild. Sama á við um árangur al- mennra samtaka í þjóðfélaginu, t.d. líknarfélaga, neytendasamtaka og samtaka um bætur á skipulagi tiltek- inna borgarhluta. Þrátt fyrir þetta eru þeir, sem njóta árangursins, ekki neyddir til að ganga í viðkomandi félög. Einnig myndi frjáls aðild eyði- leggja samstöðu stúdenta, sem stæðu ekki lengur sem einn maður í augum annarra í þjóðfélaginu. SHÍ myndi ekki lengur geta talað í nafni allra stúdenta og stúdentar við HÍ hefðu ekki lengur einn málsvara. Það eitt, að fólk sé neytt til að ganga í tiltekið félag leiðir ekki sjálf- krafa til þess að samstaða myndist með því. Hins vegar verður slíkt fé- lag síður trúverðugt, þar sem athafn- ir þess bera ekki vott um samstöðu aðiianna, heldur gefa í skyn að þá þurfi að neyða til samstöðu. — Mál- svarar lýsa skoðunum sinna skjól- stæðinga. Sú staðhæfing stenst ekki, að stúdentar eigi sér f dag einn málsvara. Rökin eru einfold: Stúd- entar eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Þeir hafa ólíkar hugmyndir og skoðanir á hlutunum. Það eina sem er þeim sameiginlegt er að þeir stunda nám við sama skóla. Jafnvel þótt hagsmunir þeirra allra felist í því m.a. að njóta sem bestrar að- stöðu til að mennta sig við skólann, þá hefur hver þeirra sína skoðun á því hvemig þeim hagsmunum sé best borgið. Því er hugmyndin um einn talsmann fyrir alla stúdenta hugmynd um mann sem hefur fátt að segja. Afnám skylduaðildar sé tæknilega óframkvæmanlegt. Skiptar skoðanir hafa verið uppi um sannleiksgildi þessarar fullyrð- ingar en hér skal þess eins getið að nefnd á vegum ráðsins sjálfs hefur komist að þeirri niðurstöðu að þessi breyting sé tæknilega möguleg. Loks sé Stúdentaráð ekki félag heldur ráð og því eigi tal um „nei- kvætt félagafrelsi“ ekki við um það. Þessi eru veikustu rökin, einfald- lega vegna þess að nafngiftin skiptir ekki máli. Sá hluti félagafrelsis sem er óumdeilt vemdaður af íslensku stjómarskránni er hinn ,jákvæði“, þ.e. rétturinn til að stofna félög og starfa í þeim. Engin formskilyrði þarf að uppfylla, engar kröfur um hvað skuli kalla samtökin. Því er að íslenskum félagarétti einkum farið eftir ytri einkennum við skilgreiningu á félögum. Þó að til séu vafatilvik er sennilegt að sú starfsemi afmark- aðs hóps manna, sem felst í reglu- legri kosningu fulltrúa til að vinna að sameiginlegri stefnu hópsins, telj- ist vera starfsemi „félags“. Ef við bætist að stefnan er mörkuð í lögum sem félagamir setja sér; að hópurinn stendur að rekstri sameiginlegrar skrifstofu með launuðum starfs- mönnum og að kostnaðurinn af starf- seminni er greiddur með innheimtu sérgreindra greiðslna frá þeim ein- staklingum einum sem mynda hóp- inn, þá verður niðurstaðan vafalaus: SHÍ er félag. Ólögmæt gjaldtaka Auk þess sem að framan er talið skal fyret nefnd sú staðreynd að lagaheimild skortir fyrir gjaldtökunni — hún er ólögleg. Sú heimild sem hefur verið borið við þegar innheimtan hefur verið rökstudd er 2. mgr. 37. gr. reglu- gerðar um Háskóla íslands, sbr. augl. 78/1979, sbr. 1. gr. augl. 72/1981 og 1. gr. augl. 27/1992. Þar segir: „Ar hvert skulu aðrir en þeir, sem frumskrásettir eru til náms á tilteknu ári, láta skrásetja sig og greiða þá skrásetningargjald. Stúdentar hafa ekki rétt til þess að sækja fyrirlestra og æfingar og verða ekki skráðir til prófs nema þeir séu skráðir í hinni árlegu skrásetningu. ...“ Síðan er ákvæðinu um gjaldtöku til SHÍ bætt við í 38. gr.: „Ar hvert skal háskólar- áð, að fengnum tillögum stúdenta- ráðs Háskóla íslands og stjómar Félagsstofnunar stúdenta, ákveða hvereu hátt skrásetningargjald skuli vera og hvemig það skiptist milli stúdentaráðs, Félagsstofnunar stúd- enta, stúdentaskiptasjóðs og háskól- ans sjálfs. ...“ Ákvæði um gjaldtöku af þessu tagi verða að eiga sér stoð í lögum, reglugerðarákvæði nægja ekki ein sér. Þetta er séretaklega brýnt hér, þar sem um er að ræða skerðingu á aðgangi fólks að skólum, enda er réttur fil náms talinn mikilvæg fé- lagsleg réttindi f íslensku þjóðfélagi. Þessa meintu lagastoð fyrir skrásetn- ingargjaldinu er að finna í 21. gr. 1. 131/1990 um Háskóla íslands. Þar segir: „Hver sá, sem staðist hef- ur fullnaðarpróf frá íslenskum skóla, sem heimild hefur til að brautskrá stúdenta, á rétt á að vera skrásettur háskólaborgari gegn því að greiða skrásetningargjald. ... Heimilt er að setja í reglugerð ákvæði er mæli fyrir um árlega skrásetningu stúd- enta og eru þá þeir einir taldir stúd- entar skólans er hafa skráð sig til náms.“ Ákvæði laganna um „skrásetning- argjald" var upphaflega ekki í frum- varpi að fyretu lögum um HÍ, en kom inn við aðra umræðu á Alþingi og stóð svo í 4. mgr., sbr. 3. mgr. 17. gr. 1. 35/1909: „Hver sá, er æskir skrásetningar, skal fyrir byijun kennslumisseris tilkynna það ritara háskólans og tekur ritari við skrá- setningargjaldinu." Síðan hefur inn- tak ákvæðisins og orðið „skrásetn- ingargjald" haldist allt til núgildandi laga. Við skýringu á orðinu „skrá- setningargjald" verður því að líta til aðstæðna við setningu laganna árið 1909. Tilgangur s.h. 3. mgr. 17. gr. 1. 35/1909 var að gjaldið rynni til skólans vegna skráningar stúdenta, svo sem orðalagið og upphæð gjalds- ins gefa til kynna. Hvergi er að finna merki þess að vilji löggjafans hafi staðið til þess að innheimta með þess- um hætti félagsgjöld í tiltekin félög Hörður H. Helgason „Þó að félög, t.d. SHÍ, geti samið við HÍ um að skólinn taki við félags- gjöldum um leið og skrá- setningargjaldi til skól- ans, þá skortir með öllu heimild til þess að neyða stúdenta til greiðslu þessara félagsgjalda, hvað þá til að neita þeim um skólavist nema þeir gangi í tiltekin félaga- samtök.“ eða gjöld til annarrar starfsemi. Þar sem að við þessu hefur ekki verið hróflað í síðari lögum né annars skilnings getið í greinargerðum eða öðrum lögskýringargögnum með síð- ari útgáfum háskólalaga eða breyt- ingum á þeim veitir lagaheimildin aðeins heimild til innheimtu skrán- ingargjalda til HÍ, en ekki annarrar innheimtu, t.d. félagsgjalda til sjálf- stæðra félaga. Því brestur lagastoð fyrir hinu nefnda ákvæði reglugerð- arinnar um innheimtu gjalda til þeirr- ar starfsemi sem þar er talin upp, utan innheimtu gjalda til „ ... há- skólans sjálfs ...“ Óréttur venst ekki í lög. Þvf getur nefnd gjaldheimta til SHI ekki festst í sessi, hvereu langur tími sem líður þar til henni er mótmælt. Niðuretaðan er því sú að þó að félög, t.d. SHÍ, geti samið við HÍ um að skólinn taki við félagsgjöldum um leið og skrásetningargjaldi til skól- ans, þá skortir með öllu heimild til þess að neyða stúdenta til greiðslu þessara félagsgjalda, hvað þá til að neita þeim um skólavist nema þeir gangi í tiltekin félagasamtök. Mannréttíndi Á undanfömum áratugum hefur íslenskt þjóðfélag tekið miklum framförum. T.d. hefur tekist að losa um höft og helsi á mörgum sviðum og eru íslendingar orðnir meðvitaðri um grundvallarmannréttindi og nauðsyn þess að hlúa að þeim. Sem dæmi um breytingar í þessa átt má nefna aðskilnað dómsvalds og um- boðsvalds í héraði. Fyrir þær breyt- ingar urðu sakbomingar að sæta því að sami aðili rannsakaði mál þeirra, ákærði þá og dæmdi loks í málum þeirra. Af mikilvægum mannréttindum má nefna félagafrelsi. 73. gr. stjóm- arskrár íslands var sett til vemdar þessum réttindum. Skv. túlkun Hæstaréttar tekur hún þó aðeins til hluta þessara mannréttinda, þ.e. til réttarins til að stofna og starfrækja félög og gerast meðlimir í þeim (,já- kvætt félagafrelsi“). Þessi réttur er ekki síður mikilvægur en sá fyrr- nefndi, enda hafa íslensk stjómvöld skuldbundið sig til þess að standa vörð um þessi réttindi. Hér að ofan var minnst á að heim- ildir til að neyða stúdenta til greiðslu umræddra gjalda væru ekki til. Gild- andi réttarreglur ganga þó lengra. íslenska ríkið hefur gerst aðili að tveimur samningum til vemdar mannréttindum, þ.e. mannréttinda- sáttmálum Evrópu og Sameinuðu þjóðanna, auk annarra samninga og stofnana á sviði mannréttinda, t.d. TILBOÐ Cosmos (nýtt) Vegna hagstæðra innkaupa bjóðum við 40.000,- kr. verðlækkun. Áður kr. 164.700,- stgr. Nú kr. 124.916,- m/náttb. og springdýnum. Dæmi um lánakjör: Útb. kr. 33.400,- eftirst. á 30 mán. kr. 4.130,- á mán. eða Visa og Euro rað- greiðslur. Dæmi án útborgunar: skipt á 12 greiðslur, ca kr. 12.107,- á mán. Opið laugardag 10-16 og sunnudag 13-16. Grensásvegi 3 # sími 681144 félagsmálasáttmála Evrópu. Þar er réttur manna til þess að standa utan félaga staðfestur, sbr. álit sérfræð- inganefndar Evrópuráðsins, enda hefur nefndin sent íslenskum stjórn- völdum áminningu um að þau standi ekki nægilega traustan vörð um nefnd mannréttindi, eins og þau hafi þó skuldbundið sig til þess að gera. Loks má nefna Mannréttindayfir- lýsingu Sameinuðu þjóðanna, sem af sumum þjóðréttarfræðingum hef- ur verið talin binda ísland að þjóða- rétti. í 2. mgr. 20. gr. hennar er berum orðum kveðið á um að engan megi neyða til aðildar að samtökum. Önnur skyld atriði Það er eðlilegt að spurt sé hvað reki menn til að hefja máls á þessu einmitt nú. Þegar hefur verið minnst á að óréttur venjist aldrei í lög. Auk þess hefur þessu máli verið haldið vakandi um árabil, þótt stundum hafi það farið hljótt. Hins vegar hugsa háskólanemar sig nú tvisvar um í ljósi þess að tekin hafa verið upp skólagjöld, m.ö.o. eiginlegt „skrásetningargjald". Nú verða stúd- entar að greiða 17.000 kr. árlega fyrir veru sína í skólanum. Þá vakn- ar sú spuming, hvort til viðbótar verði hægt að heimta peninga fyrir sjálfstæð samtök í skjóli þess að um skrásetningargjald til háskólans sé að ræða. Þeir aðstandendur SHÍ, sem hafa áhyggjur af sívaxandi áhugaleysi stúdenta á ráðinu og störfum þess, munu eflaust taka frjálsa aðild til athugunar. Ástæðan er einfaldlega sú að í dag er ekkert sem hvetur til bættrar starfsemi eða breyttra áherelna vegna þess að fólkinu í fé- laginu er ekki fijálst að segja sig úr því. Því hafa foreprakkar samtak- anna litla vísbendingu um raunveru- legan vilja félagsmanna. í kosning- um til ráðsins sést t.d. það eitt hvað stúdentum finnst skást að velja, enda ekki valkostur að standa utan þess. Einnig geta þeir, sem vilja sýna sam- stöðu og styðja félagið, ekki gert það með því að gerast félagar — það eru allir skyldaðir til aðildar. Auk þess skaðar skylduaðildin ímynd félagsins því hæfilegt mark er tekið á tals- mönnum samtaka sem neyða sitt fólk til þess að vera með.' Nauðsynlegt er einnig að velta upp þeirri spumingu hvort SHÍ hafi gengið sér til húðar. Annare vegar eru uppi skiptar skoðanir um afrakst- ur ráðsins, t.d. hver raunverulegur árangur þess sé í hagsmunabaráttu stúdenta nú á tímum skólagjalda, samdcáttar og niðurekurðar svo eitt- hvað sé nefnt. Ganga má lengra og spyija um tilgang þessarar baráttu og umboð forystumanna SHÍ til hennar, í ljósi mismunandi skoðana stúdenta á því hvemig fara skuli með hagsmuni þeirra. Hins vegar má vekja máls á því hvort önnur félög stúdenta geti leyst SHÍ af hólmi, að minnsta kosti að því marki að ekki teljist nauðsynlegt lengur að skylda fólk til aðildar að ráðinu. Þar má nefna að deildarfélög starfa í hverri deild skólans, að öflugt starf fer fram í tveimur fylkingum stúd- enta, Vöku og Röskvu, og að nýlega stofnuðu deildarfélögin með sér sam- tök, Félag deildarfélaga við HÍ. Loks má spyija hvereu siðlegt það sé að nemendafélag, sem telst nauð- synlegt að skylda stúdenta til að ganga í, greiði kjömum forvígis- mönnum sínum full laun fyrir störf sín og veiti þeim fylkingum sem að- ild eiga að stjóm félagsins ijárveit- ingu úr sjóðum sínum. Niðurstaða Séu niðurstöður ofannefndra vangaveltna dregnar saman kemur í ljós, að ekki em til marktæk rök fyrir réttlætingu skylduaðilar að Stúdentaráði Háskóla íslands og að rökin sem færð hafa verið nauðunga- raðildinni til málsbóta vega ekki upp þau rök sem liggja til grundvailar rétti manna til að standa utan fé- laga. Einnig, að gjaldheimta HÍ fyrir hönd SHl er ólögleg og að tiiraunir til að skýlcla stúdenta til aðildar að SHÍ em í andstöðu við mannréttindi sem íslendingar hafa skuldbundið sig til að virða og vemda. Skylduaðildin er órökstudd, ólög- leg og mannréttindabrot. Því skal nú þegar gefa aðild að Stúdentaráði fijálsa. Höfundur er laganemi við Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.