Morgunblaðið - 05.12.1992, Síða 51

Morgunblaðið - 05.12.1992, Síða 51
26tit fKdUMHyaCl .5 HUDACIHAOUAJ QIQAJ8HU0H0M MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESÉMBER 1992 Ug 51 Ræktunarráðsfundur FEIF Islenski stigunarkvarðinn kynntur _______Hestar____________ Valdimar Kristinsson Á fundi sem nýlega var hald- inn í ræktunarráði Sambands eigenda íslenskra hesta (FEIF) í Kaupmannahöfn kynnti Krist- inn Hugason hrossarækt- arráðunautur íslenska stigun- arkvarðann sem nýlega var gefinn út í fræðsluriti Búnað- arfélagsins. Sagði Kristinn að undirtektir hafi verið góðar og kom fram áhugi margra á að taka upp ís- lensku reglurnar að meira eða minna leiti í öðrum aðildarlöndum samtakanna. Lífleg umræða fór fram um framtíðarstefnuna og taldi Kristinn fundinn fyrsta al- varlega skrefið til sameiginlegrar stefnumörkunar út frá íslenskum forsendum. Á fundinum voru auk ræktunarfulltrúa FEIF kynbóta- dómarar víðsvegar að og tveir hrossaræktendur frá Danmörku. Auk Kristins mætti á fundinn héðan Víkingur Gunnarsson, en hann á sæti í ræktunarráðinu. Þorvaldur Árnason mætti á fund- inn fyrir hönd Svíþjóðar og kynnti hann þar nýjar niðurstöður varð- andi BLUPið. Enginn fulltrúi mætti frá Þýskalandi og sagðist Kristinn ekki hafa fengið neinar skýringar á fjarveru þeirra að þessu sinni. Þorvaldur Árnason er nú stadd- ur hér á landi með ný forrit fyrir BLUPið og sagði Kristinn þau munu bæta mjög afköst og getu kerfisins. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Kristinn Hugason hrossarækt- arráðunautur: Áhugi erlendis fyrir íslensku reglunum. Kynbótadómar og sýningar Stigunarkvarðinn lang- þráði kominn út Út er komið hjá Búnaðarfélagi íslands rit sem hefur að geyma langþráðan stigunarkvarða sem stuðst er við þegar kynbótahross eru metin. Auk þess hefur ritið að geyma reglur um einkunnir og verðlaunastig og framkvæmd kynbótadóma og sýninga, en af síðast talda kaflanum dregur ritið nafn sitt. Ritið telur 116 síður, en það er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku. Þótt ekki sé ritið mikið að vöxtum má telja víst að útkomú þess verði víða fagnað og ekki hvað síst hjá erlendum áhugamönnum um ræktun ís- lenska hestsins. Telja má víst að stigunarkvarðinn verði ræktunar- mönnum og öðrum áhugamönn- um góð stoð við mat á kynbóta- hrossum og auki skilning á því hveiju sé leitað eftir í dómum. Forsíðumynd er teiknuð af Pétri Behrens, en það er sama mynd og prýðir Hrossaræktina sem Búnaðarfélagið gefur einnig út. Pétur hefur einnig teiknað skýringamyndir sem fylgja stig- unarkvarðanum. Þýðingu á þýsku Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Forsíður fræðslurita Búnaðar- félagsins um hrossarækt hafa nú verið staðlaðar með teikningu eftir Pétur Behrens. annaðist auk Péturs Marietta Maissen en Karólína Geirsdóttir þýddi yfir á ensku. Elín Þ. Sigdórs- dóttír - Kveðjuorð Okkur langar með örfáum orðum að kveðja kæra vinkonu okkar, Elínu Þuríði Sigdórsdóttur, eða Ellu eins og við kölluðum hana. Hún lést föstudaginn 27. nóvember síð- astliðinn í hörmulegu umferðar- slysi. Við kynntumst Ellu í gegnum starf okkar á gjörgæsludeild Land- spítalans. Þar var hún starfandi er hún lést og var einn af reyndustu sjúkraliðum deildarinnar. Vinátta okkar fjögurra hófst fyr- ir alvöru er við fórum saman í sum- arleyfi til Spánar fyrir einu ári. Þar áttum við stundir sem eru ógleym- anlegar og dýrmætar nú. Ella var góður og traustur félagi og alltaf hress og kát. Hún var óhrædd við að fara sínar eigin leið- ir í lífínu og kom okkur oft á óvart með skemmtilegum uppátækjum. í byijun næsta árs stóð til að hún flytti í sína eigin íbúð sem hún hafði fest kaup á. Tilhlökkunin var mikil og undirbúningur í fullum gangi. Draumurinn um að eignast eigið heimili var að verða að veru- leika. í starfí á gjörgæsludeild er dauð- inn óijúfanlegur þáttur. Oft er hann lausn en kemur manni jafn oft í opna skjöldu einkum þegar ungt fólk á í hlut. Oft höfum við þurft í sameiningu að takast á við sorg- ina með ástvinum þegar skjólstæð- ingur okkar deyr. Nú stöndum við frammi fyrir því að einn úr okkar hópi er fallinn frá og erum við að upplifa þann söknuð sem fylgir þeg- ar góður vinur er hrifinn burt svo snögglega. Henni hefði verið ætlað annað hlutverk því ekki viljum við trúa því að hlutverk svo ungrar konu sé Jokið þó hún sé farin frá okkur. Við sendum okkar dýpstu samúð- arkveðjur til foreldra, systkina og annarra vandamanna. Minningin um góða stúlku mun lifa meðal okkar. Edda Alexandersdóttir Rannveig Sigurðardóttir Sólveig Sverrisdóttir. Þessi kveðjuorð birtast hér vegna mistaka sem urðu í blað- inu í gær er minningarorð birt- ust um hina látnu. Beðist er velvirðingar á mistökunum. t Ástkær eiginkona, móðir, dóttir og systir, HULDA B. LÁRUSDÓTTIR fulltrúi, Marargötu 1, Reykjavík, lést í Landakotsspítalanum 2. desember. Sigurður P. Sigurjónsson, Brynjar Ág. Sigurðsson, Bryndís Nikulásdóttir, Ragnhildur Lárusdóttir, Ragnheiður Fanney Lárusdóttir, Gfsii Lárusson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÚNAR HELGADÓTTUR, Hlíðarvegi 78, Njarðvík. Jón Ásgeirsson, Steinunn Helga Jónsdóttir, Hallgrímur Gunnarsson, Rebekka D. Jónsdóttir, Björgvin Halldórsson, Ásgeir Jónsson, Hrafnhildur H. Ólafsdóttir og barnabörn. t ÓLAFUR JAKOBSSON prentari, vistmaður Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra og starfsfólki hans og starfsfólki deildar 11E Landspítala fyrir einstaklega góða aðhlynn- ingu. Systkin og aðrir aðstandendur. Anfta Knútsdóttir, Þór Steinarsson, Helen Knútsdóttir, Guðni Sigurðsson og barnabörn. t Þökkum hlýhug og samúð við fráfall og útför ÞÓRÐARÞÓRÐARSONAR vélstjóra, Laugavegi 35, Siglufirði. Margrét Árnadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Jólahlað- borð Hótel Sögn Hótel Saga býður gestum sínum upp á jólahlaðborð, svo sem gert hefur verið mörg undanfarin ár. Borðið er framborið í Skrúði og sem dæmi um þvað á því er má nefna gljáð grísa- læri með maísvísí og rúsínusósu, sætar kartöflur, heitar lifrarkæfur með kjörsveppum, reyktar villibleikj- ur, jólabrauðbúðing með kúrenum, nautakjötsbökur, síldarrétti og sitt- hvað fleira. Á meðan gestir snæða, leika þeir Jónas Þórir og Jónas Dag- bjartsson þægilega jólatónlist á hveijum degi fram til jóla. V^terkurog hagkvæmur auglýsingamiðill! ,8 t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ELÍNAR BRYNDÍSAR BJARNADÓTTUR, Hvassaleiti 56. Stekkjastaur á silfurskeið Gull og Silfursmiðjan Ema hf., hefur hafíð framleiðslu á jóla- sveinaskeiðum úr silfri. Skeiðina teiknaði Eggert Guðmundsson listmálari, árið 1954 en gert er ráð fyrir að á næstu árum verði gerð ein skeið á ári. Á fyrstu skeiðinni er mynd af Stekkja- staur og kostar hún 3.950 krón- ur. Skeiðin fæst í fjölmörgum skartgripaverslunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.