Morgunblaðið - 05.12.1992, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 05.12.1992, Blaðsíða 54
54 SKÝJUM □FAR Barn í stórum búk Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Babe Ruth („The Babe“). Sýnd í Laugarásbíói. Leikstjóri: Arthur Hiller. Handrit: John Fusco. Að- alhlutverk: John Good- man, Keliy McGillis, Trini Alvarado, Bruce Box- leitner, Peter Donat. Uni- versal. 1992. Myndin um mesta hafna- boltakappa sögunnar, Babe Ruth, með hinum þéttvaxna John Goodman í titilhlut- verkinu, er ekki að skafa utan af hlutunum. Töfrar „The Babe“ liggja i því hversu opinskátt og heiðar- lega hún fjallar um þessa mestu og frægustu hetju bandaríska hafnaboltans. Hún sýnir að það þarf ekki alltaf lofgerðarrullu og há- tíðarvæl til að viðhalda goð- sögn, hægt er ekki síður að styrkja hana með því að íjalla um hana á jarðbund- inn og raunsæjan hátt og án tilgerðar líkt og gert er í „The Babe“. Þetta er virkilega góð bíómynd í leikstjórn Art- hurs Hillers, skemmtileg og spennandi ævisaga ekkert síður en sorgleg og jafnvel átakanleg. Og hún er vel leikin; stendur Goodman þar uppúr sem Babe Ruth. Handritið gerir John Fusco og hann byrjar söguna í Dickensstíl þegar verðandi hafnaboltahetjan er sjö ára sett á betrunarhæli vegna þess að drengstaulinn er óalandi og ófeijandi. Sá bakgrunnur hans skýrir nokkuð vel það sem á eftir kom í lífinu. Fusco birtir okkur mynd af manni sem átti ekki bót fyrir rassinn á sér, var afar takmarkaður, lítt greindur og ruddalegnr en alla tíð eftir að hann komst í álnir sólginn í lífsins nautnir og sökkti sér í þær af alefli eins og hann ætti von á að missa allt aftur fyrirvaralaust. Og það var ekki af tilvilj- un sem hann var kallaður Bamið eða „The Babe“. Bæði var hann kornungur þegar hann sló í gegn með . kylfunni sinni en svo var hann líka eins og bam alla ævi. Hann neitaði að taka ábyrgð á lífi sínu, var han- dónýtur eiginmaður, svaf hjá öðrum konum alla daga,' drakk ómælt brennivín og skemmti sér allar nætur. Það héldu honum engin bönd þegar kom að því að njóta lífsins lystisemda. Og hann var náttúmbarn í hafnabolta. Hann hafði þessa einu gáfu í lífinu að geta slegið bolta með kyifu fastar en nokkur annar og án þess að þurfa að hafa nokkuð fyrir því. Hans leik- ur var að kýla boltann út af vellinum og hann fór létt með það, fullur sem ófullur. Hann var dáðasti íþrótta- maður sinnar tíðar en fólk er hvergi fljótar að gleyma en í íþróttum og þegar fall- ið kom var það hátt og mik- ið. Allt rúmast þetta vel í risaskrokknum á John Go- odman, sem má segja að fari á kostum. Honum ferst einkar vel að lýsa sakleysis- legum lífsnautnamanninum og svallaranum sem hafði varla burði til að skilja vel- gengni sína en gætti þess að njóta hennar í botn. Arthur Hiller finnur sög- unni viðeigandi blæ undurs og ævintýris en líka mann- legrar hlýju og meðaumk- unar því öðrum þræði er saga Babe Ruths sorgar- saga manns sem var hafinn til skýjanna og skilinn þar eftir til að falla. Það eina sem hann kunni var að skemmta sér og kýla bolta. Og hvort tveggja gerði hann betur en nokkur annar. Hafnaboltahelja með galla; úr myndinni um Babe Ruth. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR ö. DESEMBER 1992 . f : ■ j / ■;-t-' 1 --- ÁRNAÐ HEILLA HJÓNABAND. Gefín voru saman hinn 11. júlí Úlfar Snær Arnarson og Gréta Vilborg Guðmundsdóttir af sr. Sigrúnu Óskarsdóttur í Laug- ameskirkju. Þau eru til heimilis á Bugðulæk 12, Reykjavík. Ljósm.stofan Mynd HJÓNABAND. Gefin vom saman í Selfosskirkju 7. nóvember Kolbrún Káradóttir og Magnús Ólason. Prestur var sr. Axel Ámason. Heimili þeirra er í Miðtúni 15, Reykjavík. Ljósm.stofan Mynd HJÓNABAND. Gefin vom saman í_ Fella- og Hólakirkju 31. október Ásgerður Gissurardóttir og Jóhann Axel Geirsson. Prestur var sr. Karl Ágústsson. Heimili þeirra er í Dúfnahólum 4, Reylqavík. Ljósm.stofan Mynd HJÓNABAND. Gefin vom saman í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 31. októ- ber Erla María Kristinsdóttir og Ómar Óskarsson. Prestur var sr. Einar Eyjólfsson. Heimili þeirra er á Hraunstíg 7, Hafnarfirði. ÞESSIR KATU PILTAR NA UPP RAF- MÖGNUÐU STUÐI OG RADÍUSAR- STRAKARNIR DANÍEL ÞOR OG STEINN ÁRMANN KITLA HLÁTUR- TAUGARNAR. SEM SAGT POTTÞETT HRESST OG SKEMMTILEGT LAUGAR DAGSKVÖLD! JÓLAGLOÐ OG PIPARKÖKUR A VÆGU VERÐI! Liðvcisiufél. fa 50% afsl. i boð spari- sjóðanna gegn framv. skirt. Argentina steikhus býður matargest- um sinum boðsmiða sem gilda a meö- an húsrum leyfir Púlsinn þessi eini sanni! Sunnud. 6. des. KANDÍS + ANNA OG INGVAR SYNA ERÓTÍSK DANSATRIÐI TYEIR LOGAR frá Vestmannaeyjum skemmta gestum RAUÐA LJÓNSINS ikvöld Snyrtilegur klæðnaður Þar sem fjörið er mest og verðið er best LAUGARDAGUR 5. DES BÓGOMIL FONT OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR í kvöld: TODMOBILE 9. des. JAZZ. HILMAR JENSSON OG CO. 10. des. MEZZOFORTE 11. des. SÁLIN HANS JÓNS MÍNS 12. des. NÝDÖNSK 18. des. STJÓRNIN 19. des. DEEP JIMIAND THE ZEP CREAMS Hefst kl. 13.30______________ j Aðalvinningur að verðmæti___________ ?! 100 bús. kr.' - il --------------r.--j ....- — Heildarverðmæti vinninqa um _________ TEMPLARAHOLLIN __________300 bús. kr. Eiríksgötu 5 — S. 20010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.