Morgunblaðið - 24.12.1992, Síða 13
MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTIJDAGUR 24. DESEMBEÍR 1992
V erðlagsstofnun
Osannaðar full-
yrðingar í hvít-
lauksauglýsingu
Bakarí má ekki nota heildsöluverð í smásölu
VERÐLAGSSTOFNUN hefur beint þeim eindrengn tilmælum til
innflytjanda hvítlauks að hann hætti að nota tilteknar fullyrðing-
ar um hvítlaukinn í auglýsingum þar sem þær eru ekki taldar
standast. Þá hefur Verðiagsstofnun beint þeim tilmælum til bakar-
ís að það hætti að auglýsa heildsöluverð við sölu til neytenda þar
sem það sé villandi. Verðlagsráð ræddi bæði þessi mál á fundi
sínum fyrir skömmu og varð sammála afstöðu Verðlagsstofnunar.
Verðlagsstofnun tók hvítlauks-
málið fyrir vegna kæru frá keppi-
naut innflytjands. Gerði stofnunin
athugasemdir við tíu staðhæfingar
sem fram koma í auglýsingabækl-
ingi heildverslunarinnar Loga-
lands um kyolic hvítlauk. Einnig
Garðurinn
Fékkjám-
krók í auga
27 ára gamall maður var flutt-
ur á slysadeild eftir að járnkrók-
ur hafði slegist í auga hans í fisk-
vinnslunni Nesfiski í Garðinum
um kl. 17.20 á þriðjudag.
Maðurinn var að draga bakka
með jámkróki þegar bakkinn losn-
aði frá og krókurinn slóst í hann.
Hann var fluttur á sjúkrahúsið í
Keflavík og síðar á slysadeild Borg-
arspítalans.
hafa verið gerð athugasemd við
fullyrðingu í blaðaauglýsingu.
Verðlagsstofnun telur að þessar
staðhæfingar standist ekki og tel-
ur að innflytjandinn hafi ekki get-
að rökstutt þær. Með bréfi frá því
í gær var þeim eindregnu tilmæl-
um beint til fyrirtækisins að hætta
að auglýsa með þessum hætti svo
ekki þurfí að koma til frekari að-
gerða af hálfu verðlagsyfirvalda.
Borgarbakarí hefur auglýst að
það selji vörur á heildsöluverði til
neytenda. Verðlagsstofnun telur
að notkun orðsins heildsöluverðs
í þessu sambandi sé villandi og
samrýmist ekki verðlagslögum.
Vísar hún til þess að orðið heild-
sölu eigi að nota um sölu í stórum
skömmtum til smásala, en ekki
um smásölu. Beinir hún þeim ein-
dregnu tilmælum til fyrirtækisins
að hætta að auglýsa með þessum
hætti svo ekki þurfi að koma til
frekari aðgerða, eins og segir í
bréfí stofnunarinnar sem sent var
í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
Þorsteinn Helgason, deildarforseti verkfræðideildar, Sveinbjörn Björnsson, háskólarektor, Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands, og styrkþeginn, Agni Ásgeirsson.
Styrkur veittur úr minningar-
sjóði Þorvalds Finnbogasonar
AGNA Ásgeirssyni, nema á fjórða ári í verkfræði við Háskóla ís-
lands, var afhentur námsstyrkur úr minningarsjóði Þorvalds Finn-
bogasonar, stúdents, á mánudag. Frú Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands, afhenti Agna styrkinn, sem stofnaður var til minningar
um bróður hennar. Styrkurinn er veittur til styrktar nema í verk-
fræði, og nam að þessu sinni 70 þúsund krónum. Athöfnin fór fram
í Skólabæ, móttökustað Háskólans.
Minningarsjóður Þorvalds Finn-
bogasonar, stúdents, var stofnaður
af Finnboga Rúti Þorvaldssyni,
prófessor, og konu hans, Ástu Sig-
ríði Einarsdóttur, til minningar um
son þeirra, sem lést á tuttugasta
aldursári. Tilgangur sjóðsins er að
styrkja stúdenta til náms við verk-
fræðideild Háskóla íslands eða til
framhaldsnáms í verkfræði við
annan háskóla. Á undanfömum
árum hefur styrkþegi sjóðsins verið
sá verkfræðinemi við verkfræði-
deild Háskóla Islands, sem hefur
nám á fjórða námsári með bestum
heildarárangri.
Agni er fæddur árið 1969. Móð-
ir hans er Albína Thordarson, arki-
tekt en faðir var Ásgeir Höskulds-
son og fósturfaðir er Ólafur Sig-
urðsson, fréttamaður. Agni gekk í
Menntaskólann í Reykjavík og lauk
þaðan stúdentsprófí af eðlisfræði-
braut árið 1989. Hann hefur tekið
þátt í eðlisfræði- og stærðfræði-
keppnum menntaskóla með glæst-
um árangri, og árið 1988 tók hann
þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði
í Austurríki. Hann hóf nám í véla-
verkfræði við H.í. haustið 1989,
og hefur margsinnis verið heiðrað-
ur þar fyrir frábæran námsárang-
ur. Veturinn 1991-1992 dvaldist
hann sem skiptinemi við University
of Iowa og fékk þar hæstu einkunn
í hverju námskeiði. Hann er nú
gjaldkeri Félags verkfræðinema,
en stefnir í framhaldsnám í iðn-
rekstarverkfræði í Bandaríkjunum
næsta haust.
AUGLYSINGASTOFA