Morgunblaðið - 24.12.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 24.12.1992, Qupperneq 14
...:j 14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992 Fort Lauderdale Islensk ferðaskrif- stofa tekur til starfa Ferðaskrifstofan Ferðabær og bandaríska ferðaskrifstofan Fort Laud- erdale by the Sea Travel, sem hefur aðsetur í Florida, hafa stofnað fyrirtækið Florice og verður skrifstofa hins nýja fyrirtækis formlega opnuð á íslandskynningu í Fort Lauderdale í lok janúar. Tilurð fyrirtæk- isins er beint flug Flugleiða tii Fort Lauderdale og að sögn Birgis Sumarliðasonar hjá Ferðabæ er ætlunin að bjóða ísland bandarískum ferðamönnum á betri kjörum en til þessa hefur verið; Einnig tekur skrifstofan á móti íslenskum ferðamönnum sem koma til Florida. Birgir sagði enn fremur að íslensk- ur starfsmaður myndi sjá um skrif- stofuna í Fort Lauderdale og áhersla yrði lögð á að kynna hin ýmsu sér- kenni Islands og ná þannig til af- markaðra markhópa. fsland verður m.a. kynnt sem heilsu- og veiðipara- dís, einnig land ævintýraferða á jepp- um, vélsleðum og hestum svo eitt- hvað sé nefnt. Sérfræðingar í öllum greinum verða til staðar á ísland- skynningunni, en á henni verða einn- ig fulltrúar frá Ferðamálaráði og Flugleiðum. „Þetta er góður staður til að mark- aðssetja ísland vestra, geta má þess að á svæðinu frá Orlando til Key West búa rúmlega 6 milljónir manna, en þangað sækja hins vegar milli 12 og 13 milljónir manna frá jólum til páska. Þó ekki næðist til nema brots af þeim fjölda værum við að tala um mikla aukningu á ferðum til ís- lands,“ sagði Birgir Sumarliðason. Morgunblaðið/Björn Blöndal Jólastúdentarnir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja setja upp hvítu kollana eftir að hafa fengið burtfarar- skírteini sín. Fjölbrautaskóli Suðurnesja 28 jólastúdentar braut- skráðir á haustönn Keflavík. Brautskráning nemenda á haustönn Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram við hátíðlega athöfn sunnudaginn 20. desember sl. og fengu þá 52 nemendur prófskírteini og þar af voru 28 jólastúdent- ar. Athöfnin að þessu sinni var söguleg að því leyti að hún fór nú fram í fyrsta skipti á sal skólans, í hinni nýju viðbyggingu er tekin var í notkun í haust. Fjölmenni var að vanda og má segja að ávallt sé húsfyllir við athöfn sem þessa á vegum skólans. Gerry Doyle eigandi „Fort Lauderdale by the Sea Travel“ t.v. og Birgir Sumarliðason forstjóri Ferðabæjar. Hjálmar Árnason skólameistari afhenti nemendum prófskírteini en Fjölbraut í Breiðholti 59 nemendur luku stúdents- prófi - 133 luku lokaprófi ÚTSKRIFT frá Fjölbrautaskól- i------1-------------...............................^ anum í Breiðholti fór fram laug- | | I I^Hl ardaginn 19. desember sl. kl. 14 .-^BSSAISÍ^ESSESI^^kBSSSSSÍE í Fella- og Hólakirkju, Hólabergi Jfc 88. Var það í 34. skipti sem skól- inn útskrifar nemendur. Athöfnin hófst með því að organ- isti kirkjunnar, Guðný Magnúsdóttir, lék jólalög á kirkjuorgelið Kór Fjöl- brautaskólans í Breiðholti söng því næst nokkur lög, undir stjóm Emu Guðmundsdóttur. Skólameistari, Kristín Amalds, flutti yfirlitsræðu og gerði grein fyrir starfí og prófum í dag- og kvöldskóla. 1.419 nemendur stunduðu nám í dagskólanum, þar af 400 nýnemar. 845 nemendur stunduðu nám við kvöldskólann, kennarar voru 130. 7 skiptinemar stunduðu nám við skól- ann á haustönninni. í dag- og kvöld- skóla fengu 133 nemendur afhent lokaprófsskírteini og skiptast þeir þannig: 16 nemendur luku almennu versl- unarprófi á viðskiptasviði. Matar- fræðinganámi á matvælasviði í kvöldskóla luku 7 nemendur og eru það jafnframt fyrstu matarfræðing- amir sem útskrifast frá Kvöldskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Mat- artæknanámi á matvælasviði luku 2 nemendur. Sjúkraliðanámi á heil- brigðissviði luku 9 nemendur. Burt- fararprófi á tæknisviði luku 29 nem- þeir voru af eftirtöldum sviðum: 7 vélaverðir, 9 af tæknisviði, 4 sjúkraliðar, 4 af bóknámsbraut og 28 stúdentar. Skólameistari hvatti brautskráða til að setja sér ný markmið í lífinu þegar þessum áfanga væri náð og að nota próf- skírteini sín sem siglingatæki í hinni nýju sjóferð er við blasti. Hann bað jafnframt um að á leið til hinna nýju markmiða yrði veitt rúm fyrir þau systkini, kærleika, sannleika og manngildi. 'Heimur- inn þyrfti á þeim að halda nú frek- ar en nokkru sinni áður. Að þessu sinni hlutu 9 nemend- ur viðurkenningar: María Lovella Guðmundsdóttir fyrir iðni og ástundun, Steinunn Björk Sigurð- ardóttir fyrir góðan árangur í dönsku, Kristján Eiríkur Péturs- son fyrir góðan námsárangur í byggingagreinum, Unnar Þ. Bjartmarsson einnig fyrir góðan árangur í byggingagreinum, Bryn- dís María Leifsdóttir fyrir góðan árangur í frönsku, Guðbjörg Glóð Logadóttir fyrir störf að félags- málum, Gestur Pétursson fyrir störf að félagsmálum, Ólafur Pét- ursson fyrir góðan árangur í sögu og Eiríkur Hafberg Siguijónsson fyrir góðan árangur í raungreinum og stærðfræði. Við athöfnina söng Karlakór Keflavíkur og Sigurði Erlendssyni kennara, sem nú læt- ur af störfum fyrir aldurs sakir, voru færðar þakkir fyrir vel unnin störf. - BB endur, þ.e. 3 af húsasmiðabraut, 15 af rafvirkjabraut, 12 af vélsmiða- braut, og 1 stálsmiður. Stúdentspróf: 59 nemendur luku prófi og skiptast þeir þannig: 15 af bóknámssviði, 6 af heilbrigðissviði, 3 af listasviði, 20 af félagsgreina- sviði, 14 af viðskiptasviði og 1 af tæknisviði. Bestum árangri á stúdentsprófí náðu Viggó Ásgeirsson á félags- fræðibraut og Davíð Bjarnason á tungumálabraut. Viðurkenningu frá skólanum hlaut Kristín Rós Hákonardóttir, „Kirkjan ómar öll“ Um Hallgrímskirkju berst nú undurfagur hljómur nýs orgels, þökk sé velgjörðarmönn- um kirkjunnar fyrir góðvild og gjafmildi. Guð gefí landsmönnum öllum gleðilega jóla- hátíð og farsælt komandi ár. Sóknarnefnd Hallgrímskirkju í Reykjavík. nemandi á listasviði, en hún tók þátt í Ólympíuleikum fatlaðra í Barc- elona í september sl. Gerð var grein fyrir samkeppni um gerð jólakorts FB, en þar sigr- aði Stella Sigurgeirsdóttir, nemandi á listasviði. Viðurkenningu frá Soroptimistaklúbbnum Reykjavík IV hlaut Sigurlaug Jónsdóttir, nýstúd- ent, fyrir námsárangur. Viðurkenn- ingu frá Rotary-klúbb Breiðholts hlaut Ingvar Sverrisson, nýstúdent, fyrir félagsstörf og ástundun í námi. Ávörp fluttu: Fulltrúi nýstúdenta dagskólans, Ingvar Sverrisson. Full- trúi nýstúdenta kvöldskólans, Hanna Birna Jóhannesdóttir. Formaður nemendafélags dagskóla, Daníel Brandur Sigurgeirsson. Formaður nemendafélags kvöldskóla, Björgvin Björgvinsson. Einn af nemendum skólans, Ás- laug Lilja Káradóttir, lék nokkur lög á píanó. Skólameistari, Kristín Arnalds, fiutti skólalokaræðu, árnaði útskrift- arnemum heilla og öllum viðstöddum gleðilegra jóla. Að lokum sungu allir viðstaddir Heims um ból. (Fréttatilkynning) Gamla kaupfélagshúsið á Hofsósi sem verið er að gera upp á kafi í spjó. Hofsós 6 sólarhrinefa stórhríð HofsAsi. CJ Hofsósi. SEGJA má að linnulaus stórhríð hafi geisað hér frá því á sunnu- deginum 13. desember til föstu- dagsins 18. desember. Mikinn snjó hefur sett niður og verður mikið verk að hreinsa götur í þorpinu en nýbúið var að hreinsa allar götur eftir norðan áhlaup er gerði nokkru fyrr. Mikill sjávar- gangur varð í þessu áhlaupi og urðu menn að vakta báta er lágu í höfninni, bátarnir munu allir hafa skemmst eitthvað en ekki er búið að kanna skemmdir til fulls. Tæpt var með einn bátinn er festipolli framan á bátnum brotnaði en eig- endum, sem voru um borð, tókst að setja vírstroffu utanum. Brimið var með því mesta sem gerist, t.d. voru nokkrir trillubátar uppi á mal- arkambi og hefur hingað til verið talið að þar væru þeir öruggir fyrir sjávargangj, en draga varð þá upp á veg er liggur um hafnarsvæðið, þvi að sjór gékk upp á malarkamb- inn. Þó nokkur útköll voru hjá björg- unarsveitinni til að aðstoða menn við að komast leiðar sinnar og einn- ig vegna báta í höfninni og á hafn- arsvæðinu. - Einar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.