Morgunblaðið - 31.03.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995 11
FRÉTTIR
Opinn fundur um útflutning og sölu
íslenskrar heilbrigðisþjónustu
Þurfum að líta
á heilbrigðis-
þjónustu sem
verslunarvöru
ISLENDINGAR þurfa að endurskoða heilbrigðislög, sætta sig við þá
hugmynd að græða megi á heilbrigðisþjónustu og læra að selja þekk-
ingu heilbrigðisstétta, sagði Davíð A. Gunnarsson forstjóri Ríkisspítal-
anna á síðdegisfundi Útflutningsráðs sem haldinn var fyrr í vikunni á
Hótel Sögu.
Yfirskrift fundarins var íslensk
heilbrigðisþjónusta sem útflutn-
ingsvara og þar fluttu erindi auk
Davíðs, Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisráðherra, Þórður Ósk-
arsson læknir á glasafijóvgunar-
deild Landspítala og Torben Vind-
elov hjá Norræna verkefnaútflutn-
ingssjóðnum. Fundarstjóri var Geir
A. Gunnlaugsson framkvæmda-
stjóri Marels hf.
Oflun erlendra verkefna
Fyrir tæpum tveimur árum skip-
aði heilbrigðisráðherra nefnd til áð
afla erlendra verkefna fyrir ís-
lenskar heilbrigðisstéttir. Nefndin
hefur skilað áfangaskýrslu og
kemur fram í henni að hátækniað-
gerðir svokallaðar, íslenskar
heilsulindir, hjálparstarf og heilsu-
vörur séu hugsanlegur farvegur
fyrir útflutning á íslenskri heil-
brigðisþjónustu.
Fram kemur í skýslunni að ítrek-
að hafi verið rætt um möguleika
íslenskrar heilbrigðisþjónustu til
uppbyggingar erlendis, sérstak-
lega í þróunarlöndum og Austur-
Evrópu. Einnig að til þessa hafi
það einungis verið athugað að tak-
mörkuðu leyti hvort unnt væri að
sinna erlendum sjúklingum sem
hingað kæmu til sérhæfðrar með-
ferðar. Það sé mat sérfræðinga að
íslensk heilbrigðisþjónusta sé í
þeim gæðaflokki að nýta megi
þekkingu og reynslu starfsmanna
til hátækniaðgerða.
Siðferðilegar spurningar
Sighvatur sagði á fundinum að
áður en sú ákvörðun yrði tekin að
gera hátækniaðgerðir á útlending-
um hérlendis, svo sem hjartaað-
gerðir og glasafijóvganir, þyrfti
að svara ýmsum siðferðilegum
spurningum. „Hveiju eigum við að
svara íslenskum ríkisborgurum
sem spyija hvort þeir geti ekki
fengið þjónustuna keypta á sömu
kjörum og útlendingar?
Ef svarið væri játandi væri þar
með horfið frá grundvallaratriðum
í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Búið
væri að byggja upp tvöfalt kerfi,
eitt fyrir almenna borgara á biðlist-
um og annað fyrir þá sem hafa
fjármuni til þess að kaupa sig af
biðlistum og inn á sjúkrahúsin.
Mitt viðhorf er að þetta sé það
mikil breyting á grundvallarstefnu
íslenskrar heilbrigðisþjónustu, að
ekki sé líklegt að sú verði niður-
staðan, nema að lagt verði á borð-
ið og sannað að slík þjónusta yrði
til að flýta og stytta biðlista fyrir
íslendinga sjálfa,“ segir Sighvatur.
Árleg kostnaðaraukning á
aðra milljón
„Við erum ekki lengur einangruð
frá umheiminum. íslendingar þurfa
að sækja sér menntun út í heim
og þeir þurfa einnig að sækja at-
vinnutækifæri þangað. Það er ekki
lengur verkefni hefðbundinna at-
vinnuvega íslendinga að taka þátt
í alþjóðlegu markaðssamstarfí.
Það verður vandamál fyrir okkur
i framtíðinni að standa undir ört
vaxandi kostnaði við okkar velferð-
arkerfí. Þótt engin ný lyf eða
sjúkrastofnanir komi til má gera
ráð fyrir að kostnaður við rekstur
heilbrigðis- og tryggingakerfisins
á íslandi vaxi nokkuð á aðra millj-
ón króna árlega. Þjóðin er að eld-
ast og það kallar á meiri útgjöld.
Við þurfum að sækja okkur auknar
tekjur með þjónustu við þá sem
vilja nýta það sem við höfum upp
á að bjóða. Þetta er ný heimssýn
en hún er komin til að vera og við
verðum að opna augun fyrir því í
framtíðinni,“ sagði Sighvatur.
Höfum bolmagnið
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
Ríkisspítalanna ræddi hvort heil-
Morgunblaðið/Sverrir
FJOLMENNI var á ráðstefnu um nýtingu íslenskrar heilbrigðisþjónustu til gjaldeyrisöflunar.
Heilsugæslustöð
fyrir Fossvogs-
hverfi reist á lóð
útvarpshússins
brigðiskerfið hefði bolmagn til
þess að selja útlendingum þjón-
ustu. Sagði hann svo vera, bæði
hvað varðaði gæði og þekkingu.
„Erlendis starfa nú 400 íslenskir
læknar og 175 hjúkrunarfræðing-
ar. Maður getur giskað á að þeir
þiggi laun sem numið gætu 2'h
milljarði króna. Til samanburðar
má geta þess að tekjur ríkisspít-
ala af erlendum sjúklingum voru
um 35 milljónir króna árið 1994.
Við getum velt því fyrir okkur
hvort hugsanlega hefði mátt efla
starfsemi hér og láta þessa starfs-
menn þjóna útlendingum," sagði
Davíð og skaut á, samkvæmt
reiknilíkani spítalans við fjárhags-
útreikning, að afla mætti þjóðar-
búinu tekna sem numið gætu ein-
um milljarði.
Heilbrigðisþjónusta
verslunarvara
„Staðreyndin er sú að erlendir
sjúklingar treysta íslenskum heil-
brigðisstarfsmönnum vel fyrir
heilsu sinni. Aðalástæðan fyrir því
að heilbrigðisþjónustan er ekki
flutt út er sú að hún lýtur ákveðn-
um lögum og hefur hingað til ekki
verið álitin verslunarvara. Það tek-
ur tíma að átta sig á að heilbrigðis-
þjónusta snýst ekki eingöngu um
lögboðin réttindi. Hún er jafnframt
verslunarvara, sem þjóðarbúið
gæti grætt á. Hugsanlega er það
sterkasta söluvara okkar, þegar til
lengri tíma er litið, að fá hingað
til náms lækna frá löndum sem í
framtíðinni gætu orðið sterkir
kaupendur að íslenskri heilbrigðis-
þjónustu,“ sagði Davíð og nefndi
austantjaldslöndin sem dæmi.
„Við þurfum að breyta hug-
arfarinu og þáð þarf að verða
ásættanlegt að græða á heilbrigð-
isþjónustu. Við þurfum að aðlaga
lögin, breyta hugarfarinu og læra
að selja,“ sagði hann.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
úthluta heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu lóð undir heilsu-
gæslustöð við Efstaleiti sunnan
Listabrautar. í erindi ráðuneytisins
til borgarstjóra segir að til greina
hafí komið að reisa stöðina á hluta
lóðar útvarpshússins eða á lóð
Borgarspítala. Þá hafí í trausti þess
að lóð fengist verið veitt 25 milljón-
um króna til verkefnisins á fjárlög-
um ársins 1995 og eru því samtals
45 milljónir króna tiltækar til fram-
kvæmdanna auk lögbundis fram-
lags frá sveitarfélagi.
Leitað yrði að
hentugri lóð
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram tillögu í borg-
arráði þess efnis að leitað yrði að
hentugri lóð undir heilsugæslustöð
í Fossvogshverfi. Bent er á að
heilsugæslustöðin yrði staðsett í
vesturhluta heilsugæslusvæðisins í
Fossvogi og því langt að fara fyrir
íbúa sem búi austast. Auk þess
væru starfandi heilsugæslustöðvar
í Drápuhlíð og við Lágmúla og
starfandi heimilislæknar væru í
Kringlunni.
í frávísunartillögu borgarráðs-
fulltrúa Reykjavíkurlistans segir að
á fundi borgarráðs hafi verið upp-
lýst að í mars sl. hafí verið leitað
að hentugri lóð fyrir heilsugæslu-
stöð í Fossvogi án árangurs. Nú
væri loks hægt að úthluta lóð fyrir
stöðina á „lóð útvarpshússins". Til-
lögu sjálfstæðismanna væri því vís-
að frá.
Viðræður um lóð við
Borgarspítala
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks lögðu þá til að borgarráð
samþykkti að taka upp viðræður
við heilbrigðisráðuneytið og stjórn
sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar
um staðsetningu heilsugæslustöðv-
ar á lóð Borgarspítalans í tengslum
við starfsemi spítalans.
Borgarfulltrúar Reykjavíkurlist-
ans lögðu fram frávísunartillögu og
bentu á að í tíu ár hafi meirihluti
sjálfstæðismanna reynt að finna
stað fyrir heilsugæslustöð í Foss-
vogshverfi en ekki tekist. Það væri
því von að þeim sárnaði þegar tæk-
ist að semja um lóðarúthlutun á lóð
útvarpshússins. Lóðin hafi marga
góða kosti, meðal annars gott að-
gengi varðandi umferð.
Frávísunartillagan var samþykkt
með 3 atkvæðum. Borgarráðsfull-
trúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bók-
að að þeir vísuðu til tillagna sjálf-
stæðismanna vegna málsins.
Lífleg laugardagskynning á morgun í Tæknivali:
Glæsileg fermingartilboð!
Fermingartilboð dagsins: | Á dagskrá:
Ný og öflug
486 / 80 MHz tölva
meö litaskjá
4 MB minni, Local-Bus, 540 MB höröum
diski o.fl. á sérstöku laugardagsveröi
kr. 123.000 stgr.
Hjá okkur verður ungt fólk í öndvegi á líflegri laugardagskynningu.
Við kynnum tölvur, prentara, margmiðlun, hugbúnað, úrval geisladiska
og fjölmargtfleira. Missið ekki af einstakri laugardagskynningu.
Ungt fólk á sérframtíð - og framtíðin er hátækni!
Hátækni til framfara
Tæknival
Litaprentarinn
vinsæli
Hewlett-Packard
DeskJet320
Vandaöur, hljóölátur og fyrirferöalítill
litaprentari frá Hewlett-Packard. Innifalið
litahylki og arkamatari. Árs ábyrgö.
Nú á einstöku fermingartilboöi
kr. 32.000 stgr.
Oplð til 14.00 á laugardögum
Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664