Morgunblaðið - 31.03.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
og Arnar Símonarson.
Mávurinn
á Dalvík
Dalvík.
LEIKFÉLAG Dalvíkur frum-
sýndi Mávinn, gamanleik eftir
Anton Tsjekhov í þýðingu Ingi-
bjargar Haraldsdóttur, í gær-
kvöld, fimmtudagskvöld, í leik-
stjórn Arnar Jónssonar.
Aðeins sex sýningar verða
á Mávinum, önnur sýning
verður í kvöld, föstudagskvöld
og þriðja sýning á laugardags-
kvöldið. Sýningar hefjast kl.
21.00 og er sýnt í Ungó.
Skákfélag
Akureyrar
Útiskákmót
fyrir við-
haldsstyrk
BÆJARRÁÐ Akureyrar sam-
þykkti á fundi í gær að veita
Skákfélagi Akureyrar styrk að
upphæð 150 þúsund krónur úr
bæjarsjóði til viðhalds á hús-
eign félagsins við Þingvalla-
stræti.
Bæjarráð veitti styrkinn að
tillögu íþrótta- og tómstunda-
ráðs en í staðinn skuldbatt
Skákfélag Akureyrar sig til að
halda að minnsta kosti tvö úti-
skákmót í göngugötunni í Hafn-
arstræti á Akureyri í tengslum
við Listasumar á þessu ári.
Iðunn sýnir í
Norðurmynd
IÐUNN Ágústsdóttir mynd-
listarkona opnar sölusýningu
í húsakynnum Ljósmyndastof-
unnar Norðurmynda, Hafnar-
stræti 90.
Sýnd verða 20-25 mynd-
verk, smámyndir málaðar á
gullgrunna og margskonar
listmunir og skartgripir úr
postulíni.
Sýningin verður opin frá kl.
14-18 alla daga til og með 9.
apríl næstkomandi.
Menntamálaráðherra setur Menningar- og menntadaga á morgun
Styrlga á tengslin við
Grænland og Færevjar
MENNINGAR- og menntadagar
heíjast á Akureyri á morgun, laug-
ardaginn 1. apríl kl. 14.00. áLista-
safninu á Akureyri. Þetta er í
fyrsta skipti sem slíkir dagar eru
haldnir en tilgangur þeirra er að
styrkja menningar- og mennta-
tengsl Akureyrar, Grænlands og
Færeyja.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra setur Menningar-
og menntadagana í Listasafninu á
Akureyri, en þeir standa út apríl-
mánuð. Opnuð verður sýning á
verkum frá Grænlandi og Færeyj-
um bæði í Listasafninu og Deigl-
unni.
Grænlenska sýningin saman-
stendur af málverkum sem máluð
eru með olíulitum á striga, trérist-
um, teikningum og vatnslitamynd-
um og dæmum um útskurðarlist
Grænlendinga í bein, tré og tálgu-
stein.
Færeyska sýningin samanstend-
ur af verkum þriggja myndlistar-
manna, Eyðun af Reyni, Amariel
Norðoy, og Zacharias Heinesen en
þeir sýna færeyska nútímamyndlsit
eins og hún gerist best.
Alls munu um 30 gestir frá
Grænlandi og Færeyjum, þar á
meðal er gert ráð fýrir menningar-
málaráðherrum beggja landanna
og helstu fulltrúum mennta-, lista-
og menningarmála. Þeir munu
meðal annars kynna sér starfsemi
Leikfélags Akureyrar, Tónlistar-
skólans, Myndlistarskólans og
Háskólans á Akureyri ásamt ýmsu
öðru sem til boða stendur á Ákur-
eyri.
Ennfremur er áætlað að fulltrú-
ar atvinnulífsins hitti fulltrúa frá
Grænlandi og Færeyjum til að
ræða hvernig styrkja megi enn
frekar samstarf Akureyrar, Græn-
lands og Færeyja á því sviði.
Grænlensk og færeysk list
Emil Rosing, forstöðumaður
grænlenska þjóðminja- og skjala-
safnsins, og Bárður Jákupsson,
forstöðumaður Listaskálans í
Þórshöfn, halda fyrirlestra í Deigl-
unni á sunnudag, 2. apríl og hefj-
ast þeir kl. 14.00. Rætt verður um
list og menningu í Grænlandi og
myndlist í Færeyjum.
Sýningarnar í Grófargili standa
út aprílmánuð og verður efnt til
margvíslegra atriða í tengslum við
þær þann tíma.
Morgunblaðið/Jónas
Sú kollótta
bar tveimur
lömbum
Grýtubakka. Morgunblaðið.
SÁUÐBURÐUR hófst á bænum
Grund í Höfðahverfi upp úr miðj-
um mars þegar ung kollótt ær
bar tveimur lömbum, einu hvítu
og öðru svörtu, en það er ekki í
fyrsta skipti sem kolla hefur
sauðburð á bænum.
Að sögn Valdimars Kristjáns-
sonar, sem hefur umsjón með
búfénaði á Grund ásamt sambýl-
iskonu sinni, Claudiu Lubinsdzus,
mun sauðburður ekki hafinn að
fullu þó sú kollótta hafi brugðið
á leik er hrútar voru teknir frá
fénu í vetrarbyijun.
Orku- og umhverfisráðherra Swazilands
Talar á samkomum
Hvítasunnukirkjuimar
ORKU- og umhverfisráðherra
Swazilands, Absalom Dlamini, er
gestur Hvítasunnukirkjunnar á ís-
landi um þessar mundir, en hann
hefur dvalíð hér á landi frá 22.
mars og verður til 4. apríl.
Absalom talar á samkomum í
Hvítasunnukirkjunni á Akureyri í
dag, föstudag og morgun, laugar-
dag kl. 20.30 og á sunnudag kl.
15.50 og eru þær öllum opnar.
Hann hefur verið forstöðumaður
í stórri Hvítasunnukirkju í Manz-
ini, Swazilandi og skólastjóri
Biblíuskólans sem íslenska og
norska Hvítasunnuhreyfingin
byggði og hefur stutt um árabil.
Hann er eftirsóttur ræðumaður,
kennari og fyrirlesari bæði á kristi-
legum stórmótum, ráðstefnum og
í sjónvarpi. Hann var kjörinn á
þing lands síns árið 1993 en 3.
mars síðastliðinn tók hann við
embætti umhverfis- og orkumála-
ráðherra. Hann hefur þegar átt
fund með umhverfisráðherra ís-
lands og mun ræða um orkumál á
Akureyri við bæjarstjóra.
Kennarar við
Stórutjarnaskóla
Skora á
kennara að
fella samn-
inginn
KENNARAR við Stóru-
tjarnaskóla í Ljósavatns-
hreppi lýsa í ályktun yfír
megnri óánægju með nýgerða
kjarasamninga.
„Með þeim er vígstaða
okkar gersamlega vonlaus
gerð, nú og um langa fram-
tíð. Árangur sex vikna verk-
falls er algerlega óásættan-
legur, smánarlega lítill og
stórhættulegur sjálfsmati og
sjálfsvirðingu stéttar okkar,“
segir orðrétt í ályktun kenn-
ara við Stórutjarnaskóla sem
jafnframt skora á félaga sína
í kennarastétt að slíðra ekki
sverðin, gefast ekki upp og
segja nei við nýgerðum kjara-
samningi.
Hadda sýnir
nælur í Kaffi
Karólínu
HADDA sýnir nælur unnar
úr flóka, roði, hrosshári og
kýrhalahári sem einnig eru
ætlaðar sem lítil veggstykki
á Kaffi Karólínu, en sýningin
hennar verður opnuð á laug-
ardag 1. apríl íd. 14.00 og
stendur út aprílmánuð.
Hadda lærði vefnað í Sví-
þjóð ásamt ýmsu öðru hand-
verki, síðan var hún í lista-
deild Lýðháskólans í Eskilst-
una 1986-1987 og málunar-
deild Myndlistarskólans á
Akureyri 1987-1991. Hún
var ein af fyrstu leigendum
húsnæðis í Gilinu, en hún
opnaði þar Vinnustofuna
Grófina, sem er opin vinnu-
stofa með galleríi.
Rauður sýnd-
ur í Borg-
arbíói
KVIKMYNDAKLÚBBUR
Akureyrar sýnir á sunnudag,
2. apríl, og mánudaginn 3.
aprfl kvikmyndina Rauður í
Borgarbíói. Fyrri sýningin
hefst kl. 17 en sú síðari kl.
18.30.
Myndin er sú síðasta í trí-
lógíu þar sem leikstjórinn
Úryzsztof Kieslowski sækir
titla myndanna í liti franska
þjóðfánans, sem tákna kjör-
orð frönsku byltingarinnar;
Frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag.
lii—
RESTAURANT
OPIO ~ TIL KL. 22.00 ÖU KVÖLD
B€ IfVAL cs. zs
KAUPVANGSSTRÆTI 4 - SÍMI 96-26100