Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 15
LANDIÐ
Forsvarsmenn Flugfélagsins Ernis á Isafirði um heilbrigðisstéttir
Hafa ekkí framfylg't lögrim
ísafirði - Forsvarsmenn Flugfélags-
ins Ernis á ísafirði hafa ákveðið að
hætta rekstri félagsins og mun
Hörður Guðmundsson að öllum lík-
indum hefja störf hjá Atlanta. Hann
flytur með sér eina af flugvélum
Ernis, setur aðra á sölulista og leig-
ir þá þriðju til útlanda. Mun stefnt
að því að þessar breytingar verði
um áramótin. Félagið hefur sinnt
sjúkraflugi fyrir Vestfirðinga frá
árinu 1969 auk þess sem það hefur
séð um póstflutninga innan fjórð-
ungsins frá sama tíma. Aðalástæða
þess að forsvarsmenn fyrirtækisins
hyggjast nú flytja starfsemina frá
ísafirði er að Póstur og sími hefur
sagt upp öllum póstflutningum fé-
lagsins auk þess sem breytinga er
að vænta á næstunni varðandi
sjúkraflutningana.
„Yfir hveiju er maður að hanga
hérna? Það er ekki einu sinni hægt
að borga okkur bakvaktakostnað
vegna sjúkraflugsins, þó svo að út-
köll séu álíka mörg og sjúkrabifreið-
arinnar á staðnum. Lögum sam-
kvæmt ber heilsugæslustöðinni á
ísafirði að sjá um að flutningarnir
séu í lagi en því miður hefur verið
tvískinnungur í þessu máli innan
heilbrigðiskerfisins. Þeir sem stjórna
Gamla
kirkjan í
Stykkis-
hólmi end-
urbyggð
Stykkishóimi - GAMLI bæjar-
kjarninn í Stykkishólmi hefur
tekið miklum breytingum hin
síðari ár. Búið er að endurnýja
og endurbyggja allmörg hús og
setja þau fallegan svip á bæinn.
Á undanförnum árum hefur
verið unnið að því að endur-
byggja gömlu kirkjuna. Byijað
var á gaflinum og lauk því verki
í fyrra. Nú er verið að vinna
við suðurhlið kirkjunnar. Skipt
er um fótstykki, gluggar end-
urnýjaðir og allt timburverk.
Reiknað er með að þessi áfangi
klárist í desember. Þetta er all-
mikil vinna.
Verkið er kostað af húsfrið-
unarsjóði og er unnið á hveiju
ári fyrir þá upphæð sem sjóð-
urinn úthlutar það ár. Næsta
verk í endurbyggingu kirkjunn-
ar er kirkjuturninn. Vonandi er
að fjárveitingar úr húsfriðunar-
sjóði verði það ríflegar að ekki
taki mörg ár að ljúka verkinu
svo að gamla kirkjan setji sinn
svip á bæinn eins og hún hefur
gert.
Morgunblaðið/Árni Helgason
UNNIÐ við endurbygg-
ingu á gömiu kirkjunni í
Stykkishólmi. Á myndinni
eru smiðir frá Nesi hf. að
koina með steypu sem er
notuð undir fótstykkin
sem verið er að endurnýja.
- segir Hörður Guðmundsson, einn
eigenda Ernis, og bendir í því sam-
bandi á að félagið hafi ekki fengið
neinar bakvaktagreiðslur vegna
sparnaðarráðstafana, þrátt fyrir að
lög hafi kveðið á um annað
heilbrigðismálum hér á staðnum vita
að við erum hér og höfum alltaf
verið tilbúnir til að fara þegar kallið
hefur komið. Þessir sömu menn hafa
alla tíð komið sér undan því að fram-
fylgja lögunum með því að borga
okkur bakvaktir og bera við sparnað-
arráðstöfunum,“ sagði Hörður Guð-
mundsson, einn eigenda Ernis í sam-
tali við Morgunblaðið.
Vilja fleiri sérfræðinga
Hörður sagði ennfremur að menn
innan heilbrigðiskerfisins hér vestra
hefðu einnig borið því við að á með-
an félagið væri hér til staðar þyrfti
ekki að greiða því þessa peninga og
því væru þeir betur settir, fengju
þeir aukaflárveitingu til að ráða fleiri
sérfræðinga að sjúkrahúsinu. „Sam-
hliða því er það stefna stjórnvalda
að bæta sjúkraflutningana. Þetta
gengur ekki lengur og því erum við
að huga að flutningi. Þessu til við-
bótar má nefna póstflugið. Það er
að detta út og því er ekki lengur
starfsgrundvöllur fyrir félagið hér á
staðnum. Póstur og sími vill borga
okkur nokkur þúsund krónur fyrir
hveija ferð en það kostar svipaða
fjárhæð að aka með vörur frá Pat-
reksfirði og út á flugvöll, svo dæmi
séu tekin.
Félagið stendur vel fjárhagslega
í dag en um leið og við erum búin
að missa tvo stærstu póstana í
rekstri okkar er framtíðin ekki björt.
Því er rétt að finna okkur strax
hentugri starfsvettvang. Ef við
höngum of lengi í lausu lofti, gætum
við tapað því sem við eigum,“ sagði
Hörður.
Hörður sagði ekki ákveðið hvert
félagið flytti starfsemina, en Reykja-
vík eða eitthvert Evrópuland væri
inni í myndinni. „Markaðurinn er-
lendis er allur að opnast. Við höfum
tekið þar þátt í verkefnum undanfar-
in ár sem við viljum halda áfram í
og því gæti það einnig verið lausnin.
Hvert við förum og hvenær, skýrist
allt á næstu dögum en við erum
með áramótin í huga,“ sagði Hörður.
Boðin staða hjá Atlanta
Að undanförnu hafa þrír flug-
menn félagsins verið ráðnir til starfa
hjá Flugleiðum og er því Hörður einn
eftir ásamt einum flugmanni. Herði
hefur nú verið boðið starf sem flug-
stjóri á Boeing 737 þotum flug-
félagsins Atlanta og bendir allt til
að hann þekkist það boð og leigi
flugvélar sínar í verkefni á erlendri
grund. Ljóst er að Vestfirðingar
verða illa staddir hvað varðar örygg-
isþjónustu þegar félagið hefur flutt
starfsemi sína, enda hefur félagið
sýnt það og sannað á undanförnum
tveimur og hálfum áratug, hversu
nauðsynlegt það hefur verið í örygg-
isþjónustu á svæðinu.
ÞÓRÐUR Tómasson safnvörður fyrir framan kirkjuna.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Brúarfram-
kvæmdir á
Fjallsá á
Breiðamerk-
ursandi
Hnappavellir - Nú eru hafnar
framkvæmdir við nýja brú á
Fjallsá á Breiðamerkursandi
með því að vinnuflokkur Vega-
gerðarinnar undir stjórn Jóns
Valmundssonar brúarsmiðs er
farinn að reka niður staura
undir stöplana.
Aþ auki verður byggð brú
á Hrútá sem er skammt frá.
Með þessum framkvæmdum
færist vegurinn aðeins neðar
og ætti að verða greiðfærari,
sérstaklega í hálku og snjó.
Núverandi brú á Fjallsá, sem
byggð var árið 1962, er of
veik fyrir umferðarþunga nú-
tímans.
Orri Harð-
arson með
tónleika í
heimabyggð
ORRI Harðarson og hljómsveit
hans halda tónleika í sal Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi fimmtudaginn 23.
nóvember kl. 21. Á tónleikun-
um mun Orri kynna lög sín
af nýja geisladisknum Stóri
draumurinn.
Austur-Eyjafjöll
Skógakirkja byggð með
verklagi fyrri alda
Holti - FYRIR nokkru var hafist
handa við að reisa Skógakirkju.
Byrjað var á þriðjudegi og
flaggað fimmtudaginn 18. nóv-
ember þegar allur grindarviður
með skakkskífum og sperrum
hafði verið settur saman með
geirneglingu og trénöglum að
hætti fornrar byggingaliefðar.
Síðastliðið vor var lokið við
gerð grunns á væntanlegri
Skógakirkju en Magnús Tómas-
son hafði verið umsjónarmaður
verksins en grjóthleðslu önnuð-
ust Rútur Skæringsson og Andr-
és Pálmason. Verklýsingu og
teikningar fyrir fullfrágengna
kirkju að utan lágu fyrir hjá
arkitekt í júní og á grundvelli
þess var óskað eftir tilboðum í
verkið. Tilboði var síðan tekið
frá Sveini Sigurðssyni, bygging-
armeistara á Hvolsvelli.
Sveinn kom síðan til starfa
þriðjudaginn 14. nóvember og
reisti hann siðan kirkjugrindina
og sperrurnar ásamt aðstoðar-
manni sínum Hjálmari Ólafssyni
á þremur dögum. Kirkjan, sem
á að vera safnkirkja við Byggða-
safnið í Skógum, verður byggð
nákvæmlega með byggingarlagi
fyrri alda og var arkitektinn
Hjörleifur Stefánsson viðstadd-
ur við upphaf verks. Kvaðst
hann ánægður með verklag
smiðanna en allra ánægðastur
var Þórður Tómasson safnvörð-
ur sem sagði að tilkoma kirkj-
unnar við hlið gömlu húsanna
og nýja safnhússins væri kóróna
þessa alls. Byggingarmeistarinn
sagði að hann hefði ekki áður
tekist á við svona byggingu.
Þetta væri skemmtilegt við-
fangsefni um leið og það væri
um inargt erfitt í úrlausn. Grind-
ina hefði hann tilsniðið og unnið
á verkstæði sínu á Hvolsvelli og
timburklæðningin hefði verið
unnin eftir teikningu í Noregi.
Hann byggist. við að ljúka þess-
um byggingaráfanga í nóvem-
berlok.
Kœru œttingjar og vinir nœr og fjœr.
Hjartans þakkir fyrir skeyti, blóm, gjafir og
heimsóknir á fimmtugsafmœli mínu sem gerÖu
daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Sæmundur Kristinsson,
Árvegi 8, Selfossi.
Síðbúið þakkarávarp
Bestu kveðjur sendi ég öllum, frœndum, cettingj-
um og vinum, sem minntust min með heim-
sóknum, gjöfum, blómum og skeytum á niutiu
ára afmceli minu siðastliðið sumar.
Sérstakar kveðjur fá hjúkrunarkonur á tauga-
deild Landspítalans sem slógu saman frá sér,
héldu mér veis/u og gerðu daginn ógleymanleg-
an. Sömuleiðis fá sérstakar kveðjur þcir, sem
komu vestan úr Dölum í tilefni dagsins.
Ég bið Guð að 'blessa ykkur öll!
Ólöf Elimundardóttir
frá Stakkabergi,
Rauðalæk 73, Reykjavík.