Morgunblaðið - 23.11.1995, Side 46

Morgunblaðið - 23.11.1995, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIIMAR Olíuverslun og samkeppni TIL að mæta samkeppni og styrkja stöðu Olís vegna byggingar olíustöðv- arinnar í Laugarnesi hafði Héðinn tekið inn nýja hluthafa 1946. Nú var kjami viðskiptanna ekki iengur bund- inn við viðskipti við kaupfélögin, held- ur var staða félagsins í opinni sam- keppni á fijálsum markaði. Framsókn studdi og beindi viðskiptum til Olíufé- lagsins hf., og þróunin varð sú, að Sjálfstæðisflokkurinn studdi Shell. Þannig skapaðist óeðlileg klíkustarf- semi í kring um þessi tvö olíufélög, sem gekk þvert á alla fijálsa sam- keppni, og kom’greinilegcist fram í sambandi við alla opinbera fyrir- greiðslu. Árið 1950 gerðu þessi tvö félög síðan sérstakt samkomulag um skiptingu sölu til millilandaflugsins á Keflavíkurflugvelli í því skyni að úti- loka Olís frá þeim viðskiptum. Þrátt fyrir þennan andbyr tókst Olís samt að haida hlut sínum með tæpum þriðj- ungi markaðshlutdeildar á innlenda markaðnum. 5. Árið 1958 náði Olís samningum við BP um kaup á hlut þeirra í olíu- birgðastöðvum og innflutningsstöð- inni í Laugamesi, og varð Olís þann- ig eigandi að öllum birgðastöðvum félagsins. Esso og Shell höfðu nú tekið upp sameiginlegan innflutning, og þurfti Olís þannig að taka eitt sér stóra farma til landsins. Þetta varð til þess, að áform voru uppi um að auka tankrými í Laugarnesi, og 1963 sótti Olís um byggingar- leyfi fyrir 15.000 rúmmetra tank fyrir gasolíu í olíustöð félagsins í Laugarnesi. Nú leið og beið, og um það bil, þegar efni í þennan stóra olíugeymi var tilbúið í Englandi, kom synjun um byggingarleyfí frá Bygg- ingamefnd Reykjavíkur. Nú voru góð ráð dýr. Olís hafði verið synjað um að byggja á eigin lóð. Annað- hvort varð að brigða samningi um smíðina og greiða allan smíðakostn- að efnisins og skaðabætur til selj- enda, eða finna önnur úrræði. Úr- ræðið fannst með því að byggja tankinn austur á Seyðisfirði, enda fékk Olís þar ágæta aðstöðu og fyrir- greiðslu. Rússar höfðu á þessum tíma tekið að flytja gasolíu frá Eystrahafshöfnum, svo að Seyðis- fjörður var í siglingaleiðinni og kostnaður aðeins vegna ' tveggja hafna uppskipunargjalds. Um það bil þegar efni í geyminn var komið í skipi til Seyðisfjarðar, barst síðan byggingarleyfið þegjandi frá Bygging- amefnd Reykjavíkur. Þetta er þannig aug- Ijóst dæmi um misnotk- un opinbers valds til að hindra eðlilega fijálsa samkeppni. Tankurinn var byggður á Seyðis- firði og kom að miidum notum í hinum miklu síldveiðum sjöunda ára- tugarins á Rauða torg- inu, þegar hann skilaði margfölu verði sínu í spamaði í fiutningum til Austur- og Norður- landsins. Þessi bezta aðstaða í landinu til innflutnings á gasolíu hefir ekki verið notuð að undanfömu, eflaust vegna umframgetu tankskipa olíu- félaganna í strandflutningum. Nú, þegar gasoiían er keypt frá Noregi og Olís og Essó hafa sameinast um olíudreifíngu, liggur beint við að taka upp innflutning í gegn um inn- flutningsstöðina á Seyðisfírði að nýju. Það er óafsakanlegt bruðl, og næstum tvöfalt lengri sjóflutninga- leið, að fara fyrst með olíuna til Faxaflóa til að flytja hana aftur til Austurlandsins. 6. Versta dæmið um hindranir á samkeppnisaðstöðu af hálfu opin- berra aðila er þó að fínna í benzín- stöðvum í Reykjavík. Þar ríkir algjör einokunaraðstaða í höndum Reykja- víkurborgar á lóðum fyrir slíka þjón- ustu. Til að koma í veg fyrir offjár- festingu í benzínstöðvum, var gert samkomulag við Reykjavíkurborg á árinu 1970 um að aðeins ein benzín- stöð væri í hveiju íbúðarhverfi. Olís hafði þá 7 slíkar stöðvar, en hvort hinna félaganna 6. Efndir hafa orðið þær, að Olís hefír nú einni færri eða 6, en hin félögin 10 hvort. Áform eru uppi um að Shell setji upp þijár stöðvar á lóðum Hagkaups, fyrir milligöngu fyrrum lögmanns Olís, og hefði þannig 13 benzínstöðvar. Þetta er hin pólitíska framkvæmd, og á lítið skylt við hugmyndir um fijálsa samkeppni, þótt slíku sé hald- ið fram í orði. Ekki hafa þó viðhorf- Önundur Ásgeirsson. in breytzt til batnaðar nú, því að Irving Oil hefir verið heitið þrem slíkum lóðum, en gera kröfu til að fá 6, áður en þeir ljá máls á að hefjast handa. Hér má því við bæta, að þessar tillögur um þijár stöðv- ar Irving eru staðsettar í grennd við stöðvar Olís, og því í beinni samkeppni við þær. Kannske skiptir þetta ekki máli, þar sem líkur á að Irving komi hér eru hverfandi, því að markaðurinn er lítill og markaðshlutdeildin engin í upphafí. Það er aðeins vegna slæmrar ráðgjafar, að þessi umræða hefír farið fram. Ef hugur hefði fýlgt máli, hefði Irving boðið 4-5 milljarða króna í allt hluta- fé Olís, og hefði verið ódýrt, en það tækifæri hafa þeir látið sér úr greip- um ganga. Slíkum kaupum hefði fylgt um 30% markaðshlutdeild Olís. 7. Þótt samkeppni sé góð, svo sem ÁSK trúir á, kennir reynzlan þó, að taka verður jafnframt tillit til prakt- ískra hluta. Það er aðeins í þéttbýl- inu hér, sem hægt er að vonast til að unnt sé að ná þeim árangri, að benzínstöðvar geti staðið undir rekstri. Margar tilraunir hafa verið Ný fjárfesting myndi íþyngja markaðinum, •• * * segir Onundur As- geirsson, í síðari grein sinni og ekki standa til lægra olíuverðs. gerðar í tímans rás, til að reyna að ná samstöðu um sameiginlegar benzínstöðvar á litlum stöðum, en með sorglega litlum árangri. Bezta dæmið um jákvæðan árangur er væntanlega sameiginleg benzínstöð olíufélaganna á ísafirði. Þegar Vest- fjarðagöngin komast í samband í haust, verður ísafjörður sjálfgert miðstöð allrar olíudreifingar á norð- anverðum Vestfjörðum. Það er nefnilega hægt að tapa miklum pen- ingum í árangurslausri samkeppni, og það mættu menn gjarnan hafa til hliðsjónar í umræðunni. Það getur ekki verið samkeppni um taprekst- ur. Nýlegt dæmi er, að Shell dró sig um daginn í hlé frá benzínsölu í Norðfírði og seldi Olís aðstöðuna, svo sem blöð skýrðu frá. Ályktun Fijáls samkeppni hefir átt erfitt uppdráttar á íslandi. Ástæðan er sú, að ráðamenn virða ekki leikregl- urnar, og seilast stöðugt til sérhags- munafyrirgreiðslu. Þetta á ekki að- eins við í olíudreifingunni, svo sem hér hefir verið rakið, heldur gildir þetta á flestum sviðum viðskipta- lífsins. Menn nefna þetta gjarnan flokkapólitík eða fyrirgreiðslupóli- tík, en réttnefnið er opinber spill- ing. Fyigjendur fijálsrar samkeppni eru nú ofurseldir umsjón Sam- keppnisstofnunar, sem er framhald Verðlagsskrifstofunnar, og að venju undir forsjón Framsóknarflokksins. Þegar fylgjendur fijálsrar sam- keppni eru að krefjast íhlutunar Samkeppnisstofnunar, eru þeir í raun að styðja sérhagsmunastefnu ráðamanna og afneita markaðslög- málunum. Miklu nær væri að krefj- ast þess, að stjórnmálamenn hættu íhlutun á samkeppnismarkaðnum og styddu eðlilega samkeppni í við- skiptalífinu. Við slíkri spillingu ættu að liggja þung viðurlög. Ekkert bendir til þess, að Irving myndi selja hér á lægri verðum en önnur félög. Þvert á móti myndi ný fjárfesting íþyngja markaðnum í heild sinni. Benzínverð nú, 74 kr/1, skiptist þannig að skattar eru um 52 kr/1 (72% af útsöluverði), inn- kaupsverð 11 kr/1 og dreifíngarkost- aður hér 11 kr/1. Það er þannig um þessar 11 kr/1 sem samkeppnin ætti að standa. Engin opinber Samkeppn- isstofnun stjórnar þessu svo að vit sé í. Höfundar er fyrrverandi forstjóri Olís. Sjálfstæðiskonur, gerum okk- ur gildandi innan flokks- ins, flokknum til framdráttar MÚRARAFÉLAG REYKJAVÍKUR Ordr-<& MÚRARAMEISTARAFÉLAG REYKJAVlKUR Múrarasamband Islands Að gefnu tilefni vilja Múrarafélag Reykjavíkur, Múrarameistarafélag Reykjavíkur og Múrarasamband íslands vekja athygli almennings á því, að flísalagnir, þ.e. lagning gólf- og veggflísa, er hluti af iðn múrara og nýtur lögverndar sem slík. Þeir, sem láta aðra iðnaðarmenn eða ófaglærða menn vinna slík verk, eru því að taka þátt í broti á iðnaðarlögum, auk þess sem ætla verður að verkkunnátta þeirra sé önnur og lakari en þeirra sem lært hafa þetta fag. Opið bréf til sjálf- stæðiskvenna TIL AÐ auka hlut kvenna í starfí Sjálfstæðisflokksins verða sjálf- stæðiskonur að ganga til leiks af fullri alvöru á öllum sviðum. Mál- efnanefndir á vegum flokksins, sem starfa milli landsfunda og skila áliti sínu fyrir landsfund, eru 24 talsins þær eru: * Byggðanefnd * Húsnæðismálanefnd * Orkunefnd * Skattamálanefnd * Sveitarstjómarnefnd * Utanríkismálanefnd * Vinnumarkaðsnefnd * íþrótta-, æskulýðs- og tóm- stundanefnd Virkari þátttaka kvenna er, að mati greinarhöf- unda, frumskilyrði þess að styrkja stöðu Sjálf- stæðisflokksins. Ásgerður Halldórsdóttir Helga Ólafsdóttir eXtra eXtra Large. FYRIR ALLAr ALLTAFr ALLSTAÐAR Katrín Gunnarsdóttir * Nefnd um samgöngu- og fjar- skiptamál * Efnahagsmálanefnd * Iðnaðamefnd * Sjávarútvegsnefnd * Skóla- og fræðslunefnd * Umhverfís- og skipulagsnefnd * Viðskipta- og neytendanefnd * Tryggingamálanefnd Þessar ofangreindu nefndir, alls 16, hafa formenn sem allir eru karl- kyns, síðan koma 7 nefndir sem hafa formenn sem eru kvenkyns: * Heilbrigðisnefnd * Nefnd um málefni aldraðra * Stjórnskipunar nefnd * Nefnd um upplýs- ingamál * Jafnréttis- og fjöl- skyldumálanefnd * Landbúnaðarnefnd * Ferðamálanefnd Mikilvægt er fyrir framtíð flokksins, að sem flestar konur taki þátt í starfi málefnanefnda, geri sig gildandi og gefi kost á sér til að stýra formennsku þeirra. Hlutfallið 16 karlar og 7 konur verður að bæta. Formenn málefnanefnda geta haft áhrif á að konur séu tilnefndar og taki virkan þátt í því stefnumarkandi starfi sem málefna- nefndir starfa að, við treystum á ykkar stuðning. Framundan er landsfundur sjálf- stæðismanna síðar í vetur. Mikilvægt er fyrir framtíð flokks- ins að sem flestar konur sitji næsta landsfund og kynnist um leið þeirri miklu vinnu sem málefna- nefndirnar hafa unn- ið. Virk þátttaka kvenna í stjórnmálastarfi er frum- skilyrði þess að unnt sé að styrkja stöðu Sjálfstæðisflokksins, þá get- um við öll gegnið bjartsýn inn í 21. öldina. Kjörorð okkar er: „Sjálfstæðiskonur, látið aðykkur kveða og málefni flokksins ykkur varða. “ Ásgerður Haildórsdóttir er við- skiptafræðingur, Helga Ólafsdótt- ir er framkvæmdastjóri, Katrín Gunnarsdóttir erfulltrúi, Margrét Sigurðardóttir er viðskiptafræð- ingur. Margrét Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.