Morgunblaðið - 23.11.1995, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
f H/E,$TÍNA.‘.. GlFTVM ÖKtOX\ 06 8ÓUM í fZOTNU/H T&\- 30L íFSNJ’UNUM-' !//£> GETO/H&fTrfcV/ , Q&zAe SAM/IN l/IO AÞ GÆPA ÖkÆV/e'A NAG- D1/FZU/H 0<S FfZOStOJAA J
áp%
j?Ú TVM6(JUP(Zl
JCl/£NNA&ÓSl /
!<H3
Grettir
Tommi og Jenni
Smáfólk
Já, kennari? Charles Dickens!
Herra, hvernig vissirðu þetta? Ef maður er nógu lengi í skóla,
verður svarið Charles Dickens,
fyrr eða síðar.
BRÉF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Móðurskip jafn-
aðarmanna
Frá Magnúsi Hafsteinssyni:
VIÐ jafnaðarmenn í Hafnarfirði
fögnum stækkun álvers í Hafnarfirði
og nýjum atvinnutækifærum sem eru
að skapast með tilkomu nýrrar jafn-
aðarmannastjórnar í Hafnarfirði. Má
þar nefna flutning
aðalstöðva Sö-
lusamtaka - ís-
lenskra fískfram-
leiðenda til Hafnar-
fjarðar, sem mun
auka heildarveltu
hafnfirskra fyrir-
tækja um'10 millj-
arða króna auk flotkvíar sem
væntanlega mun auka skipaumferð
um Hafnarfjarðarhöfn.
Enduruppbygging jafnaðarmanna
í menningarmálum, ferðamálum, fé-
lagsmálum, húsnæðismálum, at-
vinnumálum eru verkefni sem við
blasa og munu hefja Hafnarfjörð
aftur upp á fyrri stall, sem fyrirmynd
annarra bæjarfélaga.
Það er nauðsyn eftir eins árs
skipulagt niðurrifsstarf íhaldsafl-
anna, sem kalla mætti „vesöld“ sam-
anber fyrri íhaldsstjórn hér í Hafnar-
firði sem kennd var við „ísöld“. Þess-
ar tvær stjómir ber að skoða í sögu-
legu samhengi og þau djúpu sár, sem
þær mörkuðu í sögu Hafnarfjarðar,
sern víti til vamaðar.
Jafnaðarmenn í Hafnarfirði harma
hins vegar stefnu afturhaldsstjómar
Davíðs Oddssonar í atvinnu og launa-
málum, sem hefur leitt af sér mikinn
landflótta. Fólk fer í æ auknum
mæli utan í leit að betri lífskjörum,
fólk sem komið er í greiðsluþrot,
fólk í leit að reisn sem er ekki fáan-
leg hér í landi öreiganna. Verkalýðs-
félögin eru ekki vandanum vaxin.
Þau velta þó um milljarði kr. árlega
og era aðeins atvinnuskapandi að
því leyti til að þau veita 1.000 manns
atvinnu í samningagerð sem hefur
einungis fætt af sér þjóð öreiga.
Núverandi ríkisstjóm afturhalds-
aflanna ætlar væntanlega að hefja
uppbygingu á nýju álveri með inn-
fluttu öreigavinnuafli, því iðnaðar-
menn, verkafólk sem og aðrir öreigar
þessa lands, era margir hveijir flún-
ir land allsnægta íhaldsins.
Jafnaðarmenn í Hafnarfírði telja
að frelsi einstaklingsins sé forsenda
efnahagslegra framfara. Til að svo
megi verða þarf að ná fram meiri
jöfnuði fyrir launafólk. Launamis-
rétti það sem viðgengst hér er allt
að 20-falt til samanburðar við 3-falt
á hinum Norðurlöndunum.
Efnahagsstefna ríkisstjórnar Dav-
íðs Oddssonar þjónar aðeins hinni
íslensku herraþjóð sem telur einung-
is um 10% þjóðarinnar, herraþjóð
sem þrífst á misskiptingu þjóða-
rauðsins, herraþjóð sem skammtar
sér laun og tekjur. Slíkt er kennt við
bananalýðræði í hinum siðmenntaða
heimi en hér kallast þetta formlegur
réttur og sjálfsagður hlutur á meðal
herraþjóðarinnar.
Á sama tíma hafa um 90% þjóð-
arinnar það skítt og mega búa við
80- 100% jaðarskatta, hrörnun heim-
ilanna og ráðstöfunartekjur undir
hungurmörkum.
Jafnaðarmenn þessa lands verða
að skera upp herör gegn því rang-
læti sem viðgengst í okkar þjóðfé-
lagi. Þá og því aðeins þá getum við
vænst þess að landflótti almennings
héðan verði stöðvaður og almennt
launafólk treysti sér til að búa hér
á landi. Jafnaðarmenn í Hafnarfirði
telja að byggja verði upp trúverðug-
an valkost fyrrir launafólk gegn aft-
urhaldinu og treysta þær rætur sem
jafnaðarstefnan byggist á. Það er
hlutverk okkar jafnaðarmanna að
vinna gegn allsnægtastefnu íhaldsins
og þoka til hliðar þeirri ójöfnu eigna-
ogtekjuskiptingu sem myndast hefur
með fijálshyggjuúrræðunum. Við
eigum að segja hingað og ekki
lengra.
Með því að brúa bilið milli þessara
tveggja þjóða, með úrræðum jafnað-
armanna, getum við einungis vænst
framfara til handa þegnum þessa
lands til framtíðar og eignast stóran
alvöra jafnaðarmannaflokk á1 lands-
vísu, eins og hann er í Hafnarfirði,
sem ver rétt launafólks á landinu
öllu.
MAGNÚS HAFSTEINSSON,
formaður Alþýðuflokksf. Hafnarfjarðar
Neyðarlínan hf. sparar
Frá Birni Gíslasyni:
MARGIR hafa fundið þörf hjá sér
að láta ljós sitt skína um Neyðarlín-
una undanfarna daga og bent á
markverðar staðreyndir. Eitt er það
sem mér hefur ekki fundist koma
nógu vel fram og ætla ég því að
troða mér í þennan gáfumannahópi.
Fullyrði ég að Neyðarlínan hf. spar-
ar stórfé.
Með því að Securitas, Vari, SVFÍ
og fleiri sameinast um stjórnstöð,
næst fram umtalsverður sparnaður
hjá þessum aðilum og um leið fá
þeir fastar milljónafjárveitingar frá
hinu opinbera fyrir að svara í síma
til þess eins að gefa samband við
aðrar stjórnstöðvar.
Þetta sparar reyndar ekki hjá lög-
reglu, slökkviliðum né öðrum opin-
berum aðilum, sem áfram munu reka
tugi stjórnstöðva og neyðarsvörun
um land allt með óbreyttu sniði.
Ekki virðist leitað leiða til að spara
fyrir hið opinbera svo um muni, né
að samhæfa starfsemi stofnana
þess. Aukinn kostnaður hins opin-
bera og breikkað bil borgaranna og
opinberrar neyðarþjónustu virðist
liggja í loftinu.
En á meðan hið opinbera virðist
ekki hafa vit á því að spara og
bæta þjónustu sína um leið er að-
dáunarvert að sjá að til eru snjallir
viðskiptamenn í landinu sem það
gera og geta gert sér pening úr
glundroða í rekstri þess.
Nú er leigubifreiðastöð farin að
sinna öryggisþjónustu í Reykjavík
og er vonandi að hún komi fljótlega
að Neyðarlínunni hf. Þá fyrst nyti
almenningur góðs af fyrirtækinu,
getur hringt frítt í 112 og fengið
taxa.
BJÖRN GÍSLASON,
Háagerði 41, Reykjavík.
Allt efni sem birtist 1 Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt 1
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.