Morgunblaðið - 23.11.1995, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBBR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Vandað handbragð
frá þýsku skóverksmiðjunni SALAMANDER ©
Mjúkt fóður úr kálfskinni og mjúkt
svampinnlegg undir framhluta innsólans er
leyndardómur þess að vera í þægilegum
skóm
Einstakt handbragð og sérvalið efni staðfesta
fullkomna hönnum APOLLO-skóna
Abendingar á mjólkurumbúðum, nr. .1/ af 60.
Kysstu
Atla Reyni!
Margir heita tveimur nöfnum og því algengt að spumingar
vakni um notkun nafnanna. Reglan er sú að bæði nöfnin
hafa áherslu og beygjast.
Við förum til fóns Gunnars (ekki Jón Gunnars) og hittum
Hrund Ýri (ekki Hrund Ýr).
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Erfitt að finna
eigendur
reiðhjóla
í DÁLKUM Velvakanda er
oft leitað eftir upplýsingum
um týnd reiðhjól og leiðann
yfir horfnum kjörgrip má
lesa út úr ákalli ungra eig-
endanna. Oft fmnast þessi
hjól því sá sem valdur er
að hvarfinu hefur aðeins
tekið það til handargagns
til að komast bæjarleið þar
sem hann skilur það eftir í
reiðileysi. Skilvís fmnandi
reiðhjólsins á hins vegar í
erfíðleikum með að koma
hjólinu til skila því það er
að sjálfsögðu ómerkt. Finn-
endur hafa stundum lagt
ótrúlega mikið á sig til að
koma fundi sínum til skila
og má nefna tilkynningar
í kjörbúðum, auglýsingar í
blöðunum eða fyrirspumir
í hverfínu. Oft verður þó
lokaráðið að afhenda
óskilamunadeild lögregl-
unnar reiðhjólið þar sem
möguleiki er að eigandinn
spyijist fyrir um það en
annars fellur það í hendur
hæstbjóðanda á voruppboð-
inu.
Oryggisþjónustan Vari
hefur um þriggja ára skeið
boðið öllum eigendum reið-
hjóla að skrá reiðhjól sín í
gagnagrunn Vara og eru
skráð reiðhjól auðkennd
með límmiða sem staðfest-
ir það. Finnandi sem vill
koma slíku merktu hjóli til
skila þarf aðeins að hringja
í Vara í síma 552-9399,
tilgreina verksmiðjunúmer
hjólsins og fá nafn og
heimili eiganda uppgefíð.
Fagnaðarlátum unga eig-
andans verður stundum
ekki með orðum lýst þegar
reiðhjólið týnda skilar sér
í gegn um tölvuskráningu
Vara. Tortrygginn kaup-
andi að notuðu reiðhjóli
sem ber límmiða frá Vara
getur fengið upplýsingar
um skráðan eiganda í sama
símanúmeri.
Aðalerindi mitt við þig,
kæri Velvakandi, er þó
ekki að vekja athygli á
skráningu Vara á reiðhjól-
um heldur að lýsa eftir eig-
anda að bronslituðu
Mongoose reiðhjóli sem
fannst austast við Hverfis-
götuna í Hafnarfírði í októ-
ber. Vara var falið að fínna
eigandann í gegnum
skráningarnúmer reið-
hjólsins en því miður finnst
það hvorki á tölvuskrá
Vara né í bókum innflytj-
anda. Eigandi hjólsins er
nú beðinn að gefa sig fram
við móttöku Vara í ofan-
greindum síma og sækja
reiðhjól sitt.
VIÐAR ÁGÚSTSSON,
framkvæmdastjóri Vara.
Þekkir einhver
fólkið
VELVAKANDI var beðinn
að aðstoða við leit að þeim
sem kannast við fóikið á
myndinni. Myndir af fílm-
unni hafa líklega verið af-
hentar röngum aðila fyrir
nokkrum árum, en fleiri
myndir eru til staðar.
Kannist einhver við fólkið
er hann beðinn að hringja
í síma 557-4049.
Frábær Stund
MÓÐIR þriggja ára og eins
árs barna hringdi og vildi
taka upp hanskann fyrir
Stundina okkar þar sem
hún hafði séð einhvern lýsa
óánægju sinni með þáttinn
í Velvakanda. Hún er
þessu ■ alls ekki sammála
og segir að börnunum
hennar finnist Stundin
okkar alveg frábær.
Kettlingur á
flækingi
HÁLFSTÁLPAÐUR
kettlingur smeygði sér inn
hjá okkur, nötrandi af
kulda, í frostinu fyrir helgi.
Þetta er yndislegur
fresskettlingur, svartur og
hvítur með svartan blett á
neðri kjálka. Greinilega
góðu vanur, mjög þrifinn
og alveg sérstaklega kelinn
og skemmtilegur. Eigandi
getur vitjað hans á Holts-
götu 21 í 'Hafnarfírði eða í,
síma 555-4659.
HOGNIIIREKKVISI
«5ENPU MÆSTA SJUKLIMG INN."
SKAK
Umsjón Margcir
Pctursson
HVÍTUR mátar
í fjórða leik
Staðan kom upp á Metro
mótinu, Skákþingi íslands,
sem nú stendur yfir. Magn-
ús Pálmi Ornólfsson
(2.180) hafði hvítt og átti
leik, en Júlíus Friðjónsson
(2.210) var með svart. 25.
Dxf8+! og svartur gafst
upp.
Sjöunda umferðin á mót-
inu fer fram í dag
DISNEY mótið fyrir
14 ára og yngri fer
fram um helgina og
hefst laugardaginn
25. nóvember kl. 13.
Keppt er í fjórum
flokkum, tveimur
drengja- og tveimur
stúlknaflokkum. Sig-
urvegararnir fjórir
fara með Flugleiðum
til Disneylands í París
og keppa þar í heims-
meistaramóti í atskák
í sínum aldursflokki.
Mótið fer fram í
Skákmiðstöðinni, Faxafeni
12. Þátttökugjald er kr.
500. Skráning er í síma SÍ
5689141, frá kl. 10-13 og
á mótsstað áður en keppnin
hefst.
Það eru einnig aukaverð-
laun og happdrætti.
Víkverji skrifar...
ÍKVERJI gekk í gagnfræða-
skóla á þeim tíma sem ekki
þótti ástæða til að kenna piltum
matreiðslu. Síðan æxluðust mál svo
að matartilbúningur lenti á annarra
herðum á heimili Víkverja. Hans
kunnátta takmarkaðist við að rista
brauð og hella kornfleksi á disk.
Mataruppskriftir voru eins og
óleysanleg algebrudæmi og hinir
skemmtilegu matreiðsluþættir Sig-
urðar Hall fóru fyrir ofan garð og
neðan.
Einn daginn varð Víkveija ljóst
að þetta gæti ekki gengið svona
lengur. Nútíma karlmaður verður
að geta búið til mat. Því var farið
að kíkja eftir auglýsingum um mat-
reiðslunámskeið og augun stað-
næmdust við sex vikna námskeið
hjá Hússtjórnarskóla Reykjavíkur
við Sólvallagötu, hinum sama skóla
og áður var húsmæðraskóli sem
reykvískar blómarósir sóttu. Það tók
Víkverja tvo daga að herða upp
hugann og skrá sig. Hryllilegar
hugsanir þutu um hugann. Víkverji
sá aðra þátttakendur standa á önd-
inni er þeir smökkuðu á réttum
hans og í verstu tilfellunum sá hann
fyrir sér fólkið fiutt burt í sjúkrabíl-
um með alvarlega matareitrun.
xxx
EN SKEMMST er frá að segja
að þessi ótti var með öllu
ástæðulaus. Undir öruggri hand-
leiðslu Helgu Konráðsdóttur hús-
stjórnarkennara lærðu þátttakendur
að búa til alls kyns rétti og í lok
hvers dags settust þátttakendur að
snæðingi. Fyrsti rétturinn sem Vík-
verji eldaði voru rauðsprettuflök
soðin í eigin safa og Víkverja til
ómældrar gleði var réttinum hælt á
hvert reipi. Ulfar Eysteinsson eða
Rúnar Marvinsson hefðu ekki getað
gert þetta betur! Rígmontinn og
saddur hélt Víkverji út í kvöldið.
Þetta er sett hér á blað til þess
að hvetja aðra karla (og konur), sem
standa í sömu sporum og Víkveiji,
að stíga skrefið óhikað og skrá sig
á matreiðslunámskeið. Að kynnast
heimi matargerðarinnar er
skemmtilegt og heillandi svo ekki
sé minnzt á hve hagnýtt það er.
xxx
A
AMORGUN tekur fjórða sjón-
varpsstöð íslendinga til
starfa, Stöð 3. Það hefur ekki farið
framhjá neinum að mikil umbrot
hafa verið á sjónvarpsmarkaðnum.
Stöð 2 og Sýn hafa svarað sam-
keppni Stöðvar 3 af krafti og allar
þrjár stöðvarnar keppast við að gera
samninga um myndir og þætti.
En athyglisvert er einnig að fylgj-
ast með hinu lögverndaða sjónvarpi
Ríkisútvarpsins. Frá þeim bæ heyr-
ist hvorki hósti né stuna þótt hinar
stöðvarnar séu að hirða frá RÚV
vinsælustu þættina _ og helztu
íþróttaviðburðina. RÚV heldur
áfram að taka 2.000 krónur af
hverjum þeim sem kaupir sér sjón-
varpstæki, heldur áfram að sýna
kvikmyndir frá 1942 á föstudags-
kvöldum og býður áfram góða nótt
klukkan 23:24.
xxx
KUNNINGI Víkveija fór í Hag-
kaup í Kringlunni til að verzla
enda hafði verið auglýstur 25% af-
sláttur af barnafötum. Hugðist hann
gera góð kaup m.a. í sokkum, nær-
fötum og náttfatnaði. En þegar
hann kom að kassanum var upplýst
að afslátturinn næði ekki til þessara
tegunda. Þetta hefði Hagkaup átt
að auglýsa fyrirfram.