Morgunblaðið - 09.01.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 09.01.1996, Síða 1
64 SÍÐUR B 6. TBL. 84. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leiðtogar hylla minningu Mitterrands París. Reuter. ÞJÓÐARLEIÐTOGAR og talsmenn sósíalistaflokka um allan heim minntust í gær Francois Mitterr- ands, fyrrverandi Frakklandsfor- seta, er lést í gærmorgun í París, 79 ára að aldri. Helmut Kohl Þýska- landskanslari sagði Evrópu hafa misst mikinn stjórnmálaleiðtoga og föðurlandsvin. Víða í Asíu var þess minnst sérstaklega að Mitterrand hefði stöðvað tilraunir Frakka með kjarnorkuvopn á Kyrrahafi á valda- ferli sínum. Jacques Chirac, forseti Frakk- iands, sagði forvera sinn í embætti hafa verið mikinn og hugrakkan mann er markað hefði mikilvæg spor í sögu þjóðarinnar. Chirac sagðist kveðja hann með viðkvæmni og virðingu. „Hugsjón hans um sameinaða Evrópu mun verða okkur dýrmæt arfleifð og jafnframt hvatning í framtíðinni," sagði Kohl Þýska- landskanslari er átti náið samstarf við Mitterrand. Sagðist Kohl hafa misst góðan vin. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lýsti harmi sínum vegna fráfalls franska stjórnmálaleiðtogans og sagði allt mannkyn hafa notið fram- tíðarsýnar hans og leiðtogahæfi- leika. George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hyllti einnig Mitt- errand, einkum fyrir samstarfið í Persaflóastríðinu. Mitterrand hefði vikið til hliðar samstarfi Frakka við Iraka til að sýna umheiminum með ótvíræðum hætti að ekki yrði liðið að árásarseggur gæti lagt undir sig eitt af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Forseti í 14 ár Mitterrand var forseti frá 1981 til 1995 eða 14 ár og því lengur en nokkur annar forseti í sögu Frakka. Hann sameinaði franska sósíalista á áttunda áratugnum en flokkurinn galt afhroð í þingkosningunum Reuter SYRGJENDUR leggja blómsveiga við híbýli Mitterrands í París í gær. Útförin verður frá fæðing- arbæ forsetans fyrrverandi, Jarnac í suðvesturhluta landsins, á fimmtudag. Erkibiskup Parísar, Jean-Marie Lustiger, mun syngja minningarmessu í Notre-Dame. 1993. Mitterrand átti síðustu árin við krabbamein að stríða og þótti sýna mikla karlmennsku í þeirri baráttu. Að ósk Mitterrands verður hann jarðsettur í fæðingarbæ sínum, Jarnac í suðvesturhluta Frakklands, á fimmtudaginn og verða aðeins nánustu aðstandendur og vinir við- staddir. Hans verður þá minnst um allt Frakkland, Chirac hefur ákveðið að fánar verði dregnir í hálfa stöng á opinberum byggingum. Minning- armessa verður í Notre Dame-kirkj- unni í París um leið og jarðsett verð- ur í Jarnac. ■ Hreystileg lokaorrusta/28 Yfir 250 manns farast er rússnesk flugrél hrapar a markað í Zaire Antonov-flutningavélin talin hafa verið ofhlaðin Kinshasa. Reuter. FLUTNINGAVÉL af rússneskri gerð hrapaði á fjölfarinn markað í Kinshasa, höfuðborg Afríkuríkisins Zaire, í gær og er taiið að yfir 250 manns hafi farist. I áhöfn voru sex manns, þar af fjórir Rússar, og slasaðist einn þeirra lítillega, að sögn yfirvalda en Úkraínumanns og Zairemanns er saknað. Líklegt er talið að vélin hafi verið ofhlaðin. Annir við snjómokstur í New York GÍFURLEGT fannfergi hefur verið í norðaustanverðum Bandaríkjum frá því á laugardag og víða hafa úrkomumet verið slegin. Miklar annir voru hjá snjóruðningsmönnum í New York. A Times-torgi voru í gær fjórir plógar í halarófu. ■ Veðrið lokaði stofnunum/19 Ofsareiði greip um sig, krafist var hefnda og reyndi múgur að komast inn í sjúkrahús þar sem hlynnt var að mönnunum. Að sögn saksóknara Zaire stöðvaði lög- regla fólkið. „Vélin reyndi að hefja sig á loft en komst aðeins í nokkurra metra hæð, þá hvarf hún og sprenging heyrðist,“ sagði sjónarvottur á vellinum. Vélin var á ieið frá Ndola-flugvelli sem er skammt frá markaðnum. Mikiil fjöldi fólks, þar á meðal fjöldi kvenna og barna, var á svæðinu þar sem mannvirki eru aðallega kofar byggðir úr báru- járni eða timbri. „Vélin plægði jörðina á markaðssvæðinu um hundrað metra vegalengd áður en hún stöðvaðist. Blossar og svartir reykjarbólstrar velta ennþá út úr henni,“ sagði fréttamaður Reuters á staðnum. Vélin var af gerðinni Antonov 32. Fréttamaðurinn sá flugmenn- ina forða sér út úr flakinu áður en það varð alelda. Slökkviliðs- menn á Ndolo-flugvelli flýttu sér á vettvang og reyndu að beita tækjum sínum á eldana. Brak úr vélinni hafði dreifst um allt svæð- ið; hvarvetna hljóp skelfingu lostið fólk um og leitaði í öivæntingu að ættingjum eða vinum. Fulltrúi Alþjóða Rauða krossins taldi að minnst 250 manns hefðu týnt lífi. „Við fundum 217 lík á markaðssvæðinu," sagði fulltrúi stofnunarinnar, Vincent Nicod. „Ég held að það séu 32 lík að auki á sjúkrahúsum i borginni svo að ég tel að uni sé að ræða minnst 250 manns“. Flugvellinum lokað Ndolaflugvelli, sem er notaður til innanlandsflugs, var lokað tímabundið í gær og rannsókn þegar hafin á slysinu. Heimildar- menn á Ndola-velli sögðu að einka- fyrirtæki, African Air, hefði átt vélina. Ofursti í flugher Zaire, sem var á flugvellinum sagði að hún hefði virst vera ofhlaðin við flug- tak. í desember fórst Lockheed-far- þegavél í eigu einkafyrirtækis í Zaire í Angola og með henni 141 maður. Samgönguráðherra Zaire taldi að um ofhleðslu hefði verið að ræða og samtök flugmanna í landinu sögðu að reglur um flug á vegum einkaaðila væru ekki nógu strangar. Éfnahagur Zaire hefur síðustu árin verið í rúst, einkum vegna spillingar, og stjórnsýsla meira eða minna í lamasessi. Bandaríkja- her til Golanhæða? Jerúsalem. Reuter. BANDARÍKJASTJÓRN tilkynnti í gær, að hún væri tilbúin til að gæta friðar milli Sýrlands og ísra- els með því að láta bandarískt her- lið annast eftirlit á Golanhæðum. William Perry, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði eftir fund með_ Shimon Peres, forsætis- ráðherra Israels, í Jerúsalem í gær, að Bandaríkjastjórn ætlaði að veita ísraelum 200 milljóna dollara að- stoð við að þróa Arrow-varnar- flaugar. Sagði hann einnig, að semdu Israelar og Sýrlendingar um frið væru Bandaríkjamenn reiðu- búnir að taka við gæslu á Golan. ---------♦ -».♦-- Lottóæði dregur úr verslun London. Reuter. ÓTTAST er, að gifurleg sala lottó- miða í Bretlandi í síðustu viku muni segja til sín í nokkrum sam- drætti í almennri verslun í þessum mánuði. Samdrátturinn gæti aftur á móti aukið líkur á nýrri vaxta- lækkun í landinu. Ymsir breskir hagfræðingar telja, að lottóæðið í landinu hafi átt þátt í að draga úr hagvexti á liðnu ári og til þess er til dæmis rakinn rúmlega 5% samdráttur í aðsókn að kvikmyndahúsum. Þá hefur það einnig haft veruleg álirif á sælgæt- issölu, myndbandaleigu og sölu á dagblöðum og tímaritum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.