Morgunblaðið - 16.03.1996, Side 1
88 SIÐUR LESBOK C/D
64. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 16. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Samþykkt rússnesku Dúmunnar
Endalok Sovét-
ríkjanna fordæmd
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í gær að fyrir lægi áætlun sem
miðaði að því að binda enda á átök-
in blóðugu í Tsjetsjníju. Fyrr um
daginn hafði Dúman, neðri deild
rússneska þingsins, samþykkt álykt-
un þess efnis að fordæma beri upp-
lausn Sovétríkjanna. Jeltsín forseti
brást hart við, fordæmdi þessa sam-
þykkt þingdeildarinnar og vændi
fjendur sína um að vilja með þessu
koma í veg fyrir forsetakosningarnar
í júní. Leiðtogar fyrrverandi Sovét-
lýðvelda gerðu lítið úr samþykkt
Dúmunnar og sögðu að um kosn-
ingabragð væri að ræða, en var
greinilega brugðið.
Ófriðurinn í Tsjetsjníju þar sem
rússenski herinn berst við skæruliða
sem krefjast sjáifstæðis, liggur
þungt á rússnesku þjóðinni og því
hefur verið haldið fram að Jeltsín
eigi enga möguleika á endurkjöri
takist honum ekki að stöðva átökin
þar! Jeltsín upplýsti í gær að sam-
þykkt hefði verið áætlun í þessa
veru á sérstökum fundi öryggisráðs
forsetans. Hann vildi ekki upplýsa
um efnisþætti hennar en boðaði að
Jelstín segir friðar-
áætlun um Tsjetsjníju
liggja fyrir
hann myndi skýra frá þeim í ávarpi
síðar í þessum mánuði.
Veittist að andstæðingum
Forsetinn veittist einnig harðlega
að andstæðingum sínum á þingi og
kvað samþykkt Dúmunnar frá því
fyrr um daginn til þess fallna að
spilla fyrir forsetakosningunum.
I samþykktinni er því lýst yfir að
sú ákvörðun rússneska þingsins frá
árinu 1991 er staðfestur var sátt-
máli um myndun Samveldis sjálf-
stæðra ríkja í stað Sovétríkjanna
skuli teljast dauð og ómerk. Með
henni er í raun samningurinn um
upplausn Sovétríkjanna, Bjelovesk-
sáttmálinn, fordæmdur. Þann samn-
ing undirritaði Jeltsín ásamt leiðtog-
um Hvíta-Rússlands og Ukraínu og
voru þar lögð drög að samveldinu
sem nú hýsir öll Sovétlýðveldin fyrr-
verandi nema Eystrasaltsríkin þtjú.
Samþykkt Dúmunnar er ekki
bindandi fyrir stjórn Jeltsíns og
kveður á engan hátt um að Sovétrík-
in skuli endurreist. Að henni stóðu
kommúnistar á þingi og bandamenn
þeirra og var hún almennt túlkuð á
þann veg að heúni væri ætlað að
koma höggi á forsetann og höfða
til þeirra sem sakna sovétkerfisins.
Efasemdir um lögmæti
Haft var eftir talsmanni Jeltsíns
forseta að efasemdir væru uppi um
lögmæti þessarar ályktunar. „Afleið-
ingar þessarar samþykktar geta ver-
ið með öllu ófyrirsjáanlegar og
hættulegar bæði í Rússlandi og er-
lendis,“ sagði þessi fulltrúi Jeltsíns.
Samkvæmt skoðanakönnum nýt-
ur Jeltsín minna fylgis en Gennadíj
Tsjúganov, forsetaframbjóðandi
kommúnista, sem í gær fékk stuðn-
ing harðlínukommúnistans Viktors
Anpílovs. Forsetanum hefur m.a.
verið kennt um hrun Sovétríkjanna
en hann sagði í viðtali á fimmtudag
að þau hefðu hrunið af sjálfu sér.
■ Stjórnmálaskýrendur/18
Reuter
Fórnarlambanna minnst
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Tony Blair, leiðtogi
Verkamannaflokksins, fóru í gær
til þorpsins Dunblane á Skotlandi
þar sem Thomas Hamilton réðst
með alvæpni inn í grunnskóla á
miðvikudag og myrti sextán börn
og kennslukonu þeirra. I gær-
kvöldi var haldin minningarat-
höfn í dómkirkju bæjarins.
Major fór inn í leikfimisalinn
þar sem Hamilton framdi ódæðis-
verkið og sagði þegar hann virti
fyrir sér skotgötin í veggjunum
að þessa byggingu yrði að rífa.
Sumir í bænum vilja að byggingin
hverfi með öllu, en aðrir vilja að
hún standi um sinn til minningar
og síðar verði reistur minnisvarði
á grunni hennar.
Major og Blair fóru í gær í
sjúkrahús og ræddu við börn, sem
særðust í árás Hamiltons. Að því
loknu áttu þeir fund með kennur-
um og starfsliði grunnskólans.
Major lýsti yfir því að einnar mín-
útu þögn yrði um allt Bretland á
morgun til að minnast barnanna.
Elísabet Bretadrottning kemur
til Dunblane á morgun, en um-
mæli hennar um fegurð vopna á
opnun hergagnasafns í Leeds í
gær gæti varpað skugga á heim-
sóknina. „Stríðsvopn, sem geta
verið jafn falleg ogþau eru hræði-
leg, bera oft vitni snjallri hönnun
og handverki," sagði drottning
og var harðlega gagnrýnd.
SÞ boðar
mikla að-
stoð við
Afríku
Nairobi. Reuter.
SAMEINUÐU þjóðirnar hrintu í
gær af stokkunum áætlun um mikla
þróunarhjálp við Afríku, fátækustu
heimsálfuna, og verður varið til
hennar 1.650 milljörðum ísl. kr. á
einum áratug.
Fulltrúar ýmissa Afríkuríkja og
alþjóðlegra hjálparstofnana hafa
fagnað áætluninni þótt sumir hafi
að vísu áhyggjur af hvernig gangi
að afla fjár til hennar. Hefur Al-
þjóðabankinn heitið að vinna að
útvegun 85% upphæðarinnar en
Steve O’Brien, formaður sendi-
nefndar bankans í Kenya, segir, að
mest áhersla verði lögð á heilsu-
gæslu og menntun og aðgang að
hreinu vatni. Fyrsta verkefnið væri
þó að fá iðnríkin til að auka aðstoð-
ina við Afríku en úr henni hefur
dregið á síðustu árum.
Fátæktin verst
George Saitoti, varaforseti Kenya,
fagnaði áætluninni en sagði, að jafn-
framt yrði að létta skuldaokinu af
Afríkuríkjunum með einhverju móti.
Þær eru taldar vera um 21.000 millj-
arðar ísl. kr. Þá fann hann að því,
að erlendir fjölmiðlar skyldu oft lýsa
allri álfunni sem einu hörmunga-
svæði og sagði, að vissulega væri
um að ræða stríðsástand og hungur
á afmörkuðum svæðumen aðalóvin-
urinn væri fátæktin.
INGVAR Carlsson ávarpar fund sænskra jafnaðarmanna í gær. Göran Persson var einróma kjör-
inn arftaki Carlssons í formannsembætti Jafnaðarmannaflokksins.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðiö.
INGVAR Carlsson, fráfarandi
forsætisráðherra Svíþjóðar, lét í
gær af embætti formanns sæn-
skra jafnaðarmanna eftir að hafa
haft forystu fyrir flokknum frá
því að Olof Palme var myrtur
fyrir tíu árum.
„Viljið þið kjósa Göran Pers-
son flokksformann," voru full-
trúar á þingi sænskra jafnaðar-
manna spurðir og svarið var ein-
róma ,já“. Persson sagði við
kjörið að hann velti fyrir sér
hvað hann hefði tekið að sér. Það
væri hvorki gleði né léttir, sem
Ingvar
Carlsson
kveður
hann fyndi fyrir, heldur ábyrgð
fyrir að vera valinn til að axla
sinn liluta byrðarinnar. „Þakka
þér, Ingvar, fyrir vel unnin
störf,“ voru síðustu orð Perssons
í þakkarávarpinu.
En áður en Persson var kosinn
virtist hann þegar hafa beðið
fyrsta ósigur sinn fyrir hefðar-
sinnum flokksins, sem horfa
fyrst og fremst til fortíðarinnar.
Þrátt, fyrir viðvaranir Perssons
samþykkti þingið að opinberi
geirinn ætti enn að stækka en
ekki minnka eins og Persson
stefnir að.
Göran Persson tekur við emb-
ætti forsætisráðherra á fiinmtu-
dag í næstu viku.
Frakkland
Unga fólk-
ið heyrn-
arlaust
París. Reuter.
FRANSKA þingið hefur lagt
til, að verulega verði dregið
úr hljóðstyrk svokallaðra
vasadiskótækja en læknar
segja, að þau séu farin að
valda töluverðum heyrnar-
skemmdum, einkum hjá ungu
fólki.
Þingið samþykkti að banna
sölu á tækjum af þessu tagi
væri hljóðstyrkur þeirra um-
fram 100 desíbel en talsmað-
ur stórrar verslanakeðju í
Frakklandi sagði, að flest
tækin kæmust í 113 desíbel
og sum í 126. Glymji 100
desíbela hávaði í eyrunum
getur hann valdið skaða á
nokkrum klukkustundum en
fari hann yfir 115 desíbel,
veldur hann óbætanlegum
skemmdum á nokkrum mín-
útum.
Til samanburðar má nefna,
að vélhjól geta valdið mest
110 desíbela hávaða og þotu-
hreyfill 130.
Samkvæmt lögunum verð-
ur að vera viðvörun á öllum
vasadiskótækjum og einn
þingmannanna, sem stóðu að
frumvarpinu, sagði, að vegna
þessara tækja væri að vaxa
upp kynslóð hálfheyrnarlauss
fólks í Frakklandi.